Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 48
FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 186. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Fóstureyðingar einkamál  Persónuvernd hefur hafnað beiðni landlæknis um leyfi til að veita að- gang að upplýsingum úr fæðinga- skrá og gögnum um fóstureyðingar í rannsóknarskyni. » Forsíða Nýtt deiliskipulag  Samþykkt hefur verið í bæjar- stjórn Árborgar að auglýsa nýja deiliskipulagstillögu fyrir miðbæ Selfoss. » 4 Alan Johnston sleppt  Fréttaritara BBC, Alan Johnston, var í gær sleppt úr haldi öfgafullra Palestínumanna, en hann hafði verið fangi þeirra í tæpa fjóra mánuði. » 14 Hrefnur fullar af fiski  Hrefnuveiðimenn segja að þegar gert sé að hrefnum velli út úr þeim bæði þorskur og ýsa. » 2 SKOÐANIR» Staksteinar: Morgunblaðið og … Forystugreinar: Útgerð á hriplekum báti | Mismunun Ljósvaki: Sjónvarpsgláp og … UMRÆÐAN» Hvað gengur mönnum til? Sumarið og tækifærin Að vera eða vera ekki samvinnufélag Merkur viðburður í sögu Þórs Spilaborgin kaupir pýramídann Hefðbundnir nýmarkaðir varasamir Þarf Wall Street að draga í land? Verkin sýna merkin VIÐSKIPTI» 4  #5"&  -  "*  # 6   ""%$" "22  %3%  32 23 3 23 232%2 %32 %3  %3  3 23 3 23 23 %3 %3 %32 , 7 0 &  32 3 3 23 3 32 23 %3 %32 89::;<= &>?<:=@6&AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@&7"7<D@; @9<&7"7<D@; &E@&7"7<D@; &1=&&@$"F<;@7= G;A;@&7>"G?@ &8< ?1<; 6?@6=&1*&=>;:; Heitast 19°C | Kaldast 7°C  Austan og norðaust- anátt, víða 3-8 m/s. Skýjað að mestu. Upp úr hádegi er spáð rign- ingu fyrir austan. » 10 Hátíð sveittu úln- liðsbandanna hefst formlega í dag. Gestir elta uppi uppáhaldsböndin og flýja rigninguna. »41 TÓNLIST» Hróarskelda hefst SJÓNVARP» Átján ár eru síðan Sein- feld fór fyrst í loftið. »42 Brad Pitt fetar í spor eðaltöffarans Steves McQueens og hættir í bílaeltinga- leik í endurgerð Bullitt. »43 KVIKMYNDIR» Byssukúlan Brad TÓNLIST» Páll Óskar beint í annað sæti lagalistans. »40 KVIKMYNDIR» Mýrin fær góða dóma, Flatey er næst. »45 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Hætt við hjónavígslur 07.07.07 2. Þurrum góðviðriskafla að ljúka 3. Hilary á heljarþröm 4. Skagamenn lögðu Keflvíkinga… Eftir Arndísi Þórarinsdóttur arndis@mbl.is „ÞAÐ náðist ekki sátt í samráðshópi velferðar- sviðs og fulltrúa þeirra sem mótfallnir eru heim- ilinu, svo velferðarráð ákvað að höggva á hnútinn með þessum hætti,“ sagði Jórunn Frímannsdóttir um þá niðurstöðu velferðarsviðs að standa fast við ákvörðun sína að opna heimili fyrir heimilislausa karlmenn á Njálsgötu 74 eigi síðar en 1. október. Velferðarráð ákvað engu að síður að koma til móts við íbúa í götunni með því að fækka heimilismönn- um um 20%, en þeir verða nú átta en ekki tíu eins og ráð var gert fyrir. Heimilismenn sérvaldir Jórunn segir velferðarsvið þekkja vel þá ein- staklinga sem nýti sér þjónustu félagsmálayfir- valda og sé því sviðið vel í stakk búið til að velja heimilismenn sem séu viljugir til að breyta lífi sínu til batnaðar. Hún segir að reynsla velferðarsviðs sýni að enginn þurfi að óttast nábýli við heimilið. Jórunn kveður þörfina fyrir heimili sem þessi brýna, að meðaltali séu 40-60 karlmenn heimilis- lausir í Reykjavík. Fyrir liggi að fleiri heimili á borð við þetta, t.d. fyrir geðfatlaða, verði opnuð á komandi árum, enda sé það í samræmi við nútíma- leg meðferðarúrræði að einangra ekki þá sem minna mega sín. Hún segir það von velferðarsviðs að borgarbúar taki heimilum á borð við það á Njálsgötu vel í framtíðinni. „Það er alveg hrika- legt hvernig er komið fram við okkur, síðasta fundi nefndarinnar lauk með því að koma átti á fundi nefndarmeðlima með borgarstjóra,“ sagði Pétur Svavarsson, annar fulltrúi íbúa í samráðs- hópnum. „Svo var ég bara vakinn með því í [gær- ]morgun að fjölmiðlarnir voru farnir að hringja af því að þeim hafði verið tilkynnt um ákvörðunina. Okkur íbúafulltrúunum var aldrei tilkynnt um hana. Þetta er bara eins og í gömlu ráðstjórn- arríkjunum.“ Pétur rifjar upp að samráðshópurinn hafi verið stofnaður að frumkvæði borgarstjóra og hafi átt að kynna honum niðurstöður viðræðna, en nú hafi velferðarráð leyst upp hópinn án þess að borg- arstjóri hafi komið að málinu. Stefnt er að því að íbúaráð hverfisins þingi öðrum hvorum megin við helgi. Lögfræðingur íbúa hafi þegar komist að þeirri niðurstöðu að framkvæmdin sé ólögleg. Heimili skal víst opnað Velferðarráð Reykjavíkur hefur ákveðið að opna heimili fyrir heimilislausa karlmenn við Njálsgötu í haust, þrátt fyrir mikla andstöðu íbúa í hverfinu Morgunblaðið/RAX Úlfúð Mikill styr hefur staðið um opnun heimilis fyrir heimilislausa á Njálsgötu 74 síðustu vikur. ÞESSA dagana er dans stiginn á kirkjuloftinu í Siglufirði, en þar er nú haldið námskeið á vegum Þjóð- lagahátíðarinnar í Siglufirði í sam- vinnu við Kennaraháskóla Íslands sem ber nafnið Þjóðlagaakademí- an. Markmið námskeiðsins eru m.a. að nemendur fái glögga mynd af heimi íslenskra þjóðlaga, þjóð- kvæða, þjóðdansa og þekki þjóð- lagasöfnun séra Bjarna Þorsteins- sonar ásamt meginþáttum íslenskrar þjóðlagatónlistar. Nemendur kynnast erlendri þjóð- lagatónlist og greina í hverju sér- staða íslenskra þjóðlaga er fólgin. Á myndinni er Kolfinna Sigur- vinsdóttir að kenna sporin í viki- vaka er verið var að fjalla um viki- vaka, sagnadansa og gömlu dansana. Gunnsteinn Ólafsson, list- rænn stjórnandi Þjóðlagahátíð- arinnar, tók virkan þátt í námskeið- inu og er til hægri á myndinni. Dansspor stigin á kirkjuloftinu Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Margir á Þjóðlagahátíð í Siglufirði BJARNI Guð- jónsson, leik- maður ÍA, varð að fá lögreglu- fylgd til heim- kynna sinna eftir leik ÍA og Kefla- víkur sem áttust við á Akranesi í gær. Upp úr sauð þegar Bjarni skoraði annað mark ÍA. Hann hugðist senda bolt- ann yfir mark Keflvíkinga eftir að Suðurnesjamennirnir höfðu sparkað boltanum út fyrir hliðarlínu svo hægt væri að hlúa að meiddum leik- manni. Ekki vildi betur til en að bolt- inn sveif yfir Ómar Jóhannsson, markvörð Keflvíkinga, og í netið og þegar upp var staðið reyndist þetta sigurmark leiksins. Eftir leikinn gerðu nokkrir leikmenn Keflvíkinga aðsúg að Bjarna og kom til ein- hverra stimpinga í vallarhúsinu og var gripið til þess ráðs að fá lögreglu á staðinn. Bjarni vildi ekki tjá sig um atvikið við Morgunblaðið en Þórður, bróðir hans, sagði að það hefði alls ekki verið ætlun Bjarna að skjóta á markið og hvað þá að skora við þess- ar kringumstæður. | Íþróttir Bjarni þurfti lög- reglufylgd Upp úr sauð á leik ÍA og Keflavíkur Bjarni Guðjónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.