Morgunblaðið - 10.05.2007, Page 24

Morgunblaðið - 10.05.2007, Page 24
|fimmtudagur|10. 5. 2007| mbl.is daglegtlíf Sigurður Guðmundsson fór í sannkallaða ævintýraferð til Ví- etnam og fylgdist með þegar ný- árshátíðin var undirbúin. » 30 ferðalög Lamba-, svína- og kjúklingakjöt er áberandi í tilboðum verslana þessa helgina. Grilltímabilið er greinilega hafið. » 28 helgartilboð Að ýmsu þarf að huga er heitum potti er komið fyrir í garðinum, hvort sem það er við sumarbú- staðinn eða heimilið. » 28 neytendur Börnin í leikskólanum á Reyð- arfirði njóta góðs af álvers- framkvæmdunum, en um þau er nú mun rýmra en ella. » 26 daglegt Plássleysi þykir vera vandamál í flugi. British Airways býður farþegum á viðskiptafarrými upp á lúxusrými. » 31 flugferðir Þetta byrjaði eiginlegaþannig að þegar ég var íþessu þarna í Frakklandifór ég að taka eftir því að það var svo mikið af rauðhærð- um konum í málverkum og mynd- list, auglýsingum, og já, bara alls staðar. Í fyrra þegar ég var að flytja heim fattaði ég svo eiginlega bara hvað ég átti mikið af mynd- um af rauðhærðum konum og hugsaði þá með mér: Ég verð að gera eitthvað við þetta,“ segir Nína Gautadóttir myndlistar- maður, sem ásamt fleiri rauðhærð- um konum hefur ákveðið að koma á fót samtökum rauðhærðra kvenna hérlendis. Nína bjó í París í mörg ár og þegar félag rauð- hærðra kvenna var stofnað þar fyrir nokkrum árum fékk hún inn- göngu. „Ég man nú ekki nákvæm- lega hvernig það kom til að ég komst þar inn en ég tók með mér aðra íslenska konu,“ heldur hún áfram. Sú heitir Guðný og þær stöllur fóru í „stórt partí“ í tengslum við félagsskapinn. Eru alvarlega þenkjandi Þegar Nína flutti heim datt Guðnýju í hug að sniðugt gæti verið að endurtaka leikinn hér heima. „Hún vissi að ég var búin að vera að vinna með rauðhærðar konur í myndlist,“ segir Nína. Þá kom röðin að Guðnýju sem kvað upp úr með að Nína yrði að halda sýningu og „við stofnum félag á Íslandi“. Það varð úr en Nína leggur áherslu á að allt sé þetta nú í léttum dúr. „En samt … við erum alvarlega þenkjandi og lítum svo á að við séum í útrýmingar- hættu,“ segir hún sposk. „Sagan segir það, sko, en ég er að vísu ekki búin að hringja í Kára [Stef- ánsson hjá Íslenskri erfðagrein- ingu] til að fá álit hans. En maður hefur þó heyrt það að þetta sé víkjandi gen,“ segir Nína og hlær, „eftir svona hundrað ár verðum við ekki á jörðinni.“ Sex konur hittust ekki alls fyrir Morgunblaðið/Ásdís löngu til að koma félagsskapnum í gang. „Allar þekkjum við ein- hverjar aðrar rauðhærðar og við ákváðum að láta þetta bara verða keðjuverkandi,“ segir Nína. Hún mun á sama tíma og stofnfund- urinn verður haldinn hinn 11. maí opna myndlistarsýningu sína helg- aða rauðhærðum konum. „Þá verður Eiríkur búinn að vera í forkeppninni í Evróvisjón,“ segir Nína glettin. „Þær eru voða spenntar fyrir því að rauða hárið sé í umræðunni í sambandi við Ei- rík,“ segir hún og hlær. Þess ber kannski að geta að forkeppnin þar sem Eiríkur Hauksson mun þenja raddböndin er í dag, 10. maí, og þá er bara að krossa fingur og vona að rauða hárið komi rokk- aranum alla leið í úrslitin sem verða 12. maí. Stofnfundurinn verður daginn þar á milli; 11. maí. „Í París var þetta alveg ótrú- legt,“ segir Nína og að það hafi verið vegna þess að í daglegu frönsku lífi séu rauðhærðar konur ekki áberandi. „Svo þegar þær komu saman svona margar var þetta mjög merkilegt,“ segir Nína sem hlæjandi gengst við því að vera rauðhærð sjálf. „Frönsku konurnar eru samt miklu montn- ari af því að vera rauðhærðar,“ segir hún, „íslenskar konur taka það ekki eins hátíðlega. Samt,“ segir hún eftir smáumhugsun, „þegar við vorum komnar nokkrar saman í hóp og fórum að tala sam- an kom í ljós að hver og ein hafði sína upplifun af því að vera rauð- hærð. Það er eitthvað sérstakt við að vera rauðhærður.“ Allar rauðhærðar konur eru hvattar til að mæta á stofnfundinn á Ásvallagötu 59 hinn 11. maí. kl. 18. Þar sem Nína sendi ekki út nein boðskort fyrir sýninguna vildi hún taka sérstaklega fram að eftir stofnfundinn verður sýningin opin almenningi milli klukkan 14 og 18 þriðjudaga til sunnudaga til 27. maí. Sameinast í háralitnum Hún var í félagi rauð- hærðra kvenna í París og ætlar nú að stofna samskonar félag hér heima. Sigrún Ásmund- ardóttir ræddi við Nínu Gautadóttur. Allar þekkjum við ein- hverjar aðrar rauð- hærðar og við ákváðum að láta þetta bara verða keðjuverkandi. Í útrýmingarhættu? Allar eiga þessar konur það sameiginlegt að vera rauðhærðar. ÞEIR sýndu svo sannarlega til- þrif dansararnir sem tóku þátt í magadanskeppninni Ungfrú magadans sem fór fram í Búdapest í Ungverjalandi á dögunum. Glitrandi, íburð- armiklir og litríkir búningar gáfu rétta tóninn fyrir dansinn og svo var skrokkurinn sveigð- ur, beygður og hnykktur á meðann stiginn var trylltur dans í takt við tilheyrandi tóna. Magadans nýtur mikilla vin- sælda í Ungverjalandi og er stundaður af þúsundum kvenna í landinu. Trylltur dans Slæðudans Dramatískur rauður búningur setur rétta tóninn fyrir slæðudansinn sem þessi dansari stígur. hreyfing Reuters Sveigja Það kemur sér óneitanlega vel að vera liðugur í dansinum. Sveifla Þessi dansari sýnir svo sannarlega til- þrifamikla sveiflu sem tekur sig vel út á filmu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.