Morgunblaðið - 05.04.2007, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt karlmann á fimmtugs-
aldri til níu mánaða fangels-
isvistar en frestað fullnustu sex
mánaða af refsingunni, fyrir brot
gegn valdstjórninni, þjófnað og
vopnað rán. Honum er að auki
gert að greiða vátryggingafélagi
tæpar 500 þúsund krónur í skaða-
bætur.
Ákæran var í þremur liðum og í
þeim fyrsta var manninum gefið
að sök að hafa hótað tveimur lög-
reglumönnum með hafnabolta-
kylfu í mars á síðasta ári. Í hinum
tveimur var um rán að ræða, ann-
ars vegar í versluninni Gulli og
demöntum þar sem maðurinn
braut rúðu og stal munum upp á
370 þúsund krónur. Hins vegar fór
hann inn í söluturn í Hafnarstræti
og bað um tvo pakka af vindling-
um og sælgæti í poka, í kjölfar af-
hendingar tók maðurinn upp ham-
ar, ógnaði afgreiðslukonu og
heimtaði 10 þúsund krónur úr
sjóðvél. Maðurinn játaði sök en
sagðist ekki muna eftir að hafa
framið vopnað rán – útilokaði það
þó ekki.
Í niðurstöðu héraðsdóms kemur
fram að maðurinn hefur ekki
gerst sekur um refsiverðan verkn-
að áður og var það virt honum til
refsilækkunar. Þótti því ástæða til
að skilorðsbinda dóminn.
Héraðsdómarinn Ásgeir Magn-
ússon kvað upp dóminn. Kolbrún
Benediktsdóttir fulltrúi sótti málið
af hálfu ákæruvaldsins en Sig-
mundur Hannesson hrl. varði
manninn.
Ógnaði með
klaufhamri
SKÓLAGJÖLD í Landakotsskóla
verða lækkuð frá og með byrjun
næsta skólaárs og verða gjöldin
sem hér segir: fyrir nemendur í
fimm ára bekk kr. 8.000 og aðra
nemendur 13.000. Systkinaafsláttur
verður 20% með öðru barni, 50%
með þriðja barni og gjaldfrjálst
verður fyrir fjórða og fleiri börn.
Forsenda lækkananna er ákvörð-
un menntaráðs Reykjavíkur um
verulega aukið framlag borg-
arinnar til einkarekinna grunn-
skóla, segir í foreldrabréfi stjórnar
Landakotsskóla.
Landakotsskóli
lækkar gjöldin
RANNSÓKN sýslumannsembætt-
isins á Selfossi á Byrgismálinu svo-
nefnda er lokið og hafa rannsókn-
argögn verið send ríkissaksóknara.
Samkvæmt upplýsingum frá emb-
ættinu verður á næstunni tekin
ákvörðun um hvort frekari rann-
sókn þurfi eða henni sé að fullu lok-
ið. Ef henni er lokið verður tekin
afstaða til þess hvort málið sé lík-
legt til sakfellis. Miðað er við að
ákvörðun liggi fyrir innan mán-
aðar, ef ekki þarf frekari rann-
sóknar við.
Ákvörðun
innan mánaðar
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
ÍSLENSKAR heilbrigðisstofnanir hafa ekki
ákvæði í innkaupastefnu sem taka á þrælkun
barna við framleiðslu á vörum sem stofnanirnar
kaupa og nota við rekstur sinn, eða önnur slík at-
riði. Framkvæmdastjóri Innkaupastofu heilbrigð-
isstofnana telur einsýnt að litið verði til umræðu
um barnaþrælkun við endurskoðun innkaupa-
stefnu heilbrigðisstofnana. Ekkert bendir til að ís-
lenskir innflytjendur lækningatækja og annarra
rekstrarvara fyrir heilbrigðisstofnanir hafi á boð-
stólum vörur frá löndum þar sem barnaþrælkun
viðgengst.
Fram hefur komið að áhöld sem notuð eru á
dönskum heilbrigðisstofnunum hafa verið fram-
leidd af pakistönskum börnum í þrælkunarvinnu.
Yfirvöld í Danmörku eru að endurskoða innkaup
sjúkrahúsa af því tilefni.
Bjarni Arthursson, framkvæmdastjóri Inn-
kaupastofu heilbrigðisstofnana sem starfar á veg-
um heilbrigðisráðuneytisins, segir að umræða um
að vörur til lækninga séu framleiddar við þessar
aðstæður sé svo ný af nálinni að ekki hafi gefist
ráðrúm til að kanna hvort hún ætti við hér á landi.
Hann segir að enginn vilji styðja barnaþrælkun en
tekur um leið fram að erfitt geti verið að finna út
úr því hvaðan vörur séu komnar.
Valgerður Bjarnadóttir, sviðsstjóri innkaupa og
vörustjórnunarsviðs á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi, segir að umræðan í Danmörku veki
menn til umhugsunar um þessi mál. Hún segir að
öll innkaup fari fram hjá innlendum birgjum og
kveðst hún ekki hafa upplýsingar um að vörur sem
sjúkrahúsið noti séu framleiddar við þær aðstæð-
ur sem rætt er um þar. Hún segir að málið verði
skoðað nánar.
Bjarni Arthursson segir ekki langt síðan heil-
brigðisstofnanir settu sér innkaupareglur. Þær
séu nú í endurskoðun og telur hann einsýnt að litið
verði til þessarar umræðu við það. Bjarni mun
hafa samband við starfsfélaga sína á Norðurlönd-
unum til að afla upplýsinga um stöðu mála þar.
Þrýstingur að austan
Andrés Magnússon, formaður Félags íslenskra
stórkaupmanna, segir að fyrirtæki innan vébanda
FÍS kaupi lækningatæki og hjúkrunarvörur frá
virtum evrópskum og amerískum framleiðendum,
aðallega frá Evrópu. Hann segir fyrirtækin stöð-
ugt fá tilboð frá framleiðendum í Kína og öðrum
Asíulöndum, bæði um kaup á lækningatækjum og
einnota vörum, en þeim sé hafnað. Segir hann
hugsanlegt að grisjur og fleiri einnota vörur komi
að einhverju leyti frá Kína. Eftir könnun sem hann
gerði meðal nokkurra fyrirtækja í gær telur Andr-
és það hafið yfir allan vafa að engin lækningatæki
sem boðin séu til sölu hjá fyrirtækjum hér á landi
komi frá löndum þar sem barnaþrælkun þekkist.
Innkaupin skoðuð nánar
Ekki talið að lækningatæki frá löndum þar sem barnaþrælkun þekkist séu flutt hingað
Engin ákvæði í innkaupastefnu heilbrigðisstofnana sem taka á þrælkun
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
FJÓRÐA kynslóð fjarskiptatækni
verður boðin hér á landi síðar á
þessu ári og verður fyrst í svokall-
aðri fastamóttöku, að sögn Jóhanns
Óla Guðmundssonar, eiganda Wire-
less Broadband Systems (WBS). Með
fastamóttöku er átt við staðbundn-
ari notkun en t.d. farsímanotkun. Jó-
hann keypti nýlega allt hlutafé í
Hive og ætlar að sameina Hive, Atl-
assíma og eMax. Nýja félagið mun
einbeita sér að fjórðu kynslóð fjar-
skipta.
Fjórðu kynslóðartæknin, sem
WBS hefur unnið að þróun á hér og í
Þýskalandi, undir stjórn dr. Sigfúsar
Björnssonar, mun nýta „frjálsar
tíðnir“ neðarlega á tíðnibandinu.
Það á sinn þátt í að fjórðukynslóð-
artæknin á að verða mjög hagkvæm
fyrir neytendur. Fyrirtæki sem nýta
þessar tíðnir þurfa ekki að borga
sérstaklega fyrir afnot af þeim en
verða að hafa fjarskiptaleyfi og lúta
almennum reglum um fjarskipti.
Farsímar af þriðju kynslóð hafa
verið í notkun erlendis um hríð og
eru nú að halda innreið sína hér á
landi. Til að gefa hugmynd um mun-
inn á þriðjukynslóðarfarsíma og
GSM hefur honum verið líkt við þeg-
ar ADSL-tölvutengingar komu í stað
ISDN eða hægari tenginga. Þegar
litið er til þess að fjórða kynslóð fjar-
skipta á að verða tífalt öflugri en sú
þriðja er hægt að ímynda sér þá
byltingu sem nú hillir undir.
Jóhann Óli tók fram að með fjórðu
kynslóð væri ekki einungis átt við
farsíma, heldur heildstæða fjar-
skiptaþjónustu sem nái til dreifingar
sjónvarps, nettenginga og síma. Af-
kastageta fjórðukynslóðarkerfa
anni öllum þessum þáttum fjarskipta
auðveldlega samtímis í miklum gæð-
um. Til dæmis taki örskotsstund að
hlaða niður kvikmyndum og hægt að
horfa á fjölda sjónvarpsrása sam-
tímis auk þess að nota tölvuteng-
ingar.
Hágæðafarsímakerfi (WiFi) hafa
verið notuð í Asíu. Þessi tækni var
fyrst hönnuð sem innanhústækni en
síðar þróuð sem fullgild utanhúss
fjarskiptatækni og þá einungis sem
símatækni. Til er staðall fyrir fjórðu
kynslóð farsíma Mobile-WiMax
802.16e og taldi Jóhann Óli líklegt
að símatækin kæmu á markað öðru
hvorum megin við næstu áramót eða
nokkrum mánuðum á eftir fyrri
hluta fjórðu kynslóðarinnar sem áð-
ur var getið.
FJÓRÐA KYNSLÓÐ FJARSKIPTA VÆNTANLEGA BOÐIN SÍÐAR Á ÁRINU
Morgunblaðið/Kristinn
Bylting Þróunin frá NMT til fjölhæfra fjarskiptatækja af þriðju kynslóð er til marks um þróun sem ekki sér fyrir endann á. Fjórða kynslóðin nálgast óðum.
Hagkvæmari og öflugri
fjarskiptatækni í örri þróun
Í HNOTSKURN
»Fyrsta kynslóð þráðlausrafjarskiptatækja var hlið-
ræn líkt og NMT-símarnir.
»Önnur kynslóð var stafræn(GSM) en með takmarkaða
gagnaflutningsgetu. 2,5 kyn-
slóðin hefur meiri gagnaflutn-
ingsgetu (GPRS og EDGE).
»Þriðja kynslóð (IMT-2000og UMTS) hefur mun
meiri gagnaflutningsgetu og
getur því flutt myndstrauma á
borð við sjónvarp, myndsímtöl
og auðveldar netsamskipti.
»Fjórða kynslóð fjarskiptaflytur gögn tífalt hraðar
en þriðja kynslóðin gerir.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ÞRJÁR misalvarlegar líkamsárásir hafa verið
gerðar í vikunni og í tveimur tilvikum virðist
sem ekkert tilefni hafi verið auk þess sem þær
áttu sér stað um bjartan dag. Síðdegis á
sunnudag var ráðist á fatlaðan mann í Austur-
stræti og af honum tekinn farsími, á þriðjudag
var svo ráðist að ungu pari þar sem það beið
eftir strætó. Auk þess er við hæfi að minnast á
hrottalega tilefnislausa árás sem átti sér stað á
nýársnótt í Reykjavík, þar sem þrír piltar mis-
þyrmdu tveimur mönnum, en annar þeirra
höfuðkúpubrotnaði.
Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði
og afbrotafræðingur við Háskóla Íslands, seg-
ist ekki telja að um neina einhlíta skýringu sé
að ræða á slíku athæfi og segist ekki merkja að
um hrinu tilefnislausra árása sé að ræða.
„Ef maður skoðar svona mál almennt sér
maður að ekki er um fjölgun á þeim að ræða,
fremur fækkun,“ segir Helgi. „En eðli þessara
mála er að þetta stingur í augu þar sem engin
sjáanleg ástæða er fyrir brotinu, heldur fyrst
og fremst ófyrirleitni. Maður hlýtur að staldra
við svona dæmi sem erfitt er að skilja og velta
fyrir sér þessu umhverfi sem ungt fólk er í,
þessu áreiti, efnishyggju og sérhyggju svo
eitthvað sé nefnt.“
Helgi vill þó ekki gera of mikið úr þessu,
t.a.m. með tilliti til almennrar þróunar ef borið
er saman við fyrri ár. „Þróunin og hlutirnir eru
á leið til hins betra, þetta verður aldrei full-
komið en í það heila eru hlutirnir betri en þeir
voru fyrir tíu árum – og það er þveröfugt við
það sem talað er um. Núna eru menn sér betur
meðvitandi um rétt sinn og eru viljugri til að
kæra, og þrátt fyrir það er kærum að fækka.“
Ekki um fjölgun að ræða – fremur fækkun
Afbrotafræðingur segir enga eina skýringu á til-
efnislausum árásum – þeim fari þó ekki fjölgandi
Morgunblaðið/Sverrir
Helgi segir menn meðvitaðri um rétt sinn í
dag en fyrir tíu árum og fljótari til að kæra.