Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 15 YFIR 1200 heittrúaðir stúdentar, sem hafa mánuðum saman haft á sínu valdi Rauðu moskuna í Islama- bad, höfuðborg Pakistan, gáfust í gær upp fyrir hermönnum eftir blóðug átök. Um 200 stúdentar voru sagðir vera enn í byggingunni, þeir krefjast þess að ströngustu lög íslams skuli gilda í landinu. Reuters Við moskuna Hermaður á verði yf- ir heittrúarstúdentunum í gær. Yfir 1200 gáfust upp París. AFP. | Hópur mannfræðinga við Max Planck- stofnunina þýsku lagði nýlega próf fyrir fimm kven- kyns órangútan-apa og stóðust dýrin það með prýði. Gómsæt hneta var látin fljóta í uppmjórri krús með vatni, hún var fyllt að einum fjórða. Vatnsborðið var svo lágt að aparnir gátu ekki klófest hnetuna, krúsin var úr óbrjótanlegu efni, engin prik eða önnur áhöld voru á staðnum sem hægt var að nota til að veiða hnetuna úr vatninu. En nóg vatn á staðnum. Það tók apynjurnar að meðaltali níu mínútur að finna lausn- ina, þ.e. súpa nokkrum sinnum slatta af vatni og skyrpa því í krúsina þar til vatnsborðið var orðið nógu hátt. Eftir að hafa fengið verkefnið 10 sinnum þurftu þær aðeins um 30 sekúndur til að átta sig. Bara hugsa sig aðeins um RÚSSNESKIR ráðamenn gáfu í gær í skyn að þeir kynnu að bregð- ast við fyrirhuguðum bandarískum gagnflaugum í Póllandi og Tékk- landi með því að setja upp eld- flaugar á Kalíníngrad-svæðinu. Rússar hóta BANDARÍSKIR hermenn, studdir af herflugvélum, eru sagðir hafa fellt 35 uppreisnarmenn í þriggja daga herferð við borgina Baquba. Svæðið er eitt hið hættulegasta í Írak. Felldu 35 GORDON Brown, nýr forsætisráð- herra Bretlands, vill að tekin verði skref í átt að ritaðri stjórnarskrá fyrir þjóðina. Bretar eiga enga slíka skrá, stjórn- og lagakerfið byggist á gömlum hefðum. Rituð skrá? „ÞAÐ er búið að smita þig og búið er að eyða öllum skjölunum þínum. Fyrirgefðu. Hafðu það gott og bless.“ Þannig eru skilaboðin frá tölvuþrjótum sem fylgja einni veir- unni – úr hátölurum tölvunnar! Illkvittni BANDARÍKJAMENN héldu þjóðhátíðardag sinn, 4. júlí, hátíðlegan víða um heim í gær og var Írak þar engin undantekning. Tákngervingur Bandaríkjanna, Sámur frændi, birtist í herbúðunum Baqouba í gær til að blása bandarísku hermönnunum þar þjóðarstolti í brjóst, en búðirnar eru um 60 km norðaustur af Bagdad. Reuters Sámur frændi kemur í heimsókn London. AP, AFP. | Bresk stjórnvöld ætla í kjölfar hryðjuverkatilraun- anna um sl. helgi að herða eftirlit með fagmenntuðum útlendingum, sem fá vinnu í landinu, að sögn Gord- ons Browns forsætisráðherra. Um 75.000 af alls 240.000 skráðum lækn- um í Bretlandi fengu menntun sína í öðrum löndum, þar af 1.985 í Írak og 184 í Jórdaníu. Einn af tilræðismönnunum sem nú eru í haldi er læknir frá Írak og annar er læknir frá Jórdaníu, fólkið er allt frá Miðausturlöndum eða Ind- landi. Nokkrir voru á skrá leyniþjón- ustunnar, MI5, vegna tengsla við ísl- amska ofstækismenn, Talið er víst að tilræðin hafi verið skipulögð með löngum fyrirvara, jafnvel fyrir ári. Breskur mótmæl- endaprestur, Andrew White, sem starfar í Bagdad í Írak, sagðist hafa hitt háttsettan mann úr röðum hermdarverkasamtakanna al-Qaeda á fundi í Jórdaníu í apríl. „Hann sagði einu sinni í samtal- inu: Þeir sem lækna ykkur munu drepa ykkur,“ sagði White. Hann sagðist fyrst núna skilja hvað mað- urinn hafi átt við. Bretar herða reglur Sævarhöfða 2 / Sími 525 8000 / www.ih.is / Opið: Mán frá kl. 10 - 18 og þri til fös frá kl. 9 - 18. E N N E M M / S ÍA / N M 2 8 4 0 6 KOMDU OG REYNSLUAKTU!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.