Morgunblaðið - 05.05.2007, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
K
osningabaráttunni
vegna seinni umferðar
frönsku forsetakosn-
inganna á sunnudag
lauk í gærkvöldi og
sýna nokkrar fylgismælingar að
fleiri kjósendur hafa snúist á band
með hægrimanninum Nicolas Sar-
kozy í gær og fyrradag; að forskot
hans á mótframbjóðanda sinn, sósíal-
istann Segolene Royal, hefur aukist.
Að mati kjósenda komst hann betur
frá sjónvarpskappræðum þeirra á
miðvikudagskvöld. Royal brá á það
ráð í gærmorgun að segja hann
„hættulegan“ þjóðinni og kjör hans
kynni að leiða til uppþota og ofbeldis.
„Það hljóta að vera skoðanakann-
anirnar, þetta er smánarlegt tal. Hún
æsist upp og spennist því henni
finnst jörðin vera að gleypa hana,“
svaraði Sarkozy.
„Allir vita þetta en enginn segir
neitt, þetta er einskonar tabú,“ sagði
Royal um þá hættu sem hún segir
Frakklandi stafa af Sarkozy. „Hann
er líka hættulegur varðandi sam-
þjöppun valds og hvað hörku og
ósannsögli varðar. Þess vegna bið ég
fólk um að hugsa sig tvisvar um,“
bætti hún við er hún lagði upp í kosn-
ingaferðalag út á Bretaníuskagann,
til Lorient og Brest.
Royal varar við skoðanakönn-
unum
Þangað komin hélt hún persónu-
árásum á Sarkozy áfram og sakaði
stórfyrirtæki á sviði fjölmiðlunar,
Bouygues og Lagardere, um að reka
áróður í þágu hans. Hvatti hún og
kjósendur til að láta skoðanakann-
anir „ekki villa sér sýn“.
Harðar persónulegar árásir í garð
Sarkozy eftir fyrri umferð kosning-
anna, þar sem Francois Bayrou, sem
varð þriðji, og Royal hafa lýst honum
sem hættulegum lýðræðinu og sakað
hann um prettvísi, hafa ekki orðið til
að draga úr fylgi Sarkozy. Hann hef-
ur staðið þær af sér og í fyrrakvöld
sagði hann að það hefði aldrei hvarfl-
að að sér að svara í sömu mynt. „Þau
hafa dregið heilindi mín í efa, heið-
arleika, einlægni, persónugerð mína.
Þau hafa sagt mig hættulegan frels-
inu, þau gruna mig um að ætla að
koma á lögregluríki. Þau saka mig
um að beita fjölmiðla þrýstingi. Ég
hef ekki farið ofan í eðjupyttinn til
þeirra, þangað sem þau hafa viljað
draga mig,“ sagði Sarkozy á baráttu-
fundi í fyrrakvöld.
Samkvæmt könnunum var forskot
Sarkozy á Royal í gær orðið allt að
tug prósentustiga. Í könnun sem Ip-
sos-fyrirtækið gerði og birti nokkr-
um stundum fyrir kappræðurnar
ætluðu 53,5% þeirra sem höfðu gert
upp hug sinn að kjósa Sarkozy en
46,5% Royal. Sögðust 15% aðspurðra
óviss. Ipsos gerði aðra könnun í
fyrradag og hafði bilið milli fram-
bjóðendanna aukist úr sjö prósent-
um í átta; 54% sögðust ætla að kjósa
Sarkozy en 46% Royal.
Sarkozy þótti koma betur frá
hörðum átökum þeirra í sjónvarpssal
með mun meiri yfirvegun og still-
ingu. „Nicolas Sarkozy er aug-
ljóslega sigurstranglegri, forskot
hans er verulegt,“ sagði fulltrúi
könnunarfyrirtækisins LH2 um
stöðuna.
Mestur er munur á frambjóðend-
unum í könnun TNS-Sofres-Unilog
fyrirtækisins fyrir dagblaðið Le Fig-
aro, útvarpsstöðina RTL og sjón-
varpsstöðina LCI, sem birt var í
gær. Þar sögðust 54,5% ætla að kjósa
Sarkozy en 45,5% Royal.
Af öllum könnunum fyrir fyrri um-
ferð forsetakosninganna 22. apríl
reyndust úrslitin líkust könnunum
Ipsos. Mældu þær þó muninn minni
en hann síðar varð er atkvæði voru
talin. Þá varð Sarkozy hlutskarp-
astur með 31,2% atkvæða og Royal í
öðru sæti með 25,9%. Í millitíðinni
hafa þau keppst um atkvæði þeirra
sem kusu miðjumanninn Francois
Bayrou, tæplega sjö milljóna manna.
Framan af benti allt til þess að Royal
yrði þar hlutskarpari en samkvæmt
mælingum Ipsos í fyrradag hljóta
frambjóðendurnir tveir sinn þriðj-
unginn hvor en einn þriðjungur
stuðningsmanna Bayrou situr heima
eða skilar auðu.
Bayrou einangraður
í eigin flokki?
Mikill meirihluti þingmanna flokks
Bayrou, UDF, eða 21 þingmaður af
29, hefur lýst yfir stuðningi við Sar-
kozy. Sjö neita að gefa upp afstöðu
sína eða segjast ætla að skila auðu.
Þingmenn UDF segjast og vilja
mynda þingmeirihluta með flokki
Sarkozy, UMP, eftir þingkosningar í
næsta mánuði. Sjálfur sagðist
Bayrou í fyrradag ekki ætla að kjósa
Sarkozy en gaf ekki að öðru leyti til
kynna hvað hann hygðist fyrir á
sunnudag. Mikill meirihluti kjörinna
fulltrúa UDF í héraðs- og sveit-
arstjórnum hefur og lýst stuðningi
við Sarkozy og fréttaskýrendur velta
því fyrir sér hvort Bayrou sé ein-
angraður í eigin flokki. Einnig hverj-
ir möguleikar flokksins verði í þing-
kosningunum í júní. Sarkozy sagði í
gær að Bayrou væri búinn að koma
sér í pólitíska sjálfheldu. Mun flokk-
ur Sarkozy reiðubúinn að bjóða ekki
fram í kjördæmum núverandi þing-
manna UDF sem gengið hafa Sar-
kozy á hönd og sækjast eftir áfram-
haldandi þingsetu.
Kosningabaráttan hefur þótt fjör-
leg allt frá í fyrrahaust og óháð því
hvort þeirra fagnar sigri á sunnudag
verði sigur lýðræðisins enn meiri.
Franskir kjósendur hafi með 85%
kjörsókn í fyrri umferðinni – og spáð
er að hún verði ekki minni á sunnu-
dag – afsannað allar hrakspár á Vest-
urlöndum um pólitískt áhugaleysi al-
mennings. Mikil gestkvæmni á
heimasíðum frambjóðendanna, met-
sala á æviminningum þeirra og metá-
horf á sjónvarpseinvígið sýni að al-
menningur hafi ekki snúið baki við
stjórnmálum.
Áhuginn staðfesti og að kjósendur
láti til sín taka þegar þeim finnst það
skipta máli. Franskir kjósendur hafi
í fyrri umferðinni afsannað fordóma
um að konur ættu ekki upp á pall-
borðið í franskri pólitík. Líklega hafi
þeir einnig skrínlagt ríkjandi for-
dóma um að þeim væri íhaldssemi og
andstaða við breytingar í blóð borin
því hlutskarpastir í fyrri umferð
kosninganna hafi þeir frambjóð-
endur verið sem boðuðu mesta upp-
stokkun og breytingar sem segja
munu mjög til sín verði þær að veru-
leika. Fulltrúar kyrrstöðu og aft-
urhalds hafi stráfallið.
Sarkozy lauk formlegri kosninga-
baráttu sinni með stórum fundi í
Montpellier en í gær ætlaði hann að
taka þátt í athöfn til heiðurs frönsk-
um andspyrnumönnum úr seinna
stríði. Í Montpellier sagði hann við
kröftugar undirtektir 15.000 stuðn-
ingsmanna, að tími væri kominn til
að gera endanlega upp við hug-
myndafræði stúdentauppreisnanna í
maí 1968 sem hann hefur sagt vera
uppsprettu þverrandi siðferðis í
landinu. Með þeirri pólitísku rétt-
hugsun sem þvingað hafi verið upp á
þjóðina hafi Frakkar ekki getað talað
um sig sem þjóð, ekki um lýðveldið
sem slíkt eða ríkið. Bað hann um
stuðning þjóðarinnar svo hann gæti
skapað kringumstæður fyrir „end-
urfæðingu“ Frakklands.
Sarkozy bætir enn við sig
Reuters
Fagnað Nicolas Sarkozy umkringdur aðdáendum við komuna til ráðhússins í
borginni Le Petit Bornand í Ölpunum í gær. Kosningabaráttunni í Frakk-
landi lauk í gær en seinni umferð forsetakosninganna fer fram á morgun.
Í HNOTSKURN
» Royal varar við Sarkozyog segir að hann sé
„hættulegur þjóðinni“.
»Sarkozy segir Bayrou bú-inn að koma sér í pólitíska
sjálfheldu.
»Franskir kjósendur hafaafsannað hrakspár um að
almenningur í landinu sé
áhugalaus um pólitík.
Mikill hiti er í kosn-
ingabaráttunni í
Frakklandi síðustu
dagana, segir í grein
Ágústs Ásgeirssonar í
París. Segolene Royal
segir keppinaut sinn
vera hættulegan þjóð-
inni.
agas@mbl.is
Nýir tímar - á traustum grunni
að sókn okkar
Menntun er grundvöllur
til betri lífskjara
Fjöldi háskólanema hefur meira en tvöfaldast á
síðustu 10 árum og háskólum hefur fjölgað úr
þremur í átta.
Ungt fólk hefur aldrei haft fleiri og
fjölbreyttari tækifæri til menntunar.
xd.is