Morgunblaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 41
ÞAÐ er til fyrirmyndar þegar
fjölmiðlar flytja okkur sögur af
daglegu lífi fólks, sem allajafna fer
ekki hátt í opinberri
umræðu. Fjölmiðlar
velja venjulega sama
fólkið sí og æ til að
tjá sig. Fólk sem er
„viðurkennt“ og hefur
leyfi til að tjá sig um
viðkomandi málefni í
fjölmiðlum. Ég vil
hvetja fjölmiðla til að
gera meira af þessu
og flytja okkur fréttir
af aðstæðum fólks af
öllum stéttum.
Morgunblaðið flyt-
ur slíka frétt á opnu sinni hinn 27.
mars, sem varpar ljósi á sam-
gönguvandann á höfuðborgarsvæð-
inu. Þar er lýst dæmigerðri dag-
legri ferð mæðgna til og frá vinnu
á bíl. Þær eiga heima í Áslands-
hverfinu í Hafnarfirði en vinna í
Verslunarskólanum og á Suður-
landsbraut. Þær eyða talsverðum
tíma í ferðir til og frá vinnu líkt og
margir úthverfabúar í þessu LA,
sem hefur verið skapað á höf-
uðborgarsvæðinu. Þær leggja af
stað kl. 7.20 og eru gjarnan 35–45
mín. á leiðinni í vinnuna á sínum
einkabíl. Á leiðinni eru umferð-
artafir á hringtorgum og gatnamót-
um og ef færð er slæm eða
árekstrar á leiðinni tekur þetta allt
lengri tíma. Greinilegt er að mæðg-
urnar fá þarna ágætis samveru og
veitir svo sem ekki af þegar kyn-
slóðirnar lifa meira og minna að-
skildar. Gallinn er að þetta tekur
tíma, er stressandi, kostar mikið í
rekstri á bíl og rýrir umhverfi okk-
ar allra. Þessu fylgir slysahætta,
loftmengun, hávaði og hreyfing-
arleysi.
Í þessu sambandi langar mig að
benda þeim mæðgum á að gerast
vinir einkabílsins og taka strætó!
Ef slegið er inn í Ráðgjafa, leit-
arvél Strætó bs. á vefnum
www.bus.is, kemur í ljós að ferðin
úr Áslandshverfinu með strætó í
Verslunarskólann tekur um 33 mín.
Þá er miðað við ferð kl. 7.37 frá
Vörðutorgi í Áslandi með vagni nr.
22, skipt í vagn nr. 1 í Firði kl. 7.46
og farið úr honum á Kringlumýr-
arbraut kl. 8.05 við Kringluna og
gengið í Verslunarskólann. Ef farið
er á Suðurlandsbraut er sama leið
farin en skipt úr vagni nr. 1 í vagn
nr. 2 í Hamraborg kl. 8.00 og kom-
ið á Suðurlandsbraut um kl. 8.10.
Þess má geta að skiptingin í
Hamraborg kemur ekki upp í Ráð-
gjafanum enda er hann ekki alveg
100% þótt hann gefi góðar vísbend-
ingar.
Ferðalag þeirra mæðgna í strætó
mundi að öllu jöfnu ekki taka
lengri tíma á annatíma
en ferðalag í bíl og
yrði ódýrara fyrir þær
yfir árið með „skóla-
korti“ Strætó. Fyrir
þær tvær kostar skóla-
kortið: 2 * 27.900 kr =
55.800 kr á ári. Ferða-
lag í bíl árið um kring
kostar miðað við eft-
irtaldar forsendur
u.þ.b.: 13 km * 60 kr/
km * 200 dagar =
156.000 kr. á ári. Þær
gætu sem sagt sparað
sér 100.000 kall yfir árið. Þær
myndu líka sleppa við aftanákeyrsl-
urnar og gætu gluggað í blöðin eða
skólabækurnar á leiðinni heim en
spjallað saman á leiðinni í bæinn.
Í opnunni er einnig lýst núver-
andi og fyrirhuguðum fram-
kvæmdum við umferðarmannvirki á
leið þeirra mæðgna sem eiga að
leysa úr teppunni. Því miður mun
það ekki stytta ferðatíma þeirra
nema tímabundið því það er við því
að búast að með meiri byggð í út-
hverfunum verði þetta ástand við-
varandi í fyrirsjáanlegri framtíð.
Að bæta við umferðarmannvirkin
endalaust er einfaldlega eins og að
pissa í vettlinginn þegar manni er
kalt á höndunum. Það er skamm-
góður vermir. Ef flestir vilja búa í
einbýlishúsi í úthverfi og aka langa
leið í einkabíl á vinnustað og í mat-
vörubúðina verður til samfélag sem
fáum finnst áhugavert að búa í sbr.
lýsingin á ferð mæðgnanna. Getum
við enn snúið við blaðinu hjá okk-
ur?
ÁRNI DAVÍÐSSON
líffræðingur.
Mæðgur á leið í vinnuna
Frá Árna Davíðssyni:
Árni Davíðsson
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Björn S Ingólfsson. Sölufulltr.
S 8600-299, bjorn@remax.is
Björgvin Pétursson. Sölufulltr.
S 8200-747, bjorgvin@remax.is
Rúnar S Gíslason. Hdl og
löggildur fasteignasali.
STJARNAN
RE/MAX Stjarnan kynnir tvö sumarhús
að Lambholti 10 og 12
Opið hús í dag kl. 15-17
Leiðarvísir: Keyra eftir vegi nr. 35 Biskupstungnabraut. Fara inn á veg nr. 351
Búrfellsveg. Keyra framhjá Hitaveitu, þegar komið að Hæðarenda skal fylgja eftir
RE/MAX merkingu. RE/MAX fána. Frá Þingvallavegi nr. 36. Fara inn á veg nr. 351
Búrfellsveg við Ásgarðsland. Fara fram hjá kirkjunni við Búrfell. Þegar komið að
Hæðarenda skal fylgja eftir RE/MAX merkingu. RE/MAX fána.
Takið auglýsinguna með ykkur.
Vandað heilsárshús í landi
Hæðarenda í Grímsnes- og
Grafningshreppi á eins hektara
eignarlóð 91,5 fm. Skilast full-
búið að utan án verandar. Fjarri
umferð á friðsælum stað með
góðu útsýni til Ingólfsfjalls,
Heklu og Eyjafjallajökuls. Hægt er að fá húsin afhent við kaupsamning
og byrja að njóta þess í sumar að vera í sínu eigin sumarhúsi í fallegu
veðri í hjarta suðurlands.
Til sölu heilsárshús á eignarlandi í
Miðengi í Grímsnesi. Húsið er um
70 fm með 35 fm svefnlofti. Stutt í
alla þjónustu svo sem sund og
golf. Verð 19,9 milljónir.
Opið hús laugardaginn 7. apríl frá kl. 13.00 til 16.00.
Nánari upplýsingar hjá Saga fasteignum
eða hjá Markúsi í síma 895 1200.
Opið hús í Grímsnesi
Auglýst er eftir skemmti- og sýningaratriðum fyrir þjóðhátíðarskemmtun
í Reykjavík. Dagskráin fer fram í miðborg Reykjavíkur og stendur hún
frá morgni til kvölds. Gert er ráð fyrir barna og fjölskylduskemmtunum á
sviðum, tónleikum, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppákomum.
Auk hefðbundinna skemmtiatriða er áhugi á hópatriðum og sýningum og
er leitað að leik-, tónlistar-, dans- og öðrum listhópum til að troða upp á
útisviðum og á götunni. Einnig er óskað eftir hópum, félagasamtökum og
öðrum sem vilja standa fyrir eigin dagskrá á sviðum eða í samkomutjöldum
í samráði við þjóðhátíðarnefnd.
Umsóknir um flutning atriða, uppákomur og viðburði er hægt að fylla
út á vefnum www.17juni.is en einnig er hægt að skila þeim í Hitt Húsið,
Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík, á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknar-
frestur rennur út 7. maí n.k.
Skemmtiatriði á 17. júní
Hitt Húsið Sími: 520 4600 17juni@hitthusid.is 17juni.is
www.17juni.is
AUGLÝSING Frjálslynda
flokksins gegn er-
lendu launafólki á
ekki að koma neinum
á óvart. Þingmenn
flokksins gáfu tóninn
svo eftir var tekið í
haust og þeir eru enn
við sama heygarðs-
hornið.
Málflutningur
þeirra kyndir undir
fordómum, ýtir undir
ótta og spillir fyrir
velferð innflytjenda
og flóttafólks hér á
landi. En kjósendur
vita þó að minnsta kosti fyrir hvað
Frjálslyndi flokkurinn stendur.
Í auglýsingunni er með stríðs-
letri spurt hvort við „viljum sitja
uppi með sömu vandamál og aðrar
þjóðir sem hafa leyft óhindraðan
innflutning vinnuafls“. Spurningin
er út í bláinn því Íslendingar leyfa
ekki óhindraðan innflutning vinnu-
afls. Árið 2004 býsnaðist Magnús
Þór Hafsteinsson,
varaformaður Frjáls-
lynda flokksins, mest
yfir því á þingi að rík-
isstjórnin hindraði
innflutning um of. En
nú kveður við nýjan
og heldur ógæfulegan
tón.
Frjálslyndi flokk-
urinn vill beita neyð-
arúrræði EES-
samningsins til að
undanþiggja Ísland
frjálsri för launafólks.
Engin slík skilyrði
eru fyrir hendi. Íslandi yrði taf-
arlaust refsað fyrir einhliða aðgerð
af þessu tagi sem ekki byggist á
neyðarrétti. Mótvægisaðgerðir
annarra aðildarríkja myndu bein-
ast að öllum stoðum fjórfrelsisins,
þ.e. frjálsum flutningi fólks, fjár-
magns, vöru og þjónustu. Við gæt-
um eins sagt upp samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið og
gengið til sjálfsþurftarbúskapar að
nýju. Það yrði afleiðing stefnu
þessara manna.
Auðvitað hefur erlendum starfs-
mönnum hér á landi fjölgað veru-
lega undanfarin misseri. Atvinnu-
lífið hefur þurft á því að halda.
Erlendar ráðningar hafa breytt
þenslu í hagvöxt. Innflytjendur
hér á landi eru ekki atvinnulausir.
Þeir eru ekki byrði á íslensku vel-
ferðarkerfi. Þvert á móti. Erlendir
ríkisborgarar greiddu samtals
6.253 milljónir króna í skatta og
útsvar hér á landi í fyrra og lang-
flestir þiggja lítið frá samfélaginu
á móti.
Í auglýsingu Frjálslynda flokks-
ins segir réttilega að um 11 þús-
und erlendir starfsmenn hafi kom-
ið til landsins árið 2006. Þetta er
tekið úr skýrslu frá Vinnu-
málastofnun. En frjálslyndir setja
punkt þar sem Vinnumálastofnun
setur kommu. Ábendingu um að
ekki séu „svo margir starfandi á
hverjum tímapunkti“ er sleppt.
Stjórnarflokkarnir hafa nú þeg-
ar brugðist við ágöllum sem
Frjálslyndi flokkurinn auglýsir að
séu enn vandamál. Í sömu andrá
og hann varar ranglega við koll-
steypu velferðarkerfisins vegna
innflytjenda bendir hann á að
þrettán hundruð manns búi í
óíbúðarhæfu atvinnuhúsnæði. Í
fyrsta lagi eru þetta ekki allt út-
lendingar. Í öðru lagi er húsnæðið
engan veginn allt óíbúðarhæft þótt
það sé ósamþykkt. Í þriðja lagi
voru sett lög á síðasta degi þings-
ins til að bæta úr þessum vanda.
Enn fremur hefur verið brugðist
við vísbendingum um að erlent
launafólk njóti ekki réttinda sam-
kvæmt kjarasamningum og lögum.
Félagsmálaráðuneytið hefur haft
forgöngu um lög um starfs-
mannaleigur, atvinnuréttindi út-
lendinga og útsenda starfsmenn.
Eftirlit hefur verið hert með að
þeir hafi viðunandi búsetu og
kjarasamningar séu virtir í hví-
vetna.
Íslenskri þjóð stendur ekki ógn
af innflytjendum. Þeir sem bera
hag af því að halda öðru fram eru
á atkvæðaveiðum í gruggugu
vatni.
Frjálslyndar tölur og staðreyndir
Magnús Stefánsson skrifar um
erlent vinnuafl og Frjálslynda
flokkinn
» Íslenskri þjóð stend-ur ekki ógn af inn-
flytjendum. Þeir sem
bera hag af því að halda
öðru fram eru á at-
kvæðaveiðum í
gruggugu vatni.
Magnús Stefánsson
Höfundur er félagsmálaráðherra.