Morgunblaðið - 10.05.2007, Side 51

Morgunblaðið - 10.05.2007, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 51 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl. 9-16.30. Botsía kl. 10. Útskurðarnámskeið kl. 13. Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað. Kl. 8-16.30 handav. Kl. 9-16.30 smíði/útskurður. Kl. 9.30 Boccia. Kl. 10.30 helgistund. Kl. 11 leikfimi. Kl. 13.30 myndlist. Bingó fellur niður á morgun. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl. 13. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og kl. 9.55. Rammavefnaður kl. 9.15. Málm- og silfur- smíði kl. 9.30. Bókband kl. 13. Stólajóga kl. 17.15. Jóga á dýnum kl. 18. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 handa- vinna, kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13 handavinna og Bridsdeild FEBK (tvímenningur), kl. 18.15 jóga. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Vorsýning kl. 14- 19 í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Allir velkomnir. Vatnsleikfimi kl. 13 í Mýri, karlaleikfimi kl. 13 og Botsía kl. 14 í Ásgarði. Garðaberg lokað. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30 helgistund, umsj. sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Frá hádegi vinnustofur opnar m.a. leiðsögn við myndlist, um- sj. Nanna S. Baldursd. Kl. 14.20 kóræfing. Í kvöld er leikhúsferð í Borgarleikhúsið á leikritið Ást, sýning hefst kl. 20 lýkur um kl. 22. Uppl. á staðn- um og s. 575-7720. Hraunbær 105 | Kl. 9-12.30 postulín. Kl. 10-11 botsía. Kl. 11-12 leikfimi. Kl. 12-12.30 hádeg- ismatur. Kl. 14-16 félagsvist. Kl. 15 kaffi. Hraunbær 105 | Kl. 12-14 verður sölukynning á hinum vönduðu vörum Volare. Vörur fyrir bæði konur og karla. Vörurnar eru afhentar á staðnum. Hraunsel | Leikfimi kl. 11.20. Opið hús kl. 14. Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir hjá Þorbjörgu kl. 9-16. Boccia kl. 10-11. Félagsvist kl. 13.30, 1. og 2. verðlaun, kaffi og meðlæti. Fótaaðgerðir, hár- snyrting. Hæðargarður 31 | Fjölbreytt félagsstarf. Kíktu í kaffi og kynntu þér dagskrána. Fastir liðir eins og venjulega. Tölvuleiðbeiningar þriðjud. og miðvi- kud. kl. 13-15. Draumadísir og draumaprinsar í dag kl. 14. Stjórnandi Hjördís Geirs. Allir velkomnir. S: 568-3132. asdis.skuladottir@reykjavik.is Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun föstudag er sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 og Listasmiðja á Korpúlfsstöðum kl. 13. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Handverks- og bókastofa kl. 9. Sögustund og léttar æfingar kl. 10.30. Boccia, karlaklúbbur kl. 10.30. Boccía, kvennaklúbbur kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Bingó kl. 15. Allir velkomnir. Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði, kl. 10 boccia, kl. 9-12 leirvinna, kl. 9-16.30 opin vinnustofa, kl. 13-16 leir- vinna. SÁÁ félagsstarf | Félagsvist og dans verður laugardaginn 12. maí í Ásgarði Stangarhyl 4. Vist- in hefst kl. 20. Kiddi Bjarna leikur fyrir dansi. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30-12, bókband kl. 9-13, morgunstund kl. 9.30, gler- skurður kl. 13, frjáls spilamennska kl. 13-16.30. Hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofa opnar, handa- vinnustofa lokuð vegna vorsýningar sem verður um helgina. Komið og kynnið ykkur starfið og skoðið fallegt handverk. Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 bænastund og samvera. Kl. 13 opinn salurinn. Kl. 13.15-14 leikfimi. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12. Léttur hádegisverður á eftir. Akureyrarkirkja | Aðalfundur Kvenfélags Akur- eyrarkirkju kl. 19.30. Áskirkja | Kl. 10-12 foreldramorgunn í umsjá Jó- hönnu og Tinnu. Ferð í húsdýragarðinn. Kl. 17 klúbbur 8-9 ára barna og kl. 18 TTT-starfið í umsjá Laufeyjar Fríðu og Guðrúnar Höllu. Dag- skrá: Útileikir. Bústaðakirkja | Foreldramorgunn kl. 10. Sam- verustund fyrir foreldra og börn þeirra. Boðið upp á hressingu á vægu verði í vinalegu og eflandi umhverfi kirkjunnar. Láttu sjá þig. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Foreldra- morgunn kl. 10 í fræðslusal, lokafundur. Bæna- stund kl. 12. Barnastarf 6-9 ára kl. 17.15, loka- fundur. Unglingastarf fyrir 13 ára kl. 19.30-21.30, lokafundur. www.digraneskirkja.is Dómkirkjan | Kvöldkirkjan er opin öll fimmtu- dagskvöld kl. 20-22. Komið og njótið kyrrðar- innar, takið þátt í bænastund kl. 21 eða 22. Kveik- ið á kerti og leggið fram bænarefni. Allir vel- komnir. Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar kl. 10-12. Fræðandi og skemmtilegar samverustundir, ýmiss konar fyrirlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. TTT fyrir börn 10-12 ára í Víkurskóla kl. 17-18. Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur, íhugun. Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Laugarneskirkja | Kl. 12 kyrrðarstund. Gunnar Gunnarsson leikur ljúfa tóna á orgelið. Sigurbjörn Þorkelsson framkvæmdastjóri og meðhjálpari kirkjunnar les orð úr Biblíunni, íhugar textann stutta stund og leiðir fyrirbænir við altarið. Máltíð í boði í safnaðarheimilinu á eftir. Allir velkomnir. Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar-og fyrir- bænastund kl. 21. Tekið er við bænarefnum af prestum og djákna. Boðið upp á kaffi í lok stund- arinnar. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569 1100, senda tilkynningu og mynd á netfangið ritstjorn- @mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í gegnum vefsíðu Morg- unblaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn „Senda inn efni“. Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynn- ingu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. dagbók Í dag er fimmtudagur 10. maí, 130. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.) Úlfar Hauksson aðjúnkt í stjórn-málafræði við Háskóla Íslands helduropinn fyrirlestur í Þjóðminjasafninu ídag kl. 12.15. Yfirskrift fyrirlestrarins er Lýðræði í ljósi hnattvæðingar. „Í auknum mæli eru hin sígildu hugtök um lýðræði, fullveldi og þjóðríki að þróast og sýnist sitt hverjum um stöðu lýðræðisins á tímum hnattvæðingar,“ segir Úlfar. „Þó þjóðríkið sé að- algerandinn í alþjóðakerfinu virðist vægi þess fara minnkandi og dregið hefur úr hefðbundinni lagahyggju kringum fullveldið. Þar sem fullveldi og þjóðríki hafa verið nátengd lýðræðishugtakinu allt frá frönsku byltingunni hljóta að vakna spurningar hvort og hvernig lýðræðishugtakið er að þróast og hvernig því muni reiða af.“ Úlfar bendir á að virkt lýðræði eins og það birtist á vesturlöndum sé frekar ungt og ómótað: „Tiltölulega fá ríki hafa búið við stöðugt lýðræði og fullyrða má að lýðræði er enn í þróun og eng- in ein rétt skilgreining á merkingu hugtaksins er til. Það er t.d. spurning hvort raunhæft sé að gera sömu kröfur til lýðræðisins á alþjóðavett- vangi og við gerum innan þjóðríkisins, s.s. hvað varðar framsal á valdi til kjörinna fulltrúa og taumhalds- og eftirlitshlutverk þeirra sem fram- selja valdið,“ segir Úlfar. Í fyrirlestrinum ætlar Úlfar að bera saman kenningu um fulltrúa og umbjóðendur annars vegar og svokallaða lög- mætiskenningu hins vegar: „Sú fyrri leggur mikla áherslu á þingræðishefðina og bein tengsl kjósenda og fulltrúa þeirra. Sú síðari gerir minni kröfur um formleg tengsl, en leggur þess í stað áherslu á lögmæti fulltrúa og að þeir starfi innan afmarkaðs lagaramma,“ segir Úlfar. „Evrópu- sambandið er dæmi um svæðisbundin samtök sem hafa gengið hvað lengst í tilraunum til að þróa lýðræði og ákvarðanatökuferla utan þjóð- ríkisins. Þar birtist t.d. annars vegar Evr- ópuþingið þar sem finna má bein tengsl fulltrúa við kjósendur, þar sem þingmenn eru kosnir beinni kosningu. Hins vegar hefur fram- kvæmdastjórnin óljósara umboð en vinnur eftir fastmótuðum reglum og skýrt afmörkuðu vald- sviði og samkvæmt kenningunni nýtur hún lög- mætis svo framarlega að hún fari ekki út fyrir valdsvið sitt.“ Úlfar segir vandasamt að spá fyrir um hvernig lýðræðið muni þróast: „Ég sé þó fyrir mér að lagskipting muni aukast, þannig að ákvarð- anataka á ýmum sviðum færist í auknum mæli til lægri stjórnsýslustiga innan þjóðríkisins. Evr- ópusambandið verður þriðja eða jafnvel fjórða lagið í stjórnskipan aðildarríkja en skýr laga- rammi mun tryggja lögmæti þess. Uppbyggingin verður flókin en markmiðið er að ná fram mála- miðlun milli hugsjóna um lýðræðislegt umboð, lögmæti og skilvirkni,“ segir Úlfar. Stjórnmálafræði | Opinn fyrirlestur í Þjóðminjasafninu í dag kl. 12.15 Lýðræði í ljósi hnattvæðingar  Úlfar Hauksson fæddist á Akureyri 1966. Hann lauk námi í vélfræði frá Vélskóla Íslands 1992, stúdentsprófi af raungreinadeild VMA 1994, B.A. í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 1999, M.A. í evrópufræðum 2000 frá Kaþ- ólska háskólanum í Leuven í Belgíu og leggur nú stund á doktorsnám við HÍ. Úlfar var lengi vel háseti og vélstjóri á togurum en hefur frá árinu 2000 kennt stjórnmálafræði við HÍ og verið aðjúnkt frá 2004. Úlfar er í sambúð með Kristjönu Stellu Blöndal doktorsnema. Hann á tvær dætur og tvö stjúpbörn. Tónlist DOMO Bar | OC/DC Kvartettinn. Hljómsveitin hefur unnið í meist- araverkum Ornette Coleman, en hann er einn af helstu frum- kvöðlum „Free Jazz“ tónlistar- innar. Steinar Siguðarson, Alto Sax, Snorri Sigurðarson, vasa- trompet, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, kontrabassi, Matt- hías MD Hemstock, trommur. Mannfagnaður Slysavarnadeildin Hraunprýði | Kaffisala Svdk.Hraunprýði Hafn- arfirði. Hin árlega kaffisala verður föstud. 11. maí í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju kl. 15-20. Hvetjum alla til að mæta og styrkja gott málefni. Nú byggjum við Björgunarmiðstöð í Hafnar- firði. Pantanasími er 692–3129 og netfang stinag@internet.is Myndlist Listasafn ASÍ | Fimm norrænir textíllistamenn og ítalskt tón- skáld stilla saman strengi sína. Þau sem standa að sýningunni heita Agneta Hobin, Anna Þóra Karlsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Kristiina Wiherheimo, Marianne Mannsaker og Paola Livorsi. Sýn- ingin er opin alla daga nema mánudaga kl. 13-17 og aðgangur er ókeypis. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Steindir gluggar eftir Gerði Helgadóttur úr þýskri kirkju, barnateikningar af heimsþekktri fegurðardrottningu eftir Barböru Árnason og fleiri athyglisverð verk. Allir velkomnir. Ókeypis að- gangur. Safnbúð og kaffistofa. Op- ið kl. 11-17. Skemmtanir NASA | DJ Páll Óskar ætlar að halda Eurovision partí á Nasa, fimmta árið í röð, og spilar bestu Eurovision lög allra tíma, alla nóttina. Sérstakir gestir hans þetta kvöld eru: Selma Björns, Silvía Nótt, Friðrik Ómar, Helga Möller, Pálmi Gunnarsson og fleiri. Fyrirlestrar og fundir Nordica Hótel | Kl. 9-12. Paul Feldwick mun flytja fyrirlestur á námstefnu Samtaka auglýsenda og Birtingahússins um hvað hafi verið rangt við auglýsingagerð síðastliðin 50 ár og hvernig bæta má árangur auglýsingaherferða. Skráning á sau.is. Fréttir og tilkynningar Neistinn styrktarfélag hjart- veikrabarna | Aðalfundur Neist- ans verður haldinn 24. maí að Síðumúla 6 kl. 20. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundastörf. SAPPOS, sem rekur í dag tvær lág- vöruverðs-skóverslanir í Garðabæ og á Akureyri, hefur ákveðið að styrkja samtökin Vímulausa æsku með hluta af sölu í verslunum sín- um. Af heildarsölu Sappos síðustu helgar og þeirrar næstu munu renna 10% til samtakanna og er styrknum sérstaklega ætlað að styðja sjálfsstyrkingarnámskeiðin sem ætluð eru ungmennum á aldr- inum 10-17 ára. Í tilkynningu segir að verslanir Sappos hafi skófatnað fyrir alla fjölskylduna. Því sé tilvalið að styðja við bakið á foreldra- samtökum eins og Vímulausri æsku. Vímulaus æska / Foreldrahús hafa staðið fyrir fjölbreyttu for- varna- og vímuvarnastarfi síðan 1986. Vefsíða samtakanna er www.vimulaus.is. Skóverslun styrk- ir Vímulausa æsku FRÉTTIR Í umfjöllun Morgunblaðsins um et- anól á bls. 12 í gær kom fram að gal- lonið á bandarískum bensínstöðvum samsvaraði 4,54 lítrum. Hið rétta er að bandarískt gallon jafngildir 3,78 lítrum, breskt 4,54 lítrum. Endur- skoða þarf því tölur um lítramagn í greininni með hliðsjón af þessu. LEIÐRÉTT Bandarískt gallon Skartgripir Fjallkonunnar Reynomatic Café Mílanó Gó› rá› og gagnlegar uppl‡singar um heita vatni› www.stillumhitann.is Inniheldur 22 valin bætiefni, 12 vítamín og 10 steinefni. Reuters STARFSMAÐUR Puerto Vallarta dýragarðsins heldur á 20 daga gömlum tígrisdýrum í Jalisco- héraði í vesturhluta Mexíkó á þriðjudaginn. Litlar kisur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.