Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. FALSKT ÖRYGGI Ekki er hægt að ítreka nógsam-lega nauðsyn þess að örygg-isbúnaður og eftirlit í sund- laugum sé virkt. Þegar eitthvað ber út af verður að vera hægt að bregð- ast samstundis við. Í öllum sund- laugum er krafa um að verðir geti vaktað þær, meðal annars með hjálp eftirlitsmyndavéla. 26. apríl fannst 15 ára piltur með- vitundarlaus á botni Sundlaugar Kópavogs. Í Morgunblaðinu í dag kemur í ljós að staðurinn, sem hann var á, er utan sjónsviðs eftirlits- myndavélanna á sundstaðnum. Þar er um að ræða tvær vélar, sem horfa yfir stóru sundlaugina, en sýna ekki öll horn hennar eða miðjuna, eins og segir í fréttinni. Sex eftirlitsmynda- vélar eru undir vatnsyfirborði laug- arinnar og eiga að sýna það sem fram fer ofan í henni. Jón Júlíusson, íþróttafulltrúi Kópavogs, segir í við- tali við Morgunblaðið í dag að stað- urinn þar sem pilturinn fannst hefði átt að sjást, en laugin sé 25 metra löng og sjónlínan í gegnum vatnið og myndin geti því verið farin að dofna, sérstaklega ef yfirborðið er gárað. Ávallt er fylgst með eftirlitsskjám, sem tengdir eru myndavélunum. Skiptast verðirnir á og fylgjast með tuttugu mínútur í senn til þess að halda athyglinni. Slíkt eftirlit má sín hins vegar lítils þegar slys verða á svæði sem myndavélarnar ná ekki til. Atvikið í Sundlaug Kópavogs sýnir hversu mikilvægt er að eftirlit sé í lagi í sundlaugum. Komið hefur fram að áhersla er lögð á þjálfun starfs- fólks í lauginni og reglulega farið yf- ir það hvernig að verki skuli staðið í neyðartilfelli. Í fréttinni í dag kemur fram að ekki hafi verið litið svo á að sá stað- ur, sem pilturinn fannst á, hafi verið hættulegur. Nú er hið gagnstæða komið í ljós og sýnir það í raun að í eftirliti á sundstöðum má vart blett- ur vera undanskilinn. Atvikið í Sundlaug Kópavogs hlýt- ur að verða til þess að stjórnendur sundstaða fari almennt yfir það hvernig eftirliti er háttað og sérstak- lega verði tekið fyrir hvort eftirlits- myndavélum hafi verið komið fyrir á fullnægjandi hátt. Það þarf að leggja áherslu á að hægt sé að fylgjast með öllu, sem gerist í sundlauginni burt- séð frá veðri, vindum og gáruðu vatni. Ef ekki er hægt að greina það sem gerist í vatninu lengst frá myndavélunum verður einfaldlega að bæta við myndavélum. Einnig er athugunarefni hvort ekki þurfi að vera upptökubúnaður tengdur öllum eftirlitsmyndavélum. Enginn upp- tökubúnaður er tengdur eftirlits- myndavélunum undir yfirborðinu í Sundlaug Kópavogs og ekki er hægt að nota upptökur vélanna, sem horfa yfir laugina. Nánast öll börn á Íslandi fara í skólasund og mörg börn hafa mikla ánægju af því að stunda laugarnar. Það er nauðsynlegt að börn séu örugg í sundi og að foreldrar þeirra geti reitt sig á að svo sé, en búi ekki við falskt öryggi. HVAÐ ÆTLA EIGENDUR FLUTNINGABÍLA AÐ GERA? Hvenær kemur að því að almennirvegfarendur fá einfaldlega nóg af slysahættu af völdum stórra flutn- ingabíla og krefjast þess að umferð þeirra verði bönnuð eða takmörkuð? Fréttir af skeytingarleysi ökumanna þessara stóru ökutækja og virðing- arleysi þeirra fyrir lögum og reglum í umferðinni eru nánast daglegt brauð. Bílar með hættulegan farm velta vegna gáleysislegs aksturs. Slík slys hafa valdið bæði mengunar- og slysa- hættu. Einnig eru dæmi um að öku- menn þekki ekki reglur um með- höndlun hættulegra efna. Þungur farmur dettur af bílum vegna þess að hann er ekki festur rétt. Ökumenn fólksbíla hafa þurft að horfast í augu við fljúgandi stórgrýti, málmrör, risastórar glerrúður og fleira af því tagi, sem fólk vill ekki mæta á miðjum vegi en dettur af flutningabílunum þegar minnst varir. Umferðarmannvirki skemmast vegna þess að flutningabílstjórar gæta ekki að því að farmur þeirra sé í réttri hæð og reka hann í. Flutninga- bílar sitja fastir í Hvalfjarðargöng- unum. Iðulega eru almennir vegfarendur í lífshættu. Það má heita kraftaverki líkast að ekki skuli hafa orðið alvar- legri slys á fólki. Í fyrradag skall enn hurð nærri hælum þegar svokölluð hæðarrá féll niður á Miklubrautina í Reykjavík eftir að flutningabíll með of háan krana rakst á hana. Fólk í bílunum, sem á eftir komu, slapp naumlega við meiðsli en eignatjón varð talsvert. Auðvitað hefur eitthvað verið að frágangi rárinnar, sem á (að gefnu tilefni) að vara ökumenn flutninga- bíla við þannig að þeir aki ekki á skilta- og göngubrýr. Hitt er svo ann- að mál að líkast til þarf að aka á slíka rá á talsverðum hraða til að hún losni úr festingunum og falli niður á ak- brautina. Gáleysi einstakra manna kemur óorði á alla stétt flutningabílstjóra. Eigendur flutningabílanna, sumir hverjir stór og virðuleg fyrirtæki, sitja í sömu súpunni. Almenningur spyr hvort þeir, sem nota þessi stóru, þungu og hættulegu tæki, hafi ekki fengið nægilega þjálf- un til að umgangast þau. Hvort öku- kennslu þeirra sé með einhverjum hætti ábótavant. Hvort fyrirtækin brýni ekki fyrir starfsmönnum sínum að ganga rétt frá bílum og farmi og aka varlega. Hvort eigendur flutn- ingabílanna læri lítið sem ekkert af reynslunni. Hvernig ætla ökumenn og eigend- ur flutningabíla að bregðast við í þessari stöðu? Augljóslega þarf eitt- hvert mikið átak í öryggismálum at- vinnugreinarinnar. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is E r hægt að draga ályktanir um líklega útkomu í kosning- um út frá því hvern- ig fylgi flokkanna þróaðist síðustu vikurnar fyrir kosningarnar 2003? Staða flokk- anna er talsvert önnur nú en fyr- ir fjórum árum, en stóra spurn- ingin er hins vegar hvort þeir sem unnu á í lok kosningabarátt- unnar vorið 2003 muni gera það aftur nú. Skoðanakannanir hafa sýnt að skýrt samhengi er á milli fylgis Samfylkingarinnar og Vinstri grænna. Þegar öðrum flokknum gengur illa má ganga út frá því að fylgi hins flokksins er tiltölu- lega hátt. Veturinn 2001–2002 var fylgi Samfylkingarinnar t.d. í mikilli lægð og fór niður í 16% í nóvember 2001 í könnun Capa- cent. Þá var fylgi VG 25%. Í kjöl- farið fór Samfylkingin að rétta úr kútnum og samhliða minnkaði fylgi VG. Þegar dró að kosning- um vorið 2003 var fylgi VG kom- ið niður í 10%. Fylgi Samfylk- ingar var þá komið upp í rúmlega 30% og fór upp í 40% í skamman tíma um það leyti sem ákveðið var að Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir tæki sæti á lista Samfylk- ingar í Reykjavík og yrði for- sætisráðherraefni flokksins. Samfylkingin missti flugið en náði góðum endaspretti Staðan í upphafi kosningabar- áttunnar fyrir fjórum árum var því þannig að Sjálfstæðisflokkur og Samfylking mældust með 36– 40% fylgi hvor flokkur. Fram- sóknarflokkur var með 12–13% fylgi, VG mældist með 8–10% og Frjálslyndi flokkurinn var með tæplega 3% fylgi. Segja má að fylgi Samfylking- arinnar hafi verið á stöðugri nið- urleið mestalla kosningabarátt- una. Þegar innan við tvær vikur voru til kosninga var fylgið kom- ið niður í 26%, en flokkurinn náði sér hins vegar á strik síðustu dagana fyrir kosningar með góð- um endaspretti. Samfylkingin hefur einnig tap- að fylgi fyrir kosningarnar sem verða 12. maí en þó ekki eins hratt og fyrir fjórum árum. Síð- asta könnun gefur til kynna að fylgi flokksins sé farið að vaxa aftur og því vaknar sú spurning hvort fylgið muni þróast á svip- aðan hátt og síðast, þ.e. upp á við. Ef sú verður þróun má draga þá ályktun að Samfylkingarmenn sem hafa verið óánægðir eða af einhverjum öðrum ástæðum horfið frá stuðningi við flokkinn, séu að snúa heim. VG tapaði á síðustu metrunum Fylgi VG breyttist ekki mikið framan af kosningabaráttunni vorið 2003. Flokkurinn var með 10% fylgi og stefndi í að hann bætti við sig 1–2 þingmönnum. Síðustu dagana fyrir kosningar minnkaði hins vegar stuðningur við flokkinn og hann fékk jafn- marga menn og í kosningunum 1999. Vinstri grænir hafa verið á mikilli siglingu í vetur. Kannanir Capacent hafa sýnt flokkinn með 24–28% fylgi í febrúar til apríl sem er umtalsvert meira en Samfylkingin fékk á sama tíma. Kannanir undanfarið hafa hins vegar sýnt að fylgi við VG er að minnka. Flokkurinn mælist nú með 7% minna fylgi en hann fékk fyrir einum mánuði. Núna er vika í kosningar og í síðustu könnun mældist fylgi VG 9% Hvað gerist síðu dagana í baráttu                        !"  #   $         %   & $!'              !!   "               !'    #   "    !"    #$%"""& '"&"   (( ÁHUGI kjósenda á samstjórn Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænn hefur minnkað verulega og sömuleiðis á stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Flestir kjósendur styðja núverandi stjórn- armynstur, þ.e. stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent gerði fyrir Morg- unblaðið og RÚV. Í könnun sem gerð var 8.–13. mars lýstu flestir stuðningi við samstjórn Samfylkingar og VG (28,1%), því næst stjórn Sjálfstæð isflokks og VG (22,4%), og Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokk (24,2%). Nú er mestur áhugi á stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks (31,7%), því næst Sjálfstæðisflokks og VG (22,0%), þá stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar (15,7%) og stjórn Sjálf- stæðisflokks og VG (12,3%). Áhugi á samstjórn Sjálfstæðisflokks Samfylkingar er mun meiri nú en fyrir mánuði. Hafa aukinn áhuga á stjórn með Sjálfstæðisflokki Í mars var næstmestur stuðningur við stjórn Sjálfstæðisflokks VG. 35,4% sjálfstæðismanna sýndu þessu stjórnarmynstri áhuga o 20,3% stuðningsmanna VG. Það sem er athyglisvert við nýjustu könnun Capacent er að áhugi sjálfstæðismanna á samstjórn þess- ara flokka hefur minnkað (úr 35,4% í 14,6%), en áhugi VG á slíkr stjórn hefur aukist (úr 20,3% í 25,9%). Heldur færri kjósendur VG sýna stjórn VG og Samfylkingar áhuga, en það er þó sú stjórn sem þeir vilja helst (56,5%). Áhugi Samfylkingar á slíkri stjórn hefur hins vegar minnkað umtalsver fer úr 65,4% í 49,5%. Ennfremur hefur sú breyting orðið að fleiri sýna stjórn Samfy ingar og Sjálfstæðisflokks áhuga. Heldur fleiri sjálfstæðismenn sýna slíkri stjórn áhuga og áhugi samfylkingarmanna á henni eykst verulega, fer úr 12,3% í 28,7%. Sú stjórn sem sjálfstæðismenn vilja helst er þó núverandi stjór armynstur. 61,6% sjálfstæðismanna vilja slíka stjórn, en 42,6% nefndu hana í mars. 77% framsóknarmanna vilja óbreytta stjórn, sem er sama hlutfall og í mars. Könnunin var gerð 25. apríl til 1. maí. Úrtakið, 1.225 manns, v tilviljunarúrtak úr þjóðskrá. Svarhlutfall var 62,3%. Mestur áhugi á núverandi stjórn Morgunblaðið/Sverr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.