Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 40
Þó settust 76 milljónir
manna fyrir framan
sjónvarpið annan dag jóla og
horfðu á lokaþáttinn …43
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
LÍTIÐ hefur spurst til Steinars
Orra Fjeldsted í íslensku tónlistarlífi
síðan hann rappaði af miklum móð
með hljómsveitinni Quarashi. Um
helgina verður þó breyting þar á því
hann ætlar að koma fram í fyrsta
sinn með nýrri hljómsveit sinni, sem
ber heitið Kidrama.
„Ég er búinn að vera að semja al-
veg stöðugt síðan Quarashi hætti og
hljómsveitin kemur til með að leika
einungis efni eftir mig,“ upplýsti
Steinar í samtali við Morgunblaðið í
gær. Hann vildi hins vegar ekki gefa
upp hverjir skipuðu hina nýju hljóm-
sveit með honum eða hvers konar
hljóðfæri þeir léku á en sagði að lið-
skipan væri að komast á hreint.
„Já bandið verður komið saman
fyrir laugardaginn,“ segir Steinar og
kímir.
Það er kannski eins gott því þá
fara nefnilega fram fyrstu tónleikar
sveitarinnar. Tónleikarnir bera yf-
irskriftina Sound of Geysir, sem gef-
ur sterklega til kynna staðsetningu
tónleikanna.
Kidrama koma ekki einir fram en
auk þeirra stíga á stokk meðal ann-
ars Esja þeirra Krumma og Daníels
Ágústs og The End.
Sjálfur lýsir Steinar tónlist Ki-
drama á þennan hátt:
„Það er hægt að flokka þetta und-
ir indie-hiphop. Ég verð sjálfur í far-
arbroddi, með míkrófóna, hljómborð
og fleira auk þess að syngja og
sprella,“ segir Steinar og áréttar að
hann ætli ekki að rappa í þetta sinn.
Leyndó í Japan
Þó liðskipan Kidrama liggi ekki
opinberlega fyrir er ýmislegt á dag-
skránni hjá þessari dularfullu hljóm-
sveit. „Í september kemur út
þröngskífa með sveitinni sem inni-
heldur fimm lög. Þau eru næstum
tilbúin,“ segir Steinar.
„Svo ætlum við að halda útgáfu-
tónleika auk annarra tónleika.“
Á stefnuskrá sveitarinnar er tón-
leikaferð til Japans.
Hvernig kom það til?
„Það er leyndó,“ segir hinn dul-
arfulli Steinar en bætir þó við:
„Ég þekki fólk úti sem hefur heyrt
tónlistina mína og leist vel á og ætla
þess vegna að bjóða mér yfir.“
Dularfull hljómsveit
Morgunblaðið/Sverrir
Dramadrengur? Steini, eins og hann er kallaður, er hvergi nærri hættur í tónlistinni og ætlar sér langt með sitt nýjasta verkefni Kidrama.
Fyrrum Quarashi-rapparinn Steinar Orri Fjeldsted snýr aftur með Kidrama
myspace.com/kidrama7
Innipúkinn
svokallaði hefur
heldur betur
skotið rótum sín-
um niður í mal-
bikið hér í höf-
uðborginni um
verslunar-
mannahelgina.
Og á meðan
óharðnaðir unglingar berja niður
tjaldhæla í rigningarsudda og roki
ganga borgarbörnin fylktu liði inn í
myrkvaða rokkkompu þar sem þau
kinka kolli í takt. Undanfarin ár
hefur Innipúkinn flakkað á milli
Iðnó og NASA en í ár flyst hann yf-
ir í Veltusund þar sem nýr tónleika-
staður, Naustin, opnar bráðlega.
Enn er ekki ljóst hvaða sveitir
troða upp en dagskráin ætti að
skýrast innan tíðar.
Innipúkinn finnur sér
nýjan íverustað
Lagið „Milljarðamæringurinn“
sem er flutt af Ladda og Millj-
ónamæringunum er komið í spilun
og er nú fáanlegt á Tónlist.is. Millj-
ónamæringarnir, sem halda upp á
15 ára afmæli sitt nú í sumar, eru
að ljúka vinnu við nýja plötu um
þessar mundir. Þar kemur fjöldi
söngvara við sögu eins og við er að
búast úr þeirra herbúðum og má
þar helsta nefna Bogomil Font,
Ragnar Bjarnason, Bjarna Arason,
Stefán Hilmarsson og þúsundþjala-
smiðinn Ladda, sem er nýjasta við-
bótin við söngvaraflóru Millj-
ónamæringanna.
Milljónamæringarnir og
Laddi með nýtt lag