Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 22
hýsum viðskiptanna og fólk sem virðist í raun gefa sér tíma til að tjá öll þessi orð – og líka bíða eftir svari við spurningunum. Svo merkilega sem það hljómar má finna þennan hlýleika jafnvel í miðri verslunargötu, t.a.m. á hinu skemmtilega Newbury-stræti sem er eins konar samblanda af hinu notalega Striki í Kaupmannahöfn og spennandi Fimmta breiðstræti í New York. Í stuttu máli sagt sló Boston al- gerlega í gegn hjá þeim ferða- langnum sem ekki hafði heimsótt borgina fyrr á meðan hinn end- urnýjaði góð kynni af henni. Veðr- ið var indælt að mestu, glampandi sól og 25–30 stiga hiti, og ekki ónýtt að njóta geislanna á meðan maður skáskaut sér á milli á húsa; búða, kaffihúsa, veit- ingastaða, safna … Einna eftirminnilegast er sérstætt safn konu sem fædd- ist á 19. öld en hún safnaði listaverkum af greinilegu ríki- dæmi, raðaði þeim upp eins og henni þóknaðist á heimili sínu, sem í rauninni er lítil höll í kringum skrúðgarð, og opnaði það svo almenningi fyrir öld. Safnið nefndi hún Isabella Stewart Gardner Mu- seum og er hrein skemmtun að heimsækja. Og ef þú ert ekki hrifinn af söfnum ætt- irðu samt að kíkja á þetta safn! Ostakökuverksmiðjan, The Cheesecake Factory, var heimsótt tvisvar því aðrar eins tertur er varla hægt að hugsa sér; þvílíkt lostæti. Nokkrum skrefum frá miðbænum gat maður svo horfið inn í fallega almenningsgarða meðfram Beacon-stræti, þar sem Cheers-bar samnefndra sjón- varpsþátta er til húsa. Mögu- leikarnir eru hreinlega enda- lausir til skemmtunar og afþreyingar. Já, mann langar aftur til Boston, lands stórra hug- mynda til „álfalegra“ hluta. Allt til alls Það sem fyrir augu ber á markaðssvæðinu við Faneuil Hall er himneskt í augum einhverra: Sólarylur, nærfatabúðin Victoria’s Secret á næsta leiti, skóbúðir og konfektbúðin Godiva. Búa álfar virkilega á Ís-landi?“ spyr stórvaxinsölukona hjá Armani-snyrtivörudeildinni í Saks Fifth Avenue. „Ég var að horfa á heimildaþátt sem sagði frá furðulegum álfum í stórfenglegum klettum.“ Stór augun leita sönn- unar hjá tveimur ferðafélögum frá Íslandi, sem myndu tæplega telj- ast til álfa en gætu alveg eins átt heima í WNBA-körfuboltadeild- inni, um leið og hún fer fimum höndum um andlit annars þeirra. „Jú, amma mín sá einu sinni huldufólk,“ viðurkennir hinn ferða- félaginn í stríðnisskapi, segjandi aðeins hálfan sannleikann. Augu snyrtidömunnar verða enn stærri. Boston-búinn vill næst vita hvort frónskum bregði nokkuð við að sjá svartan hörundslit – sem er jafn álfaleg spurning og sú fyrri – og mótmælir þeirri áráttu fólks að vilja vera einhver annar en maður er (sem hún verður vitni að í starfi sínu): „Ég get ekki breytt mínum stóra svarta rassi!“ Hláturinn glymur í snyrtisalnum. Hún harð- neitar af þessum sökum að selja Íslendingum dekkri andlitsfarða en hvítasta tóninn í litaseríunni þegar við álpumst til að biðja um slíkt í tilefni sumarsins. Já, Armani skal það vera í Bandaríkjunum, inn á milli alls hins, í landi úrvals og fjölbreytni. Nú þegar heim er komið þarf mað- ur ekki annað en að líta á risastór- an Extra-tyggjópakkann keyptan í 7Eleven á Tremont-götu til að komast aftur til Boston. Í Banda- ríkjunum er allt stórt og margt umfram: maturinn, bílarnir, fólk- ið … m.a.s. orðin virðast of mörg: „How are you?/ Did you find eve- rything?/All set?“ Orðin skella á íslensku fólki sem er uppálagt að vera oftast þumbaralegt og verður munurinn líklegast hvað aug- ljósastur á veitingastöðum; í bandarískri borg gleymist maður ekki úti í horni, frekar að maður fái „of mikla“ þjónustu. Rólega spennandi Margir eru reyndar þeirrar skoðunar að öll þessi bandarísku orð séu innihaldslaust óþarfa mas (til hvers að kalla úr hótelmót- tökunni í margra metra fjarlægð hvernig maður hafi það þegar aug- ljóst er að innkaupapokarnir eru að sliga mann?!). Á hinn bóginn er það einkennandi fyrir Boston að lífið virðist rólegra en t.d. í ná- grannaborginni New York þar sem allt kraumar af hraða. Boston hef- ur líka verið lýst sem „evrópskri“ í anda og má segja að hún sameini kostina vestan hafs og austan. Þessi gamla hafnarborg sem var stofnuð árið 1630 er mikil mennta- borg sem státar af hinum eina sanna Harvard-háskóla ásamt MIT-háskóla og iðar af lífi og sál: Græn svæði, frekar lágar heim- ilislegar byggingar ásamt fáum há- Húð og hár Það er upplagt að birgja sig upp af MAC-förð- unarvörum í kjallaranum og fara svo upp um eina hæð og fá sér sjampó, hárnæringu og aðrar húð- vörur í Kiehl’s. Shu Umera Rándýr japönsk förð- unar- og snyrtivörubúð með frá- bærum vörum. Þar fæst meðal ann- ars margverðlaunaður augnhárabrettari, rándýr, en frá- bær hreinsiolía og skrautleg gervi- augnhár svo fátt eitt sé nefnt. Hendur og fætur Það er ekki nauðsynlegt að fara með vel snyrtar hendur og fætur út til Boston því á Newbury street eru margar stofur sem bjóða upp á hand- og fótsnyrtingu. Það er mjög ódýrt að skella sér í stólinn eða um 35 dollara (um 2.300 kr.) og það sem best er að maður þarf ekki að panta tíma heldur gengur bara beint inn af götunni. Álfar í Boston Tré í borg vekja athygli manns í lendingu í Boston sem er óvenjulegt í stórborg. Skrítnara er þó að Sigurbjörg Arnarsdóttir og Þuríður Magnúsína Björnsdóttir hafi á vordögum þurft að sverja af sér huldukyn í líflegri og hlýlegri borginni. Frönsk sveitasæla Í Comptoir de famille er hægt að fá margt fal- legt fyrir heimilið í ekta frönsk- um sveitastíl. Græn borg Túristar njóta lífsins í almenningsgörðum Boston sem eru sér- lega friðsælir og er yndislegt að komast í sveitasælu í miðri stórborginni. Morgunblaðið/ÞMB Hönnun 1154 Lill Studio er áhuga- verð búð þar sem aðeins fást hand- gerðar töskur úr fallegum efnum. Einnig er hægt að velja sér efni og láta sauma fyrir sig tösku sem eru í öllum stærðum og gerðum. ferðalög 22 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Í LANDI óhófs er vel réttlætanlegt að versla í óhófi, enda ekkert óhóf í verðlaginu í Boston. Út fórum við, tvær íslenskar konur, með þann útreikning í huga að við myndum græða rúmar tíu þúsund krónur í magninnkaupum á sjamp- óbrúsum í Aveda-búðinni, litlu minna en við borguðum í flugvallarskatta, fyrir utan að við komumst út á flugpunktum. Hmmm … Nú kemur stræti eitt til sögunnar, Newbury Street, sem er versl- unargata af bestu gerð. Þar blandast saman skemmtilegar sérverslanir, kaffihús, heimsþekktir tískuhönnuðir eru þarna með sérverslanir ásamt klassískum bandarískum merkjum eins og Gap og Banana Republic. Þegar gengið er eftir götunni eru margar litlar búðir sem eru bæði í kjöllurum og uppi á fyrstu hæð húsanna þannig að maður þarf að vera vel vakandi til að missa ekki af einhverju spennandi. TENGLAR ..................................................... www.harvard.edu www.gardnermuseum.org www.1154lill.com www.cambridgesidegalleria.com www.faneuilhallmarketplace.com www.wagamama.com www.thecheesecakefactory.com Skrúbb, skrúbb Þegar maður er búinn að vera í búðarrápi allan dag- inn er ekkert yndislegara en að þvo sér um hendurnar. Það getur mað- ur gert í skemmtilegri búð sem heitir Sabon. Þar er manni boðið að skrúbba á sér hendurnar með olíu- saltskrúbbi og fá krem á eftir. Hendurnar verða silkimjúkar á eft- ir og ekki skemmir að þessar vörur ilma alveg frábærlega. Dollarinn er lágur … Vika á Spáni 13.200 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. Huyndai Getz eða sambærilegur 522 44 00 • www.hertz.is Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta frá ÍS L E N S K A /S IA .I S /H E R 3 69 19 0 4/ 07

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.