Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
EDDA Þórey Kristfinns-
dóttir opnar sýningu sína
Vistaskipti á Café Karól-
ínu á Akureyri kl. 14 í dag.
Um sýningu sína segir
Edda: „Vistaskipti er upp-
spretta verka minna sem
ég sýni á Café Karólínu.
Við mannfólkið erum á ei-
lífu ferðalagi. Hús úr húsi,
sveit úr sveit, borg úr borg,
land úr landi, úr einni vist í aðra. Vistin getur verið
frá því að vera góð til þess að vera nöturleg. Við
ráðum ekki alltaf för. Verkin eru skúlptúrar, lág-
myndir, vídeó, textavek og ljósmyndir á striga.“
Sýningin stendur til 8. júní.
Opnun
Edda Þórey sýnir
vistaskipti
Vistaskipti
VOX academica flytur Ein
Deutsches Requiem eftir Jo-
hannes Brahms á tónleikum í
Langholtskirkju kl. 16 í dag.
Jón Leifs Camerata leikur
undir og einsöngvarar eru þau
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran
og Kristinn Sigmundsson barí-
tón. Stjórnandi kórsins frá
upphafi hefur verið Hákon
Leifsson en kórinn er nú að
ljúka sínu 11. starfsári.
Forsala aðgöngumiða fer fram í 12 Tónum,
Skólavörðustíg 15, Tónastöðinni, Skipholti 50d og
hjá kórfélögum. Miðaverð er 3.000 kr. í forsölu og
3.500 kr. við innganginn.
Tónleikar
Vox academica
flytur Brahms
Vox academica
ÞÓRUNN Eymundardóttir
opnar sýningu sína Hornberi í
Gallerí Boxi við Kaupvangs-
stræti 10 á Akureyri kl. 16 í
dag. Í fréttatilkynningu segir
um sýninguna: „…nær aldrei
fullum skýrleika á yfirborðinu.
Þú þarft að fara ofan í líka til
að sjá. Hvernig kemstu
framhjá farartálmunum,
hvernig kemstu eitthvert þar
sem er ekki pláss fyrir þig? Þú
ert of stór. Verund þín breytir öllu óhjákvæmi-
lega. Stærðir missa gildi sitt, stórt verður pínulít-
ið í raun en reynist svo enn stærra…“ Opið er á
laugardögum og sunnudögum frá 14–17.
Myndlist
Þórunn opnar í
Boxi á Akureyri
Þórunn Eymund-
ardóttir
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„Hugmyndin kemur frá finnsku
listakonunum, Agnetu og Kristiinu.
Þær langaði að setja saman nor-
rænan textílhóp sem myndi sýna
saman á Norðurlöndunum. Við
byrjuðum í Forum Box í Finnlandi,
næst sýndum við í Þrándheimi, og
nú erum við komnar hingað,“ segir
Guðrún Gunnarsdóttir textílkona,
spurð um sýningu sem opnuð verð-
ur í Listasafni ASÍ í dag.
Yfirskrift sýningarinnar er Frá
einum til óendanleika, en náttúran,
tíminn og eilífðin eru eins konar
þemu sýningarinnar.
„Þetta tengir okkur veð-
urfræðilega, og hugmynda-
fræðilega,“ segir Guðrún, og spurn-
ingunni um veðrið og hvernig það
birtist í verkunum verður ekki
svarað nema með því að skoða.
Tónverk fyrir hvern sal
„Þær finnsku fengu þá frábæru
hugmynd að fá tónskáld til að vinna
með okkur og hefur hann samið sitt
verk útfrá verkunum okkar. Við er-
um með mismunandi tónverk í söl-
unum þremur í ASÍ, og tónlistin
spilar mjög vel með verkunum.“
Þemað um óendanleikann er við-
eigandi á textílsýningu, því upphaf
textílsins hlýtur að vera í þræð-
inum sem spunninn er, ofinn, hnýtt-
ur, meitlaður eða leiddur haminn
með öðrum hætti. „Textíll hefur
fylgt okkur frá örófi alda, frá því
manneskjan varð til og fór að búa
eitthvað til úr plöntum eins og tág-
um.“ Guðrún segir að unga kyn-
slóðin nú til dags noti textíl á allt
annan hátt en hefðin hefur kennt
hingað til, blandi honum meira við
aðra list og kalli ekki endilega text-
íl. „Samt er verið að nota þráð og
efni, þótt efnið sé ekki kjarninn,
heldur hugmyndin sem kallar á
slíkt efni. Það að nota textíl er ekki
að detta upp fyrir, þótt minna sé
um að fólk læri að vefa og þrykkja
og leggi stund á hefðbundið text-
ílnám.“
Sýning textílkvennanna stendur
til 27. maí, og opið er í ASÍ 13–15,
alla daga nema mánudaga.
Fimm textíllistamenn og eitt tónskáld í Listasafni ASÍ
Þráðurinn í
óendanleikanum
Í HNOTSKURN
» Anna Þóra Karlsdóttir:verk úr þæfðri ull, með
vísanir í náttúruna.
» Guðrún Gunnarsdóttir:með málmþræði spyr hún
hvernig við umgöngumst nátt-
úruna og tortímum henni.
» Agneta Hobin: málmtext-íll er lýsir undrun yfir
stjörnum í ljósára fjarlægð en
virka samt svo nálægar.
» Kristiina Wiherheimo:beinir athyglinni að hinu
smágerða í musmunandi efn-
isgerðum hlutum, og skapar
nýja heima.
»Marianne Mansåker: klass-ískur góbelínvefnaður,
huglæg myndefni er vísa til
þess hlutlæga, byggingarlistar
og náttúru.
»Paola Livorsi: semur tón-list byggða á textílverk-
unum og frumefnin eldur, jörð
og vatn spila með sem hljóð-
gervingar málms, trés, skinns
og ullar.
Morgunblaðið/Ásdís
Textílkonur Kristiina, Anna Þóra, Agneta og Guðrún tóku sér hvíld frá
uppsetningu verka sinna í gær. Á myndina vantar Mariönnu og tónskáldið
Paolu Livorsi.
KAMMERKÓR Erics Ericsons frá
Stokkhólmi hlýtur Tónlist-
arverðlaun Norðurlandaráðs í ár
en kórinn á sér langa sögu og hefur
notið viðurkenningar sem einn
besti kór sem starfar í heiminum í
dag.
Í umsögn dómnefndar sagði:
„Kammerkór Eric Ericsons
gegnir mikilvægu hlutverki og er
fyrirmynd kóra í Svíþjóð, á Norð-
urlöndum og um allan heim vegna
framúrskarandi listrænnar tján-
ingar og frábærra gæða. Með sín-
um háþróaða hljómi er Kammerkór
Eric Ericsons nánast orðinn sam-
heiti fyrir „Norræna hljóminn“.
Hæfileiki kórsins til að draga fram,
lifa sig inn í og blása lífi í verk-
efnaskrá sem nær til verka frá end-
urreisnartímanum til vorra daga,
er einstakur. Með nýstárlegri fjöl-
radda sönglist hefur Kammerkór
Erics Ericsons veitt mörgum kyn-
slóðum tónskálda innblástur. Með
stöðu sinni í sænsku tónlistarlífi
hefur kórinn sífellt víkkað út starf-
semi sína og í dag starfar kórinn
með mörgum af fremstu hljóm-
sveitum heims. Jafnframt eru upp-
tökur Kammerkórs Eric Ericsons á
fjölmörgum verkum eftir sænsk og
norræn tónskáld, mikilvægt fram-
lag til skráningar norræns menn-
ingararfs.“
Árið 2007 hlýtur kór verðlaunin í
fyrsta sinn. Þetta er í fyrsta sinn í
sögu Tónlistarverðlaunanna að
kórar eru tilnefndir en stofnandi
kórsins, Eric Ericsson fékk sjálfur
þessi verðlaun sem túlkandi sígildr-
ar tónlistar árið 1995.
Alls voru 12 kórar tilnefndir til
verðlaunanna í ár.
Kammerkór Erics Ericsons hefur
sungið á Íslandi og haft náin tengsl
við íslenska kóra.
Norræni
hljómurinn
Kammerkór Eric Er-
icsons hlýtur
Tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs 2007
Verðlaunakórinn
TENGLAR
..............................................
www.eekk.se
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„FRANZ er svo æðislegur. Hann er svo frábær, að hann gat
ekki legið óbættur hjá garði,“ segir Sigurður Flosason um það
tiltæki hans og Kjartans Valdimarssonar píanóleikara að
snara sönglögum Schuberts yfir á mál spunans og djassins, en
þeir leika í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit á morgun kl. 15.
Er ykkur ekkert heilagt?
„Nei, alls ekki. Þetta er hugmynd sem hefur verið mörg ár
að gerjast og við erum búnir að vinna í þessu í nokkra mánuði.
Þetta er dálítið mál, en mjög skemmtilegt. Þessi músík inni-
heldur margt sem getur lagt sig ágætlega í spuna, eins og
áhugaverða hljómrænu, hljómaganga og tóntegundaskipti;
mikið drama og tilfinningalegt innihald. Ég veit ekki hvers
spunamenn gætu óskað sér meira. Við Kjartan höfum báðir
bakgrunn og innsýn í klassískri músík, þannig að þetta er eitt-
hvað sem er fyrst og fremst gaman að takast á við.“
Þið hljótið að gera ráð fyrir því að ljóðaelskendur setji
spurningarmerki við þetta tiltæki.
„Mikið vona ég að einhverjir geri það, og það verður þá
bara að hafa það. Það hafa verið sett spurningarmerki við
annað það sem maður hefur gert áður. Ég er á þeirri skoðun
að ef tónlist er sterk, þá þoli hún allt, geti tekið við ýmsu og
eflist við hverja raun. Ósköp væri heimurinn takmarkaður ef
ekki mætti gera neitt annað en það venjulega. Eru Lind-
enbaum, Du bist die Ruh og An die Musik ekki oft sungin á
sinn hátt? Mér þætti spennandi ef einhverjir tækju mín lög og
gerðu eitthvað nýtt við þau.“
Við elskum þig, Franz
Eftir Þröst Helgason
trhe@mbl.is
NÁTTÚRA, vald og verðmæti heitir
ný bók eftir Ólaf Pál Jónsson heim-
speking sem kom
út í gær í nýrri rit-
röð Hins íslenska
bókmenntafélags
um umhverfismál.
Í verkinu glímir
Ólafur Páll við
ýmsar grundvall-
arspurningar um
samband manns
og náttúru, með-
ferð valds í lýð-
ræðissamfélagi og rætur þeirra
verðmæta sem gefa mannlegri til-
veru gildi, eins og segir á bókarkápu.
Bókin skiptist í fjóra kafla eftir
efni kaflanna, „Náttúra“, „Vald og
verðmæti“, „Lýðræði“ og „Vinskap-
ur, vatn og mold“. Í meginköflunum
skiptast á léttari kaflar, fræðikaflar
og kaflar sem fara bil beggja. En það
eru einmitt ein skilaboð Ólafs Páls að
umræðan um umhverfismál hérlend-
is hafi ekki alltaf verið á viðunandi
plani.
„Það hefur skort forsendur til
þess að ræða þessi mál af fullu viti.
Þar hafa fjölmiðlar brugðist en ekki
síður fræðimenn sem hafa ekki verið
nægilega duglegir við að leggja um-
ræðunni til hugtök.“
Ólafur bendir til dæmis á að ýms-
ar hugmyndir um lýðræði hafi verið
áberandi í umræðunni svo sem þátt-
tökulýðræði, samræðulýðræði, full-
trúalýðræði og íbúalýðræði en þær
skorti kjölfestu í fræðilegri hugsun.
„Vandinn er sá að þessar hug-
myndir hafa ekki fengið að þroskast í
rökræðu heldur hafa þær orðið
kappræðu stjórnmálanna að bráð,“
segir Ólafur Páll en hann telur að í
umfjöllun um umhverfismál hér hafi
hið lýðræðislega ferli verið ófullkom-
ið.
„Fræðimenn voru til dæmis gagn-
rýndir fyrir að leggja sitt til málanna
sem lýsir skorti á lýðræðislegum
skilningi. Gagnrýni ætti að vera eðli-
legt innlegg í lýðræðislega umræðu.
Þannig fer rökræða um hlutina fram
en hér leggja menn frekar stund á
kappræðu sem lýtur öðrum lögmál-
um, eins og ég fjalla um í bókinni,“
segir Ólafur Páll.
Náttúra og vald
Ólafur Páll
Jónsson