Morgunblaðið - 10.05.2007, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 17
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
UNDIR blaktandi fánum gekk unga
fólki um götur Kíev, höfuðborgar
Úkraínu, og það virtist vera mikill
hugur í því þegar það mótmælti „at-
lögu“ stjórnvalda að stjórnarskrá
landsins. Sem sagt vestrænt gras-
rótarlýðræði í sinni bestu mynd – að
því er virtist. Bara rétt áður hafði
unga fólkið þó verið upptekið af allt
öðru, það er að segja peningunum,
sem það fékk fyrir að mótmæla og
hvernig það ætlaði að nota þá.
Í stjórnarkreppunni í Úkraínu í
síðasta mánuði kom það upp á yfir-
borðið, sem er þó í sjálfu sér ekkert
leyndarmál, að pólitísk mótmæli í
sovétlýðveldunum fyrrverandi og
kannski stjórnmálin meira eða
minna snúast fyrst og fremst um
krónur og aura.
Oleksander Tsjernenko, félagi í
óháðum samtökum, sem vinna að
því að upplýsa kjósendur, kynntist
þessu af eigin raun þegar hann þótt-
ist vera stuðningsmaður Víktors Ja-
núkovítsj forsætisráðherra í deilum
hans við Víktor Jústsjenko forseta.
Tók hann lestina ásamt öðrum mót-
mælendum í Donetsk og sagði síðan
frá því í grein hvers hann varð
áskynja í ferðinni til Kíev. Segir
hann, að unga fólkið, flest um tví-
tugt, hafi ekki verið að fara neitt í
felur með peningana en öllum voru
greiddar um 1.670 kr. ísl.
Vissu ekki hverju
átti að mótmæla
Það sama er uppi á teningnum
víðar, t.d. í Kírgístan. Þegar stjórn-
arandstaðan flutti þúsundir manna
til höfuðborgarinnar, Bishkek, í síð-
asta mánuði, tóku fréttamenn fólkið
tali og spurðu hverju það ætlaði að
mótmæla. Fæstir höfðu nokkra hug-
mynd um það.
Stjórnvöld í sovétlýðveldunum
fyrrverandi óttast fjöldamótmæli og
þess vegna hefur rússneska stjórnin
komið á laggirnar nokkrum ung-
mennasamtökum. Hlutverk þeirra
er að vera svar við mótmælum rúss-
neskra stjórnarandstæðinga og
styðja rússneska utanríkisstefnu.
Þrenn þessara samtaka, Nashí
(við eða okkar), Ungu verðirnir og
Mestnje (heimamennirnir), voru til
dæmis úti á götu með sitt fólk dag-
lega meðan á stóð deilunni við Eista
um sovéska minnismerkið í Tallinn.
Fólki í þessum samtökum, aðal-
lega ungum háskólanemum, er ekki
greitt fyrir með beinum peningum,
heldur er því lofuð hjálp við að fá
vinnu og vist í eftirsóttum sumar-
búðum. Er það haft eftir Svetlönu,
fyrrverandi félaga í Nashí.
Sam Greene, bandarískur stjórn-
málagreinir við Carnegie-stofnun-
ina í Moskvu, segir, að sovétlýðveld-
in fyrrverandi hafi raunar ekkert
einkaleyfi á brögðum af þessu tagi.
Þau séu ekki óþekkt í Bandaríkj-
unum, til dæmis á dögum Richards
Nixons forseta.
Segir hann, að afstaða margra í
Austurvegi sé sú, að það sé sama
svindlið alls staðar. Þar sé það
vissulega grófara og hrárra en á
Vesturlöndum og þá vegna þess, að
það hafi ekki gefist tími til að fága
það.
Allt er falt fyrir fé –
líka fjöldamótmæli
Fjölmenn mótmæli eru ekki fátíð í sovétlýðveldunum fyrr-
verandi en ósjaldan eru þau keypt fyrir beinharða peninga
AP
Vér mótmælum Stjórnvöld í sovétlýðveldunum fyrrverandi óttast fjölmenn
mótmæli og því hafa þau sums staðar komið á fót sínum eigin samtökum til
að mótmæla mótmælendunum. Þátttakan er oft tryggð með fégjöfum.
STAÐAN hjá tvítyngdum börnum í
Danmörku er verri en talið var en
nýjar rannsóknir sýna, að annað
hvert barn, sem ekki á sér vest-
rænan bakgrunn, og tvö börn af
þremur með arabískan bakgrunn
ljúka grunnskóla án þess í raun að
vera læs.
Rannsóknin fór fram í 112 skól-
um þar sem hlutfall innflytjenda-
barna er hátt. Er niðurstaðan
raunar að mestu samhljóða niður-
stöðu PISA-rannsóknar í Kaup-
mannahöfn 2005 en samkvæmt
henni var 51% tvítyngdra barna
þar allt að því ólæst er grunnskóla
lauk.
Rannsóknin var þannig, að
meðaltalið hvað varðaði getu nem-
enda var ákveðið 500. Þeir, sem
fengu 600, tilheyra besta sjött-
ungnum en þeir, sem fengu 400,
lakasta sjöttungnum. Árið 2000 var
einkunn tvítyngdra barna í Dan-
mörku 426, hún var nokkru lægri
eða 414 í Kaupmannahöfn árið 2005
en er nú aðeins 408 fyrir allt landið.
Tvítyngdu
börnin eru
illa læs
Stýrifræði
Merkjafræði
Raforkufræði
Fjarskiptaverkfræði
Rafeindatækni
Tölvuverkfræði
Rásafræði
Hátækni
www.hi.is
Umsóknarfrestur er til 6. júní
Nánari upplýsingar á www.verk.hi.is
VERKFRÆÐIDEILD
RAFMAGNS-
OG TÖLVU-
VERKFRÆÐI