Morgunblaðið - 05.04.2007, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 9
FRÉTTIR
! Laugavegi 63 • S: 551 4422
Vorlínan
í yfirhöfnum
Opið á laugardaginn
frá kl. 10-15
ÚTFÖR Þráins Guðmundssonar, fyrrverandi forseta
Skáksambands Íslands, var gerð frá Grafarvogskirkju í
gær að viðstöddu fjölmenni. Séra Vigfús Þór Árnason
jarðsöng. Kistuna báru úr kirkju Friðrik Ólafsson stór-
meistari (lengst til vinstri), Einar S. Einarsson, fyrrver-
andi forseti Skáksambandsins, Jón L. Árnason stór-
meistari, Helgi Ólafsson stórmeistari, Guðmundur
Magnússon, fyrrverandi fræðslustjóri (fremstur til
hægri), Guðmundur G. Þórarinssoon, fyrrverandi for-
seti Skáksambandsins, Jóhann Hjartarson stórmeistari
og Áskell Örn Kárason, fyrrverandi forseti Skák-
sambandsins.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Útför Þráins Guðmundssonar
UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur
beint þeim tilmælum til mennta-
málaráðuneytisins að það breyti
stjórnsýsluframkvæmd sinni og geri
viðeigandi ráðstafanir til að rétta
hlut þeirra framhaldsskólanema sem
hafa þurft að bera kostnað vegna
náms við tónlistarskóla.
Umboðsmaður kemst að þeirri
niðurstöðu í áliti frá 2. apríl að ríkið
hafi ekki fullnægjandi lagaheimild til
að skipuleggja starf framhaldsskóla
ríkisins með þeim hætti að gera
nemendum að greiða fyrir tónlistar-
nám sem þeir sæki til sérstakra tón-
listaskóla þegar tónlistarnámið
myndi hluta af því námi sem þeir
hefðu valið í viðkomandi framhalds-
skóla.
Umboðsmaður fékk kvörtun frá
tveim aðilum vegna ákvarðana um
skilyrði sem sveitarfélög höfðu sett
um kostnaðarþátttöku í tónlistar-
námi í tónlistarskólum og var athygli
umboðsmanns vakin á stöðu þeirra
framhaldsskólanemenda sem stunda
nám á námsbrautum þar sem þeir
þyrftu m.a. að ljúka ákveðnum ein-
ingafjölda í tónlistarnámi ef þeir ætl-
uðu að útskrifast af viðkomandi
námsbraut.
Umboðsmaður bendir á að um
framhaldsskóla og þjónustu þeirra
gildi sú almenna regla stjórnsýslu-
réttarins að til þess að þeir sem nytu
þjónustu stofnunarinnar yrðu krafð-
ir um fégjald eða greiðslu fyrir hana
yrði að vera lagaheimild til þess. Líta
þyrfti til þeirra grunnreglna sem
leiddu af stjórnarskrá og alþjóðleg-
um skuldbindingum sem ríkið hefði
undirgengist á þessu sviði.
Borgi ekki sjálfir
Menntamálaráðuneytið komi til móts við kostnað fram-
haldsskólanema í tónlistarskólum að áliti umboðsmanns
Blönduós | FERÐ fjögurra ungra
Breta á leið sinni suður yfir hálendið
á skíðum lauk á áttunda degi, mun
fyrr en þeir ætluðu. Mennirnir lögðu
af stað upp úr Eyjafirði 28. mars og
gerðu ráð fyrir því að koma til
byggða við Gullfoss þann 9. apríl.
Björgunarsveitirnar í A-Húna-
vatnssýslu komu að björgun fjór-
menninganna í gær. Þeir stóðu þá
frammi fyrir Blöndu í öllu sínu veldi,
gjörsamlega ófærri, norðaustur af
Hofsjökli neðan við Blöndukvíslar,
líklega nálægt Eyfirðingakvísl.
Bretarnir sem á hálendið lögðu
eru góðir vinir og skólafélagar og
stunda nám við háskólann í Swansea
á Bretlandi. Eins og fyrr greinir
lögðu þeir upp úr Eyjafirði þann 28.
mars og gerðu ferðaáætlun í samráði
við íslenskar björgunarsveitir. Fyrst
í stað gekk allt vel, í Laugafell, en úr
því fór að syrta í álinn.
Krapi og mjög erfitt færi
Að sögn þeirra félaga var ferðin úr
Ingólfsskála norðan Hofsjökuls í
Hveravelli afar erfið, því þar sem
þeir áttu von á snjó var krapi og mjög
erfitt færi. Ár sem á vegi þeirra urðu
voru illfærar og kom fyrir að þeir
sukku í vatn upp undir háls. Vegna
þessa sögðu þeir að sér hefði nánast
alltaf verið kalt og færið þess
valdandi að vegalengd sem átti að
taka tvo daga varð að fjögurra daga
torleiði. Þeir félagar voru vel útbúnir
og höfðu meðal annars með sér gervi-
hnattarsíma og voru í sambandi við
tengilið í Reykjavík sem gerði björg-
unarsveitum í A-Húnavatnssýslu við-
vart um að hjálpar væri þörf.
Íslandsferðin mikil áskorun
Aðspurðir hvernig þeim hefði dott-
ið í hug að koma til Íslands og takast
á við hálendið sögðu þeir það vera
mikla áskorun en snjóleysið og hlý-
indin hefðu verið þeirra helsti óvinur.
Björgunarsveitirnar á Blönduósi og
Skagaströnd komu með þá félaga á
Blönduós um klukkan hálfsjö í gær-
kvöldi og héldu þeir ferð sinni áfram
til Reykjavíkur með áætlunarbifreið.
Mennirnir, sem heita Sebastian, Ga-
reth, David og Graham voru óbug-
aðir og heilir heilsu þegar þeir héldu
frá Blönduósi og var þeim ofarlega í
huga þakklæti til þeirra ágætu
manna sem stóðu að björgun þeirra.
Stóðu frammi
fyrir Blöndu í
öllu sínu veldi
Fjórum breskum
ferðalöngum
bjargað úr háska
Jón Sigurðsson
VÍS hefur gengið til samstarfs við
Borgarleikhúsið um uppsetningu á
söngleiknum Gretti og var sam-
starfssamningur undirritaður á
stóra sviði Borgarleikhússins sl.
þriðjudag að viðstöddum listamönn-
um sýningarinnar. Guðjón Pedersen
leikhússtjóri sagði við það tilefni að
ánægjulegt væri að fá svo stöndugt
fyrirtæki sem VÍS er til að styðja við
uppfærsluna á Gretti. Hafði hann á
orði að leikhúsið gæti þurft á VÍS að
halda til að tryggja leikarana en eins
og allir vita fékk Halldór Gylfason,
sem leikur Gretti sjálfan, grettistak í
bakið í síðustu viku sem varð til þess
að fresta þurfti frumsýningunni.
Ásgeir Baldurs, forstjóri VÍS,
lýsti mikilli ánægju með að fá tæki-
færi til að taka þátt í þessu verkefni.
Hann sagðist bíða spenntur eftir að
endurnýja kynnin við Gretti.
Ásgeir Baldurs og Guðjón Peder-
sen leikhússtjóri undirrituðu sam-
starfssamninginn.
VÍS og Borgarleik-
húsið í samstarf