Morgunblaðið - 10.05.2007, Síða 8

Morgunblaðið - 10.05.2007, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KOSNINGAR 2007 Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is EKKI þarf alltaf fjölmenni til að fundur verði líflegur og skemmti- legur. Það kom glöggt fram á framboðsfundi Sjálfstæðisflokksins í félagsheimilinu Hlöðum á Hval- fjarðarströnd í fyrrakvöld, þar sem Einar Oddur Kristjánsson, þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, fór á kostum í framsöguerindi sínu. Sjálfstæð- isflokkurinn var eini stjórn- málaflokkurinn í þessari kosninga- baráttu, sem efndi til sérstaks framboðsfundar á Hvalfjarð- arströnd. Einar Oddur spurði m.a. hvers vegna stjórnarandstaðan og fleiri þyrftu æ ofan í æ að bera þau ósannindi á borð fyrir þjóðina, að styrkjakerfi landbúnaðarins hér á landi næmi 14 til 16 milljörðum króna, þegar hið sanna væri, að greiðslur til bænda næmu 8,5 millj- örðum króna á ári. „Ég var að segja frá því í Ólafs- vík í gær, að ég hef nú lítið sést í sjávarþorpunum, því ég var sendur til sveita í þessari kosningabaráttu og hef mest verið að tala um kind- ur og stundum kýr og hef reyndar aðeins minnst á svín!“ hóf Einar Oddur mál sitt, en hann varði drjúgum tíma í að gera grein fyrir stefnu Sjálfstæðisflokksins í land- búnaðarmálum, enda staddur í landbúnaðarhéraði. „Ég hef undirstrikað það í mál- flutningi mínum og geri hér, að Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur allra stétta og flokkur allra byggða. Í þessu stóra kjördæmi er þetta mjög skipt; hér á suðursvæð- inu er mikil þensla í stórum bæj- arfélögum; við erum með lítil sjáv- arþorp og mikinn landbúnað. Stuðningur Sjálfstæðisflokksins við íslenskan landbúnað og bændur er eindreginn og á hann hef ég lagt mikla áherslu í mínum málflutn- ingi.“ Einar Oddur sagði að enginn þyrfti að fara í grafgötur með það, sem læsi stjórnmálaályktun Sjálf- stæðisflokksins um landbún- aðarmál, sem samþykkt hefði verið á síðasta landsflundi flokksins, mótatkvæðalaust, að Sjálfstæð- isflokkurinn stæði heill á bak við þá ályktun. Mikil hagræðing í landbúnaði „Hversu oft hefur það ekki heyrst á síðustu misserum úr röð- um stjórnarandstöðunnar, að það sé höfuðnauðsyn að taka þessu „gegnumrotna landbúnaðarkerfi tak og snúa ofan af allri vitleys- unni, og spillingunni sem þar við- gengst“ og ég veit ekki hvaða önn- ur orð hafa verið viðhöfð? Okkur hefur tekist á und- anförnum árum að leiða íslenskan landbúnað til mikillar farsældar og landbúnaðurinn hefur verið að skila ekkert síðri hagræðingu og ekkert síðri framförum en aðrar atvinnu- greinar og í sumum tilfellum betri. Ég geri það oft, svona bæði í gamni og alvöru, að minna menn á hvernig grafið lítur út um verðþró- unina á einum lítra á mjólk annars vegar og hins vegar hvernig grafið lítur út um verðþróunina á einum lítra af kók. Kókið hefur hækkað helmingi meira er mjólkin! Ég furða mig á því að menn skuli ekki taka eftir þessu og ég furða mig á öllum þessum upphrópunum um að hið gríðarlega háa matarverð sé að sliga fjölskyldurnar og þetta sé myllusteinninn sem haldi niðri lífs- kjörum Íslendinga.“ Einar Oddur sagði að sannleik- urinn væri sá að það væru rúm 5% af ráðstöfunartekjum sem vísitölu- fjölskyldan eyddi í innlend mat- væli, sem væri nánast sama tala sem lífskjörin hefðu batnað um á hverju ári, eða 4–5%. Einar Oddur sagði að nauðsyn- legt væri að undirstrika hið sanna í þessum efnum, „því það yrði skelfi- legt fyrir byggðir landsins ef svona ósannindi fengju undirtektir og al- menningur færi að trúa þessu. Svo er ekki, til allrar hamingju sér fólk í gegnum ósannindin. Ég er sannfærður um, að ef við hættum að styðja sauðfjárræktina, þá gæti hér orðið mjög mikil land- auðn og stór svæði landsins yrðu bara kalblettir og menningarlega og sögulega værum við að gera mjög rangt með því. Þessir rúmir þrír milljarðar á ári, sem fara í að styðja við sauðfjárrækt, eru ekki þeir fjármunir að þeir skipti sköp- um fyrir ríkisfjármálin og fyrir stuðningnum við mjólkuriðnaðinn eru fullkomin efnahagsleg rök. Ég hef margfarið yfir það í ræðu og riti.“ Einar Oddur sagði að grundvöll- ur þess að hægt væri að halda áfram búskap hér á landi og að ís- lenskar sveitir héldust í byggð væri bara einn: „Að bændur hafi kjör sem eru sambærileg við það sem aðrir þegnar þjóðfélagsins hafa.“ Ná ekki norður yfir heiðina Jákvæð efnahagsleg áhrif af verksmiðjunum á Grundartanga, jákvæð menningarleg og efnahags- leg áhrif af Landbúnaðarháskól- anum á Hvanneyri og Háskólanum á Bifröst urðu Einari Oddi einnig að umtalsefni. Hann benti á hvern- ig áhrifin teygðu sig um gjörvallt Vesturland, norður Mýrar, út Snæ- fellsnesið, til Akraness og Borg- arness og til uppsveita Borg- arfjarðar. „En þau ná ekki norður fyrir Holtavörðuheiði. Það getur hvert mannsbarn séð. Þannig að ávinningnum af uppbyggingunni í þessu stóra kjördæmi, honum er verulega misskipt.“ Undir lok máls síns sagði Einar Oddur: „Við eigum og megum og skulum styrkja byggðirnar og það er fráleitt annað en halda því áfram. Nýja stefnumótunin í byggða- málum, sem við fengum loksins alla þingmenn til að skrifa undir í vet- ur, eftir að við hentum út af borð- inu hugmyndum Valgerðar Sverr- isdóttur, þáverandi viðskiptaráðherra, hún er ekki flók- in: Menntamál – samgöngumál. Hún var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.“ Hann sagði að með frekari upp- byggingu verkmenntaskóla, há- skóla, skólasetra, fjarkennslustöðva og símenntunar í dreifðari byggð- um landsins, auk stórbættra sam- gangna, yrði byggð brú á milli þéttbýlis og dreifbýlis og van- trausti milli borgar og byggðar eytt. Einar Oddur, harður talsmaður bænda, á framboðsfundi Sjálfstæðisflokksins á Hvalfjarðarströnd Kók hækkað helmingi meira en mjólk Morgunblaðið/Agnes Bragadóttir Frambjóðandinn „Þessi stefna hefur ofboðsleg áhrif á vilja manna og getu til þess að búa í þessu landi og hún mun skila þjóðinni verulegum ávinningi.“ VINSTRI hreyfingin – grænt fram- boð hefur samið nýtt frumvarp til laga þar sem kveðið er á um, að ráð- herrum sé óheimilt að gera samn- inga sem binda ríkissjóð til útgjalda, síðustu 90 dagana fyrir kosningar. Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, kynnti frumvarpið á blaða- mannafundi í gær og sagði að frum- varpið yrði eitt af fyrstu frumvörp- um sem nýr þingflokkur mundi leggja fram á næsta þingi. Steingrímur sagði að undirskriftir og loforð ráðherra um fjárframlög að undanförnu hefðu gengið fram af mörgum. Oft hefðu fjárreiður ríkis- ins gengið fram af fólki en steininn tekið úr upp á síðkastið og hefðu ráð- herrar skrifað undir samninga, nán- ast hvern einasta dag, án fyrirliggj- andi heimilda í fjárlögum. Íslendingar hvattir til að snúa við blaðinu Á fundinum, sem haldinn var til að kynna áherslumál flokksins á loka- spretti kosningabaráttunnar, sagði Steingrímur kjósendur hafa gildar ástæður til að kjósa ekki áframhald- andi ríkisstjórnarsamstarf Sjálf- stæðisflokks og Framsóknarflokks. Þá kvaðst hann bjartsýnn á að þær aðstæður mundu myndast að lokn- um kosningum að hægt yrði að skipta um stjórn. Fimm fulltrúar flokksins sátu fundinn og sögðu þeir Íslendinga hafa dökka mynd fyrir augunum í lýðræðis-, velferðar-, jafnréttis- og umhverfismálum og að tími væri kominn til að snúa við blaðinu og horfa til bjartari framtíðar. Hefur flokkurinn látið gera spjald með hin- um dökkum hliðum annars vegar og framtíðarsýn sinni hins vegar og sneri við blaðinu, með táknrænum hætti, á fundinum. Fram kom í máli þeirra að VG vilji tryggja 40% hlut kvenna á þingi og í sveitarstjórnum og afnema launa- leynd strax enda segja þeir launa- vernd vera gróðrarstíu kynbundins launamunar. Einnig kom fram að flokkurinn vildi stöðva frekari stór- iðjuframkvæmdir í a.m.k fimm ár og stofna loftslagsráð til að vinna mark- visst gegn losun gróðurhúsaloftteg- unda m.a. með vistvænum sam- göngum og fræðslu um umhverfis- mál. Einnig sögðust frambjóðendurnir vilja afnema lög um eignarétt á drykkjarvatni sem eiga að taka gildi 1. nóvember á þessu ári og tryggja að aðgangur að vatni verði viðurkenndur hluti af grunnréttind- um fólks. Vilja hefta umboð ráðherra skömmu fyrir kosningar Morgunblaðið/Ásdís Áherslumál Frambjóðendur VG snúa við blaðinu með táknrænum hætti í Norræna húsinu. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur fallist á þá kröfu Sálfræðinga- félags Íslands að lög um heilbrigð- isþjónustu verði ekki talin ganga framar samkeppnislögum. Ógilti dómurinn jafnframt úrskurð áfrýj- unarnefndar í samkeppnismálum þar sem ákvörðun Samkeppniseftir- litsins var felld úr gildi, en í ákvörð- uninni var það talið samkeppnis- hamlandi að klínískir sálfræðingar sætu ekki við sama borð og geðlækn- ar hvað varðar greiðsluþátttöku hins opinbera í kostnaði sjúklinga vegna meðferðar hjá þeim. Halldór Kr. Júlíusson, formaður Sálfræðingafélags Íslands, segir nið- urstöðu dómsins mikilvæga fyrir þá sem þurfa á sálfræðilegri hjálp að halda. „Sálfræðingar og samtök sjúklinga hafa lengi barist fyrir þessu máli,“ segir Halldór. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá því í október 2005 sagði að geð- læknar og klínískir sálfræðingar ættu í samkeppni og því væri heil- brigðisyfirvöldum ekki stætt á því að mismuna starfstéttunum á þann hátt að semja um greiðsluþátttöku í til- viki geðlækna en ekki þegar kæmi að sálfræðingum. Áfrýjunarnefnd sam- keppnismála klofnaði í afstöðu sinni, en meirihlutinn felldi úr gildi ákvörð- un samkeppniseftirlits. Sá úrskurð- ur hefur nú sjálfur verið felldur úr gildi af héraðsdómi. Mikilvæg niður- staða Sálfræðingar vilja samning við ríkið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.