Morgunblaðið - 05.05.2007, Side 6

Morgunblaðið - 05.05.2007, Side 6
Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is APPLICON og Vélfang eru Fyrirtæki ársins 2007 og Skattrannsóknarstjóri ríkisins er Stofnun ársins 2007, samkvæmt niðurstöðum vinnumarkaðskönnunar VR og SFR – stétt- arfélags í almannaþjónustu. Könnunin er stærsta vinnumarkaðskönnun á Íslandi. VR hefur staðið fyrir könnun á vinnuskilyrðum og Fyrirtæki ársins meðal fé- lagsmanna sinna í áratug og SFR var nú með í annað sinn. Könnunin var gerð í febrúar og mars á þessu ári og fengu um 30.000 starfs- menn á almennum og opinberum vinnumark- aði spurningaeyðublað en svarhlutfall var um 47%. Niðurstöðunum er skipt í átta lykilþætti; trúverðugleika stjórnenda, launakjör, vinnu- skilyrði, sveigjanleika vinnu, sjálfstæði í starfi, álag og kröfur, stolt af fyrirtækinu og starfs- anda. Allar niðurstöður eru birtar í VR- blaðinu og SVR-blaðinu, sem komu út í gær, en þar má meðal annars sjá hvar vinnustaðir standa í samanburði við aðra. Á heimasíðu VR (www.vr.is) og heimasíðu SFR (www.sfr.is) er auk þess frekari umfjöllun um niðurstöðurnar. Betri einkunnir Í hópi stærri fyrirtækja á almennum vinnu- markaði, þar sem vinna 50 starfsmenn eða fleiri, var Applicon valið Fyrirtæki ársins en Vélfang í hópi smærri fyrirtækja. Í öðru sæti í hópi stærri fyrirtækja var Fjarhitun og Daníel Ólafsson, Fyrirtæki ársins 2006, í því þriðja. Síðan komu CCP, Icepharma, Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen, Línuhönnun hf., Ís- lensk-ameríska verslunarfélagið ehf., VGK- Hönnun og Fosshótel ehf. Fastus var í öðru sæti í hópi minni fyr- irtækja og Sensa, sigurvegarinn í hópi minni fyrirtækja í fyrra, í því þriðja. Síðan komu JKE Design, Hagvangur, Himnesk hollusta ehf., Birtingahúsið, Beiersdorf ehf., Skattur og bókhald ehf., og Föt og skór. Sjóvá og Fálkinn bættu sig mest milli ára og eru því hástökkvarar í hópi stærri og minni fyrirtækja. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segir að meginmarkmið könnunarinnar sé að reyna að bæta vinnuaðstæður í víðum skilningi og sá til- gangur virðist vera að skila sér því einkunnir batni jafnt og þétt. Einnig sé athyglisvert að fólk á almennum vinnumarkaði virðist vera ánægðara með sinn vinnustað heldur en op- inberir starfsmenn. Bæta þarf starfsumhverfið Skattrannsóknarstjóri ríkisins varði titilinn og var valinn Stofnun ársins 2007. Bisk- upsstofa var í öðru sæti annað árið í röð og Skattstofa Suðurlands í þriðja sæti. Í næstu sætum voru Skattstofa Vestfjarða og Skatt- stofa Austurlands. Hástökkvarinn meðal stofnana ríkisins er Skrifstofa rannsókn- arstofnana atvinnuveganna. Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri SFR, segir athyglisvert að nokkrar stofnanir, sem fengu slakar einkunnir í fyrra, fá aftur slaka útreið í ár. Markmið SFR – stéttarfélags sé það sama og til dæmis fjármálaráðuneytisins, þ.e. að menn vilji byggja upp gott vinnuum- hverfi starfsmanna þannig að starfsmenn geti sinnt starfi sínu með stolti og ríkið veiti bestu þjónustu á hverjum tíma. Það valdi nokkrum áhyggjum ef innra starf stofnana gangi ekki nógu vel því þar sem erfiðleikar bjáti á í starfs- umhverfi starfsmanna sé erfiðara að veita góða þjónustu. Þórarinn bendir á að þar sem starfsandinn sé slakastur fái stofnanirnar líka slökustu ein- kunnirnar varðandi launakjör. Þetta verði skoðað sérstaklega. Auk þess virðist vera sam- bærilegar vísbendingar í þessari könnun og könnun fjármálaráðuneytisins um starfsum- hverfi ríkisstarfsmanna. Stofnanir á sviði heil- brigðismála, löggæslu og fangelsismála fái í hvorugri könnuninni nógu góða einkunn. „Ég held að það sé skynsamlegt að skoða þessar niðurstöður og bera saman með það fyrir aug- um að finna leiðir til að bæta starfsumhverfi ríkisstarfsmanna þannig að þeir geti þá sinnt starfi sínu betur og hlutverk þessara stofnana í almannaþjónustu verði sterkara og þær hljóti þann virðingarsess sem þær eiga skilið,“ segir Þórarinn. Góður starfsandi á skattstofum Applicon, Vélfang og Skattrannsóknarstjóri ríkisins bestu vinnustaðirnir í könnun VR og SVR 6 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is LANGSTÆRSTA gjöf sem Krabbameinsfélagi Íslands hefur borist var afhent í gær. Gjöfin er að andvirði 120 milljóna króna og er frá fimm hjónum sem vilja stuðla að framförum í leit að brjóstakrabbameini. Fénu verð- ur varið til kaupa á þremur tækjum til stafrænnar brjósta- myndatöku og kostar hvert 40 milljónir kr. Þau Anna Lísa Sigurjónsdóttir og Hreiðar Már Sigurðsson og Arndís Björnsdóttir og Sigurður Einarsson gáfu sameiginlega eitt tæki. Þuríður Reynisdóttir og Ágúst Guðmundsson og Guðrún Rut Eyjólfsdóttir og Lýður Guð- mundsson gáfu annað tæki. Þriðja tækið gáfu Heather Bird Tchenguiz og Robert Tchenguiz. Konurnar fimm afhentu gjöf- ina og hafði Arndís Björnsdóttir orð fyrir þeim. Hún sagði ánægjulegt að eiga þess kost að tengjast Krabbameinsfélaginu og verkefnum þess á þennan hátt. Hún sagði þær stöllur vita mætavel, eins og flestar konur, hve þýðingarmikið það er fyrir líf og heilsu að eiga kost á góðri og fullkominni krabbameinsleit. Krabbameinsfélagið hafi unnið ómetanlegt starf í þágu kvenna á undanförnum áratugum. „Það hefur sannast á Íslandi að leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum er árangursrík heilsuvernd. En tæki og aðstaða úreldast og ný tækni og nýjar aðferðir koma fram á sjón- arsviðið sem hugsanlega geta bætt sjúkdómsgreiningu og flýtt meðferð. Þess vegna vorum við konurnar og makar okkar sam- mála um að það væri verðugt verkefni að styrkja Krabba- meinsfélagið til þess að end- urnýja tækjabúnað Leitarstöðv- arinnar,“ sagði Arndís. „Við vonum innilega að framlag okkar hér í dag verði hvatning til ís- lenskra kvenna. Við skorum á konur að gera átak til þess að auka enn frekar mætinguna í krabbameinsleit til að tryggja betur eigin heilsu og velferð fjöl- skyldna sinna,“ sagði Arndís. Nýju tækin munu leiða til gjörbreytinga hjá röntgendeild Leitarstöðvar Krabbameins- félagsins hvað varðar vinnslu mynda, úrlestur, geymslu og að- gang að þeim. Þessi tækni leiðir einnig til byltingar í vinnuum- hverfi röntgenlækna og geisla- fræðinga. Þá gefur nýja tæknin möguleika á nákvæmari grein- ingu lítilla æxla og gagnast að- ferðin best í brjóstum yngri kvenna og hjá þeim sem hafa þéttan brjóstvef. Auk þess nota þessi tæki mun minni geisla- skammta en áður þekkist. Sigurður Björnsson, formaður Krabbameinsfélagsins, Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri, og Krist- ján Sigurðsson sviðsstjóri leit- arsviðs, tóku við gjöfinni og færðu gefendum þakkir. Gjöfin í gær er til viðbótar styrkjum Glitnis og Kaupþings til kaupa á tveimur tækjum. Leitarstöðin þarf fimm tæki og verða þrjú í höfuðstöðvunum í Skógarhlíð í Reykjavík, eitt tæki á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri og hið fimmta verður not- að sem fartæki á landsbyggðinni. Áætlað er að hug- og vélbúnaður sem tengist tækjunum fimm muni kosta um 130 milljónir króna. Gáfu Krabbameinsfélagi Íslands 120 milljónir Morgunblaðið/Ómar Góð gjöf F.v.: Þuríður Reynisdóttir, Guðrún Rut Eyjólfsdóttir, Heather Bird Tchenquiz, Arndís Björnsdóttir, Anna Lísa Sigurjónsdóttir, Guð- rún Agnarsdóttir forstjóri , Sigurður Björnsson, formaður Krabbameinsfélags Íslands, og Kristján Sigurðsson, sviðstjóri Leitarsviðs. Keypt verða þrjú fullkomin tæki til stafrænnar brjóstamyndatöku HEATHER Bird Tschenguiz og Robert, maður hennar, gáfu Krabbameinsfélaginu eitt tækj- anna þriggja. Hún var spurð hvernig á því stæði að þau, sem búa í Bretlandi, gæfu Krabbameins- félagi Íslands svo rausnarlega gjöf? „Við erum mjög náin Íslendingum í London og þetta málefni er okkur hjónum einnig mjög hugleikið,“ sagði frú Tchenquiz. Hún er stofn- andi og forstjóri HB Health sem m.a. vinnur að heilsueflingu og bættum lífsgæðum fólks á öll- um aldri. Maður hennar, Robert Tschenguiz, er þekktur fasteignaauðjöfur í Bretlandi. Hann á m.a. rúmlega 5% hlut í Exista og situr þar í stjórn. Lýður Guð- mundsson er stjórnarformaður Exista. „Markmið mitt í lífinu er að fræða um fyrirbyggjandi rann- sóknir og mikilvægi þess að greina sjúkdóma snemma. Eins hvernig má forðast hrörnunarsjúkdóma. Tengdamóðir mín hefur þjáðst af krabbameini í yfir 20 ár. Það er búið að fjarlægja bæði brjóst hennar og hún fékk einnig krabbamein í andlitið. Þetta málefni stendur okkur því nærri. Við viljum einnig endurgjalda ís- lensku þjóðinni því okkur finnst að Íslendingar hafi gert mikið fyrir okkur. Þetta er frábært félag [Krabbameinsfélagið] sem vinnur stórkostlegt starf,“ sagði Heather. Hún kvaðst vera þeirrar skoðunar að krabbameinsvarnir hér gætu verið öðrum fyrirmynd og að rannsóknir og reynsla héðan gæti komið öðrum þjóðum til góða. Við viljum endurgjalda íslensku þjóðinni Heather Bird Tschenguiz SIV Friðleifsdóttir heil- brigðisráðherra skrifaði í gær undir samning við lyfjafyrirtækið GlaxoSmit- hKline (GSK) um að fyrir- tækið tryggi Íslendingum 300 þúsund skammta af bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu til ársins 2011. Af hálfu GSK ritaði Hjörleifur Þórarinsson, framkvæmda- stjóri GSK á Íslandi, undir samninginn. Á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins segir, að samningurinn sé samhljóða samningi sem dönsk stjórnvöld hafi gert við GSK og sé kostn- aður íslenskra stjórnvalda vegna hans um 19,5 milljónir á þessu ári og 19,5 milljónir á því næsta. Það jafngildir því að greiddar eru um 130 krónur á hvern skammt til að tryggja að bóluefnið verði til reiðu ef á þarf að halda næstu fimm árin. Ráðuneytið segir, að samningurinn við GSK sé liður í undirbúningi sem íslensk stjórnvöld hafi unnið að síðustu ár vegna hugsanlegs heimsfaraldurs inflúensu. Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunin hefur skilgreint núverandi ástand sem viðbúnaðarstig og hvatt þjóðir heims til að huga að viðbúnaðaráætlunum við heimsfaraldri inflúensu. Segir ráðuneytið, að mikilvægur liður í slíkum viðbúnaði sé að tryggja landsmönnum bóluefni ef á þarf að halda. Framkvæmd samningsins við GlaxoS- mithKline verður á höndum sóttvarnalæknis. Samið um varnir gegn inflúensu Siv Friðleifsdóttir Íslendingum tryggðir 300 þúsund bóluefnisskammtar REYKJAVÍK er meðal 11 borga sem til- nefndar eru í ár til verðlaunanna World Tra- vel Awards sem besti áfangastaður fyrir skemmtiferðaskip í Evrópu. Samkvæmt upp- lýsingum frá Höfuðborgarstofu eru hinar borgirnar Amsterdam, Aþena, Cannes, Kaup- mannahöfn, Dubrovnik, Lissabon, Ósló, St. Pétursborg, Stokkhólmur og Feneyjar. Ferðaskrifstofur um allan heim velja besta áfangastaðinn ásamt aðilum úr skemmti- ferðaskipageiranum. Árið 2006 var Kaup- mannahöfn valin besti áfangastaður fyrir skemmtiferðaskip í Evrópu. Um það bil 80 skemmtiferðaskip eru nú þegar bókuð til Reykjavíkur í sumar og áætlaður farþega- fjöldi er á bilinu 60–70 þúsund. Verðlaunin verða afhent í Newcastle, Englandi, hinn 9. október næstkomandi. Reykjavík vinsæll áfangastaður ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.