Morgunblaðið - 10.05.2007, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
OC/DC-kvartettinn spilar í
djassklúbbi Múlans á Domo í
kvöld, og hefjast tónleikarnir
kl. 21. Að undanförnu hefur
kvartettinn lagt sig eftir að
spila meistaraverk Ornette Co-
lemans, eins helsta frum-
kvöðuls frjálsa djassins, eða
free jazz, eins hann kallast á
djasslensku. OC/DC-piltarnir
lofa mjög „hröðum“ lögum og
asastuði, en lofa líka að kynna
úrslit Evróvisjónundankeppninnar í hléi. Kapp-
arnir heita: Steinar Sigurðarson, Snorri Sigurð-
arson, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson og Matth-
ías MD Hemstock.
Tónlist
Asahraði í anda
Ornettes Colemans
Ornette
Coleman
ÚTGÁFUFORLAGIÐ Nýhil
afhendir í dag Mæðrastyrks-
nefnd allan ágóða af sölu met-
sölubókarinnar Hannes – Nótt-
in er blá, mamma eftir Óttar
M. Norðfjörð. Fer afhendingin
fram í húsakynnum Mæðra-
styrksnefndar í Hátúni 12 og
hefst klukkan 15. Hannes –
Nóttin er blá, mamma er 1.
bindi í ævisögu Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar.
Hún kom út fyrir síðustu jól og sat í margar vikur
í efsta sæti metsölulista Eymundsson og varð
jafnframt ein mest selda bók ársins. Ágóði af sölu
bókarinnar reyndist rúmlega 300.000 kr.
Bókmenntir
Nýhil gefur mæðr-
um bókargróða
Óttar M.
Norðfjörð
ÚTVARPSSTÖÐIN Rondó
FM 87,7 tónlistarrás Rík-
isútvarpsins útvarpar í dag frá
setningu Listahátíðar. Tón-
leika- og útvarpshljóðverkið
Radíum verður flutt, en höf-
undar þess eru Finnbogi Pét-
ursson myndlistarmaður og
Ghostdigital: Einar Örn Bene-
diktsson og Curver Thorodd-
sen. Útsending hefst kl. 15.
Verkið er mjög nýstárlegt,
þess verður einungis notið í útvarpi og byggist á
því umhverfi sem það er flutt í. Við Listasafnið
verður 1.000 litlum útvarpsviðtækjum með heyrn-
artólum dreift til gesta svo þeir geti upplifað.
Hljóðlist
Radíum í
Radíó Rondó
Finnbogi
Pétursson
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„MÉR þykir þú heldur stressuð,
andaðu aðeins að þér og má ekki
bjóða þér í glas?“ á þessum orðum
hóf franski leikstjórinn Jean Luc Co-
urcoult viðtal mitt við sig. Ég afþakk-
aði glasið en þorði ekki annað en að
anda djúpt að mér fyrir þessa staðal-
ímynd franska listamannsins með
von um að geta hafið viðtalið. Jean er
staddur hér á landi til að setja upp
sýningu franska götuleikhússins Ro-
yal de Lux sem hann stofnaði sjálfur
árið 1979 og er í dag eitt frægasta
götuleikhús í heimi. „Ég stofnaði Ro-
yal de Luxe til að betla pening út á
götu, auðvitað dreymdi mig um þessa
velgengni en taldi það óraunhæfan
draum,“ segir Jean sem titlar sig
sögumann. „Ég elska að segja sögur
úti á götu þar sem allir geta fylgst
með og ég vil að fólk finni fyrir ham-
ingju í hjarta sér þegar það horfir á.“
Finnur ekki alúð og umhyggju
Royal de Luxe verður á ferðinni
um miðbæ Reykjavíkur á morgun og
laugardag og segir söguna af Risess-
unni og reiða risanum.
„Þetta er falleg saga. Ég fékk hug-
myndina að henni þegar ég kom
hingað í fyrsta sinn, það sem hreif
mig strax voru hverirnir og þjóðsög-
urnar, bókmenntaarfleifð Íslendinga
er einstök og ég nýtti mér hana. Ég
vissi reyndar lítið um Ísland áður en
þetta verkefni kom til en nú er ég að
kynna mér það og upplifa þessa ótrú-
legu náttúru.“
Jean segist reyndar ekki vera
nógu ánægður þessa dagana því
hann finni ekki fyrir íslenskum
áhorfendum. „Þegar Frakkar eru að
byggja eitthvað upp þurfa þeir alúð
og umhyggju og ég finn það ekki hér
á landi,“ segir hann hálfstúrinn en ég
hughreysti hann með því að segja
honum að það sé mikil spenna í borg-
inni fyrir sýningu götuleikhússins.
„Kannski eru Íslendingar bara kald-
ari en Frakkar en ég vil að fólk hér
finni ástríðuna í sér þegar það sér
sýninguna okkar.“
Jean segir það ekki erfitt að setja
upp jafnviðamikla sýningu í jafnlítilli
borg og Reykjavík sem er fyrsta
borgin á Norðurlöndunum sem Ro-
yal de Luxe heiðrar með sýningu og
sú minnsta hingað til.
Raunveruleikinn leikmynd
Spurður hvort hann hafi alltaf vilj-
að vera götulistamaður jánkar Jean
strax. „Ég vil vera frjáls á götunni,
ekki í leikhúsum, þau eru of lítil og ég
get ekki andað innan þeirra. Allar
hugmyndir mínar koma vegna þeirra
möguleika sem borgirnar bjóða upp
á, leikhúsið er takmarkandi. Raun-
veruleikinn er mín leikmynd. En Ro-
yal de Luxe er samt meira í átt við
leikhús en skemmtun, leikhús er að
segja sögur frá hjartanu en skemmt-
un er Disney.“
Jean svelgist á drykknum sínum
þegar ég spyr hvort fólki finnist hann
ekki stundum klikkaður að vera að
ferðast með þessa risasýningu í
kringum hnöttinn og umbylta borg-
um til að segja eina sögu. „Auðvitað
er ég smáklikkaður,“ svarar hann og
hlær hrossahlátri. „Ég verð stundum
þreyttur á þessu en ég mun líklega
halda áfram að segja sögur á þennan
hátt þangað til ég dey.“
Sýning Royal de Luxe hér á landi
er upphafsatriði Listahátíðar í
Reykjavík og jafnframt lokahnykk-
urinn á frönsku menningarhátíðinni
Pourquoi pas? Franskt vor á Íslandi
2007. Íslendingar ættu að vera farnir
að sjá eitthvað af uppsetningu götu-
leikhússins í bænum nú þegar þó
sagan hefjist ekki formlega fyrr en
kl. 10:30 í fyrramálið við Hljómskál-
ann.
Jean segir mjög mikilvægt að
áhorfendur þekki söguna sem Royal
de Luxe segir. „Ef fólk þekkir ekki
söguna þá verður þetta aðeins
skemmtun fyrir því, ekki upplifun.“
Jean Luc Courcoult er leikstjóri franska götuleikhússins Royal de Luxe
Segir sögu frá hjartanu
JEAN Luc Courcoult er leikstjóri, hugmyndasmiður og stofnandi franska
risagötuleikhússins Royal de Luxe sem fer um miðbæ Reykjavíkurborgar
með söguna um Risessuna og reiða risann á morgun og laugardag.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Sögumaðurinn
TILNEFNINGAR til Turnerverð-
launanna bresku hafa verið op-
inberaðar, en verðlaunin hafa á
síðustu árum
vakið mikla at-
hygli og oft vak-
ið umtal og úlfa-
þyt. Að mati
Charlotte Higg-
ins, myndlist-
arpenna dag-
blaðsins
Guardian, hafa
verkin sem til-
nefnd eru í ár
aldrei verið jafn pólitísk, og jafn-
framt sterk. Verðlaunin verða í
fyrsta skipti veitt utan Lundúna,
þar sem Liverpool hýsir viðburð-
inn í tilefni af því að verða Menn-
ingarborg Evrópu 2008.
Listamennirnir fjórir eru Mark
Wallinger, Mike Nelson, Zarina
Bhimji and Nathan Coley.
Wallinger er tilnefndur fyrir
verkið State Britain, innsetningu
sem samanstendur af ríflega 600
flöggum, fánum, myndum og boð-
um, sem friðarbaráttumaðurinn
Brian Haws hafði á fimm árum
komið fyrir andspænis Westminst-
er-höllinni. Í fyrra létu yfirvöld
rífa allt stríðsmótmælaverkið niður
með valdi, á grundvelli þess að um
glæpsamlegt athæfi væri að ræða.
Ljósmyndarinn og kvikmynda-
gerðarmaðurinn Zarina Bhimji var
gerð útlæg frá heimalandi sínu Úg-
anda í tíð Idi Amins. Verk hennar
tengjast fósturjörð hennar, en
Bimji hefur verið tilnefnd til fleiri
verðlauna að undanförnu.
Mike Nelson er tilnefndur fyrir
tvær innsetningar og Nathan Coley
fyrir innsetningu sem sýndi trúar-
legar byggingar huldar með felu-
litum hermannaklæða.
Sterkt ár í myndlistinni
Haft er eftir dómnefndarmann-
inum Michael Bracewell, að ekki
hafi verið ætlunin að viðurkenna
pólitíska list umfram aðra; árið í ár
hafi hins vegar verið sterkt og
áhrifamikið, og margir góðir lista-
menn komið til greina. Smám sam-
an hafi komið í ljós, þegar farið
var að skoða listann yfir þá sem til
greina komu, að sterk hneigð virt-
ist vera til pólitískrar tjáningar í
myndlistinni, en einnig hafi mörg
verk tekið á andlegum þörfum
manneskjunnar.
Þeir Wallinger og Nelson hafa
báðir verið tilnefndir áður til Tur-
ner-verðlaunanna, Wallinger 1995
og Nelson 2001.
Sýning á verðlaunaverkunum
verður opnuð í Liverpool í haust
og um leið verður Tate Britain í
London með sýningu á vinnings-
verkum frá árinu 1984 til dagsins í
dag.
Pólitískur
Turner í ár
Friðarbarátta og
andleg efni áberandi
Mark Wallinger
Í HNOTSKURN
» Royal de Luxe segir sögu umFornleifastofnun Frakklands
sem uppgötvar goshver undir
götum Reykjavíkurborgar. Leið-
angursmenn rekast þá á sofandi
risa sem í hundrað ár hefur legið
í dvala undir miðborginni. Þegar
ró risans er raskað lætur hann
öllum illum látum og eyðileggur
nálæga bíla með tröllvöxnum
hnífapörum sínum. Yfirvöld setja
sig í samband við dóttur risans,
Risessuna, og biðja hana að
koma til Reykjavíkur og róa al-
menning. Hún dvelur í borginni í
tvo daga og reynir að tæla föður
sinn í átt að höfninni þar sem hún
heggur hausinn af honum svo
hann skoppar út í sjó.
Leiðir götuleikhússins um borgina
föstudag og laugardag má sjá á:
www.listahatid.is
EF það er eitthvert vit í menning-
arvitum þá stunda þeir Listahátíð
ekkert síður en barina.
Listahátíð í Reykjavík hefst í dag
með opnun á sýningu um Cobra.
Vonandi verða Gullfjöll (1946) Svav-
ars Guðnasonar sýnd þar en á sínum
tíma voru þau held ég dýrasta verk
sem Listasafn Íslands hafði keypt.
Það var spurning um sjálfstæði
landsins að fá þetta verk heim eins
og handritin.
Ég man ekki hvað verkið kostaði
en sé nafni þess slegið inn á Emblu
má sjá að það er til annað málverk
með þessu nafni eftir Ingimar Ólafs-
son Waage (málað 2005). Það kostar
325.000 kall en hægt er að leigja það
á 10.000 kall!
Síðan er það Gyðjan í vélinni. Á
síðustu stundu fyrir kosningar.
Kannski hún bjargi okkur úr fram-
sóknarklípunni.
Gullfjöll
og gyðjur
MENNINGARVITINN
Þröstur Helgason
vitinn.blog.is
Svavar Gullfjöll, frá 1946.
Dagskráin í dag
Setning Listahátíðar í Reykjavík
Bein útsending í Sjónvarpinu,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra setur hátíðina í Listasafni Ís-
lands kl. 17.45.Fram koma:
Konono N°1 frá Kongó og
Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur sem m.a. flytur nýtt verk eftir Jón
Nordal við ljóð eftir Jónas Hallgrímsson.
Opnun sýningarinnar Cobra Reykjavík.
Forleikur að Listahátíð frá kl 15.00: Gho-
stigidal og Finnbogi Pétursson hita upp á
Rondo FM 87,7 í samstarfi við Rás 1 og CCP.
Þeir koma einnig fram við opunina.
Sjónvarpað verður frá setningu hátíðarinnar.
Gyðjan í vélinni –
viðburður í varðskipi
Frumsýning í varðskipinu Óðni við Reykjavík-
urhöfn kl. 20.
Listahátíð í Reykjavík
TENGLAR
...........................................
www.listahátíð.is
Gyðjan Davíð Þór Jónsson gleður
gyðjurnar með Harmónikkuleik.