Morgunblaðið - 10.05.2007, Side 38

Morgunblaðið - 10.05.2007, Side 38
38 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞAÐ VAR með mikilli ógleði sem ég las grein Þorgerðar Katr- ínar Gunnarsdóttur um mennta- mál nýverið. Þetta er dæmigerður kosningavaðall, fullur af mærð- arlegum frösum og staðhæfingum sem líta vel út en standast engan veginn þegar vel er að gáð. Tökum sem dæmi: ,,Flutningur grunnskólans frá ríki til sveitarfé- laga hefur reynst einstakt heilla- skref og grunnskólinn blómstrar sem aldrei fyrr.“ Staðreynd: Grunnskólakennarar voru með hótunum þvingaðir til að skrifa undir arfavonda samninga sem leiddi til þess að á milli 2005 og 2006 flúðu 15% af starfandi menntuðum kennurum frá starfi. Brottfall úr kennarastétt hefur aldrei verið meira. Annað dæmi: ,,Á örskömmum tíma hefur Ísland siglt fram úr nær öllum öðrum þjóðum þegar kemur að sókn ungmenna í menntun.“ Staðreynd: Íslendingar eru aft- arlega á merinni í alþjóðlegum námskönnunum og færast aftar. Í PISA könnun á stöðu 15 ára nemenda OECD og fleiri landa í þremur greinum árið 2003 mælist marktæk afturför á árangri Ís- lendinga í lestri og stærðfræði, frá því í PISA könnun árið 2000. Hérlendir ung- lingar eru rétt í með- allagi í lestri, í með- allagi í stærðfræði og undir meðallagi í nátt- úrufræði. Í PIRLS, al- þjóðlegri lestr- arkönnun 9 ára barna 2001 eru íslensk skólabörn í 20. sæti, standa sig síður en t.d. börn í Grikklandi, Rússlandi, Tékklandi og Ungverjalandi. Hins vegar eru þau með álíka mörg stig og nem- endur í Rúmeníu, Slóvakíu og Ísr- ael. Íslendingar eru 12 stigum yfir meðaltalinu 500. Enn stöndum við okkur þó betur í lestrarkunnáttu en Belize, Tyrkland og Kólumbía. Athygli vekur að ef kunnáttu barna í lestri er skipt í upplýs- inga- og bókmenntalestur eru ís- lensk börn enn lægri í að lesa til að afla sér upplýsinga, með 504 stig. Alþjóðleg könnun um upplýsingamennt í skólum, SITES, tekur til 4. og 8. bekkjar grunnskóla og 2. bekkjar í menntaskóla. Önnur lönd í könnuninni eru t.d. Danmörk, Finn- land, Noregur, Rúss- land og Frakkland. Íslensk fjórða bekkj- ar börn eru lang- lægst í tölvukunn- áttu, hvort sem um er að ræða að skrifa skjöl, nota töflureikni eða almenna notkun. Í öðrum bekk í menntaskóla er ástandið ennþá þannig að Íslendingar eru á botn- inum þegar kemur að því að leita upplýsinga (30% móti 60–70%) og í sjálfsnámi (5% móti 20%). Þetta er ,,stórsóknin“ í hnot- skurn. Í mínum huga kallast 17.– 20. sæti í þrautalausnum, 13.–16. í stærðfræði, 19.–23. í náttúrufræði og 17.–24. í lestri (PISA) eitthvað allt annað. Ástandið í grunnskólum lands- ins er ekki gott. Og fer versnandi. Ég veit að flestir vilja í lengstu lög halda í þá trú að allt sé í lagi í skólum barna sinna. Það er bara ekki þannig. Kennsla verður sífellt erfiðara starf. Kennarar og annað starfsfólk vinna kraftaverk á hverjum degi, þrátt fyrir það að- stöðuleysi og peningasvelti sem þeim er búið af metnaðar- og skilningslitlu ríkisvaldi. Sveit- arfélög hafa velflest hvorki bol- magn til að mæta vaxandi kröfum samfélagsins – né síversnandi hegðunarerfiðleikum og vanda- málum sem hin mannfjandsamlega stefna ríkisstjórnarinnar hefur skapað í landinu – með hærri launum handa þeim sem við hana starfa. Lítil sveitarfélög eru þvert á móti að kikna undan rekstri skóla. En það er hægt að skrifa í blöðin og slá um sig. Nú er kominn tími til að hætta að láta ljúga að sér. Kjósa allt annað en þetta valdaspillta lið sem grúfir yfir okkur, sjá loksins til sólar. Sannleikurinn um menntamálin Ingunn Snædal gerir athugasemd við grein menntamálaráðherra » Ástandið ígrunnskól- um landsins er ekki gott. Og fer versnandi. Ingunn Snædal Höfundur er kennari. Í FIMM ár hefur þjóðin í gegnum fjölmiðla orðið ítrekað vitni að því sem nú má fara að kalla Stóra flug- vallarmálið. Upphaf þessa máls var það að fyrir fimm árum fékk ég skrif- legt leyfi hjá Náttúruverndarráði til að lenda flugvélum á sethjalla í frið- landi Kringilsárrana. Það var auðsótt mál þótt um friðland væri þá að ræða, því að lend- ingarstaðurinn var eins og fjórir sambærilegir lendingarstaðir sem Flugmálastjórn hefur látið valta á hálendinu, sléttur melur sem ekki markar í ef hann er valtaður. Munurinn á svona lendingarstað og slóð eftir bíla er sá að hjólför bílaslóðarinnar grafast niður en hins vegar fer lending- arbrautin í upp- runalegt horf á vorin eftir frostlyftingu vetr- arins og er þá sem ósnortin væri. Lend- ingarstaðurinn í Kring- ilsárrana er að sökkva í aur Hálslóns þessa dagana þannig að menn verða að fá sér froskbúning til að rannsaka það mál frek- ar. Varðandi kæru þess efnis að ég hafi farið þangað með bíl inn á friðlýst svæði og valdið náttúruspjöllum er það að segja að ég fór þangað með bíl í fyrravetur í snjó og á hjarni. Og ekki um friðlýst svæði. Ég lenti líka und- anfarin sumur á harðri braut á botni Hjalladals sem nú er komin á kaf í aur á botni Hálslóns. Ég málaði hvíta nokkra steina og gæti svo sem vel málað þá aftur gráa eða borið í burt ef ég ætti kafbát og neðansjávargröfu til að grafa ofan í drulluna sem þessir steinar eru nú komnir ofan í. Á Sauð- ármel norðan Brúarjökuls valtaði ég þrjár brautir, 1400, 1000 og 700 metra langar og hafði mikið fyrir því að fá þangað til skoðunar fulltrúa frá Umhverfisstofnun, sveitarfélaginu, Landsvirkjun og Impregilo. Auk þess heimsóttu mig tveir lögregluþjónar frá Egilsstöðum. Engin athugasemd var gerð. Hér er um öryggismál að ræða sem sést af því að Fokker F50 flugvél Flugfélags Íslands gerði að- flug að lengstu brautinni sem neyð- arlendingarstað enda er þetta besti lendingarstaðurinn á öllu hálendinu og sá eini austan Jökulsár á Fjöllum. Síðan hafa fjölmargir lent með mér á þessum brautum svo sem fjölmiðlamenn og alþingismenn, forsætis- ráðherra, mennta- málaráðherra og Jónína Bjartmarz umhverf- isráðherra og ég skil því vel að spurning um þetta hafi komið flatt upp á hana í Kast- ljósþætti í gær. Á korti Landmælinga hefur verið sýnd lending- arbraut við Kára- hnjúkaveg sem ég hef lent á eins og fleiri flug- menn, en vinnuvélar hafa nú tætt í spað. Það er ekki eina sýnilega umhverfisröskunin á vegum Landsvirkjunar á svæðinu því að gervall- ur dalbotn Sauðárdals vestan við Kára- hnjúkastíflu er nú sund- urtættur af mal- argryfjum sem blasa munu við á margra kíló- metra svæði allt fram í júlí að minnsta kosti. Leyfi fékkst fyrir því að hafa þetta svona galopið og ljótt á þeim for- sendum að dalurinn lenti undir vatni síðsumars. Ég and- mæli því harðlega að hafa staðið að umhverfisspjöllum á Kárahnjúka- svæðinu og undrar mig að það skuli nú vera orðið að stóru máli á sama tíma og þarna fara nú fram mestu mögulegu umhverfisspjöll sem hægt er að framkvæma á Íslandi. Það er at- hyglisverð tilviljun að eftir öll þessi ár skuli þetta nú koma upp fjórum dög- um fyrir kosningar. En máttur smjörklípunnar blívur til að leiða at- hyglina frá stærsta máli samtímans. Stóra flugvallarmálið Ómar Ragnarsson skrifar um lendingarstaði flugvéla á hálendinu Ómar Ragnarsson » Frá upphafifyrir fimm árum hafði ég leitað leyfa og umsagnar hjá öllum hugsan- legum aðilum, fyrst hjá Nátt- úruverndarráði. Enginn hefur hreyft athuga- semdum. Höfundur er formaður Íslandshreyfingarinnar. JÓN Sigurðsson viðskiptaráð- herra ber sér á brjóst í viðtali við Morgunblaðið í gær og vill nú fara að bæta stöðu skuldugra heimila. Þar nefnir hann sér- staklega lög um greiðsluaðlögun einstaklinga og stöðu ábyrgð- armanna. Framsóknarflokkurinn hefur haft 12 ár til að koma á greiðsluaðlögun fyrir skuldug heimili til þess að hjálpa fólki að vinna sig út úr fjárhagserf- iðleikum án þess að missa eigur sínar í gjaldþrot. Þeir hafa líka haft 12 ár til að koma á lögum um ábyrgðarmenn sem tryggi að ekki sé hægt að gera fjárnám í heimili einstaklings sem ábyrgst hefur skuldbindingar annarra. Gera má ráð fyrir að um 90 þús- und einstaklingar yfir 18 ára aldri séu í slíkri ábyrgð. Fram- sóknarmenn hafa samt ekki lyft litla fingri í þessi 12 ár til að koma þessum brýnu hagsmuna- málum skuldugra heimila í höfn. Þvert á móti hafa þeir komið í veg fyrir að þessi tvö mál um greiðsluaðlögun og ábyrgð- armenn, sem við í Samfylking- unni höfum flutt sl. 12 ár, hafi náð fram að ganga. Bjarga hefði mátt fjölda einstaklinga frá því að missa heimili sín ef þessi mál hefðu verið orðin að lögum. En nú ætlar Framsóknarflokkurinn að skreyta sig með stolnum fjöðrum þremur dögum fyrir kosningar. Er nema von að manni verði bumbult af því að lesa þetta viðtal við Jón Sigurðs- son viðskiptaráðherra?. Jóhanna Sigurðardóttir Bumbult Höfundur er alþingismaður. ÉG KOM fram fyrir hönd Íslandshreyfing- arinnar í Kastljósi sjón- varpsins á Egilsstöðum í fyrradag, þar sem rætt var um umhverf- ismál, og bjó mig undir líflegar umræður um þau mál sem hafa verið efst á baugi og skipta þjóðina verulegu máli: Loftslagsmengun, virkjanir, stóriðju, nátt- úruvernd og einkavæð- ingu orkugeirans. Það kom alveg flatt uppá mig, og reyndar einnig Jóhönnu Vigdísi fundarstjóra, þegar spurt var úr sal hvort Ómar Ragnarsson hefði einkaleyfi á að leggja stórar flugbrautir á há- lendinu. Ég skildi ekki spurninguna en sagði víst að ég teldi hana út- úrsnúning. Eftir á að hyggja tel ég hana lágkúrulegan útúrsnúning. Það kom mér enn meira á óvart að ritstjóri Morgunblaðsins skyldi finna sig knúinn til að höggva í sama knérunn í Staksteinum í gær, þremur dögum fyrir kosningar. Ég hef í fjögur sumur gengið um hjallana og melana við Jöklu þar sem Ómar lenti flug- vélinni sinni og get upplýst þá sem hafa nú allt í einu miklar áhyggjur af nátt- úruspjöllum á bökkum Jöklu sunnan við Kárahnjúka, að þarna sáust ekki einu sinni hjólför eftir flugvélina hans Ómars. Mér finnst það varla sæmandi fyrir Morg- unblaðið að taka þátt í útúrsnúningum og hálfgerðu níði gagn- vart hugsjónamann- inum Ómari Ragnarsyni sem hefur í þrjátíu ár varið kröftum sínum til að kenna íslensku þjóðinni að meta landið sitt að verðleikum. Ósk Vilhjálmsdóttir svarar Staksteinum Ósk Vilhjálmsdóttir Höfundur er fjallaleiðsögukona og myndlistarkona sem skipar 2. sæti Íslandshreyfingarinnar í Reykjavík suður. Svar við útúrsnúningi » Þarna sáustekki einu sinni hjólför eftir flugvélina hans Ómars.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.