Morgunblaðið - 10.05.2007, Side 41

Morgunblaðið - 10.05.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 41 UMRÆÐAN GRUNDVÖLLUR þeirra fram- fara sem orðið hafa á Íslandi á undanförnum árum var lagður af fólki sem nú er hætt að vinna og reiðir sig á sparnað og lífeyr- isgreiðslur. Þetta er kynslóðin sem skaut traustum stoðum undir atvinnulífið, sem barðist fyrir bættum kjörum og félagslegum rétti, kynslóðin sem byggði upp velferðarkerfið sem við búum við í dag. Þjóðinni ber skylda til að búa vel að brautryðj- endum sínum og sjá til þess að þeir þurfi ekki að hafa áhyggjur af afkomu sinni og aðbúnaði. Þess vegna eigum við að hlúa að vel að öldruðum. Afnemum óréttlátar skerðingar Á það hefur hins vegar skort og það er afar brýnt að á því verði breyting. Þegar litið er til þeirra ára sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa farið með stjórn landsins kemur glögg- lega í ljós hve hrakleg meðferðin á öldruðum hefur verið. Á þessu tímabili hefur lífeyrir ekki fylgt al- mennri launaþróun og skattalækk- anir ríkisstjórnarinnar hafa eink- um komið hinum tekjuháu til góða, en aldraðir fylla almennt ekki þann hóp. Á sama tíma og kaupmáttur hef- ur almennt aukist í þessu landi, sérstaklega hjá hátekjufólki, hefur kaupmáttur lífeyrisgreiðslna ekki fylgt með. Lífeyrir hækkar ekki reglubundið eins og laun sam- kvæmt kjarasamningum og skatta- lækkanir hafa ekki skilað sér til tekjulægstu hópanna, þ.m.t. þeirra sem eru á lífeyri hvers konar. Hækkum skattleysismörkin Persónuafslátturinn hefur langt í frá fylgt almennri verðlagsþróun frá því að honum var komið á með staðgreiðslunni á níunda áratugn- um. En persónuafslátturinn í skattkerfinu er sá þáttur sem skiptir lágtekjufólk mestu máli, hann ræður því við hvaða tekju- mörk fólk byrjar að greiða tekju- skatt. Flestir aldraðir hafa ein- göngu lífeyrisgreiðslur til framfærslu og hækkun persónu- afsláttar myndi hafa mikil áhrif til að bæta kjör þeirra. Vel má hugsa sér að sérstakur persónuafsláttur bætist við þá sem eingöngu eru með lífeyrisgreiðslur, vilji menn koma í veg fyrir að allir, líka þeir tekjuhæstu, njóti hækkunar per- sónuafsláttar. Hugmyndir um lægra skattþrep fyrir lífeyr- isgreiðslur koma einnig vel til álita. Meginatriðið er að það verður að auka kaupmátt lífeyrisgreiðslna, og það strax. Réttlæti, skilvirkni, gagnsæi Mér verður hugsað til þeirra mörgu kvenna sem lögðu lífsstarf sitt í uppeldi barna og heim- ilisstjórn, en fá nú það starf ekki metið til lífeyrisréttinda. Það er réttlætismál ekki síður en jafnrétt- ismál að bæta kjör þessara kvenna verulega svo að þær geti lifað með reisn alla ævi. Við þurfum líka að gera átak til að einfalda fyrirkomulag lífeyr- isgreiðslna verulega. Kerfið er svo flókið að það er varla annað en fullfrískt fólk sem hefur færi á að kynna sér það til hlítar. Þess vegna þurfa margir lífeyrisþegar jafnvel að afla sér lögfræðiaðstoðar til að verja og sækja lífeyrisrétt sinn. Við þurfum að einfalda kerfið og gera það manneskjulegra til að það nýtist þeim sem þurfa á því að halda. Bætum kjör lífeyrisþega strax Vinstrihreyfingin – grænt fram- boð hefur lagt til að fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar verði að bjóða heildarsamtökum aldraðra og ör- yrkja til raunverulegs samráðs og ákvarðanatöku um þeirra mál. Sett yrði í framkvæmd sameiginleg stefnumótun stjórnarandstöðunnar um að bæta kjör þeirra og til þess myndu renna viðbótarfjármunir af stærðargráðunni 7 milljarðar á ári. Við vinstri græn leggjum áherslu á að fyrstu áfangarnir í tillögu okkar um nýja skipan þessara mála kæmu til framkvæmda strax á þessu ári. Kjarabót til aldraðra þolir enga bið. Kjarabót til aldraðra Eftir Jón Bjarnason Höfundur er þingmaður Vinstri-grænna. RAGGI rakari í Keflavik er ótrúlegur afreksmaður og hefur unnið hetjudáð með baráttu og aftur baráttu með hendurnar einar og hugsjón að vopni við að byggja upp 40 herbergja gæðahótel sem hann opnar í Reykjanesbæ í dag. Ragnar Jón Skúlason keypti lóðina Hafnargötu 37 í Reykjanesbæ fyrir 27 árum vegna þess að hann vantaði nýja aðstöðu fyrir rakarastofu sína. Hann byggði upp þriggja hæða hús með bílakjallara. Minna mátti það ekki vera. Rakarastofan fór í húsið á jarðhæð, barnafatabúð móður hans, Ragnhildar Ragnarsdóttur og skyndibitastaður. Efri hæðirnar biðu. Fyrir 7 árum kom upp sú hugmynd að innrétta efri hæðirnar sem hótel. Mörg hafa ljónin verið á veginum og oft virtist allt komið í strand, en seigla Ragga, baráttugleði og viljinn til þess að gefast aldrei upp með stuðningi konu sinnar Bryndísar Þorsteinsdóttur og sonarins Þorsteins sem lenti í því fremur öðrum góðum systkinum að taka til hendinni með pabba sínum á stundum. Nú eru 40 tveggja manna herbergi tilbúin, hvert með sér baðherbergi og öll hin vönduðustu að frágangi. Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með seiglu rakarans, eljunni, baráttunni við að brjóta og byggja upp, einn gegn ofureflinu oft á tíðum, því allt sem þeir gátu gert sjálfir innan fjölskyldunnar, það gerðu þeir sjálfir. Hótel Keilir heitir ævintýrið við Hafnargötuna, en hvern einasta dag allan þennan tíma hefur Raggi unnið á rakarastofu sinni, klippt með annarri hendi, byggt lúxushótel með hinni, 90 manna gistirými. Ef slíkir eru ekki afreksmenn, hverjir eru það þá og þetta verkefni sýnir á magn- aðan hátt hvers einstaklingurinn er megnugur ef hann veit hvað hann vill og fylgir því eftir. Þessum línum fylgja blússandi hamingjuóskir til fjöl- skyldunnar um góðan og gjöfulan rekstur og margir hljóta að samfagna þeim. Raggi rakari, ótrúlegur afreksmaður í Keflavík Eftir Árna Johnsen Höfundur er stjórnmálamaður, blaða- og tónlistarmaður. ÖFUGT við Íslendinga hafa Frakkar hafa átt við mikla efna- hagserfiðleika að glíma á und- anförnum árum. Staðan þar minnir um margt á ástand- ið hér á landi eftir valdatíð síðustu vinstri stjórnar. Á sama tíma og rík- isstjórnir undir for- ystu Sjálfstæðisflokksins hafa greitt upp erlendar skuldir rík- issjóðs Íslands og ríkissjóður orðið nánast skuldlaus hafa skuldir rík- issjóðs Frakklands hækkað um 235%. Á meðan hagvöxtur hefur verið um það bil helmingi hærri hér á landi en að meðaltali í Evr- ópu hefur hagvöxtur Frakklands verið vel undir meðaltali. Á meðan atvinnuleysi mælist vart á Íslandi hefur atvinnuleysi í Frakklandi farið í 10%. Á meðan Íslendingar hafa lagt fyrir í lífeyrissjóði með þeim árangri að þeir eru nú hærri hlutfallslega en olíusjóðir Norð- manna hefur lítið sem ekkert verið lagt til hliðar í lífeyrissjóði í Frakklandi og því mun ríkissjóður þurfa að standa straum af uppi- haldi eldri borgara á þeim bæ. Þetta bætist við slæma stöðu rík- issjóðs. Af þessu má sjá að staða Íslands og Frakklands er með öllu ólík. Frakkar senda komandi kynslóðum reikninga sína á meðan Íslendingar leggja fyrir og hafa greitt upp kyn- slóðareikning síðustu vinstri- stjórnar sem hér sat við völd. Þessi ólíka staða þessara tveggja landa er ekki tilviljun. Munurinn liggur í þeirri hug- myndafræði sem liggur að baki að- gerða stjórnvalda. Með úrslitum forsetakosninganna þar sem Niko- las Sarkozy bar sigur úr bítum gegn Ségolene Royal hefur franska þjóðin sent skilaboð um að hún sé búin að fá nóg af tilraunum um að rétta af efnahaginn í Frakklandi með hefðbundnum rík- isforsjárlausnum. Royal boðaði breytingar á efnahag landsins í gegnum ríkissjóð og hið opinbera. Því höfnuðu Frakkar. Sarkozy vildi fara þveröfuga leið og boðaði uppstokkun á bákninu, afnám hafta, lækkun skatta á fyrirtæki og einstaklinga. Það má því segja að Sarkosy hafi boðað íslensku leiðina eða þær lausnir sem Sjálf- stæðisflokkurinn boðaði þegar hann tók við völdum 1991 og hefur skilað okkur þeim árangri sem nú blasir við öllum. Þetta er gott að hafa í huga þegar gengið er til kosninga nú. Vinstri flokkarnir hafa verið á móti öllum framfaramálum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur þurft að berja í gegn. Skiptir þá engu máli hvort við erum að tala um skattalækkanir, einkavæðingu eða bjórsölu á Íslandi. Ef hér verður mynduð vinstri stjórn verður horf- ið á þá braut sem Frakkar hafa hafnað og reynt á eigin skinni með vægast sagt afleitum árangri. Frakkar kusu íslensku leiðina Eftir Ármann Kr. Ólafsson Höfundur skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvestur kjördæmi. „LANDSFUNDUR leggur til að skoðaðir verði kost- ir þess að færa eignarhald ríkisins á orkufyrirtækjum yfir til einkaaðila…“ (Úr ályktun landsfundar Sjálf- stæðisflokksins á www.xd.is – Lands- fundur – Landsfundur 2007: Ályktun um umhverfismál og auðlindanýtingu.) „Þeir vilja endilega koma að þessu með einhverjum hætti og eru reiðbúnir að leggja fram talsvert fé.“ (Frétta- blaðið 30. apríl 2007. Ummæli orku- málastjóra um áhuga þýsks orkurisa á íslenskum orkumálum, sér í lagi djúp- borunum.) „Verðið sem Geysir Green Energy er tilbúið að greiða fyrir hlut ríkisins er langt umfram verðmat ríkisins sem þó hefur ekki verið gefið upp.“ (Morg- unblaðið 1. maí 2007 um sölu á hlut ríkisins í Hita- veitu Suðurnesja.) Er líklegt að Sjálfstæðisflokkurinn sjái kosti einka- væðingar? Er það oft kosningamál hjá Sjálfstæð- isflokki, það sem hann framkvæmir á miðju kjör- tímabili? Hækka orkulindir í verði með hverri mínútunni sem líður? Býður ríkisstjórnin íslenskar orkulindir til sölu á undirverði? Bjóða stjórnvöld land- eigendum núna bætur fyrir aðgang að orkulindum á því sama undirverði? Munu erlendir orkurisar leggja fram „talsvert fé“ og „koma að þessu“? Verður örtröð jakkafatamanna með þúsundkalla upp úr brjóstvas- anum í túnfætinum hjá hverjum landeiganda og á hverri hreppsskrifstofu, örtröð við hvern einasta læk, foss og hver? Getur almenningur fengið til baka orku- lindir sem búið er að selja fáeinum einkaaðilum eins og kvótann? Ef orkulindir eru einkavæddar, verður þá skrúfað frá krana öðru vísi en að borga einhverju sem kallar sig Group? Verður þá kveikt ljós öðru vísi en að borga einhverju myrkrafélagi í útlöndum sem enginn man almennilega hver á, en það á samt rafmagnið? Verður þá hellt á könnuna öðru vísi en að borga ein- hverjum bankanum sitt rétta okurverð fyrir? Öðru vísi en að með hverri kaffibunu renni dálítill viðbót- ardreitill í hinn bakkafulla vaxtalæk sem til bankanna rennur undan hallandi fjárhag heimila og hækkandi þjónustu? Verður þá almenningur í gapastokki gjald- tökunnar? Mun hann horfa á kunnugleg andlit úr við- skiptageiranum fíflast og hafa gaman af? Fíflast, eftir að hafa fengið frá stjórnvöldum á silfurfati dálítið sem gat ekki annað en hækkað í verði hundraðþús- undfalt. Munu kunnuglegir karakterar (gjarnan í fé- lagsskap Eltons gamla John) hafa gaman af frelsi fárra á kostnað heillar þjóðar sem lét enn einu sinni plata sig? Verður þá öldin önnur og ekkert eftir, því barma- fullur bikar orkulinda Íslands og náttúruperlna verð- ur drukkinn í botn af fyrrgreindum aðilum? Svar: Nei, nei, auðvitað ekki. En þá þurfum við að velja að eiga Ísland heldur sjálf hinn 12. maí. Nei, nei, auðvitað ekki Eftir Kristínu Guðmundsdóttur Höfundur er Íslendingur, Gnúpverji og Hafnfirðingur, móðir og opinber starfsmaður. „Orðið vonleysi er ekki góð íslenska, því það eitt er góð íslenska að trúa á landið, fólkið sem það byggir og framtíð þess. Það gerir Sjálfstæðisflokk- urinn.“ Davíð Oddsson, 1993. ÉG er hægri grænn. Eins og Ill- ugi. Við viljum nýta náttúruna á sjálf- bæran hátt. Sjálfstæðismenn eru yfirleitt grænir – þeir skilja hag- fræðina í því að fara vel með jörð og menn. Hitaveita Reykjavíkur, sem sjálf- stæðismenn settu á laggirnar fyrir margt löngu, hlífði Reykvíkingum við kolaryki sem sverti lungu um allan heim. 72% orkunotkunar okkar er sjálf- bær innlend orka á móti 13% hjá öðrum þjóðum. Sjálfstæðismenn stefna í 100%. Sjálfstæðis- flokkurinn – umhverfi Eftir Jón Gunnar Hannesson Höfundur er læknir og starfar í fjölskyldunefnd Sjálfstæðis- flokksins. Í RITSTJÓRNARGREIN í Morgunblaðinu í dag (í gær) er fjallað um lóðamál Listaháskólans og því slegið upp að skólanum sé ekki í kot vísað í Vatnsmýri. Leið- araskrifin bera þess því miður merki að höfundur hafi alls ekki kynnt sér málið til hlítar, eða vilji ekki hafa það sem sannara reynist. Rétt er að taka fyrst fram að Listaháskólinn er að sjálfsögðu alls góðs maklegur og löngu tímabært að húsnæðismál hans verði leyst, en þar hefur skort vilja yfirvalda mennta- mála. Í viðtölum við rektor skólans kemur fram að hann vilji í raun ekki vera í Vatnsmýri heldur miklu frem- ur í miðbænum. Ríkisvaldinu væri í lófa lagið að leysa þau mál farsæl- lega, t.d. á svokölluðum stjórn- arráðsreit milli Sölvhólsgötu og Skúlagötu, þar sem skólinn er nú þegar með hluta af starfsemi sinni. Þar er nægt byggingarrými og þar vill skólinn helst vera. Morgunblaðið horfir algerlega framhjá forkastanlegum vinnu- brögðum borgarstjóra. Lóðin sem um er rætt er bundin í samþykktu og staðfestu skipulagi þannig að hún sé einungis fyrir Náttúrufræðisafn og tengda starfsemi Náttúru- fræðistofnunar. Ekkert samráð var haft við Náttúrufræðistofnun og borgarstjóri getur ekki breytt stað- festu skipulagi með undirskrift sinni á viljayfirlýsingu sem ekkert hefur verið rædd í skipulagsráði og/eða borgarráði. Morgunblaðið fjallar heldur ekk- ert um málefni Náttúrufræðistofn- unar í þessu samhengi og virðist al- gerlega standa á sama um þau. Blaðið horfir líka framhjá því að Listaháskólinn getur ráðstafað lóð- inni til þriðja aðila ef skólinn vill heldur byggja upp starfsemi sína annars staðar. Sem hann jú vill sbr. yfirlýsingar rektors. Það á sem sagt að fara að braska með lóð sem er bundin Náttúrfræðistofnun og Nátt- úrufræðasafni til þess eins að ráða- menn Sjálfstæðisflokksins geti bað- að sig í einhverju dýrðarljósi nokkrum dögum fyrir kosningar. Það hefur auk þess verið þver- pólitískur skilningur að Vatnsmýrin sé spennandi og áhugavert svæði til að þróa til framtíðar en ekki búta- saumur til að setja á markaðstorg braskara. Sá skilningur virðist vera í uppnámi. Það er hins vegar engin von til þess að Morgunblaðið muni halla einu orði á borgarstjóra stjórn- arflokkanna fyrir vinnubrögðin í vik- unni fyrir kosningar. Það má einu gilda, en Morgunblaðið setur niður fyrir vikið. Morgunblaðið í kosningaleiðangri? Eftir Árna Þór Sigurðsson Höfundur er borgarfulltrúi Vinstri grænna. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.