Morgunblaðið - 05.04.2007, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 05.04.2007, Qupperneq 72
FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 95. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Naumlega bjargað  Mjög litlu munaði að fórnarlamb hnífárásarinnar í Hátúni biði bana af sárum sínum en starfsfólki Land- spítalans tókst að bjarga lífi hans með samstilltu átaki. » 14 Viðræður um sölu í Glitni  Viðræður hafa staðið yfir und- anfarna daga á milli Kaupþings banka og ákveðinna hluthafa í Glitni um kaup bankans á allt að 28% hlut í Glitni. Talið er að viljugir seljendur séu Karl Wernersson og bræðurnir Einar og Benedikt Sveinssynir. » Forsíða Flestir norður og vestur  Straumurinn hjá ferðalöngum yfir páskana liggur til Ísafjarðar á rokkhátíð og skíðaviku og til Ak- ureyrar í leikhús, menninguna og næturlíf. Bílaumferð á báða staði var nokkuð þétt í gær og flug gekk þokkalega í heildina. Slysavarna- félagið Landsbjörg varar ferðalanga til fjalla við krapa á hálendisfjall- vegum landsins. » Miðopna SKOÐANIR» Ljósvakinn: Gettu enn betur Staksteinar: Ferðir forsetans Forystugreinar: Skylda til aðgerða í loftslagsmálum | Ákvörðun Írana UMRÆÐAN» Öldrunarmál á Akureyri Fjölskyldan og arðsemi hennar Í upphafi skal endinn skoða Hver ber ábyrgð Viðskiptavild eykst Stærstir í Storebrand Hundrað tindar á ári Spilling skekur þýskt athafnalíf VIÐSKIPTI» 4% :&' . &+  ;&&3& 9 &  1 1 1  1  1  1 1 1!  1 1 ! - < 9 ' !1  1  1 1 1  1 =>??7@A 'BC@?A5;'DE5= <757=7=>??7@A =F5'<&<@G57 5>@'<&<@G57 'H5'<&<@G57 '2A''53&I@75<A J7D75'<B&JC5 '=@ C2@7 ;C5;A'2+'AB7?7 Heitast 6 °C | Kaldast -5 °C  Suðaustan og austan 3–10 m/s og dálítil él suðaustanlands. Ann- ars bjart. » 8 Í lok maí fer fram hátíð íslenskra heimildamynda á Patreksfirði þar sem sýndar verða 22 myndir. »61 KVIKMYND» Heimilda- myndahátíð LJÓSMYNDIR» Myndir frá Suður- Indlandi. »62 Hlustendur sendi botna sína um máva- dráp til þáttarins Orð skulu standa á Rás 1 á laugardag- inn. »65 ÚTVARP » Gísli Mar- teinn myrðir FÓLK» Leonardo DiCaprio í Jökulsárlóni. »65 TÓNLIST» Laddi er sívinsæll og lög- in hans líka. »62 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Sandra Bullock í mynd á Íslandi 2. Múrbúðin kærir Byko 3. Travolta nauðlenti á Ítalíu 4. Tók föður sinn í nefið „MAÐUR tekur ekki strætó í Breiðholti á næst- unni, það er ljóst,“ segir sextán ára piltur sem varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu í hverfinu um miðjan dag á þriðjudag. Þá beið hann eftir strætó ásamt kærustu sinni þegar bifreið staðnæmdist nærri strætóskýlinu, þrír piltar og stúlka gengu út og réðust að þeim. Parið verður í höfuðborginni yf- ir páskana en er búsett á landsbyggðinni. „Þessi bíll keyrði framhjá og ég kannaðist ekki við þá sem voru í honum. Ég spyr kærustu mína hvort hún þekki þau af því þau veifa höndunum eins og við ættum að koma. Þau óku hins vegar áfram og lögðu bílnum bak við skýlið,“ segir pilt- urinn og heldur áfram: „Þau komu þá öll að skýl- inu og stúlkan sem ók bílnum spurði kærustuna mína hvort hún kannaðist við sig.“ Kærastan sagð- ist muna eftir stúlkunni úr bæjarfélaginu sínu en nærri. Einn ökumaður stöðvaði bifreið sína, í þó nokk- urri fjarlægð, og hóf að flauta á hópinn. Það styggði árásarmennina og hlupu þeir allir að bíl sínum og óku burt. Pilturinn fór hins vegar til systur kærustu sinn- ar sem býr nærri árásarstaðnum og hringdi á lög- regluna. Árásarmennirnir, sem allir eru um tví- tugt, náðust síðar um daginn og játuðu brot sitt. Ekki hefur komið fram hvað þeim gekk til og ekki verður séð að þeir hafi verið undir áhrifum áfengis eða vímuefna. Pilturinn sem varð fyrir árásinni hlaut mörg högg á höfuðið og er marinn víða en slapp þó nokk- uð vel miðað við aðstæður. Honum er að auki nokkuð brugðið og mun líklega seint skilja hvers vegna á hann var ráðist. | 4 Fer ekki í strætó í Breiðholti á næstunni Sextán ára piltur varð fyrir algerlega tilefnislausri árás um miðjan dag ekki þekkja hana. Stúlkan spurði því næst hvort hún hefði verið með leiðindi við þriðju stúlkuna, en nafngreindi hana ekki. „Næsta sem ég veit er að ég var kýldur í andlitið og hent inn í skýlið,“ segir pilturinn. Létu spörkin dynja Pilturinn segir að engin orð hafi farið á milli hans og þeirra sem réðust á hann. Eftir að hann fékk upphafshöggið réðust allir þrír á hann og hentu honum í gangstéttina. Þar létu þeir spörkin dynja á líkama og höfði piltsins, sem mátti sín lítils gegn þremur. Kærustu hans var hins vegar hrint frá og að mestu látin í friði. „Ef ég reyndi að streit- ast á móti og komast burt var ég kýldur fastar,“ segir pilturinn sem að lokum náði að komast út á götu. Þá tók hann að veifa í átt að bílum sem voru Þekktasta sinfónían FJÖLDI tónleika verður víða um land um páskana, meðal annars flutningur Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands á Örlagasinfóníu Beethovens. Hljómsveitarstjórinn, Guð- mundur Óli Gunnarsson, segir sin- fóníuna vera „frægasta sinfón- íuverk allra tíma“. „Í þessu verki er hljómsveitin al- gjörlega í forgrunni,“ segir hann einnig. Tónleikarnir fara fram í Gler- árkirkju á Akureyri í dag. | »20 NÝ gangbrautarljós hafa verið sett upp á Háaleitisbraut skammt fyrir norðan verslunarmiðstöðina Miðbæ. Ljósin eru af nýrri tegund umferðarljósa sem skynja vegfar- endur sem fara yfir á ljósunum og láta græna ljósið loga þar til þeir eru komnir yfir götuna. Þetta eyk- ur bæði öryggi gangandi vegfar- enda og stöðvar ekki bílaumferð lengur en þörf er á. Þetta eru fjórðu gangbrautarljósin þessarar gerðar, en fyrir eru ljós við Hamra- hlíð, á Snorrabraut við Grettisgötu og á Sundlaugavegi við Gullteig. Morgunblaðið/Kristinn Gangbrautarljós við Miðbæ MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út á páskadag, sunnudaginn 8. apríl. Fréttaþjónusta verður að venju á Fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, yfir páskana. Ábendingum um fréttir má koma á netfrett@mbl.is. Áskriftardeild Morgunblaðsins verður opin í dag, skírdag, kl. 7–14 og páskadag kl. 8–15. Lokað verður á föstudaginn langa, laugardag og annan í páskum. Auglýsingadeild Morgunblaðsins verður opin á laugardag fyrir páska kl. 9–12 en lokað verður aðra daga. Skiptiborð Morgunblaðsins verð- ur opið á laugardag kl. 8–12 og á annan í páskum kl. 13–20. Síma- númer Morgunblaðsins er 569– 1100. Fréttaþjónusta um páska ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.