Morgunblaðið - 05.04.2007, Side 36

Morgunblaðið - 05.04.2007, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. SKYLDA TIL AÐGERÐA Í LOFTSLAGSMÁLUM Úrskurður hæstaréttar Banda-ríkjanna um að umhverfisstofn-un Bandaríkjanna, EPA, beri í raun skylda til að stemma stigu við los- un koldíoxíðs og annarra gróðurhúsa- lofttegunda markar tímamót. Hæsti- réttur snýr sönnunarbyrðinni við í dómi sínum og segir að umhverfisstofnunin verði að sýna fram á að lofttegund valdi ekki skaða ætli hún ekki að beita sér fyr- ir því að dregið verði úr losun. Að öðrum kosti verði hún að beita sér fyrir aðgerð- um til að draga úr losuninni. Stofnunin hefur í raun ekki heimild til aðgerða- leysis nema að hafa fyrir því gild rök. Þessi úrskurður hefur líkast til vakið litla kátínu í Hvíta húsinu. George Bush Bandaríkjaforseti og stjórn hans hafa eins og kemur fram í fréttaskýringu Kristjáns Jónssonar í Morgunblaðinu í gær markvisst beitt sér gegn því að setja hömlur á losun svokallaðra gróð- urhúsalofttegunda, til dæmis með því að setja kvaðir á bílaframleiðendur. Hann hefur heldur ekki viljað fara eftir Kyoto-bókuninni á þeirri forsendu að það sé gagnslaust á meðan Kínverjar og Indverjar séu óbundnir af henni. Þessi úrskurður gæti haft mikil áhrif í umhverfisverndarmálum í Bandaríkj- unum. Hann gæti leitt til þess að um- hverfisverndarsinnar reyni nú í auknum mæli að fara dómstólaleiðina til að knýja stjórnvöld til aðgerða þar sem þau hafa verið treg til. Hann gæti einnig haft í för með sér að það drægi úr tregðu stjórn- valda til að setja mörk við útblæstri og annarri mengun, sem sýnt þykir að sé skaðleg umhverfinu. Þessi úrskurður gæti einnig haft áhrif út fyrir Bandaríkin, hvort sem þau verða réttarfarsleg eða hugarfarsleg. Til dæmis mætti velta því fyrir sér hvort fótur væri fyrir því hér á landi að ein- staklingar á Íslandi færu í mál við ríki eða borg til að knýja fram aðgerðir til að draga úr svifryki og mengun af völdum þess. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra segir í Morgunblaðinu í dag að hún líti svo á að niðurstaðan sé mikil tíðindi og fagnaðarefni. Aðstæður hér séu hins vegar ólíkar þar sem Íslendingar séu þátttakendur í Kýótó-samstarfinu og starfi Sameinuðu þjóðanna í þessum málum, öfugt við Bandaríkjamenn. Árni Finnsson, formaður Náttúru- verndarsamtaka Íslands, bendir á að hér noti menn fremur réttarkerfið til að verja rétt sinn en sækja fram. Hann segir þó að fari svo að menn álíti að væntanleg úthlutunarnefnd, sem sam- kvæmt nýsettum lögum eigi að úthluta losunarkvóta fyrir koltvísýring, túlki lögin of frjálslega og veiti fyrirtækjun- um of mikið ráðrými, geti farið svo að nýjar leiðir verði íhugaðar. Vonandi verður úrskurður hæstarétt- ar Bandaríkjanna til þess að stjórnvöld víða um heim, hvort sem það er í Banda- ríkjunum eða á Íslandi, geri sér grein fyrir að þau hafi ekki bara heimild til að bregðast við þeirri óumdeildu vá, sem blasir við í umhverfismálum, heldur beri þeim skylda til þess, og almenningi ber skylda til að veita þeim aðhald, hvort sem réttarkerfið verður bakhjarl hans eða ekki. ÁKVÖRÐUN ÍRANA Það hefur verið fróðlegt að fylgjastmeð deilu Írana og Breta eftir að Íranar tóku 15 brezka sjóliða höndum og sögðu að þeir hefðu verið í ír- anskri landhelgi. Bretar kröfðust þess að sjóliðarnir yrðu látnir lausir þegar í stað og sögðu að þeir hefðu verið í landhelgi Íraks. Íranar sögðu, að þeir mundu láta sjóliðana lausa ef Bretar legðu fram afsökunarbeiðni vegna þessa atburðar. Eftir að deilan hafði staðið í nokkra daga blandaði Bush Bandaríkjaforseti sér í málið og krafðist þess að brezku sjóliðarnir yrðu látnir lausir. Nú er auðvitað ljóst, að hafi brezku sjóliðarnir verið í landhelgi Írana höfðu hinir síðarnefndu fullan laga- legan rétt til að handsama þá. Eftir því sem bezt verður vitað hafa Bretar ekki lagt fram óyggjandi gögn um staðsetningu sjóliðanna en það hafa Íranar raunar heldur ekki gert. Hvers vegna ekki? Ef Bretar telja sig hafa verið í fullum rétti, hvers vegna hafa þeir ekki lagt fram gögn þar um? Er hugsanlegt að hið gamla ný- lenduveldi líti svo á, að það sem Bret- ar sjálfir mundu telja sjálfsagt ef ein- hver væri að brjóta á þeirra lögsögu geti Íranar ekki gert kröfu um með sama hætti? Er tvöfalt siðgæði hér á ferð? Er Bush Bandaríkjaforseti að segja, að aðrar þjóðir megi ekki gera það sem Bretar og Bandaríkjamenn telja sjálfsagt að þeir geri? Það er snjall leikur hjá Írönum að láta brezku sjóliðana lausa. Með því eru þeir að vekja athygli Vesturlandaþjóða á því, að það eru ekki bara hryðjuverkamenn, sem búa í Íran. Það er vel menntuð og upplýst þjóð, sem á sér merka sögu. Og þessi þjóð kemur ekki fram við brezku sjó- liðana eins og hryðjuverkamenn mundu gera heldur eins og siðaðri þjóð sæmir. Og meira að segja spurning um hvort Íranar koma kannski betur fram við Breta í þessu máli en Bretar sjálfir, geti ríkisstjórn Blair ekki sýnt fram á það með óyggjandi hætti, að sjóliðarnir hafi verið utan lögsögu Írans. Það hefur verið lærdómsríkt að fylgjast með þessari deilu. Það eru Íranar, sem standa með pálmann í höndunum eftir þessi átök en ekki Bretar. Það eru írönsk stjórnvöld, sem taka ákvörðun um að láta þetta mál ekki koma niður á brezku sjólið- unum sem einstaklingum. Kannski segir þetta mál okkur þá sögu að það sé orðið tímabært að horfa á deilur og átök þjóða út frá fleiri sjónarhornum en hinu engilsax- neska. Að það geti verið að stundum hafi aðrar þjóðir rétt fyrir sér og það séu ekki bara einhverjir ofstækisfull- ir villimenn á ferð í ríkjum á borð við Íran. Í þessu máli hafa Íranar skákað Bretum og Bandaríkjamönnum. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is ÚRSKURÐUR hæstaréttar Bandaríkjanna í vikunni um að EPA, umhverfisstofnun alríkis- stjórnarinnar, eigi að berjast gegn losun gróðurhúsalofttegunda eins og annarri mengun, er sögð geta hleypt af stað nýjum málshöfðun- um vestra, m.a. til að hamla gegn losun frá orkuverum og verksmiðj- um. En hefur niðurstaðan áhrif hér á landi, verður hún fordæmi? Jónína Bjartmarz umhverfisráð- herra segir að niðurstaðan sé mikil tíðindi og fagnaðarefni, hún muni án efa styrkja mjög þá þróun sem sé að verða í átt til baráttu gegn losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum almennt. En aðstæður hér séu ólíkar, við séum þátttak- endur í Kýótó-samstarfinu og starfi Sameinuðu þjóðanna í þess- um málum en Bandaríkjamenn ekki. Hún minnir á að nú hafi verið sett fyrstu lögin á Íslandi sem taki á losun gróðurhúsalofttegunda og þau ákveði losunarreglur fyrir árin 2008–2012. Hnattræn barátta „Baráttan gegn losun gróður- húsalofttegunda verður að vera hnattræn og við erum með nýju lögunum að tryggja að við stöndum við þjóðréttarlegar skuldbindingar okkar,“ segir Jónína. Skipuð verð- ur fljótlega í samræmi við nýju lög- in nefnd til að úthluta leyfum til að losa hér gróðurhúsalofttegundir. loftslagsverkefni samtakann fékk á sínum tíma norræn ve en þar er bent á fjölmargar l að draga úr losun gróðurhú tegunda og einnig aðferðir binda kolefni í jörð. Einn verkefnið Vistvernd í verki að því að efla lífsstíl sem álag á umhverfið og þá einni gróðurhúsalofttegunda. vernd hafi m.a. rekið áróðu hreyfilhiturum sem notaðir að hita upp bílvélar að næ áður en ekið er af stað á k morgnum og minnka þanni neytisnotkun. Árni Finnsson, formaður úruverndarsamtaka Íslands aðstæður og hefðir aðrar landi en í Bandaríkjunum, h Hún segir að verksvið hennar verði skýrt, slegið sé föstu í lögunum hvað sé til úthlutunar. Fyrirtæki sem fari fram yfir takmörkin verði að bæta fyrir það með því að kaupa sér mengunarheimildir eða fara út í landgræðslu og skógrækt, þau verði að tryggja að heildarlosunin sé innan þeirra marka sem lögin kveða á um. „Ég á erfitt með að sjá fyrir mér að félagasamtök fari að standa í málarekstri af þessu tagi hér,“ seg- ir Bergur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Landverndar. „Við höfum fremur notað þá aðferð að vera með leiðbeinandi ábendingar og mér sýnist að sumar af þessum ábendingum hafi ratað inn í stefnu stjórnvalda.“ Bergur minnir á Fagna dómi í Was Jónína Bjartmarz „Baráttan gegn losun gróðurhúsaloftteg- unda verður að vera hnattræn.“ Bergur Sigurðsson „Höfum fremur notað þá aðferð að vera með leiðbeinandi ábendingar“ Árni Finnsson „ Nýju lögin eru ræð framför en skortir samt nok framtíðarsýn.“ Talið ólíklegt að íslenskir náttúruverndarsinnar fari a urhúsalofttegundum þótt það hafi borið góðan árangu FJÖLMARGIR munu leggja land undir fót þessa páska og virðist sem straumurinn stefni í tvær áttir; á Ísafjörð og Akureyri. Hjá lögregluembættum fyrir vestan og norðan var það að frétta í gær að fólk væri fyrr á ferð en búist var við, en reiknað er með holskeflu í dag og á morgun. Ljóst er að af nógu verður af taka þegar að skemmt- unum kemur því á báðum stöðum er boðið upp á skemmtilega dagskrá. „Það keyra allir framhjá húsinu mínu sem eru á leið til Ísafjarðar og ég sé beint út um gluggann að það er miklu meiri umferð í dag en venjulega,“ sagði tónlistarmaðurinn góð- kunni Örn Elías Guðmundsson, sem í dag- legu tali er oftast nefndur Mugison, um miðjan dag í gær. Örn Elías er einn af þeim sem halda utan um rokkhátíð alþýðunnar en svo hefur tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suð- ur verið nefnd. Hátíðin fer fram á Ísafirði um helgina og mun án efa draga að sér margan ferðalanginn enda eftir nógu að slægjast – nærri fjörutíu hljómsveitir, eng- inn aðgangseyrir – og hátíðin sú stærsta hingað til. Örn Elías segir hátíðina leggjast vel í bæj- arbúa og segir Vestfirðinga almennt mikla rokkara. „Helgi Björnsson og Rafn Jónsson eru héðan og slógu eiginlega tóninn,“ segir Örn og tekur fram að ekki sé um útihátíð að ræða heldur mæti fólk til að uppgötva nýja tónlist og hlusta á þá sem það hefur áður uppgötvað. Fjölbreytt dagskrá í kringum skíðavikuna Flugsamgöngur til Ísafjarðar gengu brösu- lega til að byrja með í gær vegna hvassviðris í Skutulsfirði og var brugðið á það ráð að fljúga fyrstu vélinni til Þingeyrar. Síðdegis komst flug á áætlun og reiknað er með að fjórar vélar fljúgi til Ísafjarðar í dag og þrjár á morgun. Að sögn starfsmanns Flugfélags Íslands eru allar vélarnar vel bókaðar. En það er ekki aðeins tónlist sem gestir Ísafjarðar fá að njóta því einnig er í bænum skíðavikan og fjölbreytt dagskrá í tengslum við hana. Vikan var sett í gær með sprett- göngu Núps, sem fram fer í miðbænum, og gert er ráð fyrir að opið verði á skíðasvæð- inu í Tungudal næstu daga þrátt fyrir að töluvert hafi tekið upp af snjó. Þá er nægur snjór á göngusvæði á Seljalandsdal. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði er búist við metfjölda af fólki um páskana og verður því mikill viðbúnaður við- hafður. Eini óvissuþátturinn á Ísafirði um páskana er í raun veðrið. Í dag og á morgun má búast við vægu frosti og lítilli sem engri úrkomu en í spánni fyrir laugardag er nokk- uð djúp l henni töl hærra hi muni tey Mikið u Einnig e manna á um að ve arfjall ve þess sem hjá Leik verður a Þá ver húsin þa Ferðafólk virðist fle leið til Ísafjarðar og Við endalínuna Skíðavikan á Ísafirði var sett í gær með æsispennandi. Mikið af ferðafólki er á Ísafirði og væntan Eftir Andra Karl andri@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.