Morgunblaðið - 05.05.2007, Síða 56
56 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Lífið á
landnámsöld
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞESSI SÚPA ER GÖMUL
FJÖLSKYLDUUPPSKRIFT
AMMA MÍN NEFNDI HANA EFTIR
KJÚKLINGNUM SEM HÚN SETTI Í HANA
RJÓMALÖGUÐ
GUÐLAUG
SKRÍTIÐ...
MATARLYSTIN
ER FARIN
MUNDIR
ÞÚ EFTIR
EGGJA-
SKURNINNI Í
DAG, LALLI?
OG? ÉG FÉKK MÉR
MORGUNKORN!
ÉG ÆTLAÐI AÐ LÁTA
MÖMMU GEYMA SKURNINA
EFTIR AÐ HÚN VAR BÚIN AÐ
ELDA MORGUNMAT
HÆ SOLLA! GETTU HVAÐ
ÉG ER MEÐ Í NESTI
SITTU HJÁ EINHVERJUM
ÖÐRUM! ÞÚ SEGIR ALLTAF
AÐ NESTIÐ ÞITT SÉ
EITTHVAÐ ÓGEÐSLEGT! ÉG
MISSI MATARLYSTINA
HVAÐ ER EIGINLEGA
AÐ ÞÉR? ÉG ER MEÐ
SAMLOKU MEÐ
HNETUSMJÖRI! HVAÐ ER
SVONA ÓGEÐSLEGT VIÐ ÞAÐ?
ÞAÐ ER
GOTT AÐ
ÞÚ GETUR
VERIÐ
EÐLILEGUR
EINN DAG
Á ÁRI
ÞAÐ ER
DRYKKURINN
SEM ER ÓGEÐ!
ÉG ER MEÐ
FULLAN BRÚSA
AF HORI!
Í JÓLAGJÖF Í ÁR LANGAR
MIG Í EITTHVAÐ SEM ÉG Á
EFTIR AÐ NOTA
EITTHVAÐ SEM
ÉG Á EKKI, EN MIG
VIRKILEGA VANTAR
EINS
OG
HVAÐ?
SKÓ!
SETTU Á ÞIG ÞESSA
HÚFU! VIÐ VERÐUM AÐ
SJÁ TIL ÞESS AÐ ENGINN
ÞEKKI OKKUR
STOPP! ALLIR
NÝIR ÁLFAR VERÐA
AÐ SKRIFA UNDIR
ÞAGNARSKYLDUEYÐUBLAÐIÐ!
NÚ?
ÞAÐ SEM GERIST
Á NORÐURPÓLNUM
FER EKKI LENGRA
MIKIÐ ERT
ÞÚ ÞREYTU-
LEGUR
ÉG VAR Á
HLJÓMSVEITARÆFINGU
FRAM Á NÓTT
FYRIR LED ZEPPELIN
HLJÓMSVEITINA? ER ÞETTA Í
ALVÖRUNNI ERFIÐISINS VIRÐI?
ÉG FÆ LOKSINS
AÐ SPILA, RAJIV
ER ÞÚ VÆRIR TÓNLISTARMAÐUR
ÞÁ MUNDIR ÞÚ SKILJA ÞETTA
NÚNA FINNST MÉR
GOTT AÐ HAFA HÆTT
ÞESSU Í ÁTTUNDA BEKK
ÉG VERÐ KOMINN
UPP Í VÉLINA EFTIR
NOKKRAR MÍNÚTUR
Æ, NEI! NÚ
MAN ÉG...
ÉG VAR SVO SPENNTUR
AÐ FARA TIL HOLLYWOOD...
AÐ ÉG ER
ENNÞÁ Í
BÚNINGNUM
UNDIR FÖTUNUM
dagbók|velvakandi
Eldri borgarar eru líka sárir
ÉG er heldri borgari, verð 75 ára á
kosningadaginn. Ég varð öryrki
1986, kornung þá. Nú hlustaði ég á
pólitíkusana í sjónvarpinu 1. maí sl.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráð-
herra, Ásta Möller, Álfheiður Inga-
dóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir og fleiri sátu fyrir svörum. Siv
tilkynnir það hátíðlega með sínu
fagra, sakleysislega brosi að nú eigi
jafnvel að breyta lögunum þannig að
þeir sem eru komnir yfir X ára aldur
eigi ekki að fá þá þjónustu sem þeim
ber. Af þessum sem sátu þarna þá
var aðeins ein manneskja sem var
þessu ósammála. Það var Álfheiður
Ingadóttir frá Vinstri grænum.
Þetta er ekkert nýtt í deiglunni
hjá stjórnarflokkunum. Árið 2005 fór
maðurinn minn, Vilhjálmur Sigurðs-
son, í stóra hjartaaðgerð. Vissulega
var hann kominn yfir aldur en í fullri
vinnu. Hann átti rétt á því að komast
inn á Reykjalund eftir átta vikur.
Hann fer í þessa aðgerð 5. febrúar og
í júní vorum við enn að bíða eftir
plássinu. Biðin lengdist ætíð og svör-
in sem við fengum voru alltaf jafn
sakleysisleg („hann er næstur inn“,
„aðeins smábiðröð í viðbót“). Ég fékk
að lokum nóg af loforðum, krafðist
þess að hann fengi viðtal við yfir-
lækninn á hjartadeildinni. Þar feng-
um við eftirfarandi svar frá honum,
og vil ég að fólk hugleiði það áður en
kosið er: Hann fékk það svar að þar
sem hann væri kominn yfir aldur
fengi hann ekki inngöngu, þar sem
yngra fólk væri látið ganga fyrir.
Svo er verið að hamra á því á for-
síðu Morgunblaðsins 2. maí að á
Norðurlöndunum sé forgangsröðun
og í Bandaríkjunum líka. Mér er
spurn: Hvert erum við að fara? Er-
um við að gangast við hinu rússneska
kerfi, þar sem fólk er réttdræpt ef
það opnar á sér munninn, ef það er
ekki réttum megin í pólitík, ef það
samþykkir ekki allt sem borið er á
borð fyrir það? Við hjónin höfum inn-
an við 200 þúsund krónur til þess að
lifa af. Þegar við höfum borgað alla
skatta og skyldur stöndum við uppi
með 59 þúsund.
Fyrir nokkrum árum fór ég fram á
íbúð á jarðhæð hjá Hveragerðisbæ.
Þá var sjálfstæðismaður sem vann á
skrifstofu bæjarins. Hann sagði að
það þýddi ekki fyrir mig eða mína að
fara fram á húsnæði hjá þeim. Ég
svaraði honum: „Ef þú fengir að
ráða, Kristinn, fengir þú að láta upp
gasklefa.“ Ég held að hann muni eft-
ir þessum orðum í hvert skipti sem
hann sér mig og vona ég að hann lesi
þetta til áminningar.
Ég skora á fólk sem komið er, og
er að komast, á aldur að láta ekki
blekkja sig með svona löguðu eins og
borið var á borð í Kastljósinu 1. maí.
Við erum greinilega ekkert í augum
þess fólks sem við völd er núna. Það
makar krókinn, hirðir af okkur og
stelur.
Sunna Guðmundsdóttir,
Heiðarbrún 8, Hveragerði.
Bónus í Kópavogi
Í FRAMHALDI af umræðunni um
Bónus í Skeifunni í Velvakanda 2.
maí vil ég benda á að sama vandamál
á sér stað í Bónus í Kópavogi. Vör-
urnar þar eru illa merktar og ekki er
hægt að fá neina aðstoð. Það er líkt
og afgreiðslufólkið forðist mann.
Væri ekki hægt að bæta þetta?
Sigurbjartur.
Sálubótarhjálp
HLJÓMSVEITIN Sálubót kom í
heimsókn í Eyjarfjörð í og hélt tón-
leika í Laugaborg fyrir fullu húsi.
Stemningin var gríðalega góð og
kórinn var frábær. Lagavalið til
fyrirmyndar og öll framganga Sálu-
bótar til mikillar gleði. Kórstjórinn
og undirleikarinn Jaan Alavere var
snillingur. Sálubót eiga sannarlega
heiður skilið fyrir framlag sitt til ís-
lenskrar menningar.
Eyfirðingur.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
HÚN virðist döpur á svip álftin á myndinni. Kannski leiðist henni biðin eftir
ungunum. Áftin er stærsti varpfugl landsins og liggur á eggjum í 34 daga.
Morgunblaðið/Ómar
Biðin er löng á Bakkatjörn