Morgunblaðið - 05.04.2007, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 47
✝ Rögnvaldur Þor-steinn Guð-
laugur Ólafsson, eða
Valdi rakari eins og
hann var yfirleitt
kallaður, fæddist á
Siglufirði 10. desem-
ber 1919. Hann lést
25. mars síðastlið-
inn. Hann var sonur
hjónanna Ólafs
Kristins Gottskáls-
sonar frá Húns-
stöðum, f. 11. febr-
úar 1887, d. 4.
nóvember 1958 og
Ólínu Sigríðar Björnsdóttur frá
Akureyri, f. 14. júlí 1887, d. 5. júlí
1949.
Rögnvaldur lærði hárskeraiðn á
Siglufirði hjá Jónasi rakara og var
hann einnig fjölhæfur íþróttamað-
ur. Rögnvaldur flutti til Sauð-
árkróks 1946 og þar kynntist hann
maí 1950, dætur þeirra eru tvær,
Dóra Ingibjörg (Valgarðsdóttir) og
Sigríður Ingibjörg. 4) Magnús
Halldórsson Rögnvaldsson, f. 19.
ágúst 1952. Kona hans Sigríður
Valgarðsdóttir, f. 3. mars 1954,
börn þeirra eru þrjú, Ragnar, Dóra
Ingibjörg og Þröstur. 5) Sig-
urbjörg Rögnvaldsdóttir, f. 25. júní
1959 maður hennar Ólafur Jóns-
son, f. 6. maí 1956, börn þeirra eru
fjögur, Rögnvaldur Ingi, Sigurður
Óli, Ragnar Heiðar og Þórunn.
Barnabarnabörn þeirra eru 20
talsins.
Rögnvaldur eignaðist son með
Maggý Jóhannsdóttur, Ólaf Jó-
hann, f. 9. janúar 1947, d. af slys-
förum 11. ágúst 1974. Rögnvaldur
vann lengst af við rakaraiðn en
einnig hjá trésmiðjunni Borg,
Kaupfélagi Skagfirðinga og við
önnur ýmis störf.
Rögnvaldur verður jarðsunginn
frá Sauðárkrókskirkju laugardag-
inn 7. apríl og hefst athöfnin
klukkan 14.
eftirlifandi konu sinni
Dóru Ingibjörgu
Magnúsdóttur, f. 7.
júní 1928. Börn
þeirra eru fimm, þau
eru: 1) Hólmfríður
Rögnvaldsdóttir, f.
24. október 1947.
Maður hennar er
Guðmundur G. Hall-
dórsson, f. 24. ágúst
1946, dætur þeirra
eru tvær, Kristín Sig-
rún og Gréta. 2) Ólína
Rut Rögnvaldsdóttir,
f. 12. nóvember 1948
og maður hennar Stefán Jón
Skarphéðinsson, f. 28. mars 1947,
börn þeirra eru fjögur, Rögnvald-
ur Ingi, Ólafur Björn, Elísabet Sól-
ey og Skarphéðinn Kristinn. 3)
Halla Sigríður Rögnvaldsdóttir, f.
26. apríl 1951. Maður hennar Garð-
ar Haukur Steingrímsson, f. 24.
Elsku afi minn, núna ert þú búinn
að fá hvíldina, eftir erfið veikindi síð-
ustu mánuði. Reyndar fékkstu alveg
að finna fyrir veikindum síðustu árin
þín, elsku afi minn, en það sem mér
fannst svo merkilegt var að alltaf var
stutt í brosið þitt og húmorinn þinn.
Þú varst duglegur að segja hvað ég
ætti falleg börn, enda komin af fallegu
fólki, bæði þínu og föðurfjölskyldunni
þeirra á Siglufirði, þú hafðir ofurtrú á
Siglufjarðargeninu enda ekki annað
hægt. Þú talaðir mikið við mig um ár-
in þín á Siglufirði, langömmu- og
langafastelpurnar á Siglufirði, hvað
þær gerðu og sagðir okkur frá lífinu á
Siglufirði á þínum barnsárum, okkur
fannst alltaf jafn gaman að spjalla við
þig um lífið þar, síldarárin og íþrótta-
iðkun þína þar. Þegar ég sagði þér að
stelpurnar mínar væru farnar að fara
á skíði brostir þú og sagðir já, þær
eiga eftir að verða efnilegar, þessar
skvísur, enda komnar af skíðafólki.
Ef ég hugsa til barnsáranna minna
man ég eftir þér í hesthúsinu, í hey-
skapnum og alltaf fékk ég að sitja á
kerrunni þegar þú sást til. Þú varst
duglegur að lauma í vasa mína ýmsu
góðgæti og jafnvel einum til tveim
hundraðköllum, þetta var sko mikill
peningur þá.
Ég gat alltaf leitað til þín ef ég
þurfti á einhverjum reddingum að
halda, ef mig vantaði einhver verk-
færi þegar ég var að vinna í skáta-
heimilinu, þá var stutt að hlaupa yfir
til þín og þú að sjálfsögðu reddaðir
okkur, stundum komstu bara með og
hjálpaðir okkur að festa upp hillur
eða hvað sem við vorum að bralla.
Þegar ég var orðin þreytt og nennti
ekki að ganga heim varst þú alltaf
boðinn og búinn að keyra okkur heim.
Það var yndislegt að eiga afa sem var
alltaf til staðar og alltaf boðinn og bú-
inn til að aðstoða okkur yngri kyn-
slóðina.
Elsku afi, ég er þakklát fyrir að þú
fékkst hvíldina en jafnframt kveð ég
þig með miklum söknuði, dætur mín-
ar munu sakna heimsóknanna á dval-
arheimilið og afabrjóstsykursins eins
og þær kalla alltaf sykurlausu mol-
anna þína. Stundum biðja þær mig
um að kaupa svona afabrjóstsykur
handa sér, því þeim finnst þeir svo
góðir.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Valdimar Briem.)
Elsku amma, ég sendi þér enn og
Rögnvaldur Ólafsson
aftur samúðarkveðjur mínar, þú ert
svo dugleg, elsku amma mín
Elísabet Sóley Stefánsdóttir.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum í trú
á að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.
(Ásbjörn Morthens.)
Þínar langafastelpur
Harpa Katrín, Sólveig Birna
og Rebekka Hólm.
✝ Bjarni Þórð-arson fæddist í
Ólafsvík 6. desem-
ber 1943. Hann lést
laugardaginn 31.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru þau þau
Hrefna Sigríður
Bjarnadóttir, f. 21.
október 1924, d. 16.
febrúar 1989, og
Þórður Áskell
Magnússon, f. 29.
desember 1922, d.
4. maí 1991. Systk-
desember 1957, Sigurjón, f. 29.
júní 1964 og Ásdís, f. 19. sept-
ember.
Bjarni kvæntist Svövu Eggerts-
dóttur á afmælisdegi hennar, 2.
október 1966. Foreldrar hennar
voru þau Elsa Þorbergsdóttir, f.
29. maí 1914, d. 3. október 1994,
og Eggert Páll Theodórsson, f. 1.
júní 1907, d. 9. mars 1984. Börn
Bjarna og Svövu eru, Hrefna Sig-
ríður, f. 21. janúar 1967, Eggert
Arnar, f. 18. febrúar 1968 og
Katla, f. 11. nóvember 1969.
Bjarni verður jarðsunginn frá
Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 7.
apríl og hefst athöfnin klukkan
14.
Jarðsett verður á Ingjaldshóli.
ini Bjarna eru Krist-
ín Sigríður, f. 9. maí
1945, Álfheiður
Erla, f. 24. maí 1946,
d. 22. október 2000,
og Magnús, f. 19.
desember 1947.
Hrefna og Þórður
skildu.
Seinni kona Þórð-
ar er Sigurlaug Sig-
urjónsdóttir, f. 15.
apríl 1929. Börn
þeirra eru Sigurður,
f. 24. september
1951, Helga, f. 28.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Minningin um einstakan mann lif-
ir í hjarta okkar.
Frábær vinur er horfinn.
Takk fyrir allar góðu stundirnar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Við sendum Hrefnu, Kötlu, Egg-
erti og fjölskyldum ykkar samúðar-
kveðjur.
Gunnar, Erla og börn.
Stundin líður, tíminn tekur,
toll af öllu hér,
sviplegt brotthvarf söknuð vekur
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri
vermir ætíð mig,
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
Þú varst ljós á villuvegi,
viti á minni leið,
þú varst skin á dökkum degi,
dagleið þín var greið.
Þú barst tryggð í traustri hendi,
tárin straukst af kinn.
Þér ég mínar þakkir sendi,
þú varst afi minn.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Hvíl þú í friði, elsku Bjarni minn,
þinn
Björn Þór.
Bjarni Þórðarson
✝
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát
og útför
VÍKINGS HEIÐARS ARNÓRSSONAR.
Fyrir hönd aðstandenda,
Viðar Víkingsson,
Svana Víkingsdóttir, Ólafur Axelsson,
Gísli A. Víkingsson, Guðrún Ögmundsdóttir,
Þóra Víkingsdóttir, Bjarni Jónsson,
Arnór Víkingsson, Ragnheiður J. Jónsdóttir,
Ragnheiður Víkingsdóttir, Anton Jakobsson,
Þórhallur Víkingsson, Rósa Björk Sigurðardóttir,
Steingerður Gná Kristjánsdóttir
og Karl Axel Kristjánsson.
✝
Innilegt þakklæti sendum við öllum þeim, er
heiðruðu minningu ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
EINARS GUÐMUNDSSONAR
verkfræðings,
Hrauntungu 37,
Kópavogi.
Þökkum blóm, hlýjar kveðjur og falleg orð sem um
hann hafa verið sögð, læknum, hjúkrunarfólki og
þá sérstaklega starfsfólki heimahlynningar, sem gerði honum kleift að
dvelja heima, síðustu ævidaga sína.
Sólveig Kristinsdóttir,
Guðmundur Konráð Einarsson,
Helga Einarsdóttir,
Kristín Andrea Einarsdóttir, Jóhann Ingibergsson,
Berghildur Ýr Einarsdóttir, Haukur Einarsson,
Ásdís Erla, Sigrún Björk, Einar Aron og Hilmir Nói.
✝
Ástkær faðir minn og bróðir okkar,
HELGI ÞÓR BJARNASON
frá Skagaströnd,
lést á sjúkrahúsi í Noregi fimmtudaginn 1. mars
síðastliðinn.
Útför fór fram frá Fossvogskapellu í kyrrþey.
Smári Helgason, systkini og fjölskyldur þeirra.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma, systir og mágkona,
GUÐBJÖRG KRISTÍN GUÐJÓNSDÓTTIR
frá Vogum,
Grandavegi 47,
Reykjavík,
andaðist þriðjudaginn 3. apríl.
Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn
12. apríl kl. 13.00.
Ingibjörg S. Guðmundsdóttir, Bergur Felixson,
Rósa Guðmundsdóttir,
Ludvig Á. Guðmundsson, Jóna Borg Jónsdóttir,
María S. Guðmundsdóttir, Einar Benediktsson,
Guðjón Guðmundsson, Heiða Elín Jóhannsdóttir,
Gunnar Þór Guðmundsson, Hrönn Hjálmarsdóttir,
Friðrik Guðjónsson, Kristín Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra systir, dóttir, frænka og vinkona,
VILBORG SIGURÐARDÓTTIR,
lést friðsællega föstudaginn 30. mars á Eng-
landi. Jarðarförin verður haldin í Midhurst, Eng-
landi, fimmtudaginn 12. apríl.
Minningarathöfn verður haldin á Íslandi, nánar
auglýst síðar.
Blessuð sé minning hennar.
Sigurður Gunnarsson,
Jökull Sigurðsson,
Mjöll Sigurðardóttir.