Morgunblaðið - 05.05.2007, Side 40

Morgunblaðið - 05.05.2007, Side 40
40 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN AFTUR og aftur hafa Jónína Bjartmarz, Bjarni Benediktsson, og Guðrún Ögmundsdóttir komið með sömu málsvörn vegna veitingar ís- lensks ríkisfangs til kærustu sonar Jónínu eftir aðeins 15 mánaða dvöl með dvalarleyfi vegna námsvistar: „það var ekkert óeðli- legt við afgreiðslu þessa máls“. Ég vildi að ég hefði vitað að það væri svo einfalt að redda ríkisborg- ararétti. Sem útlendingur búsettur á Íslandi hafa síðustu fjögur og hálft ár tilveru minnar verið tileinkuð því að læra hvað það sé að vera meðlimur íslensks sam- félags, með það lokamarkmið að öðl- ast íslenskt ríkisfang. Það tók mig þrjú ár í Háskóla Íslands að vinna fyrir gráðunni minni í íslensku fyrir erlenda stúdenta. Ég hef byggt upp vinahóp af Íslendingum sem styðja mig í mínu lífi og virða mig sem jafn- inga. Á Íslandi hef ég unnið sem lít- illátur húsvörður í Austurveri og sem þýðandi á glæsilegri skrifstofu forstjóra Kaupþings. Eins og Lucia Celeste Molina Sierra hef ég orðið svo lánsamur að verða ástfanginn af Íslendingi og byggja upp framtíð á Íslandi. Ég hef lesið bækur Halldórs Laxness og ljóð Jónasar Hallgríms- sonar. Ég veit líka að hræra skal uppstúf fyrir plokkfisk stanslaust svo að hann verði ekki kekkjóttur, að besti tíminn til að fara í útilegu er fyrsta helgin í júlí og að íslenska þjóð- in er meðal réttlátasta fólks í heimi, eða svo hélt ég að minnsta kosti. Ég hafna þessari hálfvolgu afsökun stjórnmálamanna að „það var ekkert óeðli- legt við afgreiðslu þessa máls“. Ástæða þess að umsóknum um rík- isborgararétt sem synj- að hefur verið af Út- lendingastofnun er vísað til Alþingis er einmitt að eitt- hvað óeðlilegt sé við umsóknina. Slík meðferð á við þegar aðstæður rétt- læta einhvers konar málsbætur. Vegna sérstakra aðstæðna þykir Al- þingi, í óendanlegum vísdómi sínum, við hæfi að veita æðsta heiður sem útlendingi getur hlotnast — að fá að heyra: þú ert einn okkar. En augljóslega var eitthvað sér- stakt við þessa umsókn: tengdamóð- ir umsækjandans var Jónína Bjart- marz, og málsbætur eru pólitísk spilling og misnotkun valds. Ef einhver ástæða er til sem rétt- lætir að Lucia Celeste Molina Sierra var gerð að Íslendingi eftir aðeins 15 mánaða dvöl í landinu þá á þjóðin og einnig við hin, fíflin sem kappkostum að fá rétt ríkisborgara, almennilega útskýringu skilið. En auðvitað gæti þetta mál bæst við sem enn önnur lexía um lífið á Ís- landi: Þar sem tengdamóðir mín er úti- vinnandi kona frá Ísafirði sem sendir mér fiskibollur, prjónar trefla handa mér og reynir sitt besta til að láta mér líða eins og ég eigi heima hér — þar sem hún er ekki háttsettur al- þingismaður og ráðherra — þá er ég ekki svo maklegur að verða hluti þessarar þjóðar. Ég læt mér þetta að kenningu verða. Það er ekkert óeðlilegt við pólitíska spillingu Jonas Moody skrifar um veit- ingu íslensks ríkisfangs til kær- ustu sonar Jónínu Bjartmarz » Sem útlendingur búsettur á Íslandi hafa síðustu fjögur og hálft ár tilveru minnar verið tileinkuð því að læra hvað það sé að vera meðlimur íslensks samfélags … Jonas Moody Höfundur er útlendur blaðamaður, búsettur á Íslandi. Í heilbrigðisþjónustunni stendur Samfylkingin vörð um grunngildi jafnaðarstefnunnar um gott aðgengi og jöfnuð, þ.e. að landsmenn hafi að- gang að bestu fáanlegu heilbrigð- isþjónustu hverju sinni án tillits til efnahags eða búsetu. Samfylkingin setur í forgang að biðlistum eftir hjúkrunarrýmum fyrir aldraða verði útrýmt, sem og biðlistum barna með geðraskanir eða þroskafrávik. Aldr- aðir sem hafa verið metnir í brýnni þörf fyrir hjúkrun en búa heima fái sólarhringsþjónustu. Enn fremur að tannvernd barna verði ókeypis og nið- urgreiðslur á tann- læknaþjónustu barna auknar. Samfylkingin legg- ur áherslu á að öryggi og gæði þjónustunnar verði tryggð og í hönd- um starfsfólks með bestu fáanlegu mennt- un og með faglegan metnað fyrir starfi sínu. Markmið og leiðir í heilbrigðisþjónustu Markmið laga um heilbrigðisþjónustu er að allir landsmenn eigi kost á bestu heilbrigð- isþjónustu sem völ er á hverju sinni til trygg- ingar líkamlegu, and- legu og félagslegu heilbrigði. Um þetta eru allir stjórn- málaflokkar sammála. Því er stundum haldið fram að svo lengi sem landsmenn fái sína þjónustu þegar þeir þurfa á henni að halda og án tillits til efnahags og búsetu, þá skipti sjálf framkvæmdin ekki öllu máli. Ákvarðanir um framkvæmd þjón- ustunnar geta hins vegar verið af- drifaríkar vegna þess að í fyrsta lagi þá snúast þær um öryggi lands- manna sem eiga líf sitt og heilsu undir góðu aðgengi og gæðum þjón- ustunnar. Í öðru lagi þá hafa þær áhrif á áætlanir um menntun starfs- fólks sem þarf margra ára þjálfun til að ná tilsettum réttindum. Í þriðja lagi binda þær fjármagn og fram- kvæmdagetu til margra ára í heimi þar sem tækninni og þekkingunni fleygir fram með áður óþekktum hraða. Það er sem sagt ekki nóg að vita hvert við viljum stefna í heilbrigð- isþjónustunni heldur þurfum við að vita hvernig við komumst þangað og hverja við þurfum að hafa þar með í ráðum. Hér greinir menn á. Fjármögnun og greiðslur Það er stefna Samfylkingarinnar að greiðslur fyrir heilbrigðisþjón- ustu komi úr sameiginlegum sjóði landsmanna. Það er í samræmi við vilja mikils meirihluta þjóðarinnar. Við teljum að hér megi alls ekki ganga lengra í því að rukka not- endur um þjónustugjöld. Við teljum engu að síður að stöðugt verði að leita hagkvæmustu leiða og beita megi mismunandi greiðsluformum s.s. föstum greiðslum, verk- greiðslum eða daggjöldum eftir því sem við á. Við viljum taka greiðslur fyrir hjúkrunar- og dvalarrými aldr- aðra til gagngerrar endurskoðunar og að þar verði komið á gegnsæju greiðslukerfi þar sem aldraðir íbúar haldi áfram sínu fjárhagslega sjálf- stæði. Við viljum heilbrigðiskerfi þar sem kjörnir fulltrúar, sem í umboði landsmanna fara með ráðstöfun fjár úr sameiginlegum sjóðum, geta treyst því að framsýni, bestu gæði og hagkvæmni í rekstri sé höfð í fyrirrúmi. Rekstur, framþróun og gæðaeftirlit Við í Samfylkingunni teljum að rekstri og framþróun þjónust- unnar sé best komið fyrir í höndum fagfólks- ins sem best þekkir til á sínu sviði, þekkir að- stæður notenda á vett- vangi og þá möguleika sem þar eru fyrir hendi. Við erum kreddulaus og trúum því að í heil- brigðisþjónustu sé gæð- um þjónustunnar best borgið með hæfilegri blöndu af opinberum rekstri og einkarekstri, miðstýringu og dreif- stýringu. Þar sem það á við er sjálfsagt að beita útboðum og þjónustu- samningum en ætíð þarf að tryggja eftirlit með gæðum þjónust- unnar og jafnt aðgengi allra óháð efnahag. Þessu er m.a. hægt að ná fram með því að gera skýra samninga við fagfólk á heilbrigðissviði um rekstur og stjórnun einstakra þátta þjónustunnar, og að í slíkum samn- ingum verði árangurinn metinn samkvæmt magni og gæðum, og því hversu gagnleg þjónustan hefur reynst fyrir notendur. Við viljum sjá heilbrigðiskerfi þar sem fagfólk stendur skil á gæðum þjónustunnar gagnvart notendum og á hagkvæmni hennar gagnvart stjórnvöldum og kjörnum fulltrúum. Þetta viljum við gera með því að koma á virku faglegu eftirliti sem er sjálfstætt gagnvart framkvæmdinni og ábyrgt gagnvart kjörnum fulltrú- um líkt og ríkisendurskoðun er nú. Nýtum og bætum mannauðinn Íslenska þekkingarsamfélagið þarf bæði vinnandi hendur og skap- andi hugsun. Okkur í Samfylking- unni er ljóst að í heilbrigðisþjónustu byggist varanleg velferð lands- manna á velmenntuðu fólki sem ávallt hefur nýjustu þekkingu og tækni á valdi sínu. Stór hópur fólks verður að sækja þessa þekkingu til annarra landa. Áframhaldandi framþróun þjónustunnar hér á Ís- landi byggist á því að þetta fólk komi aftur heim. Samfylkingin vill ekki sjá þetta velmenntaða fólk hverfa varanlega af landi brott eða dvelja langdvölum í faglegri útlegð. Við viljum jafnframt tryggja að mennta- kerfið sjái okkur fyrir nægum fjölda annarra heilbrigðisstarfsmanna og vel sé búið að þeim í aðbúnaði og kjörum. Með þetta að leiðarljósi verður það eitt fyrsta verk Samfylking- arinnar í ríkisstjórn að fá til liðs við okkur sérfræðinga, bæði íslenska og erlenda, til að gera með okkur heild- arskoðun á íslenska heilbrigðiskerf- inu og koma með ábendingar um hvernig best verður á málum haldið til lengri og skemmri tíma. Samfylkingin og heilbrigðismálin Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifar um heilbrigðisþjónustu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir » Tryggja þarfjafnt að- gengi allra óháð efnahag, ábyrgð stjórnvalda á gæðum og hag- kvæmni þjón- ustunnar og ekki síst eflingu mannauðs heil- brigðisstétta Höfundur er formaður Samfylkingarinnar. NÚ ÞEGAR sumarið er formlega gengið í garð fjölgar börnum í um- ferðinni, bæði gangandi og á hjólum, hjólabrettum, línuskautum og hlaupahjólum. Margt þarf að hafa í huga þegar börn fara út í umferðina. Börn hafa ekki náð full- komnu valdi á gróf- hreyfingum sínum og jafnvægið er ekki full- þroskað. Einnig vantar samhæfingu í hreyf- ingar og þau hafa tak- markaða hliðarsýn. Að auki hafa þau litla reynslu af umferðinni. Þó að þau kunni um- ferðarreglurnar er ým- islegt sem þau eiga erf- iðara með í umferðinni en fullorðnir, þau skynja ekki hraða og fjarlægð ökutækja sem nálgast þau og geta átt erfitt með að átta sig á því úr hvaða átt hljóð koma. Börn eru oft upptekin við leik og geta gleymt sér auk þess sem þau verða oft upptekin af smáat- riðum og sjá ekki heildarmynd um- ferðarinnar. Einnig eiga þau til að taka ákvarðanir í skyndi án þess að hugsa um afleiðingarnar. Þessi atriði verður að hafa í huga þegar barnið fer út í umferðina. Mikilvægt er að kenna þeim hvaða reglur gilda og hvernig á að haga sér í umferðinni. Mörg börn ferðast um á hjóli þeg- ar vorar. Þegar haldið er út í um- ferðina á hjóli er ýmislegt sem þarf að hafa í huga. Hjálmur er nauðsyn- legur. Hjólið þarf einnig að vera í góðu lagi. Bremsur eiga að vera að á fram- og afturhjóli, ljós og glitaugu eiga að vera til staðar ásamt bjöllu og keðjuhlíf. Þó að yngstu börnin hjóli ekki í umferðinni er æskilegt að hjól þeirra séu eins búin og þeirra fullorðnu. Börn yngri en 12 ára ættu ekki að hjóla á götum eða í umferð- inni, aðeins á gangstéttum, göngu- og hjólreiðastígum. Mikilvægt er fyrir foreldra að brýna fyrir börnum sínum að hjóla aðeins á öruggum svæðum. Þegar börn hafa náð aldri og þroska til að hjóla í umferðinni er mikilvægt að gera þeim grein fyrir þeim hættum sem fylgir því að hjóla í umferðinni. Þegar hjól eru valin fyrir börn er mikilvægt að hafa í huga að þau séu í réttri stærð. Þegar börn byrja að hjóla er miðað við að þau nái með báð- um fótum samtímis nið- ur á jörð. Ekki er mælt með að börn yngri en 5 ára séu á tvíhjóli. Áður en barn fer sjálft að hjóla á tvíhjóli er mik- ilvægt að vera viss um að það hafi fullt jafn- vægi og geti bremsað af öryggi. Ekki er mælt með því að nota hjálp- ardekk þar sem börn geta þá náð meiri hraða á hjólinu en þau ráða við. Einnig eiga þau erfiðara með að átta sig á breidd hjólsins og er því hætta á hjálp- ardekkið fari út fyrir gangstéttabrún og barnið detti. Mælt með því að settar séu app- elsínugular veifur á hjól yngstu barnanna svo ökumenn sjái þau betur. Við val á hjálmi er mikilvægt að hafa í huga hvort hjálmurinn sé CE- merktur en það merkir að hjálm- urinn uppfylli öryggiskröfur. Máta þarf hjálma áður en þeir eru keyptir og ganga úr skugga um að þeir passi vel. Hjálmurinn á að vernda enni, hnakka, gagnaugu og koll og má hvorki hindra sjón né draga úr heyrn, á að vera mjúkur næst höfð- inu, léttur og með loftopum. Rétt notkun á hjálmi skiptir sköpum. Hjálmur sem ekki er notaður rétt veitir falskt öryggi. Hjálmurinn á að sitja beint ofan á höfðinu, ekki of framalega og ekki of aftarlega. Böndin eiga að vera rétt stillt þannig að eyrað lendi í miðju v-forminu og spennan á hliðinni. Bandið skal ekki vera lausara en það að einn fingur komist á milli bands og höku. Ekki má líma merki eða mála á hjálma því þá getur höggþol þeirra minnkað. Hjálma á að taka af sér þegar hætt er að hjóla. Mikilvægt er að brýna fyrir börnum að hjálma má ekki nota í leiktækjum. Það getur valdið því að þau festist í leiktækjum. Hlaupahjól, línuskautar og hjóla- bretti eru vinsæl farartæki eins og hjólið þegar fer að vora. Þegar hlaupahjól, línuskautar og hjóla- bretti eru valin fyrir börn er mik- ilvægt að hafa í huga að mjúk dekk eru betri þar sem þau draga úr höggum og eru stöðugri. Örygg- isbúnaður er mikilvægur á þessum farartækjum. Í öllum tilfellum skal vera með hjálm. Til eru sérstakir hjálmar fyrir hjólabretti og línu- skauta. Hjólabrettahjálmar ná lengra niður á eyrun en hefðbundnir hjólahjálmar og línskautahjálmar eru með aukavörn að aftan þar sem algengt er að fólk detti aftur fyrir sig á línuskautum. Þó er hægt að nota hefðbundna hjólahjálma bæði á línu- skautum og hjólabrettum. Á hlaupa- hjólum eru hefðbundnir hjóla- hjálmar notaðir. Hjálmar eru þó ekki fullnægjandi öryggisbúnaður. Nauðsynlegt er að hafa hlífar á oln- bogum, úlnliðum og hnjám. Eins og með hjálma eiga hlífar að vera CE- merktar. Hlífarnar eiga að passa vel, vera þægilegar og sitja rétt. Á hlaupahjólum er svo gott að hafa í huga að skór þurfa að vera stamir til að minnka líkur á að fólki renni af hjólinu. Einnig er mikilvægt að huga að viðhaldi. Fara þarf reglu- lega yfir hjólabúnað, hreinsa hann og athuga slit ásamt því að vera viss um að bremsur séu í lagi. Það er því að mörgu að hyggja þegar börnin halda út í umferðina. Mikilvægast er að kenna þeim að haga sér í umferðinni og gera þeim grein fyrir þeim hættum sem þar leynast. Munum svo að við fullorðna fólkið erum fyrirmynd barnanna og ættum því alltaf að nota viðeigandi öryggisbúnað á hjólum, línu- skautum, hlaupahjólum og hjóla- brettum. Börn og umferðin Hildur Tryggvadóttir Flóvenz fjallar um börn í umferðinni og þann öryggisbúnað sem þau þurfa » Þegar hjóleru valin fyrir börn er mikilvægt að hafa í huga að þau séu í réttri stærð. Hildur Tryggvadóttir Flóvenz Höfundur er starfsmaður hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010 Hair play frá Rakarastofan Klapparstíg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.