Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Magnús HelgiKristjánsson fæddist í Reykjavík 3. maí 1955. Hann lést í Reykjavík 27. júní síðastliðinn. Foreldrar hans eru Ragnhildur Jóna Magnúsdóttir, f. í Reykjavík 1. ágúst 1924 og Kristján Valdimar Krist- jánsson kjötiðn- aðarmeistari, f. í Reykjavík 15. ágúst 1920, d. 9. nóvember 1998. Foreldrar Ragn- hildar voru hjónin Sigurlína Ebenezersdóttir, f. á Lindargötu í Reykjavík 6. maí 1893, d. 19. febrúar 1981 og Magnús Helgi Jónsson prentari, f. á Lambhól í Reykjavík 8. júlí 1895, d. 19. des- ember 1957. Foreldrar Kristjáns voru hjónin Sylvía Þorláksdóttir Klein, f. á Ísafirði 27. september De Mesa (ævinlega nefnd Ada), f. á Spáni 27. maí 1963. Bjuggu þau á Spáni, í Noregi og á Ís- landi. Þau slitu samvistum. Áður hafði Magnús Helgi verið í sam- búð með Ragnheiði Spenser og eignuðust þau andvana fæddan son 16. apríl 1977. Magnús Helgi ólst upp í stórum systkinahópi á Lambhól og einnig bjó fjölskyldan um tíma á Seyðisfirði. Hann gekk í Melaskóla, Seyðisfjarðarskóla og Hagaskóla. Hann hóf snemma að vinna fyrir sér. Sextán ára fór hann á sjóinn og var á milli- landaskipum, togurum og fiski- bátum. Síðan lá leiðin til Noregs þar sem hann vann við húsasmíð- ar. Einnig vann hann á veitinga- húsum í Kaupmannahöfn. Því næst lá leiðin til Spánar þar sem hann vann í mörg ár við járn- smíðar og fleira. Eftir að Magn- ús kom aftur heim vann hann m.a. hjá Jósafat Hinrikssyni á renniverkstæði hans, við húsa- smíðar, fór á sjóinn og fleira. Síðustu árin bjó Magnús Helgi á Lambhól með móður sinni. Útför Magnúsar verður gerð frá Neskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. 1887, d. 7. ágúst 1954 og Kristján Valdimar Jónsson sjómaður, f. á Akra- nesi 11. október 1887, fórst með mb. Valtý 28. febrúar 1920. Fósturfaðir Kristjáns var J. C. Klein, kjöt- kaupmaður í Reykjavík, f. í Dan- mörku 24. maí 1887, d. 3. júlí 1982. Systkini Magnúsar eru: Sigurlína Sjöfn, f. 1947, gift Trausta Björnssyni, Sylvía Hrönn, f. 1952, Kristján, f. 1954, Jóhannes Bragi, f. 1960, kvæntur Svövu Hansdóttur, Auð- ur Gróa, f. 1963, gift Guðmundi Bragasyni, og Unnar Jón, f. 1966, kvæntur Guðnýju Ein- arsdóttur. Magnús Helgi kvæntist hinn 9. janúar 1987 Immaculödu Morales Það var mér sem og okkur systk- inunum reiðarslag er við fréttum að okkar kæri Maggi bróðir hefði orðið bráðkvaddur aðfararnótt miðviku- dagsins 27. júní sl. Ég talaði við hann í síma kvöldið áður og átti síst af öllu von á að fá þessar fréttir morguninn eftir. Sem börn og unglingar vorum við nánir og brölluðum margt saman, enda aðeins þrettán mánuðir á milli okkar. Maggi var hugmyndaríkur og djarfur og á unglingsárum varð hann oftar en ekki fyrri til að prufa ýmsa nýja hluti og kanna nýjar slóð- ir þrátt fyrir að ég væri sá eldri. Minnisstætt er mér þegar við smíðuðum saman tunnufleka, þá lík- lega 12 og 13 ára gamlir, til siglinga úti á Skerjafirði, við æskuheimili okkar Lambhól. Hann prufaði flek- ann, en útstreymi var mikið þá stundina og stefndi flekinn til hafs, án þess að hann fengi nokkuð við ráðið. Hann bar sig þó vel eins og ævinlega, eftir að honum var bjarg- að á báti í það skiptið. Á allt of stuttri ævi upplifði hann meira en flestir. Við 16 ára aldur réði hann sig sem messagutta á Gullfoss og sigldi til Kaupmannahafnar. Þangað flutti hann svo stuttu síðar og bjó þar um skeið. Um tvítugsaldurinn flutti hann til Bergen í Noregi og starfaði þar með Rabba frænda við húsavið- gerðir. Þaðan lá leiðin til Malaga á Spáni þar sem hann bjó í nokkur ár. Á Spáni kynntist hann Ödu Morales sem hann kvæntist þar, en þau fluttu síðar heim til Íslands og bjuggu saman hér heima í nokkur ár uns þau skildu. Maggi fékkst við ýmis störf: sjó- mennsku, verkamannastörf, járn- smíði, smíðar, þjónustustörf o.fl. Starfsgetan var hins vegar ekki til staðar hin síðari ár, og átti hann þá mjög á brattann að sækja. Maggi valdi annað lífsmunstur en við hin systkinin. Allaf hefur þó verið kært á milli okkar, og talaði Maggi iðulega um hve vænt honum þætti um fjölskyldu sína og hvernig hann bæri hag hennar ætíð fyrir brjósti. Kom það m.a. fram í því hvað hann var hjálpsamur við móður okkar hin síðari ár. Maggi var ekki fullkominn fremur en aðrir. Hann var viðræðugóður og vel að sér um mjög marga hluti. Hann fór aðrar leiðir heldur en margir hefðu gjarnan óskað, en hann var góður drengur og bar ávallt hag sinna nánustu og sinna vina mjög fyrir brjósti. Við Maggi áttum margar frábærar, skemmti- legar stundir saman, og sakna ég þess sáran að þær verða ekki fleiri í þessu jarðlífi. Móðir okkar sem misst hefur kæran son, og systkini mín sem misst hafa kæran bróður eiga mjög um sárt að binda. Megi þér líða vel þar sem þú ert núna kæri bróðir. Kristján Kristjánsson. Þetta var fallegur morgunn, sólin Magnús Helgi Kristjánsson ✝ GuðmundurHans Einarsson læknir fæddist í Neðri-Hundadal í Miðdölum í Dala- sýslu 20. maí 1926. Hann lést á sjúkra- húsi í Gautaborg í Svíþjóð 21. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Einar Jónsson bóndi í Neðri-Hundadal og Lára Lýðsdóttir. Einar var sonur hjónanna Jóns Ein- arssonar bónda í N-Hundadal, f. 6. janúar 1857, d. 10. apríl 1940, og Vigdísar Jónsdóttur húsfreyju, f. 7. okt. 1859, d. 7. sept. 1899. For- eldrar Láru voru hjónin Lýður Ill- ugason, 5. sept. 1872, d. 4. ágúst 1946, og Kristín Hallvarðsdóttir, f. 2. júní 1876, d. 29. apríl 1959, bændur í Litla- og Stóra-Langadal á Skógarströnd. Guðmundur Hans ólst upp með foreldrum sínum og fjórum systkinum en eftir 1930 færa foreldrarnir sig til og fara í annað húsnæði á hlaðinu en hann verður eftir hjá föðursystkinum sínum Signýju og Jóni, sem önn- uðust hann á allan hátt sem sitt eigið barn bæði varðandi uppeldi og skólagöngu og studdu hann til Jamqocyan markaðsstjóri, f. 26. október 1965. Synir þeirra eru Philip, f. 26. ágúst 1992, og Thor Anton, f. 11. október 1993. 2) Þor- geir Lennart framkvæmdastjóri í Kingston á Englandi og í San Francisco, búsettur í London, f. 13. ágúst 1961, maki Lena Ein- arsson viðskiptafræðingur, f. 28. september 1963. Börn þeirra eru Carolina, f. 18. nóvember 1991, Christopher, f. 18. mars 1993, og Josephine, f. 22. nóvember 1996. Sonur Guðmundar Hans og Þóru Þórðardóttur er Logi Jósef, f. 6. október 1955. Guðmundur Hans lauk stúd- entsprófi frá MR vorið 1948 (tók 5. og 6. bekk saman) og kandídats- prófi í læknisfræði í Háskóla Ís- lands 31. maí 1956. Sumarið 1956 var hann starfandi héraðslæknir í Súðavík. 1957 fór hann til Gauta- borgar í Svíþjóð og hóf þar nám í kvensjúkdómum og fæðing- arhjálp, einnig lagði hann stund á skurðlækningar. Guðmundur Hans starfaði síðar á ýmsum sjúkrastofnunum þar ytra og var þá ýmist sem aðallæknir eða að- stoðarlæknir. Á árunum 1958- 1959 vann hann m.a. sem skips- læknir hjá sænsku skipafélagi sem stundaði ferðir til Suður-Ameríku. Hann var einnig læknisfræðilegur ráðgjafi innflytjendadeildar kan- adísku sendiráðanna í Bonn, París og Lundúnum 1970-1990. Útför Guðmundar Hans verður gerð frá Blåviks kyrka í Boxholm í dag og hefst athöfnin klukkan 11. náms, sem og Vigdísi systur hans. Systkini Guðmundar Hans eru fjögur: 1) Hjört- ur fyrrverandi bóndi í Hundadal, f. 31. desember 1918, maki Lilja Sveinsdóttir fyrrverandi kennari, f. 1. júní 1925. Þau eiga fjögur börn. 2) Vigdís, f. 10. sept- ember 1921, maki Hjörtur Friðberg Jónsson fulltrúi hjá Vegagerð ríkisins, f. 10. september 1920, d. 23. janúar 2006. Þau eiga fjóra syni. 3) Krist- ín, f. 29. júlí 1928, maki Sigurður Guðmundsson stýrimaður, f. 12. mars 1931. Þau eiga fjögur börn. 4) Áslaug Birna, f. 29. ágúst 1930, maki Björgvin Magnússon vél- stjóri, f. 5. september 1925. Þau eiga fjögur börn. Eiginkona Guðmundar Hans (25. mars 1960) er Maria El- isabeth, f. 11. júlí 1935. Foreldrar hennar eru Elof Gregor Skär- strand og Elsa Maria Skärstrand í Boxholm í Svíþjóð. Þau eiga tvo syni, þeir eru: Gunnar Hans, að- júnkt, menntaskólakennari og framkvæmdastjóri í Gautaborg, f. 12. júlí 1960, maki Karin J. Ár og tími áfram líða, enginn stöðvar þeirra skrið. Vorið 1926 er snemma gróður að vakna. Hlýir vordagar renna hjá, vorskúrir og sólargeislar vökva og verma jörðina, blómin vakna á grænum grundum og ilmur jarðar fyllir loftið með ferskum hreinum svala. Fuglasöngur ómar frá árdegi til kvölds og verður í vorblíðunni samfelldur dýrðarhljómur. Sól er á lofti langt á kvöld fram og rís árla dags aftur eins og eftir örstutta hvíld. En hún þarf að verma blóm og annan jarðargróður og svo ótal margt í ríki manna og dýra og má ekki vera í langri hvíld. Jörðin verð- ur þá fljótlega græn og fagurlega skreytt hinum fegursta gróðri með blómaangan langra og bjartra vor- og sumardaga. Við þessar aðstæður Guðmundur Hans Einarsson ✝ Útför elskulegs eiginmanns míns og föður okkar, ÓLAFS GUNNLAUGSSONAR læknis, Sólheimum 23, verður gerð frá Dómkirkjunni föstudaginn 6. júlí kl. 13.00. Þeir sem vilja minnast hans eru vinsamlegast beðnir að láta líknarfélög njóta þess. Sigríður Ásgeirsdóttir, Ásgeir K. Ólafsson, Ása M. Ólafsdóttir, Ágústa Ólafsdóttir, Anna Katrín Ólafsdóttir. ✝ Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, HELGA STEFÁNSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hlíð, áður til heimilis í Víðilundi 24, Akureyri, sem lést á heimili sínu, fimmtudaginn 28. júní, verður jarðsungin frá Glerárkirkju, föstudaginn 6. júlí kl. 14:00. María Jónsdóttir, Birgir Aðalsteinsson, Dómhildur Jónsdóttir, Sigurður Gunnarsson, Ingunn B. Jónsdóttir, Árni Gunnarsson, Sigríður B. Albertsdóttir, Stefán Karlsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BÁRA SIGURÐARDÓTTIR, Gullengi 27, Reykjavík, áður til heimilis á Melateigi 33, Akureyri, er látin. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Óðinn, sérstök börn, reiknings- nr. 1145-15-200342, kt. 580180-0519. Starfsfólki deildar 13e á Landspítalanum færum við þakkir fyrir góða umönnun og sérstaklega óeigingjarnt og fórnfúst starf í hennar erfiðu veikindum. Sverrir Benediktsson, Arnar Sverrisson, Guðrún Sverrisdóttir, Michael Levin, Anna Kristín Sverrisdóttir, Símon Hrafn Vilbergsson, Helga Dögg Sverrisdóttir, Sigurður Sverrisson, Kristín Hildur Ólafsdóttir, Ottó Sverrisson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hugheilar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs mannsins míns, föður okkar, stjúpföður, tengda- föður og afa, JÓNS P. ANDRÉSSONAR, Klapparstíg 1A, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sveinsína Ásdís Jónsdóttir. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORVALDUR ÞORVALDSSON bílstjóri, Núpalind 2, Kópavogi, lést á Landspítala Landakoti, þriðjudaginn 3. júli. Þorvaldur Þorvaldsson, Þorgerður Þorvaldsdóttir, Jón Helgason, Arnbergur Þorvaldsson, Hanna Margrét Geirsdóttir, Gróa María Þorvaldsdóttir, Ingólfur Garðarsson, barnabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.