Morgunblaðið - 10.05.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 29
fólk sem hefur skaðbrennst við að
fara ofan í allt of heitan pott.“
Sigurður segir að fólk verði að
taka inn í reikningsdæmið við upp-
setningu potts, þann kostnað sem
fylgir því að byggja pall undir pott-
inn en það er misjafnt hversu mikið
fólk leggur í það. Kostnaður vegna
pípulagningavinnu við það að setja
heitan pott í garðinn hjá sér, segir
hann að geti verið mjög misjafn eftir
hverju tilfelli og aðstæðum.
„Það fer eftir því hversu langar
lagnir þarf að leggja, eftir því hve
langt potturinn er frá húsinu, hvern-
ig hann snýr að húsi og svo fram-
vegis. Ég legg mikla áherslu á að
hafa allar tengingar einfaldar. Alls
ekki að hlaða of miklum stýritækj-
um því það vill verða til þess að þau
fari úr lagi.
Þegar ég tengi heitan pott þá
tengi ég innrennslið inn í afrennslið
þegar innrennslið er búið að fara í
gegnum góðan hitastýrðan blönd-
unarventil. Þannig kemur enginn
sérstakur stútur, heldur kemur
vatnið beint upp um botnrennslið úr
pottinum. Síðan set ég kúluloka á af-
rennslið með spindli upp úr sem er
við hliðina á pottinum, þannig að þar
er skrúfað fyrir og frá. Ég legg
mikla áherslu á þennan einfaldleika.
Oft þarf að leggja lagnir í jörðina út
að pottinum og það er gott að ein-
angra þær saman, því þá hitar heita
vatnið kalda vatnið og heldur því
alltaf frostfríu. Í tengiboxið við hlið-
ina á pottinum setti ég venjulegan
Danfoss retúrkrana sem fer að
blæða heitu vatni ef hitastig í boxinu
nálgast frostgráðu.“
Sigurður segir það tvímælalaust
kost að hafa heita og kalda leiðslu að
pottinum og einangra þær saman til
öryggis gegn frosti, en hafa blönd-
unartækið við pottinn en ekki inni í
húsi. Þá er hægt að sitja í pottinum,
láta renna í hann og hækka og
lækka hitann eftir óskum hverju
sinni.
Sigurður er sjálfur með hitaveitu-
pott í garðinum heima hjá sér í Þor-
lákshöfn sem hann kom sjálfur fyrir
með þessum hætti sem að framan er
lýst. En hitaveitupottar eru ekki eini
kosturinn, því það er líka hægt að fá
rafmagnspotta sem nota kalt vatn
eingöngu og þeir hafa verið að sækja
í sig veðrið. „En þeir eru margfalt
dýrari, vegna þess að í þeim þarf
bæði að vera upphitunarelement
sem hitar vatnið og líka þarf að vera
hreinsibúnaður, því það er alltaf
sama vatnið í pottinum. Potturinn er
aldrei tæmdur, vatnið er aðeins
hreinsað. Gallinn sem ég sé við þetta
er sá að það er nauðsynlegt að
hreinsa hreinsunartækið, einu sinni
á ári eða svo, því eðlilega safnast
fyrir í hreinsunartækinu húðfita, hár
og annað sem af mannfólkinu kemur
þegar það fer í heitan pott. Ég valdi
hitaveitupott og hef sannreynt hjá
mér með því að setja rennslismæli á
heita vatnið að það er mun ódýrara
að reka pott sem er beint á hitaveitu
heldur en þá sem eru rafhitaðir. Mér
finnst líka hálfgert öfugmæli í okkar
hitaveitulandi að hita upp kalda
vatnið með rafmagni. En það er að
sjálfsögðu eðlilegt að nota slíka
potta í sumarbústaði þar sem ekki
er hitaveita í boði.“
Sigurður segist fara nokkuð oft í
pottinn heima hjá sér og barnabörn-
in noti hann líka heilmikið. „Ég get
séð á mæli hjá mér að ég eyði um
100 tonnum af heitu vatni í pottinn á
ári og tonnið kostar um 75 krónur,
þannig að þetta eru ekki nema 7.500
krónur á ári og það finnst mér lítill
kostnaður. Þeir sem nota rafmagns-
potta segja mér að þeir borgi um tvö
til þrjú þúsund í rafmagnskostnað á
mánuði, enda þarf að halda þeim
frostfríum með því að hafa vatnið
alltaf heitt í þeim. Það er því kostn-
aður upp á rúmar þrjátíu þúsund
krónur á ári.“
Misjafnt verð eftir
stærð og aukahlutum
Hitaveitupotta er hægt að fá hjá
hinum ýmsu fyrirtækjum og þar á
meðal er Norm-x í Kópavogi. Þar er
ódýrasti potturinn 1.200 lítra og
kostar 90.000 kr. en sá dýrasti er
2.000 lítra og kostar 135.000 kr.
Hægt er að kaupa ýmsa aukahluti
eins og nudd, ljós og lok. Til dæmis
kostar 2.000 lítra potturinn 294.000
kr. ef hann er með nuddi, ljósi og
loki.
Nokkur fyrirtæki selja rafmagns-
potta og Húsasmiðjan er þeirra á
meðal. Þar er hægt að fá rafmagns-
potta frá kanadíska fyrirtækinu Hy-
dropool og sá ódýrasti kostar
460.000 kr. og er hringlaga með
fimm sætum. Ýmsar útfærslur eru á
pottunum en allir eru þeir með
nuddi. Hægt er að velja um að vera
með minnst fimmtán nuddstúta en
mest fjörutíu og fjóra nuddstúta.
Síðan er hægt að kaupa ýmsar við-
bótargræjur eins og legubekk sem
er þá ofan í pottinum og hluti af hon-
um, foss í höfuðpúða, stereógræjur
og sérstaka lýsingu. Dýrasti raf-
magnspotturinn í Húsasmiðjunni
kostar 1.120.000 kr. en hann er með
fimm sætum og legubekk, 44 nudd-
stútum, tveimur höfuðpúðum með
fossi og sérstakri lýsingu, sem er
þess eðlis að aðeins þarf að ýta á
takka til að breyta litnum á ljósinu. Í
honum eru líka stereógræjur með
geislaspilara. Þessi pottur er klædd-
ur með setrusviði, hann er með loki,
lyftu og tröppum.
Í Húsasmiðjunni er einnig hægt
að fá litlar sundlaugar.
khk@mbl.is
upp heitum potti
Í UMFJÖLLUN á neytendasíðum
Morgunblaðsins fyrir skömmu um
sumardekk, var ranglega staðhæft að
umhverfisvænu dekkin Green Dia-
mond fengjust ekki hér á landi. Hið
rétta er að þau hafa verið til sölu um
langt árabil á Íslandi. Efnir ehf. flytur
þau inn og þau fást í smásölu hjá Ný-
barða í Garðabæ. Eftirfarandi leiðrétt-
ing barst frá Efni efh:
„Ekki er notaður mulningur í Green
Diamond harðkornadekkin heldur sér-
framleiddir iðnaðardemantar sem eru allir af sömu stærð (ca 2 mm í þvermál).
Í þessum dekkjum er sérstaklega slitsterkt gúmmí þar sem Bandaríkja-
menn gera kröfu um góða endingu dekkja. Iðnaðardemantarnir gefa gott grip í
bleytu og hálku. Ástæða þess er sú að þeir rjúfa vatnsfilmuna sem myndast ut-
anum dekkið þegar ekið er í bleytu og því hefur dekkið lengur snertingu við
veginn.
Aldrei hafa verið notaðar valhnetuskeljar í Green Diamond dekkin. Val-
hnetuskeljar virka verr enda langt því frá jafn hart efni og iðnaðardemantar.
Þá valda iðnaðardemantarnir sem slíkir ekki svifryki, þeir leysast ekki upp
frekar en náttúrulegir demantar.
Green Diamond dekkin valda ekki svifryki vegna þess að þau slíta malbiki
eins og hefðbundin dekk, hins vegar rífa nagladekk upp bindiefnið í malbikinu
og valda svifryki. Vegagerðin lét á sínum tíma gera rannsóknir á Green Dia-
mond dekkjunum. Til verksins var fengin Þýska vegagerðin, en Þjóðverjar
standa framarlega í slíkum rannsóknum enda bönnuðu þeir nagladekk árið
1971.
Vert er að taka fram að sóluð dekk eru umhverfisvæn, því með gerð þeirra
sparast t.d. mikið magn olíu, en u.þ.b 70% af sóluðu dekki eru endurunnin. Við
sólun á þessum dekkjum er notuð nýjasta tækni, sú sama og notuð er við sóln-
ingu á breiðþotudekkjum.
Sóluð dekk frá Bandaríkjunum sem hafa svokallaða DOT merkingu (Dep-
artment of Transportation) eru lögleg á Íslandi.“
Umhverfisvæn
dekk á Íslandi
Dekkjahrúga Öryggi dekkja skipt-
ir máli í umferðinni.
Lesandi spyr: Eru sætar kartöflur
miklu hollari en venjulegar ís-
lenskar kartöflur og af hverju þá?
Hver er munurinn?
„Sætar kartöflur eru orkuríkari
en „íslenskar“ kartöflur þar sem
þær fyrrnefndu innihalda minna
af vatni en meira af kolvetnum,“
segir Elva Gísladóttir, verkefn-
isstjóri næringar hjá Lýðheilsu-
stöð. „Sætar kartöflur innihalda
einnig meira af trefjum, C-
vítamíni og E-vítamíni heldur en
venjulegar kartöflur. Venjulegar
kartöflur innihalda þó meira af fó-
lati heldur en sætar kartöflur. Þó
ber að nefna að næringarinnihald
getur verið mismunandi eftir teg-
und kartöflu, sem valin er, og
einnig á hvaða árstíma mæling fer
fram,“ segir Elva.
Sætu kartöflurnar
eru orkuríkari
,'- /0
1 2
3*. ' -) 4 5 67
8 ' '* #0
9 :;<
3='
' -
)
" /0
' '
" #0
4-
=
/$$
!
)' >'
?' @7)=
;7)=
A 3 6 30
30
30
30
30
30
3B0
30
Næringin Sætar kartöflur.
SÉRSTÖK tegund verkja sem tengj-
ast maga og meltingu hrjáir um 30%
Norðmanna að því er segir á norska
vísindavefnum forskning.no. En nú
er víst komið á daginn að draga má
úr slíkum verkjum með sérstökum
öndunaræfingum.
Verkirnir lýsa sér sem óþægindi í
efri hluta magans og margir tala í
þessu sambandi um stressmaga.
„Mínar niðurstöður benda til að um
lífsstílssjúkdóm sé að ræða,“ segir
Ina Hjelland sem hefur skrifað dokt-
orsritgerð um efnið við háskólann í
Bergen.
Maginn fyllist fljótt en séu gerðar
einfaldar öndunaræfingar sem
hægja á púlsinum getur magapláss
aukist til muna. Þátttakendur í til-
rauninni voru 40 og var skipt í tvo
jafnstóra hópa. Fyrst voru allir próf-
aðir, en síðan fékk annar hópurinn
kennslu í öndunaræfingum og var
látinn stunda þær heima. Eftir fjórar
vikur voru báðir hóparnir prófaðir á
ný, þarmavirkni mæld og hve marga
desilítra af súpu þeir gátu drukkið
innan tiltekins tíma.
Hópurinn sem gerði öndunaræf-
ingar gat drukkið meira en viðmið-
unarhópurinn og magnið var í sam-
hengi við virkni þarmanna. Öndun-
aræfingarnar draga úr stressi og
laga magaverkina, en þær má gera
liggjandi, auk þess sem fólk á að
taka sér góðan tíma til að matast.
Magaverkirnir
hverfa með
öndunaræfingum
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
8
1
3
1
BREYTTU
GLITNIS
PUNKTUM
Í PENINGA