Morgunblaðið - 10.05.2007, Síða 26

Morgunblaðið - 10.05.2007, Síða 26
Morgunblaðið/ÞÖK Gleði Fjóla, Alexandra, Þórður og Bóas með leikskólastjóranum Lísu Björk Bragadóttur. Eftir Ragnhildi Sverrisdóttur rsv@mbl.is Áleikskólanum Lyngholti áReyðarfirði eru 70 krakk-ar, en þegar fækkunin varhvað mest í byggðarlaginu fór fjöldinn niður í 45. Byggð hefur verið ný álma við leikskólann, lóðin stækkuð og aðstaðan bætt til muna bæði fyrir nemendur og kennara. „Deildirnar eru stærri en leyfilegt er og því er mikið rými fyrir hvert barn,“ segir Lísa Björk Bragadóttir leikskólakennari. „Það má segja arkitektum og byggingaraðilum til hróss. Nú er glæsilegt eldhús þar sem áður var kaffistofa starfsmanna og þar er eldað og bakað fyrir 55 til 60 manns. Ég efast um að farið hefði verið út í svona mikla stækkun ef ekki hefði orðið af álveri. Þörfin hafði lengi verið til staðar, en fram- kvæmdum var alltaf frestað og við bjuggum mjög þröngt þar til ákvörð- un lá fyrir.“ Krakkar af ellefu þjóðernum eru í leikskólanum, en samt hefur starfið gengið afar vel á heildin litið, að sögn Lísu. „Auðvitað er heilmikið átak eða ögrun að takast á við að mæta þörf- um þeirra sem tala ekki sama tungu- mál og hinir. Krakkarnir eru lengur að aðlagast ef þeir tala ekki tungu- málið, einkum þeir stærri, en það má ekki gleyma því að leikur er tungu- mál. Þetta hefur auðgað starfið mik- ið, veitt ólíkri menningu og við- horfum inn í leikskólann og krakkarnir öðlast meiri víðsýni fyrir vikið. Auk þess læra þeir smávegis í öðrum tungumálum, kunna til dæmis að telja á íslensku, pólsku og ensku, en það eru tungumálin sem við vinnum með.“ Aðspurð um viðhorfin á Reyðar- firði til Fjarðaáls segir hún að um- ræðan hafi einkum snúist um áhrifin sem stækkunin hafi haft á bæjarlífið. Flestir séu jákvæðir en sumir finni að því að hraðinn og áreitið sé meira en áður. „Auðvitað tekur þetta á. Margir tala um alla þessa uppbygg- ingu sem mikið ævintýri, en auðvitað eru mínusar við allt.“ – Hefur álverið sogað til sín starfs- fólk? „Ég finn aðeins fyrir því og það á ef til vill eftir að verða meira um það. Í flestum tilvikum bjóðast þar betri laun. En á móti kemur að hingað flytur meira af menntuðum leikskólakennurum. Við njótum góðs af því.“ Hún segist ekki hafa sett sig mikið inn í þá neikvæðu umræðu sem verið hefur í þjóðfélaginu um álver og virkjanir. „En mér fannst skondið að horfa til þess að öll þjóðin hafði skoð- un á þeirri uppbyggingu sem orðið hefur hér, en bara ákveðinn hópur manna kaus um stækkunina fyrir sunnan – Hafnfirðingar.“ Hún segir álver eins og hvað ann- að; það sé ekki töfralausnin við öllu en það megi glögg sjá í Fjarðabyggð hverju það munar fyrir samfélagið og byggðaþróunina. – Er bjartara yfir? „Sjáðu bara,“ segir hún og lítur út um gluggann, – í sólskin og 14 stiga hita. „Jú, ég held það; það hefur færst þróttur í samfélagið og það er miklu meiri hugur í fólki og bjart- sýni.“ – Ert þú héðan? „Nei, ég er ættuð ofan af Héraði, en hef búið hér í sextán ár, þannig að mér finnst ég eiginlega vera Reyð- firðingur. Þar sem börnin eiga sama- stað er alltaf sterkasti staður fjöl- skyldunnar.“ Lísa segir svipmót bæjarins hafa breyst, mikið hafi verið byggt af hús- um og nýja fjölnota íþróttahúsið sé af- ar stórt í miðjum bænum. „Mér finnst það ekki fallegt á þessum stað, en ég er ánægð með að hafa það svona ná- lægt leikskólanum. Við förum þangað með krakkana einu sinni í viku.“ – Þú talar um að íþróttahúsið sé stórt, en hvað um álverið? „Maður sér það ekki frá bænum, en þegar maður kemur að, hvorum meg- in sem er, þá kallar það nú á mann,“ segir hún brosandi. Krakkarnir öðlast meiri víðsýni daglegt líf 26 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Örn Ingi, listamaður á Akureyri, stundum kall- aður fjöllistamaður, fær oft skemmtilegar hugmyndir. Sú nýjasta er bygging lítillar menningarmiðstöðvar á gömlu Öxnadals- árbrúnni neðan við Bakkaselsbekkuna en sveitarstjórn Hörgárbyggðar hefur þegar rætt um málið. Listamaðurinn sér fyrir sér náttúrulega miðstöð fyrir myndlistarskóla og vinnustofu listamanns. Hann telur staðsetninguna frá- bæra, bæði í náttúrulegu tilliti og vegna ná- lægðar við æskustöðvar þjóðskáldsins, Jón- asar Hallgrímssonar.    Það var dýrt, hnefahöggið sem karlmaður sló annan á útihátíð í Hrísey í fyrrasumar. Sá sem fyrir árásinni varð hlaut skurð á kinn og fleiri áverka á andliti og krafðist 329 þúsund króna skaðabóta en sá sem sló hefur verið dæmdur í fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir höggið og til að greiða fórnarlambinu 149 þús- und krónur og 175 þúsund kr. sakarkostnað.    Brynhildur Pétursdóttir, safnstjóri Nonna- safns, undirbýr nú sýningu vegna þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu hins víðkunna barna- bókarithöfundar og jesúítaprests. Brynhildur rakst á skemmtilegt samtal sem Valtýr Stef- ánsson, ritstjóri Morgunblaðsins, tók við Nonna á heimili sínu, þegar Nonna var boðið til landsins vegna Alþingishátíðarinnar 1930. Valtýr skrifar svo:    Fjórði bekkur MA heldur flóamarkað í Kvos Menntaskólans í dag kl. 17–19. Flóamarkaður- inn er haldin til styrktar Barnaheillum í sam- bandi við verkefnið Stöðvum barnaklám á Netinu og rennur allur ágóði óskiptur til verk- efnisins. Allir eru velkomnir.    Fyrsti knattspyrnuleikurinn utanhúss á Ak- ureyri í sumar verður á Nývangi, nýjum gras- velli KA-manna, þegar þeir taka á móti Vík- ingi frá Ólafsvík í 1. deild Íslandsmótsins á sunnudaginn kl. 16. Í tilefni leiksins efnir knattspyrnudeild KA til kynningarkvölds í KA-heimilinu annað kvöld, 11. maí, kl. 21. „Jeg man glöggt þegar hann kvaddi mig eft- ir einasta samtalið sem ég átti við hann, hve heitt og innilega hann tók í hönd mjer og mælti á þessa leið: „Líði ykkur öllum vel. Hættið að rífast, eins og þið gerið. Jeg hefi talað við menn af öllum flokkum. Þið eruð ekki eins ósammála eins og þið haldið. Í rauninni viljið þið allir það sama. Hag og velferð fósturjarðarinnar.““ Brynhildi finnst þessi ummæli Nonna eiga við enn í dag – a.m.k. í aðdraganda kosninga!    Ævintýralegur franskur leikhússirkus verður með sýningar á Akureyri á sunnudag og mánudag. Sýningin er hluti af Listahátíð. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hugmyndaverksmiðja Örn Ingi Gíslason hefur fengið marga óvenjulega hugmyndina. AKUREYRI Skapti Hallgrímsson Hornstrendingurinn BjargeyArnórsdóttir sendir þættinum vísu sem skýrir sig sjálf: Ekki setja X við B. Það engum gagnast lengur. Að hafa svona flekkótt fé á fóðrum, aldrei gengur. Bjargey á sér göldrótta alnöfnu sem er vísnavinum að góðu kunn og orti meðal annars í fréttabréf Iðunnar: Gleður augun gæðakarl gægist ofar brúna, þessi heiðurs himnajarl hífaður er núna. Jóna Guðmundsdóttir heldur uppteknum sið að blogga limru á dag. Hún orti þegar fjölgaði í dönsku konungsfjölskyldunni: Frést hefur fátt eitt betra í fæðingarvottorð skal letra: Stúlkubarn fætt frísklegt og sætt um fimmtíu sentimetra. Geitin Rósa í Súdan er fallin frá, en eftir að eigandi hennar var staðinn að mökum við hana voru þau neydd í hjónaband, geitin og hann. Már Högnason bloggar: Burt úr heimi er gengin geit sem guma þótti myndarleg. Eina man úr minni sveit sem mórauð var og kindarleg. VÍSNAHORNIÐ Af geit og bloggi úr bæjarlífinu Í sandkassanum við leikskólann Lyngholt á Reyð- arfirði meiðir fimm ára stelpa sig og brestur í grát. Vinkona hennar snýr sér að henni og segir: „Þetta grær áður en þú giftir þig.“ Stelpan hvæsir á móti á milli ekkasoganna: „Ég ætla ekki að gifta mig!“ Leikskólakennarar á Lyngholti halda til haga ýmsum heimspekilegum vangaveltum nemenda. Þriggja ára strákur sagði: „Kennarinn minn þarf ekki til tannlæknis. Karíus og Baktus eru í leikhúsinu á Akureyri.“ Annar þriggja ára strákur: „Ég er með ofnæmi. Það er heima.“ Fjögurra ára stelpa: „Mamma verður amma eftir tvö ár.“ Þriggja ára strákur: „Ég er eldhress og duglegur!“ Fjögurra ára stelpa: „Einu sinni voru við mamma að elda lauk og fórum að skelligráta!“ Og að lokum þriggja ára strákur við kennarann sinn: „Hvað ert þú mikið þriggja ára?“ Hvað ert þú mikið þriggja ára? „Álver? Hvað er það?“ spyr Reyðfirðingurinn í einlægni. Þrír félagar hans lýsa líka vanþekk- ingu sinni á þessu fyrirbæri. Einn kveðst að vísu hafa keyrt nokkrum sinnum framhjá ál- verinu. Það er ekki hlaupið að því að finna Reyðfirðinga, sem ekki hafa skoðun á álverinu. Á leik- skólanum Lyngholti þótti smá- fólkinu ekkert áhugavert við þessa risastóru verksmiðju út með firði. Alexandra, Bóas, Fjóla og Þórður eru hæstánægð með leik- skólann sinn. Fyrir stuttu var byggt við húsið, enda hefur börn- um þar fjölgað hratt. Mörg þeirra eru fædd á Reyðarfirði, en önnur flust þangað nýlega. Flest tala íslensku, en allmörg tala ensku eða pólsku. Þarna hafa reyndar verið börn af 11 þjóð- ernum þegar flest var. Vinnur svo lengi að hann þarf að gista „Nei,“ segja þau stutt og lag- gott þegar þau eru spurð hvort þau viti hvað álverið er. Nema Fjóla, hún hefur „alltaf farið framúr því“, eins og hún orðar það. Og hún veit alveg hvað er gert þar. „Fólk er að vinna.“ Alexandra, Fjóla og Þórður segjast engan þekkja sem vinnur í álverinu, en halda að það sé erfitt að vinna þar. Kannski erf- itt og gaman. Bóas á hins vegar pabba sem vinnur í álverinu og vinnur stundum svo lengi að hann þarf að gista í vinnunni. En hvað ætla ungir Reyðfirð- ingar að verða þegar þeir verða stórir? „Kafari, eða Batman sem er kafari,“ segir Bóas. „Ég ætla að verða bakari,“ segir Alexandra. „Ég ætla að verða alvöru sterkur Súperman,“ segir Bóas. „Ég ætla að verða ballerína,“ segir Fjóla. „Álver? Hvað er það?“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.