Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
GERT er ráð fyrir 4-6.000 kepp-
endum á landsmótinu sem verður sett
í kvöld á Kópavogsvelli. Að sögn
Björns Hermannssonar, fram-
kvæmdastjóra Landsmótsins, verða
að auki um 500 sjálfboðaliðar og talið
að tugir þúsunda muni fylgjast með.
Björn segir þátttakendur vera á öll-
um aldri: „Samkvæmt anda ung-
mennafélagsins geta allir verið með,
þó að þú sért áttræður ertu enn ung-
menni í anda.“
Mótið er nú haldið í 25. skipti og
eru keppendur frá 25 héraðssam-
böndum hvaðanæva af landinu. Jafn-
framt eru nokkrar keppnisgreinar í
boði fyrir almenning. Að sögn Björns
gengur undirbúningurinn vel „því að-
staðan í Kópavoginum er hreint frá-
bær og aldrei áður hefur mót verið
haldið við slíkar aðstæður. Bæj-
arstjórn Kópavogs hefur staðið mjög
myndarlega að þessu.“
Tilraun til heimsmets
Fjölbreytt dagskrá verður í boði
næstu daga. Annað kvöld keppa ís-
lensku nördarnir við þá sænsku í fót-
bolta á Kópavogsvelli og á laugardag-
inn verður reynt að setja heimsmet í
vatnsbyssustríði en 1.195 einstaklinga
þarf til að slá núverandi met. Keppt
verður í margvíslegum íþróttagrein-
um en á laugardaginn verður nokkuð
óvenjuleg keppni í Smáralindinni. Þá
verður keppt í pönnukökubakstri og
segir Björn sjálfa bæjarstjórafrúna í
Kópavogi verða einn keppendanna.
Sú keppni verður því miður ekki í boði
fyrir almenning heldur er hún hluti af
stigakeppni milli héraðssamtakanna.
Ekki er þó ástæða til að örvænta,
hinn almenni borgari getur spreytt
sig m.a. í götuhlaupi og knattspyrnu.
Setningarhátíðin, sem fram fer í
kvöld klukkan átta á Kópavogsvelli,
verður heldur umfangsmeiri en
venjulega, segir Björn. Í ár á UMFÍ
100 ára afmæli og því tvöfalt tilefni til
fagnaðar. Ný stúka verður vígð
ásamt minningarskildi um Sigurð
Geirdal, fyrrverandi bæjarstjóra
Kópavogs, en hann var fram-
kvæmdastjóri UMFÍ í mörg ár áður
en hann settist í bæjarstjórastólinn.
Að sögn Björns hefur keppnin ver-
ið misstór milli ára en þátttökumet
hefur verið slegið og skráningar
streyma áfram inn. Keppnin er yf-
irleitt haldin úti á landi en þar sem
hún fer nú fram í þéttbýli þurfti að
stækka hátíðina og bæta við fleiri
dagskrárliðum. „Þegar þú heldur
fermingarveislu heldur þú hana ekki
á Hótel Íslandi því ef bara 40 manns
mæta hittist fólk ekki. Þá notar mað-
ur lítinn sal. En ef það þarf að nota
Hótel Ísland þá á að fylla það af fólki
svo það njóti sín.“
Búist við tugþúsundum
á landsmótið í Kópavogi
Landsmót UMFÍ hefst
í Kópavogi í dag. Þar
verður m.a. keppt í
frjálsum íþróttum,
vatnsbyssustríði og
pönnukökubakstri.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Lokahönd Undirbúningur Landsmóts UMFÍ stóð sem hæst í gær þegar ljósmyndara bar að garði. Þessar stúlkur
voru að skerpa línurnar á Kópavogsvelli en íslensku nördarnir munu keppa við þá sænsku í fótbolta annað kvöld.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ný stúka Á setningarhátíðinni í kvöld verður ný og glæsileg stúka vígð
ásamt minningarskildi um Sigurð Geirdal, fyrrum bæjarstjóra Kópavogs.
KATRÍN Júl-
íusdóttir alþing-
ismaður var val-
in formaður
þingmanna-
nefndar EFTA
og þingmanna-
nefndar EES á
fundum nefnd-
anna í Vaduz í
Liechtenstein
26.-29. júní sl.
Ísland fer í ár með forystu í nefnd-
unum tveimur og stjórnaði Katrín
fundum þeirra. Þingmannanefnd
EFTA samanstendur af þing-
mönnum frá aðildarríkjunum fjór-
um sem auk Íslands telja Noreg,
Sviss og Liechtenstein. Á fundi
nefndarinnar var einkum rætt um
málefni EES, fríverslunarsamn-
inga EFTA og vinnu að nýjum
sáttmála ESB sem koma mun í
stað fyrirhugaðrar stjórnarskrár
sambandsins. Í þingmannanefnd
EES sitja annars vegar þingmenn
frá EFTA-ríkjunum og hins vegar
frá Evrópuþinginu.
Helstu mál sem tekin voru fyrir
á fundi nefndarinnar voru þróun
og framkvæmd EES-samningsins
og stefnumótun ESB um málefni
sjávar og siglinga.
Þá stjórnaði Katrín einnig fundi
þingmannanefndar og ráðherra-
ráðs EFTA-ríkjanna.
Formaður
þingmanna-
nefndar
Katrín
Júlíusdóttir
SÓLVEIG Þor-
valdsdóttir jarð-
skjálftaverkfræð-
ingur hélt til
Pakistans í dag til
neyðarstarfa á
vegum Rauða
kross Íslands
vegna flóða í suð-
urhluta landsins.
Gífurlegt úrfelli
hefur verið á
þessum slóðum síðan í síðustu viku
og er óttast að um 250 manns hafi
farist í héraðinu Baluchistan og í
hafnarborginni Karachi. Talið er að
allt að 250.000 manns í Baluchistan
hafi misst heimili sín í flóðunum.
Sólveig er í níu manna neyðar-
teymi Alþjóðasambands Rauða
krossins sem hélt utan í dag til að að-
stoða pakistanska Rauða hálfmán-
ann við neyðaraðstoðina. Sjálfboða-
liðar Rauða hálfmánans hafa verið
að störfum á hamfarasvæðunum frá
því í síðustu viku.
Sólveig hefur starfað um árabil að
neyðarvörnum hérlendis, og svo er-
lendis fyrir Sameinuðu þjóðirnar.
Þetta er í annað sinn sem hún starfar
fyrir Rauða krossinn, en Sólveig
vann við neyðaraðstoð á Filippseyj-
um um síðustu jól vegna mikilla
flóða.
Til neyðar-
starfa
í Pakistan
Sólveig
Þorvaldsdóttir
LÖGREGLAN frelsaði í gærkvöldi
mann úr höndum tíu manna í fé-
lagshúsnæði þekkts mótorhjóla-
klúbbs á Hverfisgötu. Gengið hafði
verið í skrokk á manninum þar inn-
andyra, en lögreglan fékk tilkynn-
ingu utan úr bæ um að verið væri að
berja einhvern í húsnæðinu. Lög-
reglan brást við og fór á umræddan
stað, ruddist inn og var þá fórnar-
lambið á valdi mannanna og hafði
verið misþyrmt. Tímenningarnir
voru handteknir og settir í fanga-
geymslur sem þar með fylltust hjá
lögreglu. Eftir er að kanna hvað lá að
baki þessum barsmíðum.
Ruðst inn á
ofbeldismenn
♦♦♦
♦♦♦
Þúsundir manna á leið í Kópavoginn
VEFVARP mbl.is