Morgunblaðið - 05.05.2007, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 37
Kæri Magnús Þór Hafsteinsson
og Ögmundur Jónasson.
Hver er afstaða Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs og
Frjálslynda flokksins til þess að af-
nema umdeild eft-
irlaunalög frá í desem-
ber 2003, þannig að
hæstaréttardómarar,
ráðherrar og alþing-
ismenn byggju við
sömu eftirlaunakjör og
réttindi og almennt
gilda fyrir landsmenn?
Sjónarmið einstakra
þingmanna og fram-
bjóðenda VG og Frjáls-
lynda flokksins í þess-
um efnum eru að
nokkru leyti kunn, en
hver er afstaða flokk-
anna? Ég fer þess á leit
við ykkur, þingflokks-
formennina, að þið
svarið því hvor fyrir
sinn flokk á síðum
Morgunblaðsins – fyrir
kosningar. Afstaða
Samfylkingarinnar
liggur fyrir í landsfund-
arályktun. Með skýrum
svörum frá ykkur væri
afstaða stjórnarand-
stöðunnar lýðum ljós.
Myndu flokkar ykkar
reiðubúnir að taka
höndum saman við aðra
flokka um afnám for-
réttindalaganna, til dæmis sam-
kvæmt hugmynd Valgerðar Bjarna-
dóttur sem fram kom á landsfundi
Samfylkingarinnar 14. apríl? Hug-
mynd Valgerðar var sett fram í
formi eftirfarandi lagafrumvarps:
„Frumvarp til laga um eftirlaun
ráðherra, alþingismanna og hæsta-
réttardómara.
1. gr. Eftirlaunaréttur, lífeyr-
isiðgjald og greiðsla eftirlauna.
Þingmenn sem sæti taka á Al-
þingi í kjölfar Alþingiskosninga árið
2007, ráðherrar, þ.m.t. þeir sem
ekki eiga jafnframt sæti á Alþingi
og sem taka við ráðherradómi eftir
sömu tímamót og allir dómarar
Hæstaréttar sem skipaðir eru til
starfa eftir gildistöku laga þessara
skulu meðan þeir gegna störfum
greiða í A-deild Lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins iðgjald sem
nemi 4% af heildarlaunum eins og
þau eru á hverjum tíma. Skal upp-
hæðin dragast frá launum mán-
aðarlega og greiðast sjóðnum ásamt
mótframlagi úr ríkissjóði sem sé
jafnhátt hlutfall og fyrir almenna
sjóðfélaga, sbr. 13. gr. laga um
sjóðinn.
Iðgjaldagreiðslur skv. 1. mgr.
skapa rétt til lífeyris úr A-deild
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins
samkvæmt reglum um hana.
2. gr. Séreignarlífeyrissjóður.
Greiðendum skv. 1.gr. er heimilt
að greiða allt að 4% af heild-
arlaunum sem iðgjald í séreign-
arlífeyrissjóð skv. lögum nr. 129/
1997 til viðbótar við
lágmarksiðgjald til
samtryggingar skv.
1.gr. Ríkissjóður skal
þá greiða jafnhátt
mótframlag sem þó
sé ekki umfram 2%.
3. gr. Gildistaka,
brottfall laga, laga-
skil, breyting á öðr-
um lögum o.fl.
Lög þessi öðlast
þegar gildi.
Um lífeyrisréttindi
þeirra dómara
Hæstaréttar sem
skipaðir voru til
starfa fyrir gildistöku
laga þessara fer skv.
lögum nr. 141/2003 og
skulu þau áunnu rétt-
indi í engu skert.
Um lífeyrisréttindi
sem þingmenn og
ráðherrar hafa áunn-
ið sér fram til Alþing-
iskosninga 2007 fer
skv. lögum nr. 141/
2003 og skulu þau
áunnu réttindi í engu
skert.
Heiti laga 141/2003
breytist og verði frá
gildistöku laga þessara „Lög um
eftirlaun forseta Íslands, fyrrver-
andi ráðherra, fyrrverandi alþing-
ismanna og hæstaréttardómara“.“
Í greinargerð með frumvarpinu
segir meðal annars: „Markmiðið
með flutningi frumvarpsins er að
alþingismenn, ráðherrar og hæsta-
réttardómarar njóti sömu lífeyris-
kjara og ríkisstarfsmenn, en búi
ekki við sérstök forréttindi. [...] Til
að forðast að málið lendi í sjálf-
heldu málalenginga á grundvelli
formsatriða, s.s. tengsla eignarrétt-
arákvæða við löggjöfina frá 2003 er
gert ráð fyrir að áunnin réttindi
samkvæmt hinum umdeildu lögum
skuli í engu skert.“
Um leið og ég minni á yfirlýs-
ingu Þjóðarhreyfingarinnar frá 24.
apríl um afnám eftirlaunaforrétt-
indanna, er ítrekuð sú ósk að af-
staða flokka ykkar verði gerð kjós-
endum ljós sem allra fyrst og áður
en gengið er til kosninga þann 12.
maí.
Virðingarfyllst,
Hjörtur Hjartarson.
Afstaða til afnáms
eftirlaunaforréttinda
Hjörtur Hjartarson skrifar opið
bréf til þingflokksformanna VG
og Frjálslynda flokksins
» AfstaðaSamfylking-
arinnar liggur
fyrir í lands-
fundarályktun.
Með skýrum
svörum frá ykk-
ur væri afstaða
stjórnarand-
stöðunnar lýð-
um ljós.
Hjörtur Hjartarson
Höfundur er kynningarstjóri.
Stórsýning Smáralind
5. maí laugardag 11-18 6. maí sunnudag 13-18
Tilboð á veiðivörum … Kastsvæði … Skotsvæði … Veiðiferðir … Spennandi fyrirlestrar
Bjarnarhaus uppstoppaður á staðnum … Veiðibílar … Veiðifjórhjól … Veiðihappadrætti
ÓMISSANDI FYRIR ALLA VEIÐIMENN
1. Vinningur „Veiði í Laxá á Ásum“
Frítt fyrir yngri en 14 ára í fylgd með fullorðunum … annars kr. 1000, kr. 850 öryrkjar og ellilífeyrisþegar
... stimpill gildir alla helgina …
Ráðstefna verður haldin 11. maí 2007 á vegum
Stjórnendaskólans og MBA náms Háskólans í
Reykjavík um þau tækifæri sem íslensk fyrirtæki
hafa til að hasla sér völl í ört vaxandi hagkerfum
Kína og Indlands.
Aðalfyrirlesari verður Dr. Pedro Videla, prófessor við
IESE viðskiptaháskólann í Barcelona, en hann er einn
fremsti sérfræðingur heims í vaxandi markaðssvæðum,
sérstaklega Asíu. Ráðstefnan fer fram á ensku.
Dagskrá
13:30 – 13:40 Ávarp
Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson
13:40 – 15:00 Growing Importance of China
and India in the World Economy
Dr. Pedro Videla, IESE Business School
15:00 – 15:25 Kaffihlé
15:25 – 15:50 Actavis in India and China
Jónas Tryggvason, framkvæmdastjóri sölu- og
markaðssviðs í Asíu og mið- og austur Evrópu
15:50 – 16:15 Trade Facilitation for Icelandic
Businesses in China and India
Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri
utanríkisráðuneytisins
16:15 – 16:50 Implications for Icelandic Businesses
Pallborðsumræður með fyrirlesurum og
Ásgeiri Jónssyni, forstöðumanni greiningar-
deildar Kaupþings
16:50 – 17:30 Léttar veitingar og ráðstefnulok
Ráðstefnustjóri verður Aðalsteinn Leifsson, lektor við
viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík
Ráðstefnan verður haldin 11. maí í Háskólanum í Reykjavík,
Ofanleiti 2, stofu 131
Ráðstefnugjald er 23.900 krónur
Félagsmenn FVH og ÍMARK fá 20% afslátt
Skráning fer fram á www.stjornendaskoli.is,
í netfangi elisabetth@ru.is eða í síma 599 6296
Indland og Kína
– nýr markaður
– ný sóknarfæri
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn