Morgunblaðið - 10.05.2007, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 59
www.haskolabio.is Sími - 530 1919
Lives of Others kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára
Next kl. 10.15 B.i. 14 ára
Mýrin 2 fyrir 1 kl. 5.40 - 8 B.i. 12 ára
Köld slóð 2 fyrir 1 kl. 5.50 - 8 B.i. 12 ára
Sunshine kl. 10.20 B.i. 16 ára
Hot Fuzz kl. 5.40 - 10.10 B.i. 16 ára
Stærsta
kvikmyndahús
landsins
Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 8 og 10:20 B.i. 16 ára
M A R K W A H L B E R G
eeee
SV, MBL
eee
MMJ, Kvikmyndir.com
eee
LIB Topp5.is
SPRENG-
HLÆGILEG
MYND FRÁ
BEN STILLER
Fór beint á
toppin í USA
SJALDAN EÐA ALDREI HAFA
TVEIR KARLMENN DANSAÐ JAFNVEL SAMAN!
eee
S.V. - MBL
MÖGNUÐ SPENNUMYND FRÁ
LEIKSTJÓRA "TRAINING DAY"
FYRSTA
STÓRMYND
SUMARSINS
Sýnd kl. 4, 7 og 10-POWERSÝNING B.i. 10 ára
-bara lúxus
Sími 553 2075
10
V.I.J. Blaðið
SÁ SEM SÉR FRAMTÍÐINA GETUR BJARGAÐ HENNI
EFTIR HÖFUND MINORITY REPORT OG BLADE RUNNER
NICOLAS CAGE - JULIANNE MOORE - JESSICA BIEL
SÓLIN ER AÐ DEYJA. ER
HÆGT AÐ BJARGA HENNI?
2 fyr
ir 1
2 fyr
ir 1
Heimavöllur íslenskra kvikmyndagerðar
www.laugarasbio.is
eee
L.I.B, Topp5.is
eee
FGG - FBL
eee
T.V. - kvikmyndir.is
15.000 MANNS
Á AÐEINS 3 DÖGUM!
Sýnd kl. 6 Ísl. tal
eeee
„Afbragðs spennumynd
sem allir ættu að sjá.“
K. H. H., FBL
eeeee
„Ómissandi
kvikmyndaperla!“
S.V., MBL
eeee
„Einstök mynd sem
enginn má misssa af!“
KVIKMYNDIR.COM
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. faste ignasal i
Opið hús í dag milli kl. 17 og 19
Þórsgata 17 - Glæsileg eign
Afar glæsileg og vönduð 92,9 fm 2ja herb. íbúð á 1. hæð. Þar af er ca 30 fm
rými í kjallara. Íbúðin er öll nýtekin í gegn. Vönduð eldhúsinnrétting með
granítborðplötu. Falleg halogenlýsing í loftum. Glæsilegt flísalagt baðherb.
m/sturtuklefa. Hvíttað eikarparket á gólfum, fallegar flísar á forstofu og baði.
Góðir skápar. Glæsileg og björt eign í 101 Reykjavík sem vert er að skoða.
Verð 20,9 millj.
Rósa og Kristján taka á móti gestum milli kl. 17 og 19 í dag.
Fyrir fáeinum árum fóru aðbærast í brjósti mér tilfinn-ingar sem ég átti ekki von á
að myndu læðast þar inn. Aldrei
nokkurn tímann. Ég var allt í einu
farinn að sjá kassettuna – þessa
hornreku tónlistarmiðlanna; þetta
ræfilslega, ómerkilega form – í róm-
antísku ljósi. Ég var farinn að gjóa
mildum augum í átt að þeim í Kola-
portinu, þar sem þær lágu saman illa
hirtar á tvist og bast í bleikum
þvottabala. Einhverra hluta vegna
var ég nú farinn að handleika þær af
áhuga, jafnvel strjúka þeim varlega
líkt og um vínylplötu væri að ræða.
Ég uppgötvaði enn fremur að ég
hafði aldrei leitt hugann sérstaklega
að þessu formi. Í öll þessi ár hefur
maður haldið innblásnar, tár-
stokknar ræður um ástina sína, víny-
linn, og hatast í viðlíka vígamóð út í
helvítis geisladiskinn. Kassettan var
hins vegar aldrei rædd neitt sér-
staklega. Hún bara var þarna ein-
hvers staðar, afskipt. Þar til nú. Mér
finnst kassettan í dag … kúl.
Það er einkennilegt að maðurskuli hafa tekið hana sem svo
sjálfsagðan hlut. Eða hvað? Kassett-
an var í raun alltaf meira svona
praktískt tól en vínyllinn getur verið
listform í sjálfu sér. Maður kaupir
oft vínyl ef pakkningin er flott,
skurðurinn á plötunni góður, þykkt-
in/þyngdin á plötunni væn o.s.frv.
Þetta er allt burtséð frá sjálfu inni-
haldinu. Og ástæðan fyrir öllu hatr-
inu í garð geisladiskanna er sú, að
þeim var ætlað að leysa vínylplötuna
af hólmi. Þessum köldu, dauðyfl-
islegu, smágerðu plasthylkjum var í
alvörunni ætlað að koma í stað vín-
ylplötunnar mjúku og yndislegu!
Litlu kassettunni var ekkert blandað
í þann slag.
Notagildi kassettunnar var þó í
raun mun meira en vínylsins ef út í
það er farið. Líkt og með æpoddinn
(spilastokkinn, tónhlöðuna) í dag
hlustaði maður á tónlist í bílnum fyr-
ir tilstuðlan hennar. Þá var hægt var
að fara í göngutúra með „Walk-
manninn“, spila kassettuna svo í
tjaldferðalaginu með hjálp „Gettó-
blasters“ og að maður tali ekki um
hversu vel hún fór í vasa. Þá var al-
gert lykilatriði að maður gat búið til
eigin spólur, með því að taka upp úr
útvarpinu eða þá afrita af öðrum
kassettum eða formum. Menn skipt-
ust á spólum á milli landa og heilu
tónlistarsenurnar voru ræktaðar og
þeim haldið gangandi með þeim
hætti. Ungsveitir gáfu þá út sín
fyrstu verk á þessu formi, nokkuð
sem er gert í dag með skrifuðum
geisladiskum eða þá einfaldlega með
myspace. Fjögur lög inn á myspace-
setrið, og vessgú, fyrsta stuttskífan
þín er „komin út“.
Þegar „kassettudagarnir“ erurifjaðir upp minnist maður ým-
issa handbragða sem verða gleymd
innan einhverra áratuga, svona eins
og með íslenskar hannyrðir. Þið
munið hvernig maður þurfti að
strekkja á slöknuðu bandi með því
að stinga blýanti inn í annað hjólið
og spenna svo. Sumir voru jafnvel
orðnir hámenntaðir í því að skrúfa
ónýtar snældur í sundur og lagfæra
þær þannig. Svo þurfti að spóla aft-
ur á bak, og áfram, og aftur á bak og
áfram til að finna réttu lögin. Þetta
form var sumpart fyrir þá alla hörð-
ustu, þá sem voru reiðubúnir að
eyða tíma og orku í tónlistina. Svo
voru það kóperingarnar, bæði á
tölvuleikjum og tónlist. „Rec“-
takkinn á græjunum mínum brotn-
aði undan álaginu, þannig að prjónn
var brúkaður til þess arna í mörg ár.
Já, eftir á að hyggja eyddi maður
heilmiklum tíma með blessaðri kass-
ettunni, án þess að leiða hugann
neitt sérstaklega að henni. Enginn
veit hvað átt hefur fyrr en misst hef-
ur …
… því að nú berast þær fréttir að
þetta form sé endanlega á leiðinni
út. Framleiðslu hætt, líkt og með
Volkswagen-bjölluna. Fréttir þessa
efnis hafa reyndar poppað upp við
og við undanfarin ár en í nýlegu
NME kemur fram að raftækja- og
plötuverslanir eru hættar að panta
kassetturnar og því er auk þess spáð
að framleiðslu á segulbandstækjum
verði hætt innan tíðar. Grein þessi
er því skrifuð með netta sorg í
hjarta. Og ég þykist vita, að fleirum
er svipað innanbrjósts. Kassettan er
dauð … lengi lifi kassettan!!!
Kassettan er dáin (snökt, snökt …)
Einu sinni var... „Menn skiptust á spólum á milli landa og heilu tónlist-
arsenurnar voru ræktaðar og þeim haldið gangandi með þeim hætti.“
AF LISTUM
Arnar Eggert Thoroddsen
» Þið munið hvernigmaður þurfti að
strekkja á slöknuðu
bandi með því að stinga
blýanti inn í annað
hjólið og spenna svo
arnart@mbl.is
Flottir Hljómsveitin New Kids On
The Block kom m.a. út á kassettu
undir lok níunda áratugarins.