Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
Alan Johnston, fréttaritaribreska ríkisútvarpsins,BBC, á Gasa-svæðinu líktií gær dvöl sinni í haldi
mannræningja við að vera „grafinn
lifandi“. Johnston var sleppt úr haldi
aðfaranótt miðvikudags eftir að hafa
verið haldið föngnum í 114 daga.
Ljóst er að þrýstingur af hálfu ráða-
manna Hamas-hreyfingarinnar, sem
nú stjórnar Gasa, varð einkum til
þess að Johnston fékk frelsið.
Johnston, sem er 45 ára, var
þreytulegur og nokkuð tekinn er
hann ræddi við fjölmiðla en sýndi
jafnframt í hvívetna þá yfirvegun,
sem jafnan hefur einkennt frétta-
flutning hans. Johnston kvaðst hafa
sætt einangrun um tíma og jafnframt
hefðu ræningjarnir brugðið hettu yf-
ir höfuð honum og hótað að myrða
hann. Þetta hefði verið skelfileg
reynsla. „Þetta voru mjög hættulegir
og óútreiknanlegir menn. Þeir
ræddu um að drepa mig og pynta. Ég
var ekki viss hvort ég ætti að taka
þær hótanir alvarlega. Í eitt skiptið
handjárnuðu þeir mig um miðja nótt
og fóru með mig út,“ sagði Johnston,
sem þó kvað ræningjana hafa leyft
honum að fylgjast með fréttum BBC.
Breska ríkisútvarpið blés til mikillar
herferðar Johnston til stuðnings er
honum var rænt og hafa fjölmargir,
m.a. fyrrum gíslar í Mið-Aust-
urlöndum, sent honum kveðjur, sem
heimsþjónusta BBC hefur varpað út,
auk þess um 200.000 manns undirrit-
uðu áskorun til ræningjanna um að
sleppa honum úr haldi. BBC beitti
öllum skriðþunga sínum og aðgangi
að ráðamönnum í Palestínu, Bret-
landi og víðar og víða um heim hafa
farið fram fundir honum til stuðn-
ings. Blaðamenn í Palestínu hafa
t.a.m. ítrekað efnt til funda til að
þrýsta á ræningjana.
Samtök, sem nefnast Her íslams,
rændu Johnston er hann var á leið
heim úr vinnu á Gasa-svæðinu 12.
mars. Fljótlega varð ljóst að helsta
von um björgun hans fólst í að unnt
reyndist að fá Hamas-samtökin til að
beita áhrifum sínum. Eftir að klofn-
ingur í röðum Palestínumanna náði
því stigi að þjóðstjórn Mahmoud
Abbas forseta leystist upp hafa
Hamas-samtökin tekið öll völd á
Gasa. Alan Johnston sagði að þessi
rás atburða hefði sýnilega haft áhrif
á mennina, sem höfðu hann á valdi
sínu. Hann kvaðst hafa óttast að
sveitum á vegum Hamas yrði falið að
gera árás í því skyni að frelsa hann.
„Ég vissi ekki hvernig þeir myndu
bregðast við. Ég velti fyrir mér hvort
þeir myndu nota mig sem eins konar
skjöld,“ sagði Johnston. Í máli hans
kom fram að ræningjarnir hefðu ekki
beitt hann beinu ofbeldi fyrr en undir
lokin þegar hann sætti barsmíðum,
sem þó reyndust ekki alvarlegar.
Ræningjarnir birtu þrjú myndskeið
af Johnston þegar hann var í haldi. Á
einu þeirra sást hann bera sprengju-
belti svipað þeim, sem notuð eru til
sjálfsmorðsárása víða í þessum
heimshluta.
Johnston snæddi í gær morg-
unverð með Ismail Haniya, leiðtoga
Hamas og forsætisráðherra þjóð-
stjórnarinnar, sem Abbas forseti hef-
ur nú leyst frá störfum. Sagði Han-
iya, að þessi rás atburða sýndi að
hreyfingin væri staðráðin í að
tryggja öryggi og stöðugleika „í
þessum hluta heimalands okkar“ og
átti þar sýnilega við Gasa-svæðið.
Talsmaður Abbas forseta vændi á
hinn bóginn Hamas um „blekking-
arleik“, lausn Johnstons hefði verið
„sviðsett“ til að bæta ímynd samtak-
anna á alþjóðavettvangi.
Alan Johnston hafði starfað fyrir
BBC á Gasa-svæðinu í þrjú ár og
stóð til að dvöl hans þar myndi senn
ljúka er honum var rænt. Hann hefur
einn erlendra fréttaritara búið á
Gasa og nýtur virðingar sem hóf-
stilltur og vandvirkur fréttamaður. Á
Gasa-svæðinu og víðar í Palestínu
hefur glögglega komið fram á síðustu
mánuðum að alþýða manna þar kann
vel að meta störf hans.
Martröðin á enda
Foreldrar Johnstons, sem sent
höfðu frá sér ákall til Hers íslams um
að syni þeirra yrði sleppt úr haldi,
fögnuðu að vonum tíðindum þessum
mjög. Graham, faðir Alans Jo-
hnstons, sagði síðustu fjóra mánuði
hafa verið „martröð“. Johnston
ræddi við foreldra sína skömmu eftir
að honum hafði verið sleppt og sagði
á blaðamannafundi í gær að sér þætti
afar leitt að hafa þurft að leggja
þessa raun á fjölskyldu sína. Mikill
fögnuður ríkti í höfuðstöðvum BBC
og bar talsmaður stofnunarinnar lof
á Ismail Haniya, Abbas forseta og
alla þá, sem stuðlað hefðu að farsælli
lausn málsins. Í máli hans kom fram,
að stofnunin hefði ekki greitt lausn-
argjald fyrir Johnston. Kvað tals-
maðurinn ljóst, að mannránið bæri
að setja í samhengi palestínskra
stjórnmála án þess að skýra frekar
þau ummæli sín.
„Líkast því að vera grafinn lifandi“
Alan Johnston, fréttaritari breska ríkisútvarpsins, BBC, á Gasa-svæðinu, segir það hafa verið skelfi-
lega lífsreynslu að vera fjóra mánuði á valdi mannræningja, sem hótuðu að pynta hann og drepa
Í HNOTSKURN
»Alan Johnston fæddist 17.maí 1962 í Lindi í Tansan-
íu. Hann stundaði háskólanám
í Skotlandi.
»Johnston gekk til liðs viðBBC árið 1991 eftir að
hafa lokið framhaldsnámi á
sviði blaðamennsku í Cardiff.
Hann var fréttaritari í Úsbek-
istan 1993-1995 og í Kabúl í
Afganistan 1997-1998. Hann
hélt til Gasa í apríl 2004.
Johnston er ókvæntur og
barnlaus.
Reuters
Hlutverkaskipti Alan Johnston ræðir við fréttamenn í gær í Jerúsalem.
Sami mislyndi vörðurinn gætti Johnstons í myrkrastofu í 114 daga.
SANN
LEIKUR!
Nissan Pathfinder Adventure er fullbúinn bíll*
4.950.000 kr.
• Vindskeið
• Litað gler
• Regnskynjari
• Þokuljós
• 33” breyting
• Sérsmíðaðar álfelgur
• 7 manna
• Sjálfskipting
• 174 hestafla díselvél
• 3000 kg dráttargeta
• Cruise control
• Dráttarbeisli
• 6 diska CD spilari
• Húddhlíf
Nissan Pathfinder ADVENTURE SE*