Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 49 MINNINGAR SUNNUDAGINN eftir málþingið um skáksnilld Friðriks Ólafssonar á síðasta ári bauð Friðrik nokkrum gestum til málsverðar á Skólabrú. Þar fóru fram athyglisverðar um- ræður sem ekki verða raktar hér. Þá fór Boris Spasskí að tala um afleiki sem hefðu breytt skáksögunni. Ekki fór á milli mála að Spasskí taldi sig hafa leikið nokkra slíka um dagana. Upp í hugann kom biðstaðan úr skák Spasskí við Mikhail Tal í loka- umferð Sovétmeistaramótsins 1958, sem haldið var í heimaborg töfra- mannsins, Riga. Almennt var talið að Spasskí ætti vinningsstöðu. Á úrslit- um þessarar skákar réðst hvaða fjórir skákmenn myndu verða fulltrúar Sovétríkjanna á milli- svæðamótinu í Portoroz í Slóveníu. Allt sem máli skipti var komið í kring og aðeins þessi biðskák eftir. Staðan þessi: 1. Petrosjan 12 v. 2. Tal 11 ½ v. og biðskák. 3. Bronstein 11 ½ v. 4. Averbakh 11 v. 5. Spasskí 10 ½ v. og biðskák. Spasskí var úfinn og sveittur að morgni biðskákardagsins. Hann hafi legið yfir biðstöðunni alla nóttina. Þegar hann gekk til tafls að nýju hitti hann fyrir Tigran Petrosjan í anddyri skáksalarins og mælti hin fleygu orð: “Í dag verður þú Skák- meistari Sovétríkjanna.“ Staða Tal hékk á bláþræði en hann fann ávallt leið til að halda taflinu gangandi. Upp kom staða þar sem við blasti að ekki var meira en jafn- tefli að hafa en Spasskí teygði sig of langt, Tal vann eftir 74 leiki og varð Sovétmeistari annað árið í röð. Þetta var heilmikil dramatík á sín- um tíma en þó var þetta ekki skákin sem Spasskí hafði í huga heldur þessi: Skákþing Sovétríkjanna 1962, Spasskí – Polugajevskí Spasskí hafði teflt þessa skák af mikilli hugmyndaauðgi og nú þurfti hann aðeins að leika 34. Kf6! Dxd4+ 35. Kf7! – Tjaldið. Þess í stað valdi hann 34. Kh5?? en eftir 34. .. Db5+! 35. Kh4 Be7+ 36. Kh3 Dg5! 37. Dxg5 Bxg5 38. Hxg5 Hd8! var Polu skyndilega kominn með betra hrósendatafl sem hann vann að lokum. Og hvernig breytti svo afleikurinn 34. Kh5 skáksögunni? Jú, Spasskí hefði með sigri tryggt sér sæti á millisvæðamótinu í Stokkhólmi 1962. Það hefði nú kannski ekki breytt miklu með sigurvegarann þar, hinn 18 ára gamla Bobby Fischer sem varð 2 ½ vinningi fyrir ofan sovésku hersveitina. En á eyjunni Curacao í karabíska hafinu þar sem áskor- endamótið fór fram nokkrum mán- uðum síðar hefði Spasskí, að eigin sögn, aldrei látið Petrosjan komast upp með að vinna mótið og réttinn til að skora á Mikhael Botvinnik heims- meistara. HM-einvígi í Moskvu 1984–́85; 37. skák: Karpov – Kasparov Maraþoneinvígi Karpovs og Kasp- arov 1984–85 stóð í meira en fimm mánuði og var slitið þegar staðan var 5:3 fyrir Karpov. Fyrirkomulag ein- vígisins var þannig að jafntefli voru ekki talin og sá teldist sigurvegari er fyrr ynni sex skákir. Karpov komst í 5:0. Hann var með hartnær unnið tafl í 31. skákinni. Kasparov minnk- aði muninn í 1:5 með sigri í 32. skák- inni. Í síðasta sinn í þessu einvígi brosti skákgyðjan til Karpovs. Hann gat nú leikið 33. a6! t.d. 33. .. Bb3 34. Rxb3 Hxb3 35. a7 Ha3 36. He8+ ásamt 37. a8(D) og endataflið með hrók gegn biskup er léttunnið. Þetta hafði þýtt að Karpov hefði haldið heimsmeist- aratitlinum næstu þrjú árin a.m.k. Efnishyggjumaðurinn Karpov lék hinsvegar 33. Hxd1?, Kasparov svar- aði með 33. .. Bd4! og náði jafntefli í 71. leik. Þremur árum síðar háðu þeir sitt fjórða einvígi í Sevilla á Spáni. Nú áttu skákirnar aðeins að vera 24 tals- ins og þegar hér er komið sögu er lokaskákin í fullum gangi, Karpov er yfir 12:11 en er í bullandi tímahraki. Honum dugir jafntefli en vinni Kasp- arov heldur hann titlinum á jöfnu: HM-einvígi í Sevilla 1987; 24. skák: Kasparov – Karpov Kasparov hafði komið mönnum mjög á óvart í upphafi tafls: í stað þess að reyna að knésetja Karpov með snarpri atlögu strax í byrjun, valdi hann hægfara byrjun og náði að byggja upp mikla spennu í mið- taflinu. Hann var nýbúinn að missa af vænlegri leið. Enn einu sinni brosti skákgyðjan við Karpov sem gat nú leikið 33. .. Rc5! því eftir 34. Dd8+ Kh7 35. Dxc8 Da1+! 36. Kg2 Dxe5 hefur hann unnið manninn til baka og getur ekki tapað. Hann lék hinsvegar 33. .. Re7?? og eftir 34. Dd8+ Kh7 35. Rxf7 Rg6 36. De8 De7 37. Dxa4 Dxf7 38. Be4! Kg8 39. Db5 Rf8 40. Dxb6 var hvítur peði yfir. Skákin fór i bið og Kasparov vann eftir 64 leiki og hélt heimsmeistaratitlinum á jöfnu. Morgunblaðið/Ómar Aufúsugestur Boris Spasskí, fyrrverandi heimsmeistari í skák, á málþingi um arfleifð Friðriks Ólafssonar stórmeistara í Landsbankanum í fyrra. Afleikir sem breyttu skáksögunni SKÁK helol@simnet.is Helgi Ólafsson Kjördæmamótið á Ísafirði 19.–20. maí Spilarar eru þessa dagana í óða önn að búa sig undir kjördæmamótið í bridds sem verður að þessu sinni í kjördæmi Vestfirðinga og spilað helgina 19.–20. maí. Spilastaður verður Menntaskólinn á Ísafirði. Keppnisgjald er 32.000 kr. á kjördæmi. Dagskráin verður sem hér segir (ath. – breytt tímaáætlun til að ljúka spilamennsku fyrr á sunnudegi): Laugardagur Setning 10:00 1. umferð 10:15 -11:45 Matur 11:45- 12:30 2. umferð 12:30 - 14:00 3. umferð 14:10 - 15:40 4. umferð 15:50 - 17:20 5. umferð 17:30 - 19:00 6. umferð 19:10 - 20:40 Matur 20:40 7. umferð 10:30 - 12:00 8. umferð 12:15 - 13:45 9. umferð 14:15 - 15:45 Gullsmárinn Briddsdeild FEBK Gullsmára spilaði tvímenning á 11 borðum fimmtudaginn 3. maí. Miðlungur 220. Efst NS: Guðrún Gestsd. - Bragi V. Björnsson 280 Elís Kristjánsson - Páll Ólason 275 Guðm. Magnúss - Leifur Kr. Jóhanness. 271 Karl Gunnarss. - Gunnar Sigurbjörnss. 259 Efst AV: Sigtr. Ellertss. - Þorsteinn Laufdal 268 Bragi Björnsson - Viðar Jónsson 265 Björn Björnsson Jens Karlsson 245 Eysteinn Einarss. - Jón Stefánsson 241 Aðaltvímenningur BR og Topp 24 einmenningur Bræðurnir Hrólfur og Oddur Hjaltasynir skoruðu grimmt síðasta kvöldið í aðaltvímenningi BR og sigruðu af öryggi. Fróðir menn telja að ekkert par hafi unnið aðaltví- menning BR jafn oft og þeir bræð- ur!! Lokakvöld BR verður 8. maí þar sem 24 efstu spilarar vetrarins í bronsstigum spila einmenning með veglegum verðlaunum. Efstu pör urðu eftirtalin: Hrólfur Hjaltas. - Oddur Hjaltason 60,7% Guðm. Baldurs. - Steinberg Ríkarðs. 56,7% Vilhjálmur Sigurðsson - Jón Ingþórsson/ Sigurbjörn Haralds 54,0% Rúnar Einars. - Haraldur Gunnlaugs. 52,6% Ómar Olgeirsson - Kristján Blöndal/ Ragnheiður Nielsen 52,1% Gylfi Baldursson - Arnar G. Hinrikss. 52,0% Næsta föstudagskvöld telur með í bronsstigum vetrarins svo enn er von fyrir þá sem ekki eru búnir að tryggja sig inn á topp 24 listann sem gefur þátttökurétt í einmenningnum næsta þriðjudag. Ef einhver getur ekki mætt þá er farið niður listann svo þeir sem eru rétt fyrir neðan 24.sætið eiga ágæta möguleika að spila með. BRIDDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is ✝ Benedikt Sigurðsson fæddistá Þiðriksvöllum í Stein- grímsfirði 22. nóvember 1922. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Hólmavík 27. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guð- rún J. Jónatansdóttir f. 29.1 1896, d. 5.12 1988 og Sigurður Helgason f. 21.8. 1895, d. 9.11.1975 Systkinin voru 10 og eru þau Margrét f. 6.8.1918, d. Björn f. 18.10. 1919, látinn, Helgi f. 8.8.1921, Sigríður f. 7.10.1924, látin, Jón 14.4 1927, látinn, Jónatan f. 19.12 1929, Þuríður Sigurrós f. 22.4 1931, látin Maggi Sigurkarl f. 20 3 1933, látinn og Haukur Heiðdal f. 30.12 1936. Benedikt átti tvær hálfsystur, þær Svanhildi Kjart- ans og Maríu, sem er látin. Benedikt ólst upp við öll venjuleg sveitastörf. Síðar á æv- inni vann hann alla venjulega verkamannavinnu á Hólmavík og síðustu árin var hann um- sjónarmaður með kirkjugarð- inum á Hólmavík. Hann hafði mjög gaman af að spila brids. Benedikt verður jarðsunginn frá Hólmavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Mig langar að kveðja Benedikt eða Bensa eins og hann var oft kallaður. Mér brá mikið að heyra af andláti hans. Enginn veit sína ævi fyrr en hún er öll. Enda get ég ekki annað en skrifað til þín nokkur orð, til svona hörku manns eins og þú varst og ert á nýja staðnum. Hörkutól, já það varstu, elsku Bensi minn, þótt þér fyndist það ekki, þá fannst mér og öðrum það. Dugn- aðurinn í þér, ég á bara ekki orð yfir orkuna sem þú hafðir. Ég kynntist Bensa eða vissi hver hann var í gegn- um Ragnheiði Ingimundardóttur og Sigurð Gunnar Sveinsson því dóttir mín Aníta var svo mikið hjá Ragn- heiði og Sigga í sveitinni á sumrin. Hrófá var hennar staður, þar sá Ragnheiður um kræsingarnar handa Hrófárbræðrum á því heimili. Ég kom stundum í heimsókn þar, þegar við komum til Hólmavíkur. En ég var frekar gjörn á það að ruglast á þeim Bensa og Bubba því mér fannst bræðurnir svo líkir. En það lærðist með tímanum að þekkja þá í sundur. Þegar ég byrjaði að vinna hjá Hólmarvíkurhreppi við ræstingar var mér úthlutað lista yfir fólkið sem ég átti að þrífa hjá. Ég var svo lánsöm að Bensi var á blaði hjá mér og þann- ig kynntist ég honum miklu betur. Bensa hitti ég alltaf á mánudögum og þá spjölluðum við saman eftir að ég var búin að þrífa og var farin að kunna vel á hann Bensa minn. Hon- um fannst ég alltaf gera of mikið hjá sér og var því búinn að setja bláan kaffibolla sem ég átti hjá honum á borðið og heitt kaffi, ásamt molum og kandís, allt tilbúið. Svo settist hann niður og beið eftir að ég kæmi og drykki með honum kaffi. Þegar hann gerði þetta fannst hon- um nóg vera komið af þrifum. Það var reglulega gaman að spjalla við þig, Bensi, við gátum talað um allt, alveg sama hvað það var. Þú tal- aðir mikið um Jón Þór, son Gunnars Jónssonar, hann átti mikið pláss í hjarta þínu og þú saknaðir hans ef hann var ekki á svæðinu. Þú varst mjög ánægður þegar hann bað þig um afnot af bílskúrnum þínum. Það gladdi þig að hann skyldi leita til þín með það. Hvað þú varst stoltur af þeim strák segir líka margt um þig, Bensi minn, þú varst líka góður mað- ur. Mér finnst erfitt að þurfa að kveðja þig. Það er nú eitt við starf eins og það sem ég var í, að það gefur manni svo mikið að getað hjálpað en um leið er erfitt að kveðja, því náttúrulega tengist maður öllum sem maður þríf- ur hjá og er búinn að kynnast ykkur heilmikið. Svo þegar kemur að þessu, þá er svo erfitt að kveðja. Ekki get ég ráðið þessu en ég get átt yndislega fallegar minningar um góðar samverustundir með þér, Bensi minn. Mig langaði oft að koma til þín upp á spítala en ég kunni ekki við það en mig langaði samt að kíkja á þig. Svona getur maður verið tregur, mér fannst ég bara vera að klína mér með að fara, en ég veit að þú hefðir ekki tekið því þannig. Takk fyrir allt, Bensi minn, þín verður sárt saknað og ég veit núna að þér líður betur. Það sem huggar mig mest er það að ég veit að þú vildir ekki lifa svona eins og þú varst orð- inn. Elsku Bensi minn, Guð blessi minningu þína. Ég kveð þig nú samt með sorg í hjarta og mun aldrei gleyma þér. Takk fyrir að leyfa mér að kynnast þér. Takk fyrir kaffið. Takk fyrir allt spjallið. Takk fyrir allt. Ég votta öllum ættingjum og vin- um samúð mína María Antonía Jónasdóttir. Benedikt Sigurðsson Elsku mamma. Ég sá á símanum mínum að Svava systir mín væri að hringja og ætl- aði að grínast í henni. Fía systir þín stoppaði mig af, tilkynnti mér að þú hefðir dáið skyndilega. Nei, ekki þú, elsku mamma, ég elskaði þig, ég fann rosalega til, nýbúinn að missa pabba líka, en nú ert þú komin til pabba. Þú varst búin að vera lengi veik, annað eins æðruleysi fyrirfinnst ekki og ætla ég að taka mér það til fyr- irmyndar, en aldrei grunaði mig að þú myndir yfirgefa okkur svo snemma. Ég átti eftir að sýna þér al- mennilega ársgamlan son minn, nýja húsið mitt og fyrirtækið mitt. Þú skilur eftir son í mikilli sorg. Löngu eftir áfallið renna enn tár á koddann minn. Ég veit að þú sérð mig mikið ósáttan. Ég man svo margt, svo ótal margt. Hólmfríður Sigurðardóttir ✝ Hólmfríður Sig-urðardóttir fæddist á Akureyri 23. september 1939. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 3. mars síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Akureyrar- kirkju 16. mars. Manstu öll spilakvöld- in á Kleppi, þar varst þú að vinna og kenndir okkur systkinunum að umgangast alla sem jafningja. Ísbúðina á Lækjartorgi sem þú rýmdir af því að þú varst með 3 börn. Endalausar minningar er hægt að rifja upp af syni sem leit upp til mömmu sinnar. Ég hef alltaf viður- kennt að ég sé einn mesti mömmustrákur sem til er. Ástæðuna veistu mætavel, þú umgekkst mig alltaf sem son þinn, þrátt fyrir erfiðleika heima fyrir. Þegar við systkinin uxum úr grasi varstu svo stolt af því hvað hafði orðið úr okkur. En veistu mamma, að þetta var að mestu leyti þér að þakka? Nú, með mjög stuttu millibili, hafa börnin ykkar misst báða foreldra sína, það er bara ekki auðvelt. En ég veit að þið pabbi fylgist með okkur. Mamma mín, ég held áfram að kenna börnunum mínum allt það góða sem þú og pabbi kennduð mér. Því ég veit að það mun reynast þeim vel. Mamma mín, þú varst góð mamma. Þinn elskandi sonur, Lúther.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.