Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 43
MÓÐIR mín var grunnskólakenn-
ari þar til hún komst á eftirlauna-
aldur. Á síðkvöldum sat hún við borð-
stofuborðið og
undirbjó verkefni
morgundagsins,
lagði hart að sér
kvöld eftir kvöld, ár
eftir ár. Þegar ég
stálpaðist undraðist
ég oft samviskusemi
hennar. Líklega var það hugsjónin
um „að koma einhverjum til þroska“
sem hvatti hana áfram, það var
a.m.k. ekki launaseðillinn. Gamlir
nemendur eiga það til að stoppa mig
úti á götu og segja mér hvernig þau
búi enn að grunnskólakennslu og aga
móður minnar. Þau biðja að heilsa,
með þakklæti.
Konur eins og mamma
Móðir mín var vinnukona kerf-
isins. Hún var ein af þessum mátt-
arstólpum íslensks velferðarsam-
félags. Hinar konurnar allar eru það
með henni, samviskusamar vinnu-
konur. Það eru þær sem halda
mennta- og heilbrigðiskerfinu gang-
andi. Á lágum launum eins og vinnu-
konum sæmir. Þær sjá um allt það
dýrmætasta sem við eigum eins og
þær hafa gert í gegnum aldirnar.
Þær hugsa um börn, unglinga, afa og
ömmu. Og þær hugsa um hina sjúku.
Þetta eru konurnar sem segja ekki
nei við meiri vinnu, svokölluðum
aukavöktum sem verða æ fleiri, þótt
þær hafi margt þarfara við tímann að
gera. Þær redda þannig manneklu
„hátæknisjúkrahússins“ fyrir horn í
hverri viku með samviskusemi í
hjarta. En hversu lengi halda þær
það út?
Steinsteypulausnir
eða betri kjör?
Á meðan vinnukonur kerfisins
stunda vinnu sína af samviskusemi
hrjáir samviskubitið aðra. Nú keppir
hver um annan þveran að lofa fleiri
hjúkrunarrýmum, stærri deildum,
nýjum viðbyggingum. Meiri stein-
steypa virðist vera sú lausn sem lík-
legust er til vinsælda. Vissulega er
þörf á brýnum úrbótum í þeim efn-
um. En hvernig á að búa að vænt-
anlegum starfsmönnum sem nýju
rýmin kalla á? Hver ætlar að ganga
um hallir steinsteypunnar þegar
manneklan herðir að og sam-
viskusemi kvenna annar ekki eft-
irspurn?
Tæplega 600 hjúkrunarfræðinga
vantar til þess að leysa úr þeirri erf-
iðu manneklu sem við blasir í heil-
brigðisgeiranum. Það er líka alvar-
legur skortur á sjúkraliðum. Í
framtíðinni blasir einnig við alvarleg
mannekla í öðrum störfum, fag-
lærðra sem ófaglærðra. Þessi staða
er alls staðar uppi á borðinu innan
heilbrigðisþjónustunnar. Fagfólk
flýr lág laun á barna- og unglinga-
geðdeild LSH og iðjuþjálfun er í upp-
námi vegna láglaunastefnu ríkisins.
Enginn tekur á rót vandans.
Reynslan í öðrum löndum sýnir að
það felst engin töfralausn í því að
setja stofnanir velferðarkerfisins í
annan rekstrarbúning eða með
einkavæðingu. Vissulega rauk út-
varpsstjóri upp í launum þegar Rík-
isútvarpið varð ohf. Ætli ræstitækn-
ar RÚV hafi gert það líka?
Uppstokkun!
Það er deginum ljósara að nýrrar
og róttækrar hugsunar, breyttra
áherslna og bættra kjara er þörf inn-
an velferðarkerfisins. Lausnir á náð-
ugu ævikvöldi aldraðra og góðri
umönnun sjúkra felast ekki í aukinni
stofnanavæðingu heldur betri ein-
staklingsmiðaðri þjónustu. Betri
þjónusta merkir m.a. bætt kjör og
aðlaðandi vinnuaðstæður þeirra sem
hana veita. Mikill fjöldi aldraðra vill
búa heima hjá sér eins lengi og þeir
mögulega geta. Það á að vera for-
gangsverkefni að byggja upp öfluga
og víðtæka heimaþjónustu og draga
úr stofnanavæðingu og steinsteypu-
hugsun eins og kostur er. Hér er rót-
tækrar og nýrrar nálgunar þörf jafnt
í málefnum aldraðra sem öryrkja.
Ef við eigum að geta rekið metn-
aðarfulla og skapandi heilbrigð-
isþjónustu og skólakerfi verður að
horfast í augu við þá staðreynd að
láglaunastefna til handa vinnukon-
ustéttum velferðar gengur ekki upp
til lengdar. Hið sjúka verðmætamat
sem lýsir sér í því að mikilvægustu
umönnunar- og uppeldisstörf sam-
félagsins eru láglaunastörf sem
hrekja öflugt og gott starfsfólk í
burtu er ólíðandi. Hér þarf að koma
til einörð sannfæring og ástríðufullur
vilji til breytinga.
Vinnukonur velferðar
Eftir Guðfríði Lilju Grétarsdóttur
Höfundur skipar 2. sæti Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
í Suðvesturkjördæmi.
Það er fimmtudagskvöld og ég er
tilbúinn að spá í spilin núna þegar
enn eru tíu dagar til kosninga. Ég
geng út frá því að
kosningaþátttakan
verði að meðaltali
85%. Samkvæmt því
ættu að koma upp úr
kjörkössunum tæp-
lega 190.000 at-
kvæðaseðlar. Ég
ætla að sleppa öllum málalengingum:
Númer eitt tel ég augljóst að Ís-
landshreyfingin nái ekki inn manni.
Ég tel líklegt að þeir verði með um
3% atkvæða á landsvísu en hvergi
nægilega mikið til að ná inn manni.
Ég met það svo að Frjálslyndir
muni fá um 7% atkvæða á landsvísu
og tvo menn kjörna, annan í dreifbýl-
inu og hinn á höfuðborgarsvæðinu.
Þeir gætu hugsanlega bætt við
þriðja manninum á kostnað Fram-
sóknar.
Sjálfstæðisflokkurinn mun vænt-
anlega fá um 35,5% atkvæða á lands-
vísu eða um 66.000 atkvæði og 24
menn kjörna, þar af 10 á landsbyggð-
inni og hina 14 á höfuðborgarsvæð-
inu.
Samfylkingin ætti að hala inn 18
þingmenn, sjö í dreifbýlinu og 11 á
höfuðborgarsvæðinu, með rúmlega
47.000 atkvæðum, sem er um 25%
kjörfylgi.
Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð fær samkvæmt mínum kokka-
bókum um 16% kjörfylgi og 10 menn
kjörna, þar af fjóra í dreifbýlinu og
hina sex á höfuðborgarsvæðinu.
Framsóknarflokkurinn stendur
allvel úti á landsbyggðinni, þar sem
hann ætti að ná inn sjö þingmönnum,
en á höfuðborgarsvæðinu met ég það
svo að flokkurinn fái tvo menn
kjörna. Heildarkjörfylgi flokksins
yrði þá tæp 13% með 24.000 atkvæð-
um.
Ef niðurstöðurnar verða þessar
mun stjórnin halda velli með þriggja
þingmanna meirihluta. Mér virðist
samt víða mjótt á munum og smá-
vægilegar breytingar á því sem hér
er áætlað geta sett strik í reikning-
inn. Hins vegar tel ég ólíklegt að
stjórnarandstaðan nái því markmiði
sínu að fella ríkisstjórnina.
Tíu-daga
kosningaspá
Eftir Braga Jósepsson
Höfundur er rithöfundur og fv. prófessor.
Hraustir
menn…
…og hörkutól!
Í dag kl. 12 kynna Einar og Sverrir Þorsteinssynir
ævintýraferð sína, Round the world – rtw.is
í verslun MotorMax að Kletthálsi 13. Eins og
nafnið bendir til verður farið hringinn í kringum
hnöttinn. Ferðin tekur 90 daga og verða kapp
arnir fyrstir Íslendinga til að keyra torfærur og
vegleysur svo vikum skiptir á framandi slóðum
til að ná þessu ótrúlega markmiði. Líttu við og
hittu kappana og sjáðu græjurnar sem koma eiga
þeim hringinn í kringum hnöttinn.
Það er engin tilviljun að þeir bræður velja Yamaha 660
XT fyrir þessa mögnuðu ferð. Hér er einfaldlega hjól
sem hægt er að bjóða öfgafullar aðstæður fjarri
mannabyggðum. Einfalt, öruggt og óbilandi gæði.
Yamaha
700 Raptor
fjórhjól
– magnað leiktæki.
Yamaha 660 XT
l!
Starcraft RT
fellihýsin
– fyrir þá sem vilja komast
ótroðnar slóðir.
Og fleiri hörkutól!
MotorMax er verslun þeirra sem vilja fara alla leið.
Hér er smá brot af úrvalinu okkar,
en sjón er sögu ríkari.
MotorMax . Klettháls 13 . 110 Reykjavík . Sími 563 4400
www.motormax.is
MotorMax Egilsstöðum MotorMax Akureyri