Morgunblaðið - 05.07.2007, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
BÆJARSTJÓRN Árborgar hefur
samþykkt að setja deiliskipulagstil-
lögu að nýjum miðbæ Selfoss í aug-
lýsingu og falast eftir samþykki
Skipulagsstofnunar um að breyta að-
alskipulagi svonefnds Bæjargarðs á
þá lund að garðurinn verði skil-
greindur sem útivistar- og íbúða-
svæði. Tillögurnar voru samþykktar
á aukafundi bæjarstjórnar í gær-
kvöld með fimm atkvæðum meiri-
hluta Samfylkingar, Framsóknar-
flokks og Vinstri grænna gegn
fjórum atkvæðum Sjálfstæðisflokks.
Talsverðar umræður spunnust um
tillögurnar og mættu þær harðri
gagnrýni minnihluta sjálfstæðis-
manna.
Byggingarmagið óheyrilegt
Minnihlutinn var mjög ósáttur við
það mikla byggingarmagn sem fyr-
irhugað er á miðbæjarsvæðinu.
„Þetta er algjörlega óheyrilegt bygg-
ingarmagn og það er alveg ljóst að
ekki verið að þjóna íbúum Selfoss
með þessu mikla magni, þeir hafa
ekki beðið um þetta,“ sagði Snorri
Finnlaugsson í Sjálfstæðisflokki.
Sjálfstæðismenn töldu jafnframt
óviðunandi að Pakkhúsið yrði rifið
vegna framkvæmdanna; húsið ætti
sér merkilegri sögu en svo að það
verðskuldaði slíka meðferð. „Það er
heldur ekki þannig að hér sé það mik-
ið af háskólastarfsemi að við getum
leyft okkur að rífa ofan af henni,“
sagði flokksbróðir Snorra, Eyþór
Arnalds, en Rannsóknarmiðstöð Há-
skóla Íslands í jarðskjálftaverkfræði
er staðsett í Pakkhúsinu.
Tími til kominn að setja málið í
lýðræðislegt athugasemdaferli
Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæj-
arstjóri Árborgar, sakaði minnihlut-
ann um pólitískar hártoganir í málinu
og sagði að það væri tími til þess
kominn að samþykkja tillöguna og
setja þannig í gang hið lýðræðislega
athugasemdaferli íbúa bæjarfélags-
ins. Eftir að deiliskipulagið verði sett
í auglýsingu muni íbúum bæjarins
gefast kostur á að koma að öllum
þeim athugasemdum sem þeir hafa
vegna skipulagsins og að því loknu
muni sérstakur rýnihópur fara yfir
þær tillögur. Í honum muni eiga sæti
fulltrúar skipulags,- bygginga- og
framkvæmdasviðs sveitarfélagsins,
bæjarlögmaður, arkitektar vinnings-
tillögunar, fulltrúar úr bæjarstjórn
og skipulagsfræðingur. Þessum mál-
flutningi höfnuðu fulltrúar Sjálfstæð-
isflokks og töldu það mikla meinloku
að það væri í anda lýðræðisins að
setja málið í „lögbundið lágmarks-
ferli“ eins og þeir kölluðu deiliskipu-
lagsferlið.
Bæjargarðurinn
standi óhreyfður
Miðbæjarsvæðinu, sem til stendur
að setja í auglýsingu innan skamms,
hefur verið skipt í tvo reiti. Annars
vegar er um að ræða svæðið í kring-
um fyrirhugað miðbæjartorg, Ár-
torg, en það nær frá Eyravegi til Sig-
túns. Hins vegar svokallaðan
Sigtúnsreit, sem er á milli Sigtúns og
Tryggvagötu. Samtals er svæðið um
44.000 fermetrar að flatarmáli og á
því er gert ráð fyrir nýbyggingum
með samtals 42.000 fermetra gólfflat-
armáli. Reiknað er með því að íbúðir,
smærri verslanir, skrifstofur og
þjónustuhúsnæði verði á svæðinu.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir
230 til 250 íbúðum og um 700 íbúum.
Sjálfstæðismönnum var einnig
mikið niðri fyrir þegar fyrir lá sam-
þykki meirihluta bæjarstjórnar um
að óska eftir samþykki Skipulags-
stofnunar um breytingu á aðalskipu-
lagi Bæjargarðsins. Töldu þeir heilla-
vænlegast að þetta græna svæði í
hjarta bæjarins stæði óhreyft. Eyþór
Arnalds sagði að sérhvert samfélag
hefði sitt græna útivistarsvæði og
nefndi í því tilliti Central Park í New
York, sem aldrei hefði komið til
greina að selja verktökum, jafnvel
þótt borgin hefði gengið í gegnum
miklu meiri fjárhagsörðugleika en
Árborg. Ragnheiður sagði að hug-
myndir meirihlutans miðuðu ekki að
því að byggð risi í gervöllum Bæj-
argarðinum, heldur yrði helmingur
hans látinn óhreyfður og skilgreind-
ur sem grænt svæði. Þar verði reynt
að blanda saman lágreistri íbúða-
byggð og líflegum almenningsgarði,
eins og víða tíðkist.
Deiliskipulagstillaga að
nýjum miðbæ í auglýsingu
Hart var tekist á um nýjan miðbæ Selfoss á aukabæjarstjórnarfundi í Árborg
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Brúnaþungir Sjálfstæðismenn í Árborg voru allt annað en sáttir við deiliskipulagstillögu sem til stendur að setja í
auglýsingu. Gagnrýndu þeir byggingarmagnið og fyrirhugaðar framkvæmdir í Bæjargarði.
Í HNOTSKURN
»Meirihluti bæjarstjórnarÁrborgar hefur nú sam-
þykkt að setja tillögu að
breyttu deiliskipulagi í mið-
bænum í auglýsingu.
» Í deiliskipulagstillögunumer gert ráð fyrir þéttari og
hærri byggð heldur en áður
hefur þekkst á Selfossi.
»Á miðju miðbæjarsvæðinuer fyrirhugað að reisa sér-
stakt miðbæjartorg sem renna
á saman við almenningsgarð
og mynda eitt rými.
»4-5 hæða byggð afmarkartorgið. Á fyrstu hæð verð-
ur að finna verslun og þjón-
ustu en íbúðarhúsnæði verður
á öðrum hæðum.
»Við torgið er jafnframtáætlað að byggja 10 hæða
turn sem ætlað er að verða
helsta aðalkennileiti Selfoss.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut-
anríkisráðherra og Magnús Jónsson
veðurstofustjóri undirrituðu í gær
fyrsta áfanga samstarfssamnings
milli utanríkisráðuneytisins og Veð-
urstofu Íslands um samstarf Íslands
og Indlands á sviði jarðskjálftarann-
sókna.
Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi
verkefnisins muni taka um hálft ár
og munu tveir indverskir jarð-
skjálftafræðingar koma til Íslands
að kynna sér þá tækni sem er notuð
við jarðskjálftamælingar og -eftirlit.
Jafnframt munu tveir íslenskir vís-
indamenn fara til Indlands.
Á Íslandi hefur undanfarin ár ver-
ið þróuð tækni fyrir jarðsjálftaspár
sem hefur víða vakið athygli. Aðferð-
in byggist í grundvallaratriðum á
svokölluðum smáskjálftamælingum
og fjölbreytilegum rannsóknum á
sviði jarðvísinda með það að mark-
miði að segja fyrir um jarðskjálfta.
Indverjar hafa mikinn áhuga á þess-
ari tækni, því þar er jarðskjálfta-
virkni umtalsverð, t.d. í Himalaja-
fjöllunum. Veðurstofan mun annast
samstarfið fyrir hönd íslenskra
stjórnvalda. Háskóli Íslands og Há-
skólinn á Akureyri tengjast verkefn-
inu, auk utanríkisráðuneytisins sem
undirbúið hefur viljayfirlýsinguna
og mun standa straum af kostnaði.
Skjálftar í
tveimur
heimsálfum
Utanríkisráðu-
neytið hefur ráðið
Kristínu A. Árna-
dóttur til að stýra
framboði Íslands
til öryggisráðs
Sameinuðu þjóð-
anna en kosning-
ar fara fram á
allsherjarþingi
SÞ haustið 2008.
Kristín hefur
stýrt skrifstofu borgarstjórans í
Reykjavík undanfarin ár en hefur
fengið leyfi frá störfum á meðan hún
sinnir verkefninu fyrir utanríkis-
ráðuneytið. Ísland hefur lýst yfir
framboði til sætis í öryggisráðið fyr-
ir árin 2009-2010 en öryggisráðið ber
aðalábyrgð á varðveislu heimsfriðar
og öryggis á grundvelli sáttmála
Sameinuðu þjóðanna.
Stýrir fram-
boðinu til
öryggisráðsins
Kristín A.
Árnadóttir
♦♦♦
ÞÓRÐUR Áskell Magnússon, eig-
andi fyrirtækisins Djúpakletts ehf. í
Grundarfirði gagnrýnir harðlega
grein Agnesar Bragadóttur um
meint kvótasvindl sem birtist í Morg-
unblaðinu í gær. „Ég á bara ekki orð
yfir þetta. Þið eruð að kalla fyrirtæki
mitt og alla viðskiptavini mína ótínda
glæpamenn. Þetta er atvinnurógur
af verstu sort og það sem verra er,
þið dæmið allt þorpið því það er ekki
nokkur einasti maður hér sem gæti
komist hjá því að vera bendlaður við
þetta,“ sagði Þórður við blaðamann
Morgunblaðsins í gær. „Ég segi bara
– skammist ykkar!“
Fyrirtæki Þórðar, Djúpiklettur,
sér um löndun á fiski í Grundarfirði.
Í grein Agnesar kemur fram að lík-
lega sé kvótasvindl hvað stórtækast í
útflutningi á ferskum fiski með gám-
um til Bretlands. Þórður segir að
væri þetta rétt þá hlytu böndin að
berast að Grundfirðingum og Vest-
mannaeyingum en mestur gámaút-
flutningur á fiski sé frá þessum
tveimur bæjarfélögum. „Þótt svindl-
ið væri ekki nema brotabrot af því
sem gefið er í skyn í greininni myndi
hver maður vita af þessu. Þið eruð að
segja að við séum öll ótíndir glæpa-
menn.“
Mikið eftirlit með
sjávarútveginum
Spurður hvort allir myndu vita um
svindlið segir Þórður það óhjá-
kvæmilegt. „Þið eruð að segja að allir
vigtarmenn, allir sem koma að lönd-
un, allir skipstjórnarmenn og allir út-
gerðarmenn séu skúrkar af verstu
sort. Ég sé um löndunina og ætti að
vera sá sekasti en ég hef enga hags-
muni af því. Mér hefðu þá átt að vera
boðnar mútur og þá er þetta nú orðið
býsna víðtækt samsæri.“
Þórður bendir jafnframt á að það
sé rangt sem fram kemur í grein
Agnesar að eftirlit með útflutningn-
um sé lítið. „Ég fullyrði að það er
enginn atvinnuvegur sem býr við
jafn mikið eftirlit og sjávarútvegur-
inn. Hér eru tveir til fjórir starfs-
menn Fiskistofu yfir okkur öllum
stundum í tvo til þrjá daga í viku.“
Þegar gámunum sé síðan landað í
Bretlandi taki eftirlitsmenn á vegum
Fiskistofu á móti þeim. „Hvað er ver-
ið að borga Fiskistofu fyrir ef þeir
taka ekki eftir þessu? Þetta er líka
atvinnurógur um Fiskistofu,“ segir
Þórður.
Hann segist ekki þekkja til þess að
nokkur maður hafi látið vigta bíl með
tómum körum, hvað þá fyllt með
vatni, áður en afla væri landað í þau.
Slíkt tíðkist einfaldlega ekki.
„Ég fullyrði að ég og mínir starfs-
menn hafa aldrei nokkurn tímann
tekið þátt í kvótasvindli, við höfum
aldrei verið beðnir um það og ég hef
aldrei orðið vitni að því.“
„Þið eruð að segja að
við séum öll skúrkar“
Eigandi löndunarfyrirtækis gagnrýnir Morgunblaðið
LANDSBANKI Íslands, Smáralind,
hlaut viðurkenningu jafnréttis-
nefndar Kópavogsbæjar í ár. Af-
hendingin fór fram í Bókasafni
Kópavogs í gær. Við sama tækifæri
var opnuð örsýning um líf og störf
Huldu Jakobsdóttur, fyrstu konu í
embætti bæjarstjóra á Íslandi, en
hún var bæjarstjóri í Kópavogi
1957-1962.
Vel þykir hafa tekist að fram-
fylgja jafnréttisáætlun Landsbank-
ans í útibúinu í Smáralind. Guðrún
Ólafsdóttir hefur byggt það upp og
útibúið vaxið að umfangi, segir m.a.
í fréttatilkynningu.
Morgunblaðið/Golli
Guðrún Ólafsdóttir (t.h.) útibússtjóri Landsbankans í Smáralind, tók við
viðurkenningu jafnréttisráðs Kópavogs úr hendi Unu Maríu Óskarsdóttur,
formanns jafnréttisnefndar, í Bókasafni Kópavogs í gær.
Jafnréttisáætlun LÍ tekist
vel í útibúinu í Smáralind