Morgunblaðið - 05.04.2007, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 05.04.2007, Qupperneq 56
56 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í vorsólina við Alicante á hreint ótrúlegum kjörum. Allra síðustu sætin á frábæru tilboði. Þú kaupir tvö flugsæti en greiðir aðeins fyrir eitt. Úrval gistimöguleika á Benidorm í boði. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is 2 fyrir 1 til Alicante 13. apríl frá kr. 9.990 Allra síðustu sætin Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 19.990 Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð. Út 13. apríl og heim 9. maí. Netverð á mann. Verð kr. 9.990 Flugsæti aðra leið með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð frá KEF 13. apríl. Netverð á mann. Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand VELKOMIN Í „HRYLLINGS- LEIKHÚS GRETTIS“ SMÁKÖKURNAR ERU BÚNAR! TAKK FYRIR AÐ HORFA Á „HRYLLINGSLEIKHÚS GRETTIS“ AF HVERJU VILTU AÐ FÓLK STRENGI ÁRAMÓTAHEIT? AF HVERJU? AF ÞVÍ BARA!AF HVERJU ÞARF FÓLK ENDILEGA AÐ ÁKVEÐA AÐ BÆTA RÁÐ SITT UM ÁRAMÓT? AF HVERJU EKKI BARA UM PÁSKANA? ÞÚ ERT Í RÓLUNNI MINNI! HYPJAÐU ÞIG! ÉG ER EKKI HRÆDDUR VIÐ ÞIG, MUMMI EKKI ÞAÐ? NEI, ÞÚ ERT SVO HEIMSKUR AÐ ÞÚ ÁTTAR ÞIG EKKI Á ÞVÍ AÐ SMÆÐ SPÖRFUGLSINS HJÁLPAR HONUM Í BÁRÁTTU SINNI VIÐ STÓRA RÁNFUGLA. ÞÚ NÆRÐ MÉR ALDREI! JÆJA? ÉG VERÐ AÐ HÆTTA AÐ HORFA Á NÁTTÚRULÍFS- MYNDIR Í SJÓNVARPINU VIÐ HVAÐ VINNUR ÞÚ, FÉLAGI? ÉG SEL TRYGGINGAR HVAÐ ER ÞAÐ EIGINLEGA VEIST ÞÚ EKKI HVAÐ TRYGGINGAR ERU ?!? NEI ÉG SKAL BJÓÐA ÞÉR UPP Á DRYKK OG SEGJA ÞÉR ALLT UM TRYGGINGAR ÞAÐ ER PÓSTUR TIL ÞÍN! ERTU AÐ KOMA? NEI, ÉG NÆ EKKI AÐ SOFNA HVORT SEM ER FYRST ÉG ER MEÐ SVEFNLEYSI ÞÁ ÆTLA ÉG AÐ NÝTA TÍMANN Í EITT- HVAÐ SEM SKIPTIR MÁLI ÉG ÆTLA AÐ BYRJA Á BÓKINNI, SEM MIG LANGAÐI ALLTAF AÐ SKRIFA, Í KVÖLD GANGI ÞÉR VEL EF AÐ HANN NÆR AÐ RANNSAKA BLÓÐIÐ SEM HANN TÓK ÚR MÉR... KEMST HANN ÖRUGGLEGA AÐ ÞVÍ AÐ ÉG ER KÓNGULÓARMAÐURINN FARÐU BARA AÐ SOFA... ÉG KEM RÉTT BRÁÐUM dagbók|velvakandi Góðan dag. NÚ GENGUR senn í garð helgasti árstími okkar kristinna manna. Það er ljóður á ráði að það virðist vera sem helgistundum fylgi mikil óráðsía. Á jólunum liggja börnin organdi og heimta sífellt stærri pakka, í stað þess að minnast fæð- ingar Krists. Á páskunum liggja börnin organdi í sykursjokki eftir að hafa graðgað í sig súkkulaði í lítra- vís. Ég þoli ekki börn. Sjálf átti ég erfiða æsku og hagaði mér aldrei eins og barn. Ég var ekki alin upp við stanslaust gjafaflóð, heldur var ég látin vinna fyrir mat mínum og var reglulega hýdd. Þess ber ég enn merki. Þá var ég ekki ánægð með þessa meðferð, en í dag sé ég að hún var mér fyrir bestu. Ef ekki hefði verið fyrir umræddar barsmíðar lægi ég liggjandi í gólfinu organdi á meiri sykur og gjafir. Þess í stað er ég þakklát fyrir það sem ég hef og ætla ekki að borða súkkulaði á pásk- unum. Þó má vera að ég fái mér epli. Og svo eru það fermingarnar. Þegar ég var yngri þótti það munaður að fá á annað borð að vera fermdur. Nú telst enginn maður með mönnum nema hann fái fermingarveislu fyrir mörg hundruð þúsund og helst gjaf- ir, einkum tölvuspil og sælgæti! Þetta ætti ekki að heita ferming lengur. Þetta ætti að heita Óráðsía. Það er að vísu líka nafn á landi en fermingar gætu einnig kallast það. Fermingarbörn mæta jafnvel í veislurnar á gulum limósíum sem hæfa klámkóngum. Ég vil því skora á þegna þessa lands að koma með okkur félögum í Femínistafélagi Ís- lands og mótmæla óráðsíunni (ferm- ingunni, jólum og páskum) fyrir utan Hallgrímskirkju á Pálmasunnudag. Hættum að vera gráðug, fáum okkur eins og einn ávöxt til hátíðabrigða en lifum annars meinlætalífi! Að lokum vil ég hrósa Morgunblaðinu fyrir dálkinn Orð dagsins. Þar er oft að finna þarfan boðskap á þessum síð- ustu og verstu tímum. Knaparnir fjórir nálgast óðum. Guðrún Jónsdóttir. Mávar Í VELVAKANDA á mánudag 2. apríl lýsti Reykvíkingur ánægju sinni yfir því að svæfa mávana með eitri. Mér finnst það ómannúðleg að- ferð og algjört óráð að eitra fyrir þá. Það gæti bitnað á fleiri fuglum en mávum, og í það þarf mikinn mann- skap. Miklu hreinni aðferð væri að gera eggin óvirk, t.d. með því að sprauta í þau vatni, og láta fuglinn liggja á. Enginn skaði skeður með því. Og þannig fækkar þeim til muna. Svo tengt Tjörninni í Reykja- vík, það má með einhverju móti setja hömlur á það hvenær fuglunum er gefið brauð, Tjörnin er á sumrin eins og drullupollur þar sem myglaðir brauðbitar synda í tonnatali. Að lok- um: borgaryfirvöld hafa ekki staðið sig í því að sjá um að hverfi borg- arinnar séu hreinsuð. Svifryk er ekki eingöngu frá bílaflota landsmanna, heldur einnig frá moldarbingjum kringum allar götur og í renn- usteinum, þar sem moldin rýkur upp í roki. Áhugamaður um land og dýr. Þakkir ÉG VAR svo heppin, eftir langa bið, að komast í mjaðmaaðgerð hjá frá- bærum lækni, Brynjólfi Jónssyni. Þökk sé honum. Eftir aðgerðina fæ ég, í gegnum Guðnýju, öldr- unarlækni, inni á deild L2 á Landa- koti, og þökk fyrir þá hjálp. Svo vil ég segja frá því frábæra starfsliði sem þar er. Það er varla hægt að lýsa því hve mikið þær gefa frá sér af elskulegheitum og kærleika. Þetta er alveg frábært starfslið. Eins og ein fjölskylda. Guð blessi þau öll saman og kærar þakkir fyrir alla hjálpina. Sjöfn Helgadóttir. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.