Morgunblaðið - 10.05.2007, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 10.05.2007, Qupperneq 34
34 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Menntun er ein arðbærasta fjár- festing einstaklinga og samfélaga. Fyrir jafnaðarflokk eins og Sam- fylkinguna er því lykilatriði að tryggja jöfn tækifæri til menntunar. Sam- félagið allt nýtur góðs af því að hver ein- staklingur þroski hæfileika sína og færni eins og kostur er. Þess vegna eru opinber framlög til menntamála fjárfest- ing en ekki bara rekstrarkostnaður. Efla þarf framhaldsskólann Til þess að tryggja jöfn tækifæri verða námsleiðir að vera í boði sem henta fólki með mismunandi hæfileika og áhuga. Það er ekki hægt að steypa alla í sama mót. Þess vegna verð- ur að bjóða upp á aukna fjölbreytni í námsvali á framhalds- skólastigi. Að mati okkar fremstu sér- fræðinga er skortur á fjölbreytni ein helsta skýring þess að rúm 30% af hverjum ár- gangi lýkur ekki formlegu prófi frá framhaldsskóla. Ísland er þar eftirbátur annarra ríkja eða í 23 sæti af 30 OECD- ríkjum. Samfylkingin vill að iðn-, list- og tækninám á framhaldsskólastigi fái þann sess sem því ber. Til þess að það verði eftirsóknarverður kostur fyrir ungt fólk þarf að skapa þessu námi bestu aðstæður bæði hvað varðar tækjabúnað og kennara. Þetta kostar fé en undan því verður ekki vikist. Önnur skýring er sú að víða á landsbyggðinni eiga nemendur ekki kost á námi í framhaldsskóla í sinni heimabyggð. Tryggja þarf að ung- lingar njóti menntunar í heima- byggð a.m.k. tvö fyrstu árin í fram- haldsskóla. Börn innflytjenda fái betri stuðning Samfylkingin leggur áherslu aukna á ís- lenskukennslu og ann- an stuðning fyrir börn innflytjenda. Innflytj- endum hefur fjölgað mjög hér og er vandséð hvernig við höldum uppi margs konar þjón- ustu, fiskvinnslu og byggingariðnaði án þeirra. Börnin ganga í íslenska skóla og mörg- um þeirra vegnar ekki nógu vel, einkum vegna takmarkaðrar íslensku- kunnáttu. Lítill hluti lýkur framhalds- skólanámi og fara þau þannig á mis við tæki- færi og ábata, sem slík menntun veitir. Miklir hæfileikar fara for- görðum og við það verður ekki unað. Vinnandi fólk fái nýtt tækifæri til náms Á íslenskum vinnu- markaði eru 40 þúsund manns á aldrinum 25– 64 ára sem ekki hafa lokið formlegu fram- haldsnámi. Þetta er allt að helmingi hærra hlutfall en á hinum Norð- urlöndunum. Þörf er á aðgerðum í samstarfi við aðila vinnumarkaðar- ins, fyrirtæki og stofnanir um að gefa þessum einstaklingum annað tækifæri til menntunar. Samfylk- ingin mun jafnframt hlutast til um að breyta reglum Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna í þeim tilgangi að auðvelda fólki sem ekki lauk framhaldsmenntun að koma til baka og afla sér formlegrar mennt- unar. Ein leið er að hlutanám sé lánshæft og tekjutengingar taki mið af aðstæðum og aldri viðkomandi. Búum vel að kennurum Í grein í The Economist á síðasta ári var leitað skýringa á þeim ár- angri sem náðst hefur í finnska skólakerfinu á ýmsa alþjóðlega mælikvarða. Niðurstaða blaðsins voru þessi þrjú orð; „Kennarar, kennarar, kennarar“. Fram kom að í Finnlandi nyti stéttin mikillar virðingar og velvildar og kapp væri lagt á að kennarar fengju sem besta menntun til að sinna mik- ilvægu hlutverki sínu. Af þessu eigum við að læra. Menntun kennara þarf að efla bæði í kennslugreinunum sjálfum en einnig þarf að undirbúa þá vel undir þær miklu kröfur sem í dag eru gerðar til uppeldis- og stuðn- ingshlutverks skóla. Það þarf að gera þeim kleift að ná árangri með sínum nemendum sem jafnast á við það sem best gerist. Menntun eykur jöfnuð Menntun veitir einstaklingum ekki aðeins aðgang að betri störfum og hærri launum. Menntun hefur margvísleg önnur jákvæð áhrif á líf fólks. Menntun er lykill að fé- lagslegum hreyfanleika í sam- félögum og eykur sveigjanleika fólks á vinnumarkaði. Menntun fólks hefur áhrif á félagsvirkni þess, sem aftur hefur jákvæð áhrif á heilsu og almenna vellíðan. Líf- aldur og heilsufar ræðst af mörgum þáttum, en menntun er einn þeirra mikilvægustu eins og Matthías Halldórsson landlæknir rekur í nýrri grein í Læknanemanum. Af þessu má m.a. ráða hversu mjög jöfnuður þegnanna ræðst af mennt- un þeirra. Menntun og hagsæld þjóða Lykill að hagsæld einstaklinga, fyrirtækja og hagkerfisins í heild er fólginn í menntun og til mikils er að vinna. Rannsóknir OECD sýna að aukning menntunarstigs um eitt ár að meðaltali hækkar varanlega landsframleiðslu á íbúa um þrjú til sex prósent. Samkvæmt því mætti auka tekjur íslenska þjóðarbúsins um 40 milljarða króna á ári með því að auka menntunarstig þjóðarinnar um eitt ár á mann að meðaltali. Á Íslandi hefur verið ágætur hagvöxtur undanfarin ár en á bak við hann liggja mun fleiri vinnu- stundir en hjá nágrannaþjóðum okkar. Vinnuvika Íslendinga er með því lengsta sem gerist í Evrópu og þegar litið er á landsframleiðslu á hverja unna vinnustund stöndum við Norðurlöndunum langt að baki. Samfylkingin stefnir að því að koma Íslandi í fremstu röð í fjár- festingum í menntun sérstaklega með tilliti til þess að þjóðin er yngst norrænna þjóða og mennt- unarstig er hér lægra en annars staðar. Við viljum þannig skapa öll- um jöfn tækifæri til að finna sér menntun við hæfi og vinna gegn vaxandi stéttaskiptingu í þjóðfélag- inu. Menntun er arðbær fjárfesting Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifar um menntun einstaklingsins » Samfylk-ingin vill auka jöfnuð og hagsæld ein- staklinga og samfélags með markvissum umbótum og fjárfestingu í menntun. Það er allra hagur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Höfundur er formaður Samfylkingarinnar. Á fréttamannafundi föstudaginn 4. maí var kynnt skýrsla samráðshóps samgönguráðherra og borgarstjór- ans í Reykjavík um framtíð Reykja- víkurflugvallar. Helsta niðurstaða skýrslunnar er að fórnarkostnaður samfélagsins af áfram- haldandi flugstarfsemi í Vatnsmýri sé slíkur að flytja beri innanlands- flugið á annan flugvöll. Skýrsluhöfundar telja að innanlandsflugi sé best fyrir komið á nýj- um flugvelli á Hólms- heiði. Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra tekst að skrifa grein í Morgunblaðið laug- ardaginn 5. maí um skýrslu samráðshóps- ins um framtíð Reykja- víkurflugvallar án þess að nefna einu orði þá meginniðurstöðu skýrslunnar að árlegur fórnarkostnaður sam- félagsins af flug- starfseminni í Vatns- mýri sé 3.500 milljónir kr. miðað við 5% vexti af bundnu fé, sem ligg- ur í ónýttum bygging- arlóðum undir flugvell- inum. Í ákafri viðleitni sinni til að viðhalda fluginu í Vatnsmýri fjölyrðir ráðherrann í grein sinni um mikilvægi nýrrar sam- göngumiðstöðvar í Vatnsmýri og um þá óvissu, sem hann telur að ríki um nýjan flugvöll á Hólmsheiði vegna skorts á upplýsingum um vindafar, skýjahæð og skyggni á heiðinni. Að þar þurfi að stunda alhliða veð- urathuganir í 5 ár og fyrr verði ekki unnt að ræða um flutning flugsins úr Vatnsmýri. Hér er ráðherrann kom- inn út á hálan ís. Hann nefnir t.d. ekki að auðvelt er og fljótlegt að kanna vindafar í tölvuhermi eins langt aftur í tímann og upplýsingar ná. En verra er að ráðherrann lét und- ir höfuð leggjast að láta hefja athug- anir á skýjahæð og skyggni á Hólms- heiði þann 1. janúar 2006, á sama tíma og Veðurstofa Íslands hóf þar athuganir á úrkomu, hitastigi og vindafari vegna könn- unar á skilyrðum fyrir nýjan flugvöll þar. Þess- ar athuganir, sem Flug- stoðum ohf. er ætlað að annast, eru enn ekki hafnar. Skýringar Þorgeirs Pálssonar á frétta- mannafundinum 4. maí sl. á því að ekki hefðu enn verið keypt tæki handa Flugstoðum ohf. til að kanna skyggni og skýjahæð á Hólmsheiði vegna þess að þau kost- uðu nokkrar milljónir og að Flugstoðarmenn hefðu viljað sjá hvort ákveðið yrði að flytja flugvöllinn upp á Hólmsheiði áður en tækin væru keypt, vekja furðu. Þetta minnir óþægilega á söguþráð frægrar kvik- myndasögu, „Catch 22“. Sé rétt að miða við það sem sagt er í skýrslu samráðshópsins að árlegur fórnarkostn- aður samfélagsins vegna áframhaldandi flugs í Vatnsmýri sé 3,5 milljarðar kr. og að kanna verði veður á Hólmsheiði í 5 ár hafa ráðherrann og hans menn nú þegar valdið því að ákvarðanataka um flutning flugsins hefur tafist um 1,35 ár og þar með hafa þeir skaðað samfélagið um tæpa 5 milljarða kr. Kjósendur ættu að íhuga vel sinn gagn áður en þeir greiða atkvæði í kjörklefanum 12. maí nk., þeir eiga skilið að fá til þjónustu skárri kjörna fulltrúa en þennan ráðherra. Framtíð Reykjavík- urflugvallar er ekki í Vatnsmýri Örn Sigurðsson er óánægður með grein samgönguráðherra og skoðanir í Morgunblaðinu Örn Sigurðsson » Fórnar-kostnaður af flugi í Vatns- mýri 3.500 millj- ónir kr. á ári. Innanlandsflug best á Hólms- heiði. Sam- gönguráðherra svíkst um að rannsaka veður þar. Höfundur er arkitekt. Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli HELGUBRAUT - RAÐHÚS M/ AUKAÍBÚÐ Vorum að fá fallegt 289 fm raðhús með 102 fm sér íbúð í kjallara. Á hæðinni er forstofa, eldhús, hol, gesta wc og tvær stórar stofur. Í risi eru 4 stór her- bergi þ.a. 2 með skápum og 2 með útg. út á flísal. s- svalir. Garður er fullbúinn með nýrri girðingu. Hús sem býður uppá mikla möguleika. Nánari upplýsingar á skrifstofu GIMLI. Verð 58,5 miilj. Traust þjónusta í 30 ár TIL LEIGU VIÐ MIÐBÆ HAFNARFJARÐAR Mjög gott atvinnuhúsnæði í þekktu húsi við Strandgötuna í Hafnarfirði. Húsið er alls tæpir 1000 fm og hentar einstaklega vel undir t.d. verslun, veitingastað o.fl. möguleiki getur verið á að skipta húsinu niður í minni einingar. Góð bílastæði eru fyrir framan húsið. Allar frekari upplýsingar á Ás fasteignasölu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.