Morgunblaðið - 05.05.2007, Side 58
Það er spenna í loftinu
en um leið ánægja
með langþráðan og óvæntan
sigur í Aþenu… 64
»
reykjavíkreykjavík
ELLÝ Ármannsdóttir, þula
hjá Sjónvarpinu, er lang-
vinsælasti bloggari landsins
um þessar mundir en vel yf-
ir 10.000 manns fara áblogg-
ið hennar, ellyarmanns-
.blog.is, á degi hverjum.
Ellý skrifar gjarnan um
samskipti kynjanna, og þá
sérstaklega um reynslu vin-
kvenna sinna af karl-
mönnum. „Þetta kemur mér
svakalega á óvart,“ sagði
Ellý í samtali við fréttavef
Morgunblaðsins í gær. „Ætli þetta
sé ekki líka af því að það eru kosn-
ingar og fólk þyrstir kannski í eitt-
hvað skemmtilegra.“
Aðspurð sagðist Ellý hafa haft
nægan tíma að undanförnu og því
verið dugleg við að blogga en hún á
von á barni. „Mér finnst þetta fynd-
ið, okkur vinkonunum finnst þetta
fyndið og við liggjum yfir þessu. Á
meðan við gerum það þá nenni ég að
skella inn nokkrum sögum.“
Upp hefur komið sú hugmynd að
gefa skrif Ellýjar út á bók, en hún
segist ætla að sjá til hvort af því
verður. „Nú er ég bara að bíða eftir
að fæða stelpuna og ætla bara að sjá
til,“ segir hún.
Ellý Ármannsdóttir er
langvinsælasti bloggarinn
Vinsæl Ellý Ármannsdóttir.
Breski áfeng-
isframleiðandinn
William Grant &
Sons er að hefja
auglýsinga-
herferð á Netinu
fyrir Reyka-
vodka, sem fram-
leiddur er á Ís-
landi. Íslenska
tónlistarkonan Hafdís Huld kemur
fram í auglýsingunum, sem þegar
hafa verið birtar á vefnum You-
Tube, en auglýsingarnar má einnig
finna á heimasíðu Reyka-vodka.
„Þeir drekka ekki bragðbættan
vodka á Íslandi,“ segir Hafdís Huld
m.a. í einni auglýsingunni. „Vilji
maður finna bananabragð þá borð-
ar maður bara… banana – og eina
bragðið sem þeir framleiða er
vodkabragð.“
Reyka-vodki er framleiddur í
Borgarnesi fyrir William Grant &
Sons.
Hafdís Huld auglýsir
Reyka-vodka
Halldór Örn Ragnarsson, bassa-
leikari Kimono, hefur sagt skilið
við sveitina en hann hyggst einbeita
sér að myndlistinni og stefnir að
frekara listnámi í Amsterdam að
lokinni útskrift frá LHÍ. Gunnar
Þór Jónsson, bassaleikari Future
Future, fyllir skarð Halldórs og er
þegar byrjaður að æfa með sveit-
inni.
Einhver bið verður þó á jómfrú-
artónleikum Gunnars því sveitin
hyggur ekki á hljómleikahald fyrr
en um mitt sumar en þá verða að
öllum líkindum frumflutt ný lög.
Dóri hættur í Kimono
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
ÞAÐ VERÐA óvenjulegir tónleikar sem Dean
Ferrell, kontrabassaleikari í Sinfóníuhljómsveit
Íslands, ætlar að halda í Kaffi Hljómalind þann
17. maí næstkomandi. Þar ætlar hann að flytja
16. aldar verk eftir Giovanni Gabrieli og verða
þetta áttundu tónleikarnir í tónleikaröðinni
Snobb fyrir alla sem hann byrjaði með í
Hljómalind fyrir um ári síðan.
„Í þessari tónleikaröð höfum við spilað fjör-
uga og óvenjulega tónlist. T.d. á fyrstu tónleik-
unum var ég bara einn á kontrabassann og
flutti þá enska kráartónlist frá 1604 og á sein-
ustu tónleikum fluttum við svokallaða b-flokks
kammertónlist eftir óþekkta samtíðarmenn
Mozarts. Á tónleikunum á uppstigningardag
verður 4 til 5 manna barrokkstrengjasveit og 4
manna blásarasveit, strengjasveitin spilar inni
en blásararnir verða á palli fyrir utan Hljóma-
lind og spila inn um gluggann,“ segir Dean Far-
rell en það eru vinir hans úr Sinfóníuhljóm-
sveitinni sem spila með honum.
„Við spilum 10 til 15 verk eftir Giovanni sem
eru 3 til 5 mínútur hvert að lengd. Verkin voru
skrifuð fyrir tvo kvartetta sem svara hvor öðr-
um og það krefst töluverðs rýmis á milli hljóð-
færahópa, þess vegna verður blásarasveitin að
spila úti meðan strengjasveitin verður inni í
Hljómalind,“ segir Dean hlægjandi og biður um
leið um gott veður. „Á Snobb fyrir alla tón-
leikum spilum við oftast á upprunaleg og óhefð-
bundin hljóðfæri, t.d. verðum við með alt-
básúnu, upprunalega tenórfiðlu eða violoncello
piccolo, innanborðs í strengjasveitinni, ég mun
spila á sjaldgæfa bassafiðlu og við verðum ekki
mjög grænmetisætuvænleg á grænmetiskaffi-
húsinu því í svona gömlum hljóðfærum eru
strengirnir gerðir úr görnum.“
Dean segir að hugmyndin með Snobb fyrir
alla sé að flytja tónlist í því umhverfi sem hún
var samin fyrir. „Þetta er svona b-flokkur
kammertónlistar sem var spiluð á kaffihúsum
og krám áður. Slík tónlist á ekki heima á form-
legum tónleikum, þá er hún leiðinleg, hún á
heima þar sem fólk getur talað saman um leið
og það hlustar. Það er öðruvísi og þægileg upp-
lifun, ekki of listræn og því heita tónleikarnir
Snobb fyrir alla. Verkið eftir Gabrielli verður
þó ekki í neinum b-flokki,“ segir Dean og bætir
við að Hljómalind hljómi vel fyrir svona tón-
leika og sé heimilisleg.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 hinn 17. maí.
Morgunblaðið/ÞÖK
Óvenjulegt „Þetta er svona b-flokkur kammertónlistar sem var spiluð á kaffihúsum og krám áður,“ segir Dean Ferrell.
Snobb fyrir alla
Dean Ferrell og vinir halda óvenjulega tónleika á Kaffi Hljómalind 17. maí
tsdk@ismennt.is, http://tsdk.ismennt.is
Dagur Tónskólans laugardaginn 5. maí 2007
Tónleikar í Hraunbergi og Ger›ubergi
kl. 13, 14, 15 og 16
Allir velkomnir