Morgunblaðið - 05.04.2007, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 55
Auglýstu atburði á
þínum vegum hjá okkur
Hafðu samband við auglýsingadeild
Morgunblaðsins í síma 569 1100
• Tónleika
• Myndlistarsýningar
• Leiksýningar
• Fundi
• Námskeið
• Fyrirlestra
• Félagsstarf
• Aðra mannfagnaði
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Lokað. Gleðilega páska.
Félagsstarf Gerðubergs | Lokað um páskana,
næst opið þriðjud. 10. apríl kl. 9. Starfsfólk sendir
þátttakendum, samstarfsaðilum og velunnurum
um land allt, bestu óskir um gleðilega páskahátíð.
Gjábakki, félagsstarf | Þriðjudaginn 10. apríl kl. 20
kynnir Ingibjörg Harðardóttir lektor við Kenn-
araháskóla Íslands niðurstöður úr rannsókn um
framlag eldri borgara til samfélagsins. Fyrirspurnir
að lokinni kynningu. Hollustuveitingar. Allir vel-
komnir.
Hæðargarður 31 | Allir velkomnir. Vordagskráin
liggur frammi. Hali í Suðursveit 20.-22. apríl. Hald-
ið upp á afmæli Hæðargarðs 31 dagana 25.-31.
Ekki missa af öllu vorfjörinu. Kíktu í morgunkaffi
eftir páska. s. 568-3132.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyrirbænastund kl.
12. Altarisganga. Messa á Seli kl. 15. Leiksýning kl.
20.
Boðunarkirkjan | Altarisganga í kvöld kl. 20. Boð-
ið upp á léttan kvöldverð á eftir og fótaþvott eins
og Jesús gaf okkur fyrirmynd að. Mjög hátíðleg og
innileg stund. Verið velkomin.
Fríkirkjan í Reykjavík | Helgistund á morgun kl.
17. Lesið verður úr Pássíusálmum Hallgríms Pét-
urssonar. Bæn og íhugun. Anna Sigríður Helga-
dóttir og Carl Möller munu flytja Á föstudaginn
langa eftir Pál Ísólfsson við ljóð Davíðs Stef-
ánssonar, frá Fagraskógi. Hjörtur Magni Jóhanns-
son þjónar.
Fríkirkjan Kefas | Brauðsbrotning kl. 20.30. Að
henni lokinni verður lofgjörðarkvöld þar sem leikin
verða lög sem tengjast páskunum. Allir velkomnir.
Hjálpræðisherinn í Reykjavík | Páskasamkoma í
kvöld kl. 20 með páskamáltíð (ath. skráning í síma
561-3203). Umsjón: Ester Daníelsdóttir. Sönghóp-
urinn Korilena syngur.
KFUM og KFUK | Samkvæmt langri hefð er tekið
fundarhlé í AD KFUM á skírdag. Næsti fundur
verður 12. apríl.
Landspítali Háskólasjúkrahús, Grensás | Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson,
organisti Helgi Bragason.
Landspítali Háskólasjúkrahús, Hringbraut |
Guðsþjónusta. Altarisganga Sr. Bragi Skúlason og
sr. Kjartan Örn Sigrubjörnsson, organisti Helgi
Bragason.
Laugarneskirkja | Messa í kvöld kl. 20. Altarið af-
skrýtt. Sr. Hildur Eir Bolladóttir prédikar og þjónar
ásamt Sigurbirni Þorkelssyni meðhjálpara og
fulltrúum lesarahóps og sóknarnefndar. Kór kirkj-
unnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn og við und-
irleik Gunnars Gunnarssonar tónlistarstjóra. Allir
velkomnir.
Óháði söfnuðurinn | Samkirkjuleg guðsþjónsta á
vegum Samstarfsnefndar kristinna trúfélaga á Ís-
landi í kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg í
dag kl. 11. Sr. Pétur Þorsteinsson þjónar fyrir altari
og Högni Valsson, forstöðumaður Vegarins, pré-
dikar. Miriam Óskarsdóttir og Óskar Jakobsson
syngja og spila.
Skriðuklaustur | 21 Passíusálmur eftir Hallgrím
Pétursson verður lesinn á föstudaginn langa kl. 14.
Vegurinn kirkja fyrir þig | Smiðjuvegi 5. Fireproof
- páskamót. Þrjár samkomur í dag, kl. 10 Gunnar
Wiencke, kl. 14 Johannes Amritzer frá Svíþjóð, kl.
20 Thomas Jonsson frá Svíþjóð. Kraftmikill boð-
skapur sem á erindi til okkar allra í dag. Hjart-
anlega velkomin. Dagskrá sjá: www.vegurinn.is
Vídalínskirkja Garðasókn | Í kvöld verður helgi-
stund í Vídalínskirkju kl. 22, með altarisgöngu. Sr.
Friðrik J. Hjartar og Nanna Guðrún djákni þjóna.
Altarið verður afskrýtt í lok stundarinnar. Kór Ví-
dalínskirkju leiðir lofgjörðina. Molasopi í lokin.
Þorlákskirkja | Nú stendur yfir farandssýningin
Kristur um víða veröld. Þetta eru yfir tuttugu
myndir (eftirprentanir) sem sýna þjáningu og/eða
krossfestingu Krists með augum listamanna frá
ólíkum menningarheimum veraldar. Sýningin verð-
ur opin um bænadaga og páska.
Gullbrúðkaup | Gullbrúð-
kaup eiga, þann 6. apríl, hjón-
in Haraldur Stefánsson fv.
slökkviliðsstjóri og frú Erla
Ingimarsdóttir. Þau eru að
heiman. Hægt er að hafa sam-
band í síma 001 407 256 3955 /
001 407 658 9939 og í eftirfar-
andi heimilsfangi: 16674 Ced-
ar Run Drive, Orlando, Flo-
rida, 32828.
80ára afmæli. Í dag, 5.apríl, er áttræð Sigríð-
ur Siggeirsdóttir, Hæð-
argarði 35, Reykjavík. Af því
tilefni tekur hún á móti gest-
um í félagsmiðstöðinni Hæð-
argarði 31, Reykjavík á morg-
un, 6. apríl (föstudaginn
langa), milli kl. 12 og 15.
60ára afmæli. Í dag, 5.apríl, er sextugur Sæv-
ar Örn Stefánsson, rannsókn-
arlögreglumaður, Álftamýri
16, Reykjavík. Hann verður
að heiman á afmælisdaginn.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót o.fl. lesendum
að kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og mánu-
dagsblað. Samþykki afmæl-
isbarns þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Hægt er að hringja í
síma 569-1100 eða sent á net-
fangið ritstjorn@mbl.is. Einn-
ig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 5. apríl, 95. dagur ársins 2007
Orð dagsins: En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni, mun kenna yður allt og minna yður á allt það,
sem ég hef sagt yður. (Jóh. 14, 25.)
Uppeldis- og mennt-unarfræðiskor HÍ efnir tilmálstofu 11. apríl næstkom-andi, kl. 12.20 í stofu 301
Árnagarði. Yfirskrift málstofunnar er
Börn kerfisins: Uppeldi, menntun og
tíðarandi.
Fyrirlesarar eru Bragi Guðbrands-
son forstjóri Barnaverndarstofu og
Stefanía Sörheller uppeldisfræðingur
hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
„Í fyrirlestri mínum fjalla ég um það
sem ég kalla foreldrahæfni, og hvernig
má styrkja foreldra í sínu uppeldis-
starfi,“ segir Bragi. „Undanfarna ára-
tugi höfum við upplifað miklar sam-
félagsbreytingar sem orðið hafa til
þess að það umhverfi sem börn í dag
vaxa upp í er allt annað en það um-
hverfi sem foreldrar barnanna ólust
upp við. Því geta foreldrar ekki sótt
mikið í eigin reynsluforða þegar takast
þarf á við uppeldisumhverfi nútímans.“
Bragi segir fjölskylduform orðin fjöl-
breyttari og margslungnari en áður:
„Við bætist að hugmyndir okkar um
börn hafa breyst mikið síðustu árin,
sérstaklega með hliðsjón af réttindum
barna, þar sem barnasáttmáli SÞ er
einskonar hornsteinn.“
Bragi mun meðal annars segja frá
starfi sérfræðingahóps sem Evr-
ópuráðið setti á laggirnar til að fjalla
um foreldrahlutverkið: „Nefndin hvet-
ur aðildarríki Evrópuráðsins til að-
gerða til að styrkja foreldrahlutverkið,
og samdi sérstakt skjal þar sem tíund-
uð voru lykilatriði góðs uppeldis, leið-
beiningar fyrir foreldra, og fagfólk, þar
sem barnasáttmáli SÞ og nýjasta þekk-
ing í uppeldisfræði eru höfð til hlið-
sjónar,“ segir Bragi.
Jákvætt uppeldi (e. Positive Parent-
ing) hefur í stórum dráttum fjögur lyk-
ilatriði að leiðarljósi: „Fyrst má nefna
þörf barnsins fyrir reglu og aga (e.
structure), að barnið finni til öryggis í
gegnum ákveðna festu í uppeldinu þar
sem það lærir að tileinka sér þær regl-
ur sem gilda í samskiptum milli fólks,“
segir Bragi. „Barnið þarf einnig ástúð
og tilfinningalega næringu (e. nurture)
til að þroskast tilfinningalega jafnt sem
vitsmunalega. Viðurkenning og virðing
(e. recognition), sem felst m.a. í því að
hlusta á barnið og hvetja það áfram,
hjálpar barninu að virða sjálft sig og
aðra, og þróa jákvæða sjálfsmynd, og
loks þarf að efla barnið og hvetja (e.
empowerment), og veita því jákvæð
skilyrði til að þróa eiginleika sína og
hæfileika til hins ýtrasta.“
Fjölskylda | Málstofa á vegum uppeldis- og menntunarfræðiskorar HÍ 11. apríl
Uppeldi og tíðarandi
Bragi Guð-
brandsson fæddist
í Reykjavík 1953.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR
1973 og B.A. prófi í
félagsfræði frá Há-
skólanum í Kant-
araborg þar sem
hann stundaði jafn-
framt framhaldsnám. Bragi var
menntaskólakennari í nokkur ár áður
en hann tók við starfi félagsmálastjóra
í Kópav. 1982-1991, var aðstoðarm. fé-
lagsm.ráðh. 1991-1995 og forstjóri
Barnaverndarstofu frá stofnun 1995.
Bragi er kvæntur Árdísi Ólafsdóttur
ljósmóður og eiga þau þrjú börn.
Tónlist
Hallgrímskirkja | Að kveldi föstu-
dagsins langa kl. 22 verður frum-
flutt óratórían Hallgrímspassía
eftir Sigurð Sævarsson. Flytj-
endur eru kammerkórinn Schola
cantorum og einsöngvarar úr
hans röðum, Jóhann Smári Sæv-
arsson bassi og kammerhópurinn
CAPUT. Hörður Áskelsson stjórn-
ar. Miðaverð er 2.500/2.000 kr.
Hjálpræðisherinn á Íslandi |
Gospelveisla laugardaginn 7. apr-
íl kl. 20 í Hafnarfjarðarkirkju.
Hera Björk og Kristjana Stef-
ánsdóttir, Knut Anders Sörum frá
Noregi, Miriam Óskars og Óskar
Jakobs ásamt fleirum. Einnig
koma fram leynigestir. Miðaverð
kr 1.000 (uppl. í síma 561-3203).
Skálholt | Skálholtskirkja, tónlist-
arstund, föstudaginn langa kl. 21.
Kammerkór Biskupstungna.
Stjórnandi Hilmar Örn Agn-
arsson, organisti Guðjón Halldór
Óskarsson. Sophie Schoonjans
harpa, Margrét Árnadóttir selló,
Karl Hallgrímsson mandólín,
Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir blokk-
flauta.
Myndlist
DaLí gallerí | Brekkugötu 9 á Ak-
ureyri. Sigríður Ágústsdóttir
opnar sýningu á leirverkum í dag
kl. 17–20. Opið um páskana: skír-
dag 17–20, laugardag kl. 14–18,
annan í páskum kl. 14–18.
Skriðuklaustur | Sýning á 21
passíusálmamynd eftir Barböru
Árnason stendur nú yfir. Sýningin
verður opin föstudaginn langa,
laugardaginn 7. apríl, annan í
páskum, sumardaginn fyrsta og
helgarnar 14. og 15. og 21. og 22.
apríl. Þetta er einstakt tækifæri.
Allir velkomnir.
Söfn
Iðnaðarsafnið á Akureyri |
Hljóðleiðsögn um safnið kl. 14–16
á skírdag, laugardag, páskadag
og annan í páskum. Verið velkom-
in.
Minjasafnið á Akureyri | Opið kl.
14–16 á skírdag, laugardag,
páskadag og annan í páskum.
Sýningar safnsins eru: Eyja-
fjörður frá öndverðu, Akureyri –
bærinn við Pollinn og Þekkir þú …
híbýli mannanna, óþekktar ljós-
myndir úr eigu safnsins.
Uppákomur
Langholtskirkja | Kór Langholts-
kirkju býður upp á listafléttu kl.
20 á morgun, föstudaginn langa.
Flutt verður föstutónlist og Að-
alheiður Halldórsdóttir, dansari
hjá ÍD, hefur samið hreyfingar
fyrir kórinn og dansar í tveimur
verkum. Gunnar Stefánsson og
Hjörtur Pálsson lesa ljóð. Sýnd
verða nokkur af passíusálmal-
istaverkum Barböru Árnason.
Fyrirlestrar og fundir
Kaffi Kjós | Í kvöld kl. 21 heldur
Björn Hjaltason fyrirlestur sem
hann kallar Fuglar í Kjós. Björn
mun þar fara í gegnum fuglafánu
sveitarinnar og gera grein fyrir
stöðu tegunda, varpfugla, um-
ferðarfugla og flækinga og sýna
af þeim myndir.
Útivist og íþróttir
Reykjavíkurborg | Göngugarpar
ÍT-ferða verða með sína árlegu
Keilisgöngu á páskadag 5. árið í
röð. Mæting við Fjarðarkaup kl.
10, sameinast í bíla. Uppl. um
gönguferðir Göngugarpanna á
www.itferdir.is undir gönguferðir.
LEIKRITIÐ Killer Joe hefur að undanförnu verið
sýnt á litla sviði Borgarleikhússins við frábærar und-
irtektir gagnrýnenda og áhorfenda. Af sérstökum
ástæðum verður hins vegar brátt gert hlé á sýningum
fram á haust. Því eru aðeins örfáar sýningar eftir að
sinni. Vegna mikillar eftirspurnar hefur hins vegar
verið bætt við aukasýningu í kvöld og hefst hún
klukkan 20.
Killer Joe er eftir bandaríska leikskáldið Tracy
Letts og er sýnt á vegum leikhússins Skámána í sam-
starfi við Borgarleikhúsið. Leikstjóri er Stefán Bald-
ursson en leikarar eru Björn Thors, Unnur Ösp Stef-
ánsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Maríanna Clara
Lúthersdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Um
er að ræða síðustu sýningar Þorvalds Davíðs á ís-
lensku leiksviði í bráð því eins og frægt er orðið held-
ur hann senn til náms við hinn virta Juilliard-
listaháskóla í New York.
Allra síðustu sýningar verða svo laugardaginn 14.
apríl, föstudaginn 20. apríl og laugardaginn 21. apríl.
Leiklist
Aukasýning á Killer Joe