Morgunblaðið - 09.06.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 23
„QUATUOR pour la fin du temps“
[54’], hið áttþætta og jafnframt mik-
ilvægasta kammerverk organistans
Oliviers Messiaen, mun nafntogað í
evrópskum módernisma; samið
meðan höfundur dvaldi í þýzkum
stríðsfangabúðum og frumflutt þar
1941 af honum og samföngum hans.
Það var flutt á listahátíð Hafn-
arfjarðar, Björtum dögum, á mið-
vikudag við allgóða aðsókn miðað
við kröfuhörð nútímatónverk.
Líkt og önnur verk Messiaens
bar kvartettinn kunnuglegan keim
af djúpri íhugun sem á köflum virt-
ist kalla á e.k. „trans“, er eins og
gengur fer misjafnt í hlustendur
eftir upplagi hvers og eins. Per-
sónulega hef ég að jafnaði lítið verið
gefinn fyrir slíkt, en þó skal við-
urkennt að mér kom á óvart hvað
athyglin hélzt lengi óslævð þrátt
fyrir oft hægferðugt og á köflum
kyrrstæðulegt tónferli, sem hjá
smærri spámönnum hefði getað
koðnað niður í útjaskaða mók-
hyggju. Sennilega þökk sé því hvað
tjábrigði („gestík“) framsetningar
voru þrátt fyrir allt – þ.m.t. spek-
úlatífa talnasymbólík – sterk og
innileg. Fyrir utan hressilega and-
stæðukafla sem ku eiga að miðla
uppnumdri vímu. Og þrátt fyrir of-
ureinfaldan, jafnvel hjakkkenndan,
rithátt á sumum stöðum gat verkið
einnig breitt úr sér í nærri sinfón-
íska litabreidd, einkum í VII
(„Regnbogaglundroða“).
Einlæg túlkun Camerarctica-
félaga átti drjúgan þátt í að skila
verkinu fersku, og er vonandi á eng-
an hallað þó minnzt sé á klarín-
ettsóló Ármanns Helgasonar í Hyl-
dýpi fuglanna (III) er bar
dýnamískt af annarri spilamennsku
með djúpseiðandi teygðum söng-
línum e niente við andstætt líflegt
fuglakvak.
Sinfónísk litabreidd
TÓNLIST
Víðistaðakirkja
Messiaen: Kvartett fyrir endalok tímans.
Camerarctica (Örn Magnússon píanó, Ár-
mann Helgason klarínett, Hildigunnur
Halldórsdóttir fiðla og Sigurður Hall-
dórsson selló). Miðvikudaginn 6.6. kl.
20.30.
Kammertónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
FYRSTU ljóðabækur höfunda veita
innsýn inn í framtíðina. Emil
Hjörvar Petersen nefnist ungskáld
sem um þessar mundir kemur fram
með sína fyrstu bók. Gárungagap
nefnist hún.
Þetta er nokkuð róttækur skáld-
skapur og margt í honum eru
galsakenndar tilraunir með hljóð
og orð eða lausbeislað hugarflug
sem minnir á undirmeðvitund-
armuldur súrrealismans og erfitt
er að henda reiður á. Annað er
njörvað og ljóst þykir mér að Emil
henti betur fastmótað myndmál.
Það er oft á tíðum kraftmikið og
safaríkt þegar hann beitir sig aga.
Um ljóðabókina leikur einhvers
konar andstæðumynd sem Emil
persónugerir annars vegar í róm-
antíker og hins vegar í kaldrifj-
uðum nútímamanni sem á stundum
fær á sig mynd uppans. Þetta er
einhvers konar uppgjör við neyslu-
menninguna. Í einu ljóðanna segir:
„Ég er fartölva, uppafífl!“ Á bak
við slíka fordæmingu, sem virst
gæti samfélagsleg róttækni, er
ákveðin íhaldssemi eða varð-
veisluhyggja sem auðvitað á vel
heima í rómantískri heimssýn.
Annar fylgifiskur rómantíkurinnar
er bölsýni á framtíð jarðar. Í kvæð-
inu Foldarfeigð segir m.a.: „úr heil-
ögum höndum / fellur hún og kur-
last / á endilangan viðinn // inni
leika þrumur / fyrir dauðum eyr-
um“.
Þótt ég sé ekki sérstaklega hall-
ur undir slíka bölsýni er hér ágæt-
lega haldið utan um myndsköp-
unina. Sá þáttur skáldskapar Emils
ber raunar af öðru. Besta kvæðið í
bókinni að mínu mati nefnist Eik-
arlosti. Þar er vandlætingin og böl-
sýnin víðsfjarri en ljóðrænt líking-
armál myndar ástríðufulla og
jafnvel lostafulla mynd. Þetta er
organísk mynd full af sköp-
unargleði. Í kvæðinu segir frá
kraumandi hrauni þar sem tvær
eikur festa rætur í ólgandi hita sem
ósjálfrátt dregur þær saman:
í áköfum lotum
nerist
brennandi börkur þeirra
saman
greinarnar uxu
hver inn í aðra
ræturnar laumuðust
tilviljanakennt
í hnúta
lífsmark sameinaðist
og í eiturgufunum
urðu eikurnar
að lostafullri einingu
sannleika og syndar
Það er að vísu orðið langt síðan
ég hef séð orðin synd, sannleika og
losta saman í nútímaljóði. En þau
orð undirstrika hina íhaldssömu og
rómantísku heimsmynd sem ein-
kennir þessa ljóðabók. Hér er vel
ort. Það er því óhætt að vænta
nokkurs af Emil í framtíðinni.
Morgunblaðið/Ásdís
Emil Hjörvar Hér er vel ort. Það er
því óhætt að vænta nokkurs af Emil
Hjörvari í framtíðinni.
Eining
sannleika
og syndar
BÆKUR
Ljóð
Eftir Emil Hjörvar Petersen. Nykur. 2007
– 62 bls.
GÁRUNGAGAP
Skafti Þ. Halldórsson
Fullkomnir jeppar
fyrir íslenskar aðstæður…
…upplifðu ósvikinn kraft og fegurð
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Hinn nýi KYRON er fullvaxinn jeppi með hátt og lágt
drif, byggður á grind og er stærri en ætla má við
fyrstu sýn. Tækninýjungar eru fjölmargar og skila sér í
einstakri nýtingu á afli og frábærum aksturs-
eiginleikum. Sjón er sögu ríkari, komdu til okkar á
Tangarhöfðann og kynntu þér úrvalið frá SsangYong.
Þú gerir einfaldlega ekki betri kaup í jeppum í dag!
Tangarhöfða 8-12
112 Reykjavík
Sími 590 2000
www.benni.is
ACTYON ACTYON SPORTS
REXTON II
Komdu í heimsókn, upplifðu kraftinn og fegurðina. Auk Kyron jeppans
eru á staðnum nýi Actyon jeppinn, Actyon Sports pallbíllinn og 186
hestafla Rexton II jeppinn sem er flaggskip flotans frá SsangYong.
Bílabúð Benna: Opið virka daga frá kl. 9.00 - 18.00. Lau. 12.00 - 16.00. Umboðsmenn: Bílahornið hjá Sissa, Keflavík. Bílasalan Ós, Akureyri. Bílasala Austurlands, Egilsstöðum.