Morgunblaðið - 10.05.2007, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÞAÐ þarf að gera hlé á frekari stór-
iðjuskuldbindingum, slá skjaldborg
um náttúruperlur Íslands og
tryggja að orkuauðlindir landsins
safnist ekki á fárra hendur líkt og
fiskurinn eftir að kvótakerfinu var
komið á. Þá þarf að hækka skatt-
leysismörk í 142.600 krónur, styrkja
velferðarkerfið og gera betur við þá
sem minnst mega sín.
Þetta var inntakið í ræðu Jakobs
Frímanns Magnússonar, sem skipar
1. sæti Íslandshreyfingarinnar í
Suðvesturkjördæmi, á hádegisfundi
með starfsmönnum Prentmets í
gær.
Jakob hóf framsögu sína á að
svara gagnrýni á flugvallargerð
Ómars Ragnarssonar, sem skipar 1.
sæti flokksins í Reykjavík suður,
sem hann taldi ómaklega og lýsa því
hve stutt væri til kosninga.
Jakob rakti svo aðdraganda stofn-
unar hreyfingarinnar, þörf hefði
verið fyrir nýjan flokk sem væri
„grænn í gegn“ og sem setti um-
hverfis-, auðlinda-, efnahags- og vel-
ferðarmálin í órofa heildarsam-
hengi, með náttúruvernd í
forgrunni. Vinstri grænir væru að
sönnu grænn en sósíalískur flokkur,
auk þess sem samstarf hans í sveita-
stjórnum hefði leitt til málamiðlana.
Slíkt yrði ekki uppi á teningnum
kæmist Íslandshreyfingin til valda,
ekki yrði samið um þá kröfu að gert
yrði hlé á stóriðjustefnu stjórnvalda.
Mikilvægt væri að ná sátt í sam-
félaginu um þennan mikilvæga
málaflokk og að fram færi endurmat
á sameiginlegum verðmætum okkar
og raunvirði þeirra.
Orkan stöðugt verðmætari
„Við erum með það sem okkur
hefur verið fengið til varðveislu,
landið, náttúruna og ekki síst orku-
uppsprettur og auðlindir landsins,
það dýrmætasta sem við eigum, fyr-
ir utan sjálfan mannauðinn, börnin
okkar,“ sagði Jakob í framsögunni.
Jakob sagði því næst orku lands-
ins verða stöðugt verðmætari með
degi hverjum. Tekist hefði að bjarga
Eyjabökkum um síðustu aldamót en
í framhaldinu hefðu verið gerðir
samningar um sölu ódýrrar orku til
Alcoa. Nú mætti ljóst vera að stjórn-
völd hygðust einkavæða orkulind-
irnar.
Jakob vakti einnig athygli á því að
eftir að Alcoa tók yfir Alcan í 2.100
milljarða viðskiptum væri til kominn
viðskiptavinur sem keypti liðlega
80% af stóriðjuorkunni í landinu.
„Það þarf ansi mikinn þrótt til að
standa í lappirnar andspænis þeim
sem geta með annarri hendinni reitt
út 2.100 milljarða íslenskra kr. til að
kaupa eitt álfyrirtæki.
Þeir yrðu ansi fljótir að kaupa upp
alla þá orku sem við eigum hér eða
stæði þeim til boða. Ætlum við að
gera fallvötnin, endurnýjanlegu og
vistvænu íslensku orkuna, þá eftir-
sóttustu í heimi, að láta örlög henn-
ar verða þau sömu og fiskimiðanna?
Ætlum við að glutra henni úr
höndunum, að selja hana á útsölu-
prís eins og við höfum verið að selja
orkuna til Alcoa? Ætlum við jafnvel
að gefa hana eins og við gerðum við
fiskimiðin? Um þetta er kosið á
laugardaginn. Það er kosið um sam-
eignina okkar til frambúðar og með
hvaða hætti hún verður nýtt og í
hvaða eignarhaldi hún verður. Þetta
er mál sem varðar ekki einungis
samfélag nútímans heldur ekki síður
börn okkar, fædd og ófædd.“
Viðstaddir klöppuðu fyrir fram-
sögunni, engar spurningar bárust úr
salnum.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Með kjósendum Jakob Frímann færði ýmis rök fyrir því hvers vegna Íslandshreyfingin ætti erindi í stjórnmálin.
Orkuauðlindin safnist
ekki á fárra hendur
Jakob Frímann, frambjóðandi Íslandshreyfingarinnar,
kynnti starfsliði Prentmets stefnumálin á hádegisfundi
RAPIDALIGNER-vélin frá
Völku ehf. vakti mikla athygli
á sjávarútvegssýningunni í
Brussel sem haldin var í lok
apríl. Valka kynnti frumgerð
af samvalsflokkara sem
byggist á algerlega nýrri
hugsun og er í senn flokkari,
samvalsbúnaður og raðari.
Kostir vélarinnar eru fjöl-
margir.
Vélin hefur verið þróuð af
Völku í samvinnu við Ný-Fisk
og Háskólann í Reykjavík en
verkefnið er styrkt af AVS-
sjóðnum og Rannís. Sótt hef-
ur verið um einkaleyfi fyrir
vélinni og hefur það verið
samþykkt hér á landi og al-
þjóðleg einkaleyfisumsókn er
í gangi.
Mikill áhugi á vélinni
„Ljóst er að mjög mikil
þörf er á vélbúnaði sem meðhöndlar
ferskan fisk betur en núverandi
flokkunarbúnaður og ekki spillir
fyrir að vélin eykur sjálfvirkni um
leið með sjálfvirkri röðun. Þetta
kom skýrt fram á sýningunni því
mikill áhugi er á vélinni og verður
ærið verkefni fyrir starfsfólk Völku
að fylgja eftir þeim söluábending-
um sem fengust á sýningunni. Enn-
fremur lýstu margir aðilar áhuga á
að gerast söluaðilar fyrir vörur
Völku á erlendum mörkuðum en sá
áhugi mun auðvelda Völku mjög
það verkefni að byggja upp sölunet
erlendis,“ segir Helgi Hjálmarsson,
framkvæmdastjóri Völku.
Vélin sem sýnd var í Brussel var
prófuð mjög ítarlega í Ný-Fiski í 2
mánuði fyrir sýninguna og stóðst
allar væntingar sem til hennar voru
gerðar. „Í framhaldi af þessum
góða árangri er næsta skref því að
framleiða vél í fullri stærð sem get-
ur pakkað mörgum tegundum sam-
tímis og verður hún sett upp í Ný-
Fiski í sumar. Sú vél mun aðallega
verða notuð við pökkun á ferskum
þorskhnökkum en flokka þarf þá í
þrjá flokka um leið og valið er sam-
an í kassa. Alger nýjung í vélinni er
að unnt er að nýta hana til að raða
stykkjum beint inn á lausfrysti
samhliða því sem raðað er ofan í
kassa. Auk þessa ávinnings sparar
vélin mikið pláss því vélin er aðeins
um þriðjungur af þeirri lengd sem
hefðbundin flokkaralína þyrfti að
vera.“
Framleiðslu- og pantanakerfi
„Auk RapidAligner-vélarinnar
kynnti Valka aðrar vörur á sýning-
unni. Af þeim vakti RapidTrade
framleiðslu- og pantanakerfið mest-
an áhuga en forritið einfaldar sam-
skipti milli framleiðanda og kaup-
anda verulega, innsláttarvinna er
lágmörkuð auk þess sem yfirsýn
stórbatnar. Þá vakti mikla athygli
beintenging pöntunarkerfisins við
samvalsflokkarann sem gerir úr-
vinnslu pantana sjálfvirkari en áður
hefur þekkst,“ segir Helgi Hjálm-
arsson.
Bætt meðhöndlun
og mikil hagræðing
Valka kynnti nýjan samvalsflokkara
á sjávarútvegssýningunni í Brussel
Í HNOTSKURN
»Sérlega góð meðferð hrá-efnis. Afurðinni er raðað á
algerlega sjálfvirkan hátt í
bakka eða í kassa
»Yfirvigt er lágmörkuðmeð færri hliðum en áður
hefur þekkst og því sparar
vélin dýrmætt pláss í fisk-
vinnslum.
»Vélin getur unnið meðmismunandi skammta-
stærðir og vörutegundir sam-
tímis.
Sýningar Guðmundur Elíasson sölustjóri
og Helgi Hjálmarsson framkvæmdastjóri
kynna nýju vélina á sýningunni í Brussel.
AÐ SÖGN Birgis Kristinssonar
framkvæmdastjóra Ný-Fisks ehf.
hefur verið áhugavert að taka þátt
í þróun vélarinnar með Völku ehf.
„Flokkarinn skilar sínu og gott bet-
ur en hægt er að pakka 3 mismun-
andi afurðum í einu þar sem vigtun
er nánast 100% og síðast en ekki
síst að leggja og raða flakabitunum
varlega í kassann þannig að bitinn
verður ekki fyrir hnjaski. Allir
þessir þættir eru mikilvægir fyrir
rekstarafkomuna en hægt verður
að auka afköst verulega án þess að
komi niður á gæðum eða yfirvigt,“
segir Birgir.
Birgir segir það hafa verið stór-
kostlegt að sjá hvernig hugmyndir
um óskaflokkara fyrir ferskan fisk
urðu að veruleika. Allt frá teikn-
ingum sem settar voru í hermilíkön
og þaðan yfir í frumgerð vélar-
innar sem allt í einu fæddist í fullri
stærð og hreinlega virkaði frá
fyrsta degi. „Manni fannst þetta
eiginlega hálf skrítið að hægt væri
að uppfylla eftirtaldar kröfur eða
óskir:
Það má ekki vera yfirvigt, það
verður að leggja fiskstykkin var-
lega í kassann, vélin þarf að geta
raðað stykkjunum þannig að þau
leggist fallega hlið við hlið.
Við vorum eiginlega vissir um að
þetta væri ekki hægt, því ef svo
væri þá hefði
einhver verið bú-
inn að gera það
fyrir löngu.
Helgi í Völku var
á öðru máli. Eftir
aðeins tæpt ár
var frumgerð
vélarinnar komin
í fullri stærð inn
á gólf hjá okkur í
prufukeyrslur. Það hefur verið
gaman að fylgja þessu verkefni og
sjá hvað við Íslendingar eigum
mikið hugvitsfólki sem hefur frum-
kvöðlahugsun og áræði til að leysa
hvert verkefni af svo mikilli kost-
gæfni. Vissulega hefur vélin breyst
frá fyrstu hugmyndum en slípa
þurfti af ýmsa vankanta þannig að
vélin hentaði nákvæmlega okkar
þörfum og aðstæðum. Helgi og
hans fólk á heiður skilinn fyrir
þetta afrek sem er til þess að við
getum haldið forystunni í hinni
hörðu alþjóðasamkeppni sjávar-
útvegsins.
Ég var staddur á sjávarútvegs-
sýningunni í Brussel og fann fyrir
miklum áhuga kolleganna í iðnað-
inum á vélinni enda er þetta vél
sem mun örugglega vinna sér sess í
þeim fyrirtækjum sem eru í fersk-
fiskvinnslu þar sem gæði eru lykil-
atriði,“ segir Birgir Kristinsson.
Skilar sínu og gott betur
Birgir Kristinsson
ÚR VERINU
www.smjor.is