Morgunblaðið - 05.07.2007, Qupperneq 22
hýsum viðskiptanna og fólk sem
virðist í raun gefa sér tíma til að
tjá öll þessi orð – og líka bíða eftir
svari við spurningunum. Svo
merkilega sem það hljómar má
finna þennan hlýleika jafnvel í
miðri verslunargötu, t.a.m. á hinu
skemmtilega Newbury-stræti sem
er eins konar samblanda af hinu
notalega Striki í Kaupmannahöfn
og spennandi Fimmta breiðstræti í
New York.
Í stuttu máli sagt sló Boston al-
gerlega í gegn hjá þeim ferða-
langnum sem ekki hafði heimsótt
borgina fyrr á meðan hinn end-
urnýjaði góð kynni af henni. Veðr-
ið var indælt að mestu, glampandi
sól og 25–30 stiga hiti, og ekki
ónýtt að njóta geislanna á meðan
maður skáskaut sér á milli á
húsa; búða, kaffihúsa, veit-
ingastaða, safna …
Einna eftirminnilegast er
sérstætt safn konu sem fædd-
ist á 19. öld en hún safnaði
listaverkum af greinilegu ríki-
dæmi, raðaði þeim upp eins
og henni þóknaðist á heimili
sínu, sem í rauninni er lítil
höll í kringum skrúðgarð, og
opnaði það svo almenningi
fyrir öld. Safnið nefndi hún
Isabella Stewart Gardner Mu-
seum og er hrein skemmtun
að heimsækja. Og ef þú ert
ekki hrifinn af söfnum ætt-
irðu samt að kíkja á þetta
safn! Ostakökuverksmiðjan,
The Cheesecake Factory, var
heimsótt tvisvar því aðrar eins
tertur er varla hægt að hugsa
sér; þvílíkt lostæti. Nokkrum
skrefum frá miðbænum gat
maður svo horfið inn í fallega
almenningsgarða meðfram
Beacon-stræti, þar sem
Cheers-bar samnefndra sjón-
varpsþátta er til húsa. Mögu-
leikarnir eru hreinlega enda-
lausir til skemmtunar og
afþreyingar.
Já, mann langar aftur til
Boston, lands stórra hug-
mynda til „álfalegra“ hluta.
Allt til alls Það sem fyrir augu ber á markaðssvæðinu við Faneuil Hall er himneskt í augum einhverra: Sólarylur,
nærfatabúðin Victoria’s Secret á næsta leiti, skóbúðir og konfektbúðin Godiva.
Búa álfar virkilega á Ís-landi?“ spyr stórvaxinsölukona hjá Armani-snyrtivörudeildinni í
Saks Fifth Avenue. „Ég var að
horfa á heimildaþátt sem sagði frá
furðulegum álfum í stórfenglegum
klettum.“ Stór augun leita sönn-
unar hjá tveimur ferðafélögum frá
Íslandi, sem myndu tæplega telj-
ast til álfa en gætu alveg eins átt
heima í WNBA-körfuboltadeild-
inni, um leið og hún fer fimum
höndum um andlit annars þeirra.
„Jú, amma mín sá einu sinni
huldufólk,“ viðurkennir hinn ferða-
félaginn í stríðnisskapi, segjandi
aðeins hálfan sannleikann. Augu
snyrtidömunnar verða enn stærri.
Boston-búinn vill næst vita hvort
frónskum bregði nokkuð við að sjá
svartan hörundslit – sem er jafn
álfaleg spurning og sú fyrri – og
mótmælir þeirri áráttu fólks að
vilja vera einhver annar en maður
er (sem hún verður vitni að í starfi
sínu): „Ég get ekki breytt mínum
stóra svarta rassi!“ Hláturinn
glymur í snyrtisalnum. Hún harð-
neitar af þessum sökum að selja
Íslendingum dekkri andlitsfarða en
hvítasta tóninn í litaseríunni þegar
við álpumst til að biðja um slíkt í
tilefni sumarsins.
Já, Armani skal það vera í
Bandaríkjunum, inn á milli alls
hins, í landi úrvals og fjölbreytni.
Nú þegar heim er komið þarf mað-
ur ekki annað en að líta á risastór-
an Extra-tyggjópakkann keyptan í
7Eleven á Tremont-götu til að
komast aftur til Boston. Í Banda-
ríkjunum er allt stórt og margt
umfram: maturinn, bílarnir, fólk-
ið … m.a.s. orðin virðast of mörg:
„How are you?/ Did you find eve-
rything?/All set?“ Orðin skella á
íslensku fólki sem er uppálagt að
vera oftast þumbaralegt og verður
munurinn líklegast hvað aug-
ljósastur á veitingastöðum; í
bandarískri borg gleymist maður
ekki úti í horni, frekar að maður
fái „of mikla“ þjónustu.
Rólega spennandi
Margir eru reyndar þeirrar
skoðunar að öll þessi bandarísku
orð séu innihaldslaust óþarfa mas
(til hvers að kalla úr hótelmót-
tökunni í margra metra fjarlægð
hvernig maður hafi það þegar aug-
ljóst er að innkaupapokarnir eru
að sliga mann?!). Á hinn bóginn er
það einkennandi fyrir Boston að
lífið virðist rólegra en t.d. í ná-
grannaborginni New York þar sem
allt kraumar af hraða. Boston hef-
ur líka verið lýst sem „evrópskri“ í
anda og má segja að hún sameini
kostina vestan hafs og austan.
Þessi gamla hafnarborg sem var
stofnuð árið 1630 er mikil mennta-
borg sem státar af hinum eina
sanna Harvard-háskóla ásamt
MIT-háskóla og iðar af lífi og sál:
Græn svæði, frekar lágar heim-
ilislegar byggingar ásamt fáum há-
Húð og hár Það er upplagt að
birgja sig upp af MAC-förð-
unarvörum í kjallaranum og fara
svo upp um eina hæð og fá sér
sjampó, hárnæringu og aðrar húð-
vörur í Kiehl’s.
Shu Umera Rándýr japönsk förð-
unar- og snyrtivörubúð með frá-
bærum vörum. Þar fæst meðal ann-
ars margverðlaunaður
augnhárabrettari, rándýr, en frá-
bær hreinsiolía og skrautleg gervi-
augnhár svo fátt eitt sé nefnt.
Hendur og fætur Það er ekki
nauðsynlegt að fara með vel
snyrtar hendur og fætur út til
Boston því á Newbury street eru
margar stofur sem bjóða upp á
hand- og fótsnyrtingu. Það er mjög
ódýrt að skella sér í stólinn eða um
35 dollara (um 2.300 kr.) og það
sem best er að maður þarf ekki að
panta tíma heldur gengur bara
beint inn af götunni.
Álfar í Boston
Tré í borg vekja athygli manns í lendingu í Boston sem er óvenjulegt í stórborg.
Skrítnara er þó að Sigurbjörg Arnarsdóttir og Þuríður Magnúsína Björnsdóttir
hafi á vordögum þurft að sverja af sér huldukyn í líflegri og hlýlegri borginni.
Frönsk sveitasæla Í Comptoir de
famille er hægt að fá margt fal-
legt fyrir heimilið í ekta frönsk-
um sveitastíl.
Græn borg Túristar njóta lífsins í almenningsgörðum Boston sem eru sér-
lega friðsælir og er yndislegt að komast í sveitasælu í miðri stórborginni.
Morgunblaðið/ÞMB
Hönnun 1154 Lill Studio er áhuga-
verð búð þar sem aðeins fást hand-
gerðar töskur úr fallegum efnum.
Einnig er hægt að velja sér efni og
láta sauma fyrir sig tösku sem eru í
öllum stærðum og gerðum.
ferðalög
22 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Í LANDI óhófs er vel réttlætanlegt að versla í óhófi, enda ekkert óhóf í
verðlaginu í Boston.
Út fórum við, tvær íslenskar konur, með þann útreikning í huga að við
myndum græða rúmar tíu þúsund krónur í magninnkaupum á sjamp-
óbrúsum í Aveda-búðinni, litlu minna en við borguðum í flugvallarskatta,
fyrir utan að við komumst út á flugpunktum. Hmmm …
Nú kemur stræti eitt til sögunnar, Newbury Street, sem er versl-
unargata af bestu gerð. Þar blandast saman skemmtilegar sérverslanir,
kaffihús, heimsþekktir tískuhönnuðir eru þarna með sérverslanir ásamt
klassískum bandarískum merkjum eins og Gap og Banana Republic.
Þegar gengið er eftir götunni eru margar litlar búðir sem eru
bæði í kjöllurum og uppi á fyrstu hæð húsanna þannig að maður
þarf að vera vel vakandi til að missa ekki af einhverju spennandi.
TENGLAR
.....................................................
www.harvard.edu
www.gardnermuseum.org
www.1154lill.com
www.cambridgesidegalleria.com
www.faneuilhallmarketplace.com
www.wagamama.com
www.thecheesecakefactory.com
Skrúbb, skrúbb Þegar maður er
búinn að vera í búðarrápi allan dag-
inn er ekkert yndislegara en að þvo
sér um hendurnar. Það getur mað-
ur gert í skemmtilegri búð sem
heitir Sabon. Þar er manni boðið að
skrúbba á sér hendurnar með olíu-
saltskrúbbi og fá krem á eftir.
Hendurnar verða silkimjúkar á eft-
ir og ekki skemmir að þessar vörur
ilma alveg frábærlega.
Dollarinn er lágur …
Vika á Spáni
13.200 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar.
Huyndai Getz eða sambærilegur
522 44 00 • www.hertz.is
Bókaðu bílinn heima
- og fáðu 500 Vildarpunkta
frá
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
E
R
3
69
19
0
4/
07