Morgunblaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MILLILANDAFLUG um Keflavík- urflugvöll jókst um 10% á fyrsta ársfjórðungi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Flugvélum í al- mennu flugi fjölgaði um 15% en við- koma herflugvéla hefur minnkað lítillega þegar frá eru taldar her- flugvélar í millilandaflugi tengdu varnarliðinu á síðasta ári. Farþega- fjöldi jókst á sama tíma um tæp 11% eða úr 121 í 135 þúsund og vöru- flutningar um 1,4%. Gistinóttum á hótelum í febrúar fjölgaði um 14% milli ára. Þeim fjölgaði í öllum landshlutum nema á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem þeim fækkaði um 9%, úr 5.600 í 5.100. Aukningin var hlutfallslega mest á Austurlandi þar sem gisti- nætur ríflega tvöfölduðust, fóru úr 900 í 1.900 milli ára. Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um 2.000, úr 4.700 í 6.700 (42%). Á Norðurlandi nam fjölgunin 14% í febrúar, en fjöldi gistinátta fór úr 2.900 í 3.300 milli ára. Gistinætur á hótelum á höfuðborgarsvæðinu voru 46.400 í febrúar síðastliðnum en voru 41.700 í sama mánuði árið 2006 og fjölgaði þar með um tæplega 4.700 nætur, eða 11%. Gistinóttum Íslend- inga fjölgaði um 6% og útlendinga um 17%, en gistinætur þeirra voru um 70% af heildarfjölda gistinátta á hótelum. Morgunblaðið/Jim Smart Farþegar Millilandaflug um Keflavíkurflugvöll jókst um 10% á fyrsta árs- fjórðungi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Gistinóttum fjölgaði líka. Flug um Keflavíkurflugvöll jókst um 10% í upphafi árs SAMKVÆMT bráðabirgðauppgjöri Sjúkrahússins og heilsugæslustöðv- arinnar á Akranesi fyrir janúar og febrúar er rekstrarhalli ríflega 9 milljónir króna eða 4,1% af heildar- tekjum. Ástæða er til að ætla að rekstrarvandinn aukist enn eftir því sem á árið líður og verði að óbreyttu a.m.k. 50 milljónir í árs- lok, segir á heimasíðu SHA. Ítrekuðum beiðnum um næg framlög úr ríkissjóði til að halda uppi óbreyttri þjónustu hefur verið hafnað. Þetta mun óhjákvæmilega leiða til samdráttar í starfseminni. Þannig verður kostnaðarsömum þáttum, s.s. liðskiptaaðgerðum fækkað um allt að þriðjung en þær voru á síðasta ári 130 talsins. Frá miðjum júní verða lyflækningadeild og handlækningadeild sameinaðar og starfræktar í allt sumar sem ein deild samhliða kvennadeild. Starfs- mannaráðningum, búnaðarkaup- um, verklegum framkvæmdum og viðhaldi verður haldið í lágmarki og skotið á frest ef þess er kostur. Morgunblaðið/Kristinn Benediktss Kirkjan á Akranesi Samdráttur NÝJU útvarpslögin eru komin til framkvæmda. Holl- vinasamtök Ríkisútvarpsins harma það sem nú er orðið, að Ríkisútvarpinu hefur verið breytt í hluta- félag. Með því hefur það verið fært of nærri lög- málum markaðsins og kröfum hans um arðsemi, sem það ætti í raun að vera hafið yfir, segir meðal annars í ályktun stjórnar Hollvinasamtaka Ríkisútvarpsins. „Full ástæða er til að ætla að með þessari breyt- ingu hafi verið búið í haginn fyrir sölu útvarpsins síðar meir. Tryggja þarf með varanlegum og óyggj- andi hætti að útvarpið gangi aldrei úr eigu þjóðarinnar en samtökin óttast að næsta skref verði að selja Rás 2, vígi íslenskrar dæg- urtónlistar. Þá vakna grunsemdir um að nefskattinum, sem ætlað er að standa undir rekstrinum, sé ætlað að baka útvarpinu óvinsældir svo auðveld- ara reynist að selja það,“ segir m.a. í áyktuninni. Hollvinir harma útvarpslögin LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu handtók átján ára pilt á tann- læknastofu í Reykjavík aðfaranótt miðvikudags en þangað hafði hann brotist inn í verðmæta- og lyfjaleit. Einnig braust maður inn í apótek í Austurborginni og er það mál til rannsóknar hjá lögreglu. 18 ára í lyfjaleit SEX fíkniefnamál komu upp á höf- uðborgarsvæðinu á þriðjudags- kvöld og aðfaranótt miðvikudags. Í flestum tilvikum var um að ræða smáræði af kannabisefnum en í einu tilviki fannst töluvert magn af hassi og amfetamíni. Brotamenn voru flestir á þrítugsaldri. Sex fíkniefnamál ALLIR starfs- menn Þróun- arsam- vinnustofnunar Íslands með að- setur erlendis hafa nú fengið páskaegg frá Ís- landspósti. Egg- in 20 voru send til Afríku, Asíu og Suður- Ameríku. Alls voru send út 20 Nóa Siríus- egg og fóru þau til Malaví, Nami- bíu, Mósambík, Úganda, Sri Lanka og Níkaragúa. Eggin voru send með TNT-hraðþjónustu Ís- landspósts og komust þau til skila á um fjórum sólarhringum. Lifðu af hita, hnjask og þúsundir kílómetra. Um heim allan Rúnar Atli Wiium með sendinguna. og í mars. Niðurstaðan er að verð lækkaði í öllum verslunum. Mest var lækkunin í Krónunni, 11%, Næst- mest í Bónus, 7,6%, Kaskó, 7,4% og minnst í Nettó, 6,4%. Frá desember til febrúar hækkaði verð mest í Krónunni, eða 2,2%, en minnst í Bón- us, 0,2%. ASÍ kannaði einnig verð í fleiri verslunum og verða niðurstöðurnar birtar eftir páska. ASÍ ætlar að fylgjast áfram með verðlagi í versl- unum næstu vikur og mánuði. TAFLA sem birt var í Morgun- blaðinu í gær með frétt um verðsam- anburð sem ASÍ gerði í lágvöru- verðsverslunum var röng vegna mistaka sem gerð voru við vinnslu töflunnar. Taflan er því birt að nýju eins og ASÍ sendi hana frá sér. Taflan sýnir hversu mikið verð lækkaði hlutfallslega eftir að stjórn- völd lækkuðu virðisaukaskatt á mat- vælum, en lækkunin tók gildi 1. mars sl. Verðlagseftirlit ASÍ fylgdist með verðbreytingum í desember, febrúar Rangar tölur í töflu ( ) # * +#, - -)) .  )/  01 2 ) / 3 )2$ &    //-) - / )    !"  #!"    4  $5! )/ & 6 $7/8 /87  $ + '  '  ' +  +  + + + + + ' +  + ' + ' +  + + + $7/8 /87  %   '    +   ' +  ' +  +  +  ' + + + + +  ' +  + + $7/8 /87  %  ' +  ' +  '   +  +  +  +  + + ' + ' + ' +  + +  ' $7/8 /87  &  '  '  '  '  ' + ' +  ' +  + + +  ' + + ' + +  + +  + TÍU aðilar lýstu yfir áhuga á að kaupa eignarhlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja hf. Ríkið á í dag 15,203% hlut í Hitaveitu Suðurnesja. Þeir sem sendu inn tilboð eru: Askar Capital hf., Atorka Group hf., Base ehf., Geysir Green Energy ehf., Impax New Energy Investors LP (breskur sjóður sem fjárfestir í end- urnýjanlegri orku.), Norvest ehf., Óstofnað félag í eigu starfsmanna HS og Sparisjóðs Keflavíkur o.fl., Óstofnað félag í eigu Landsbanka Ís- lands hf., Harðar Jónssonar og Arn- ar Erlingssonar, Óstofnað félag í eigu Gnúpverja ehf., Hvatningar ehf. Kaupfélags Suðurnesja svf., Nes- fisks ehf. og Vísis hf. og Saxbygg ehf. Í fréttatilkynningu segir að þessir aðilar uppfylli þau skilyrði sem sett voru í auglýsingu. Á næstu dögum og vikum verður aðilum gefinn kost- ur á frekari kynningu á fyrirtækinu, ásamt upplýsingum um söluferlið. Frestur til þess að skila inn bindandi verðtilboði hefur verið ákveðinn til 30. apríl nk. Verða tilboðin opnuð þann dag að viðstöddum bjóðendum og þeim fjölmiðlum sem þess óska. Vilja kaupa hlutinn í HS UNDANFARNA mánuði hefur menntamálaráðuneytið unnið að skipulagi og framkvæmd viðurkenn- ingarferlis háskóla hér á landi. Kveð- ið er á um það í lögum um háskóla, sem samþykkt voru á síðasta ári, að allir háskólar skuli hafa öðlast við- urkenningu á starfsemi sinni innan tveggja ára frá gildistöku laganna. Birt hefur verið auglýsing um við- mið um æðri menntun og prófgráð- ur. Þar er byggt á viðmiðum sem gefin hafa verið út í tengslum við Bologna-ferlið og gerir íslenskum háskólum kleift að laga sig enn frek- ar að sameiginlegu evrópsku há- skólasvæði þar sem afrakstur náms er grunnurinn að samanburði milli stofnana og ríkja. Mikil áhersla hef- ur verið lögð á að tryggja trúverð- ugleika ferlisins og að hann uppfylli alþjóðlega gæðastaðla. Eftirlit með gæðum kennslu og rannsókna verður tvíþætt. Annars vegar skal ytra eftirlit með kennslu og rannsóknum beinast að því að ganga úr skugga um hvort forsendur viðurkenningar séu enn til staðar. Hins vegar verður það leiðbeinandi fyrir skólana um hvernig megi bæta kennslu og rannsóknir. Framkvæmd viðurkenninganna verður tvískipt. Náttúruvísindi, hug- vísindi, verk- og tæknivísindi ásamt listum verða tekin fyrir á vormán- uðum og þær stofnanir sem sækjast eftir viðurkenningu á þessum svið- um skiluðu inn umsókn 1. mars. Skipað hefur verið í fjórar af sjö nefndum sérfræðinga sem munu skila umsögn um hæfi háskólanna á fræðasviðum og undirflokkum þeirra til menntamálaráðherra. Við nefndaskipanina var leitast eftir að fá til verksins færustu einstaklinga sem völ er á. Leitað var eftir tilnefn- ingum hjá viðurkenndum matsstofn- unum í Evrópu og Bandaríkjunum. Gerðar voru kröfur um að viðkom- andi sérfræðingar hefðu reynslu af viðurkenningum og gæðastarfi á há- skólastigi ásamt víðtækri reynslu af stjórnun háskólastofnana, ásamt prófessorshæfi innan fræðasviðs. Setja viðmið um kröfur til háskólanáms á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.