Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 14
BAUGUR Group hefur lagt fram
óformlegt tilboð í allt hlutafé Mosa-
ic Fashions fyrir hönd nýs félags,
Newco, sem Baugur og fleiri fjár-
festar ætla að stofna. Stjórn Mosaic
tilkynnti þetta til kauphallarinnar,
OMX á Íslandi, í gær. Fram kemur í
tilkynningunni að tilboðið svari til
17,5 króna á hlut. Þá segir að þessi
mál séu á frumstigi og ekki tryggt
að formlegt yfirtökutilboð komi
fram. Lokagengi bréfa Mosaic í
kauphöllinni í fyrradag var 16,30
krónur á hlut.
Viðskipti voru stöðvuð með
hlutabréf Mosaic í kauphöllinni í
gærmorgun skömmu áður en til-
kynning stjórnar félagsins um
óformlegt yfirtökutilboð Baugs var
birt þar. Síðar voru bréfin færð á
athugunarlista.
Breska blaðið The Times sagði
frá því áður en tilkynning stjórnar
Mosaic var birt, að blaðið hefði
heimildir fyrir því að ætlunin væri
að afskrá félagið úr kauphöllinni.
Ástæðan væri sú að Baugur vildi
vinna að frekari sameiningu starf-
semi Mosaic og Rubicon, en félögin
tvö voru sameinuð í júní á síðasta
ári, í hæfilegri fjarlægð frá fjár-
festum og sérfræðingum.
Mosaic Fashions var skráð í
kauphöllinni fyrir tæpum tveimur
árum, en það er móðurfélag tísku-
vöruverslananna Coast, Karen Mil-
len, Oasis, Odille, Principles, Shoe
Studio, Warehouse og Whistles.
Yfirtökutilboð í Mosaic
Morgunblaðið/Sverrir
Sýning Mosaic á Oasis með meiru.
14 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
0(1 0(1 789
:
;<7
5=5
>5=<
2
2
0(1 '31
4
;;<
788
>5=7
>5=:
2
2
4&56&
7"8
:4
;<?
;
?@;
>5=;
>5=4
2
2
.9:;
4<1
<
<57
@
?:@
>:=5
>5=?
2
2
0(1(
0(1)
@
8?9
:
475
>5=?
>5=:
2
2
!""#
*" "
+/
<
! & +/
< /
+/
< !
= & =>.
<& & +/
3 & +/
.? & +/
!! ,!+/
/;!!/@ 'A "
B %!',!+/
?",!A "+/
( +/
(&!
.+!&+/
: C3 ) D.ED /,+/
F +/
+!!,-.
;G!+/
. ' & +/
H
"! & & "!'+/
H
"!
& +/
7I+ E!+/
0(1<3
9J!+/
9 J''!'!))!+/
K! )!+/
/ ,0 # 1
: D /@ ': ) "/
* )0 -2 !3
3 "!+/
!)E+/
4 1 5 6
4=<5
@9=75
7=84
@@?=55
@=:;
<@=75
;9=?5
;@=:?
47=85
:584=55
4?=<5
@?=<5
:@=;5
;5=<5
::?=?5
4:=@5
;=;?
;@=:5
<=@@
:@=<5
7=<?
4@=95
@=4@
:=8?
:;=55
@=;5
! " C
!)!!
"' 9! ,&) &"' B :
C
C
C
C
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
K!)!! # <9 L<+ ' !! .E "!
!)!
C
C
C
C
4' !) )
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
ÓHEPPILEGT er að veita yfir-
tökunefnd lagaheimildir að mati
þeirra Viðars Más Matthíassonar,
formanns nefndarinnar, og Jónasar
Fr. Jónssonar, forstjóra Fjármála-
eftirlitsins (FME). Þeir segja að með
því væri verið að gera nefndina að
eftirlitsaðila á markaði og telur hvor-
ugur þeirra þörf á fleiri slíkum að-
ilum.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær telur viðskiptaráð-
herra að stjórnvöld verði að grípa
inn í hafi nefndin ekki mátt til þess
að sinna sínu hlutverki.
Viðar Már telur ekki tímabært að
svo stöddu að nefndinni verði veittar
heimildir í lögum. „Ég held að menn
eigi að reyna til þrautar að tryggja
upplýsingagjöf til nefndarinnar af
fúsum og frjálsum vilja, þ.e. að
markaðsaðilar veiti þær upplýsing-
ar, í samræmi við þær forsendur sem
lágu að baki stofnun nefndarinnar.
Það sem að mínu mati þarf til er
fyrst og fremst það að Samtök fjár-
málafyrirtækja (SFF), einn stofn-
aðila nefndarinnar, tryggi að yfir-
tökunefnd fái allar upplýsingar um
viðskipti á borð við þau sem urðu í
Glitni banka. Við höfum þegar gert
samkomulag við samtökin um að í
öllum framvirkum samningum sé
ákvæði sem felur í sér að þeir sem
gera slíka samninga fallast á það fyr-
irfram að yfirtökunefndinni séu
veittar upplýsingar um samningsað-
ild og fjárhæðir og ég vil láta reyna á
það til þrautar hvort SFF vill ekki
setja slíka skilmála inn í alla samn-
inga sem eru gerðir vegna viðskipta
á borð við Glitnisviðskiptin. Öll
svona stærri viðskipti fara í gegnum
fjármálafyrirtækin,“ segir Viðar og
bætir því við að hann sé þeirrar
skoðunar að efla eigi FME. Á því sé
brýn þörf.
Jónas segir að fái nefndin laga-
heimildir lúti hún stjórnsýslulögum
og þá væri hætt við að aðalmarkmið-
ið um skjóta úrlausn mála næði ekki
fram að ganga. „Ég fæ heldur ekki
séð að það sé réttlætanlegt að kosta
því til sem þyrfti þegar þekking og
reynsla af eftirliti á verðbréfamark-
aði er þegar fyrir hendi innan FME.
Þá set ég spurningamerki við það að
fela einkaaðila sem starfar á vegum
markaðsaðila heimild til að grípa til
stjórnvaldsúrræða,“ segir Jónas.
Segir veitingu laga-
heimildar ótímabæra
Morgunblaðið/Eyþór
Fjármálaeftirlitið Ekki er þörf á fleiri eftirlitsaðilum á fjármálamarkaði
að mati forstjóra FME og formanns Yfirtökunefndar.
● FINNSKA flug-
félagið Finnair,
sem FL Group og
Straumur-Burðar-
ás eiga stóra
hluti í, skilaði
13,4 milljarða
evra hagnaði á
fyrsta fjórðungi
ársins. Það jafn-
gildir tæplega 1,2 milljörðum króna
en á sama tímabili í fyrra skilaði
fyrirtækið 346 milljóna króna tapi.
Sala jókst á milli tímabila og
sömuleiðis tekjur á hverja einingu,
bæði í farþega- og vöruflutningum,
en kostnaður á hverja einingu
dróst að sama skapi saman. Hald-
ist sú þróun er ljóst að næstu
fjórðungar verða fyrirtækinu góðir
en benda ber á að tekjur vegna
sölu á dótturfélaginu Fly Nordic
koma líklega í uppgjöri yfirstand-
andi fjórðungs.
FL Group á liðlega 22% hlut í
Finnair en hlutur Straums-Burðar-
áss er undir 5%.
Finnair hagnast vel
STJÓRNENDUR Citigroup,
stærsta banka heims, óttast að um-
breytingavogunarsjóðir gætu beint
sjónum að bankanum með það í huga
að skipta honum upp. Til þess að
koma í veg fyrir þetta telja stjórn-
endurnir mikilvægt að bankinn bæti
fjárfestatengsl sín og skýri út fyrir
hluthöfum virðið sem falið er í því að
halda bankanum sem einni einingu.
Það sem valdið hefur þessum óróa
er að sögn Financial Times baráttan
sem nú stendur um hollenska bank-
ann ABN Amro en vitað er að vog-
unarsjóðir höfðu augastað á honum.
Reyndar eru margir sagðir telja
að Citigroup sé of stór til að vog-
unarsjóðir geti náð völdum í honum
en stjórnendurnir eru ekki sammála
því. Gengi hlutabréfa bankans hefur
þó lítið hreyfst að undanförnu og
segja sumir sérfræðingar að stjórn-
un bankans sé orðin of flókin. Hefur
FT eftir sérfræðingum að fyrirtæki í
þeirri stöðu vekji einmitt oft áhuga
umbreytingavogunarsjóða.
Sjóðir
valda ótta
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALAN í kauphöllinni
hækkaði um 0,5% í gær og er loka-
gildi hennar 7.859 stig, en það er
hæsta lokagildi hennar til þessa.
Mest hækkun varð á hlutabréfum
Mosaic Fashions, en þau hækkuðu
um 5,5%. Bréf 365 hf. hækkuðu um
4,3% í gær og Eimskipafélagsins um
1,5%. Mest lækkun varð í gær á
hlutabréfum Össurar og Teymis, en
þau lækkuðu um 0,4%.
Met í kauphöllinni
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME)
hefur fengið öll þau gögn sem eft-
irlitið fór fram á frá þeim sem tengj-
ast nýlegum viðskiptum með 19,46%
hlut í Glitni. Samkvæmt upplýsing-
um frá FME gekk greiðlega að fá
allar þær upplýsingar sem farið var
fram á.
Frá því var greint hinn 10. apríl
síðastliðinn að Einar Sveinsson, Karl
Wernersson og tengdir aðilar hefðu
selt 19,46% hlut í Glitni. Kaupþing
banki hafði milligöngu um viðskiptin,
en kaupendur voru Jötunn Holding
ehf., Elliðatindar ehf., Sund Holding
ehf., Saxbygg Invest ehf. og Glitnir
banki hf.
Fjármálaeftirlitið taldi ástæðu til
þess að taka þessi viðskipti til frekari
skoðunar með tilliti til ákvæða laga
um fjármálafyrirtæki um heimild til
að fara með virkan eignarhlut. Nið-
urstaða eftirlitsins, sem kynnt var
síðastliðinn mánudag, var á þá leið
að þau tengsl séu milli Jötuns Hold-
ing, Elliðatinda, Sunds Holding og
FL Group að félögin teljist í sam-
starfi um meðferð virks eignarhlutar
í Glitni.
Þar sem framangreindir aðilar
hafa ekki hlotið samþykki FME til
meðferðar á hinum virka eignarhlut
tók FME ákvörðun um að takmarka
atkvæðisrétt þeirra í Glitni við að há-
marki 32,99%, samanber lög um fjár-
málafyrirtæki.
Greiðlega
gekk að fá
upplýsingar
ERLENDIR
fjölmiðlar, aðal-
lega bresk fag-
blöð, fjölluðu um
niðurstöðu Hér-
aðsdóms í Baugs-
málinu.
Í Financial
Times í gær segir
að Jón Ásgeir Jó-
hannesson, for-
stjóri Baugs, hafi
fengið þriggja
mánaða skilorðs-
bundinn fangels-
isdóm fyrir rangfærslur í bókhaldi til
að fegra afkomu Baugs árið 2001
þegar fyrirtækið var enn almenn-
ingshlutafélag en að verjendur Jóns
Ásgeirs undirbúi áfrýjun málsins.
Umfjöllun ytra
um Baugsdóm
Umfjöllun Fin-
ancial Times.
♦♦♦
♦♦♦