Morgunblaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is ÞAÐ er viðburðarík helgi framundan hjá mörgum íslenskum fjölskyldum. Ekki aðeins er keppt í Evróvisjón og kosið til Alþingis, heldur lauk sam- ræmdum prófum 10. bekkjar grunn- skólanna í gær, og víst er að margir unglingar hyggjast fagna próflok- unum með einum eða öðrum hætti. Áður fyrr voru drykkjuskemmtanir ungmenna eftir lok samræmdra prófa algengar en við þeim hefur ver- ið spornað, meðal annars með því að efna til sérstakra ferða fyrir krakk- ana að prófunum loknum. Ferðirnar eru gjarnan skipulagðar af skólum og foreldrum. Þrátt fyrir þetta þekkist það enn að unglingar komi saman í próflok. Ekki verður þá lokaprófdagurinn endilega fyrir valinu, heldur hugsanlega helgin á eftir. Frést hefur af því að á Ak- ureyri hyggist 10. bekkingar koma saman eftir miðnætti á föstudags- kvöld. „Það er stór helgi framundan og mjög áríðandi að foreldrar fylgist með börnunum sínum, bjóði vinum þeirra heim og séu nálægir þessa dagana,“ segir Björk Einisdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, um próflokin. Því miður séu dæmi þess að foreldrar leyfi börnum ekki að bjóða vinum og kunningjum heim til sín, en þá missi foreldrar yfirsýn yfir það sem börn þeirra aðhafist. Raunar sé mikilvægt að slíkt eftirlit haldi áfram í allt sumar. Foreldrar taki þátt Börn og unglingar hafa verið dug- leg við að taka í notkun ýmiss konar nýja tækni og nota mikið blogg og sms til þess að eiga samskipti. Björk segir að foreldrar þurfi að hafa þessi atriði í huga, þeir þurfi að vera vak- andi fyrir símum og tölvum. Spyrja má hvort ungmennin á Ak- ureyri, sem ráðgert hafa að hittast í Kjarnaskógi um helgina, hafi nýtt sér þá tækni til þess að láta boðin ganga sín á milli. Bryndís Arnarsdóttir, for- varnarfulltrúi Akureyrar, segir for- eldra hafa nokkrar áhyggjur af fyr- irhugaðri samkomu. Í fyrra hafi ungmenni hist þar og samkoman far- ið úr böndunum. Þangað hafi meðal annars mætt sölumenn fíkniefna. Bryndís segir að foreldrar allra barna í 10. bekk á Akureyri hafi feng- ið sent bréf þar sem þeim er bent á að þótt sjálfsagt sé að börnin fagni próf- lokunum sé heppilegra að þau geri það undir eftirliti foreldra. Foreldrar hafi verið hvattir til þess að taka þátt í foreldrarölti á föstudagskvöldið. Hugsanlegt sé að krakkarnir noti nú- tímatækni til þess að breyta um stað með stuttum fyrirvara „en við verð- um að minnsta kosti í viðbragðs- stöðu“. Hún leggur áherslu á að langflest börnin séu til fyrirmyndar. Stærstu áhyggjurnar varði sölu fíkniefna og að ungmennunum sé boðið áfengi. Ekki lengur „vandræðakvöld“ Eiður H. Eiðsson, lögreglufulltrúi forvarna hjá lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu, segir að und- anfarin ár hafi með samstilltu átaki lögreglu, skóla, foreldrafélaga, ÍTR og fleiri aðila, tekist að koma í veg fyrir að kvöldin eftir að samræmdum prófum lýkur verði „vandræðakvöld“. Framlag lögreglunnar sé aukið eft- irlit eftir samræmdu prófin, m.a. á föstudags- og laugardagskvöld. Hann segir að lögreglunni finnist að í ár hyggist færri unglingar taka þátt í ferðum sem margir skólar hafa boðið upp á við próflok. Lögreglan hafi vissar áhyggjur af laugardagskvöldinu, enda sé þá lík- legt að margir foreldrar stefni á að mæta á kosningavökur, eða í Evró- visjóngleðskap og unglingunum gef- ist þá færi á að halda eftirlitslaus partí. „Svoleiðis gleðskapur getur farið úr böndunum en á augabragði berast fréttirnar í gegnum gsm- kerfið og sms-skilaboðin,“ segir hann. Þá vilji lögreglan að unglingarnir viti að þeir geti leitað til lögreglu til þess að ná stjórn á mannskapnum. Áhyggjur af laugardegi 10. bekkur fagnar próflokum Morgunblaðið/Ásdís Búin Um 4.500 unglingar þreyttu samræmdu prófin í 10. bekk í ár. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragn- arsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Andra Karl andri@mbl.is „VERNDUN menningarverðmæta er mikilvæg en þau viðhorf mega ekki hindra eðlilega framþróun borgar,“ sagði Björgólfur Guð- mundsson, stjórnarformaður Lands- bankans, á fyrsta Miðborgarþingi Reykjavíkurborgar sem haldið var í Listasafni Reykjavíkur – Hafnar- húsi í gær. Þingið bar yfirskriftina „Hvernig bætum við brunann“ og fjallaði að mestu um uppbyggingu á horni Lækjargötu og Austurstrætis eftir stórbrunann 18. apríl sl. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg- arstjóri tók fyrstur til máls og ítrek- aði þá skoðun sína að koma þyrfti framkvæmdum af stað sem fyrst, þó það tæki sinn tíma að skoða hvernig byggja ætti upp. „Upp úr þessum brunarústum munu rísa hús á göml- um grunni, og sótt verður í sjóði for- tíðarinnar. Ég hef áður lýst yfir skoðun minni á þessu máli og hún er óbreytt,“ sagði Vilhjálmur sem telur að varðveita eigi götumyndina eins og kostur er miðað við breyttar að- stæður, en um leið skoða möguleika á því að nýta lóðirnar til ákveðinnar uppbyggingar. Ekki voru allir á sömu skoðun og borgarstjóri og varpaði Einar Bjarki Malmqvist, starfandi arkitekt í Nor- egi og aðstoðarritstjóri Byggekunst, öðrum hugmyndum fram. Einar sagði m.a. að ekki ætti að byggja upp eftir myndum og hvatti til þess að hugað yrði að fleiri þáttum. „Við verðum að skilja að við erum í raun búin að missa stóran hluta af sög- unni af því að við kunnum ekki að byggja lengur, við kaupum hluti og stöflum þeim saman og þó svo við stöflum þeim saman í því formi sem gömlu húsin voru þá erum við ekki að byggja hið gamla. Við eigum ekki að byggja fyrir ferðamenn heldur hugsa út í hvað við getum gert til að þróa byggingarhefðina.“ Þá sýndi Einar Bjarki myndir af þeim húsum sem reist voru í miðbæ Þrándheims, eftir brunann í desem- ber árið 2002, þar sem hið gamla sameinast hinu nýja, s.s. með því að byggt er úr timbri og var ljóst af við- brögðum áhorfenda, sem sumir tóku andköf, að hugmyndir Norðmanna hugnuðust þeim ekki. Tónskálið Atli Heimir Sveinsson steig einnig upp í pontu og viðraði skoðanir sínar. Þær eru ekki full- mótaðar en byggjast á því að fá arki- tekt á heimsmælikvarða til að hanna húsnæði sem gæti kallast á við tón- listarhúsið og aðrar byggingar sem rísa munu á svæðinu á næstu árum. Falla ekki að skipulagi Segja má að Björgólfur Guð- mundsson hafi tekið undir þær hug- myndir að húsnæðið eigi að vera í takt við þá uppbyggingu sem er á svæðinu, en honum þótti þó óþarfi að fá erlenda arkitekta til verksins. „Eyðing er upphaf nýrrar sögu,“ sagði Björgólfur og benti á að götu- myndin á svæðinu væri umdeild og óljós, auk þess sem verið væri að endurskoða Lækjartorgið og um- hverfi þess. „Því er komin fram full- góð ástæða til að skoða hvort brun- inn gefi tækifæri til að ná fram áhugaverðri heildarmynd sem muni þjóna miðbænum til framtíðar. Þessi hús voru falleg og merkileg en þau falla ekki vel að skipulagi reitsins kvosarmegin við Lækjargötuna.“ Hann gagnrýndi þá, varlega, hversu fljótt stjórnmálamenn úr öll- um flokkum, sem ekki eiga eignirnar sem brunnu, höfðu lýst því opinber- lega að þeir teldu mikilvægt að við- halda götumyndinni og endurbyggja húsin í upprunalegri mynd á sama stað. „Í sjálfu sér er þetta falleg hugsun en þessi atburður skapaði nýjar aðstæður, opnaði fyrir ný tækifæri og skoða á framhaldið í víð- ara ljósi og kalla til fleiri sem málið varðar.“ Efla verður miðborgina Björgólfur vísaði í niðurstöður ó- birtrar könnunar Capacent Gallup sem gerð var fyrir fasteignafyrir- tæki sem hann á aðild að. Þar kemur í ljós að aðeins 6,7% aðspurðra telja miðstöð verslunar og þjónustu vera í miðborginni, 86% nefna hins vegar aðra af stóru verslunarmiðstöðvun- um á höfuðborgarsvæðinu. „Í mín- um huga verðum við að breyta þessu. Ef okkur á að takast að gæða miðborgina lífi þá þurfum við að gera hana að miðstöð verslunar og þjónustu.“ Í niðurstöðum sömu könnunar kemur jafnframt fram að 78% að- spurðra telja mjög eða frekar mik- ilvægt að efla þjónustu og verslun í miðborginni. Tækifæri til að ná fram heildarmynd Fjölmennt íbúaþing um uppbyggingu á horni Lækjargötu og Austurstrætis var haldið í Listasafni Reykjavíkur í gær Morgunblaðið/RAX Miðborgarþing Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbank- ans, var á meðal ræðumanna og sagði mörg tækifæri liggja í miðborginni. Í HNOTSKURN »Vilhjálmur borgarstjórisagði mikilvægt að heyra sjónarmið borgarbúa og boð- aði regluleg Miðborgarþing þar sem rætt verður um brýn málefni sem varða miðborg- ina. »Jafnframt tilkynnti hannstofnun félags í tengslum við hagsmunaaðila sem mun hafa það hlutverk að efla mið- borgina og standa að mark- aðsstarfi. TEKNAR hafa verið saman upplýs- ingar um grunnskóla Reykjavíkur, t.d. um fjölda nemenda og viðhorf þeirra til viðkomandi skóla, og liggja þær frammi á vefsíðu grunnskól- anna, www.grunnskolar.is. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður mennta- ráðs Reykjavíkurborgar, kynnti upplýsingarnar á fundi sem haldinn var í gær með fulltrúum foreldra- ráða í grunnskólum borgarinnar. „Þessum upplýsingum er meðal annars ætlað að auðvelda foreldrum, sem eru að flytja til borgarinnar, að sjá hvaða grunnskóli henti börnum þeirra best.“ Júlíus segir aðgengi foreldra að upplýsingum sem þess- um þekkjast víða erlendis og að sóst hafi verið eftir þeim af reykvískum foreldrum. Upplýsingarn- ar sem um ræðir eru m.a. ýmsar staðreyndir um fjölda nemenda, starfsfólks, fjölda íbúa í hverfi og hlutfall nemenda á íbúð í skóla- hverfinu. Einnig eru birtar niður- stöður úr sam- ræmdum prófum og niðurstöður við- horfskannana meðal forráðamanna, starfsfólks og nemenda. Markmið fundarins í gær var að kynna upplýsingarnar, sem og að leita eftir óskum foreldra um frekari upplýsingar sem þeir teldu að gætu komið að gagni við val á skóla. Geta skoðað stöðu einstakra skóla Júlíus Vífill Ingvarsson SAMKVÆMT könnun sem Fé- lagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Stöð tvö og birt var í gær- kvöldi er ríkisstjórnin fallin. Á lands- vísu fær Framsóknarflokkurinn 8,6% og 5 þingmenn kjörna og Sjálf- stæðisflokkurinn fengi 38,1% og 25 þingmenn. Vinstri grænir fá 16,2% samkvæmt könnuninni og 11 þing- menn og Samfylkingin 29,1% og 19 þingmenn. Frjálslyndi flokkurinn fengi 5,2% og 3 þingmenn kjörna og Íslandshreyfingin fengi 2,7% sem dygði flokknum ekki til að fá mann kjörinn á þing. 2400 manna úrtak var í könnun- inni og svarhlutfall var 63%. Könn- unin var gerð síðastliðinn fimmtu- dag, föstudag, mánudag og þriðjudag. Ríkisstjórnin ekki með meirihluta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.