Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 31
úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 31 Ekki hefur farið framhjá neinum að framundan eru kosningar og því fjöl- menntu Þórshafnarbúar og nær- sveitungar á fund þar sem frambjóð- endur allra flokka voru samankomnir í félagsheimilinu Þórsveri til að boða fagnaðarerindi sitt. Heimamenn taka öllu slíku núorð- ið með fyrirvara enda orðnir lang- þreyttir á fögrum fyrirheitum sem flest eru svo svikin æ ofan í æ og þykir þeim því lítið til kosningalof- orða koma.    Þó nánast hefði verið fullt hús í fé- lagsheimilinu þá hefði mátt búast við enn fleirum ef fundarboðið hefði ver- ið greinilegra en allmargir urðu af fundinum vegna þessa. Mörg mál brunnu á fólki og höfðu gestirnir því ærinn starfa við að svara spurningum á þeim nauma tíma sem þeim var skammtaður. Það var álit heimamanna að æskilegra hefði verið að frambjóðendur hefðu gefið sér ögn meiri tíma til heim- sókna á landsbyggðinni almennt, komið oftar og frá færri flokkum í einu. Á einni kvöldstund gefst ekki mikill tími til að ræða mál og svara spurningum sem beint er til allra flokka.    Fundurinn var málefnalegur og snerust umræður og spurningar heimamanna ekki aðeins um lands- hlutabundin hagsmunamál, svo sem jöfnun námskostnaðar og fjar- skiptamál. Mannúðarsjónarmið komu einnig fram, svo sem hvort Ísland yrði áfram á ,,lista hinna staðföstu þjóða“, sem lýstu yfir stuðningi við innrásina í Írak en einnig var rætt um vaxtastefnuna í landinu og taumlausan gróða bankanna meðan almenningi blæðir en þegar stórt er spurt verður fátt um svör, einkum þegar tíminn er naumur.    Vegamál og samgöngur eru eitt af stóru málunum hér á svæðinu. Fyr- irhuguðum vegabótum hefur sífellt verið frestað, til dæmis Norð- austurvegi um Hólaheiði og Hófa- skarð, einnig er margbúið að fresta vegagerð á Brekknaheiði. Íbúar líta því ekki á það eins og einhverja náðargjöf að loks sé komið að útboði á Hólaheiðarveginum – reyndar bara fyrsta áfanga – heldur sjálfsögð og löngu tímabær réttindi enda er núverandi leið líkust göml- um kerruslóða og Melrakkaslétta lítið betri.    Það rifjuðust því upp fyrir fund- argestum orð sem sögð voru á fram- boðsfundi hér fyrir átta árum, ,,að jafnvel köttur ætti á hættu að fót- brotna“ ef hann hætti sér út á þessa vegi og ástandið enn óbreytt eftir tvö kjörtímabil, þó það standi loks til bóta. Morgunblaðið/ Líney Sigurðardóttir Vorveður Veðurblíða síðustu daga hefur nú vikið fyrir vorhreti og brælu svo illa viðrar fyrir grásleppukarla og smábáta. ÞÓRSHÖFN Líney Sigurðardóttir fréttaritari Rúnar Kristjánsson áSkagaströnd veitir því athygli að talað er um að fá konur til að leigja leg sín undir barnsburð og svo eru leiksýningar í „legunum“ líka: Nútíminn með fjöri fleygu frelsið vill í öllu tjá. Enda bæði leg til leigu og Leg til þess að horfa á! Hann bætir við um norðlenskuna: Norðlenskan í munni manns markar stöðuvísi, eins og bundinn orðakrans upp frá tungu rísi. Auðunn Bragi Sveinsson las í blöðum á Akranesi að kattahald væri bannað, en að samt sæjust kettir þar. Honum kom í hug: Þarna kattabannið brást; bæjarfólkið veit það. Einhver kisa enn mun sjást, ef að vel er leitað. Guðmundur Guðmundsson sendir vísu vegna Landsvirkjunar: Nú Valgerður allar veitingar toppar svo valdamenn flesta setur hljóða. Er hvolpurinn niður úr kjöltunni hoppar og krafsar sig upp í stólinn góða. Kristján Bersi Ólafsson yrkir: Mörgum þykir um malbikið vænt og moka í það ógrynni af krónum. En við skulum muna að grasið er grænt og gott til að hafa í skónum. Í Axarsköftum Jóa í Stapa má finna lyfseðil sem hann sendir til vinar síns með vínflösku: Lyf þetta bætir úr böli og nauðum, bætandi geðið hjá ríkum og snauðum, blóðstreymi örvar og bjartsýni vekur, bægir frá kvíða og leiða burt hrekur, meltingu bætir og bægir frá kvefi, brjóstþyngslum eyðir, menn léttast í skrefi, liðina mýkir og lúa það eyðir, laðar fram gleði, úr vandræðum greiðir, raddböndin liðkar og lifandi óma lætur í eyrunum mætavel hljóma. VÍSNAHORNIÐ Leg til leigu og á leiksviði pebl@mbl.is OKKAR FÓLK Í FRAMBOÐI TIL ALÞINGISKOSNINGA 2007 REYKJAVÍKURKJÖRDÆMI – NORÐUR 1. Katrín Jakobsdóttir 2. Árni Þór Sigurðsson 3. Paul Nikolov 4. Steinunn Þóra Árnadóttir 5. Kristín Tómasdóttir 6. Þröstur Brynjarsson 7. Lísa Kristjánsdóttir 8. Kári Páll Óskarsson 9. Sjöfn Ingólfsdóttir 10. Alexander Stefánsson 11. Bergljót Stefánsdóttir 12. Birna Þórðardóttir 13. Steinar Harðarson 14. Ásdís Benediktsdóttir 15. Hrefna Sigurjónsdóttir 16. Rúnar Sveinbjörnsson 17. Reynir Jónasson 18. Ingibjörg Ýr Pálmadóttir 19. Halldór Halldórsson 20. Einar Már Guðmundsson 21. Lena M. Rist 22. Hjörleifur Guttormsson REYKJAVÍKURKJÖRDÆMI – SUÐUR 1. Kolbrún Halldórsdóttir 2. Álfheiður Ingadóttir 3. Auður Lilja Erlingsdóttir 4. Guðmundur Magnússon 5. Jóhann Björnsson 6. Halldóra Björt Ewen 7. Elín Sigurðardóttir 8. Árni Stefán Jónsson 9. Ásta Arnardóttir 10. Ársæll Másson 11. Guðrún Yrsa Ómarsdóttir 12. Friðrik Atlason 13. Sveinn Rúnar Hauksson 14. Drífa Snædal 15. Ósk Uzondu Ukachi Anuforo 16. Sigríður Kristinsdóttir 17. Víkingur Kristjánsson 18. Elías Halldór Ágústsson 19. Jón Viktor Gunnarsson 20. Halldóra H. Kristjánsdóttir 21. Einar Laxness 22. Margrét Guðnadóttir SUÐVESTURKJÖRDÆMI 1. Ögmundur Jónasson 2. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir 3. Gestur Svavarsson 4. Mireya Samper 5. Andrea Ólafsdóttir 6. Karl Tómasson 7. Svala Heiðberg 8. Thelma Ásdísardóttir 9. Emil Hjörvar Petersen 10. Wojciech Szewczyk 11. Ásdís Bragadóttir 12. Hafdís Hannesdóttir 13. Þórir Steingrímsson 14. Birgitta Jónsdóttir 15. Þorleifur Friðriksson 16. Erlendur Jónsson 17. Þóra Elfa Björnsson 18. Sigurður Flosason 19. Sveinbjörn Markús Njálsson 20. Jóhanna B. Magnúsdóttir 21. Anna Þorsteinsdóttir 22. Höskuldur Þráinsson 23. Kristín Halldórsdóttir 24. Benedikt Davíðsson ALLT ANNAÐ LÍF - með vinstri grænum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.