Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 45
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK NÁNARI UPPLÝSINGAR
Á SAMbio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTILEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA.
BLIND DATING kl. 8 B.i. 10 ára
SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
EVAN ALMIGHTY kl. 8 - 10 LEYFÐ
DIE HARD 4 kl. 8 - 10:30 B.i. 14 ára
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
STEFNUMÓTAMYND SUMARSINS
ÁSTIN
ER BLIND
HEFURÐU UPPLIFAÐ
HIÐ FULLKOMNA STEFNUMÓT?
eee
S.V. MBL.
"LÍFLEG SUMAR-
SKEMMTUN"
eee
L.I.B. TOPP5.IS
tv - kvikmyndir.is
eee
LIB, Topp5.is
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
B.B.A. PANAMA.IS
eeee
H.J. MBL.
eeee
F.G.G. FBL.
WWW.SAMBIO.IS
MYND OG HLJÓÐ
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
Leigjum út glæsileg áklæði yfir veislustóla
ásamt dúkum.
Einnig mjög mikið úrval af skreytingarvörum
fyrir veislusalinn og glæsilegar gestabækur
Sófalist - Garðatorgi - Garðabæ
www.sofalist.is - S 553 0444
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Breiðagerði 14 - Vogum
Heilsárshús á eignarlóð
Opið hús í dag frá kl. 17-18
182 fm tvílyft heilsárshús í Vogum,
Vatnsleysustrandarhreppi, aðeins í
15 mín. akstursfjarlægð frá Hafnar-
firði. Húsið er timburhús á stein-
steyptri plötu og selst fullfrágengið
að utan og fokhelt að innan. Gert
er ráð fyrir heitum potti í öðrum
turninum og arni í stofu á neðri
hæð. Lóðin er eignarlóð 1.500 fm
að stærð með fallegu sjávarútsýni. Einstakt hús sem er engu öðru
líkt. Sjón er sögu ríkari.
Verð: tilboð.
Eignin verður til sýnis í dag, fimmtudag, frá kl. 17-18.
Sölumaður verður á staðnum, sími 821 0626.
Verið velkomin.
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
MÝRIN hefur fengið fjóra lofsam-
lega dóma í kjölfar sýninga á hátíð-
inni í Karlovy Vary. Hæst ber hve
Variety, ein helsta biblía Holly-
wood, gefur mynd Baltasars Kor-
máks góða umsögn og segir Eddie
Cockrell, gagnrýnandi blaðsins, að
vel takist að „blanda deilum um
erfðagagnagrunna beint úr forsíðu-
fréttunum við íslenskan örlaga-
hyggju-stóisma.“ Þá þykir honum
öll tæknivinna til fyrirmyndar.
Ullarpeysa, öldrykkja
og regnfrakki
Gagnrýnendur Screen Daily,
European.films.net og Britské listy
í Tékklandi eru einnig hrifnir. Ull-
arpeysa Erlends og keðjureyk-
ingar minna tékkneska gagnrýn-
andann helst á öldrykkju Morse
lögreglufulltrúa og skítugan regn-
frakka einkaspæjarans Colombo.
Dan Fainaru hjá Screen Daily seg-
ir þetta bestu mynd Baltasars til
þessa og Boyd van Hoeij hjá Eur-
opean-films.net sér í Mýrinni
portrett af íslensku þjóðinni sem
hann hafi aldrei séð áður.
Baltasar er mjög kátur með
dómana og vonast til þess að þetta
þýði að myndin komist lengra.
„Það er mikil harka að selja þessar
myndir á erlenda markaði og allt
svona hjálpar.“ Þegar er búið að
selja myndina til allra Norðurlanda
og til Þýskalands og þá er tilboð
komið frá Frakklandi. Búið er að
bjóða myndinni á tugi hátíða en nú
er beðið eftir svari frá einni af
stóru hátíðunum.
Gamanmynd í Flatey
En það eru fleiri járn í eldinum.
„Nú er ég að undirbúa gam-
anmynd sem ég ætla að taka upp í
Flatey í sumar,“ segir Baltasar
sem stefnir á að hefja tökur í
ágúst. Myndin heitir Brúðguminn
og sá er leikinn af Hilmi Snæ
Guðnasyni sem er um það bil að
fara að giftast stúlku tuttugu árum
yngri en hann. Myndin er gam-
anmynd með alvarlegu ívafi og
meðal annarra leikara má nefna
Margréti Vilhjálmsdóttur, Ólafíu
Hrönn Jónsdóttur, Jóhann Sigurð-
arson, Þröst Leó Gunnarsson, Ólaf
Darra Ólafsson, Laufeyju Elías-
dóttur og Ólaf Egil Egilsson, en
Ólafur Egill semur einnig hand-
ritið ásamt Baltasar.
Glaður Baltasar Kormákur gleðst
yfir góðu gengi Mýrinnar eftir að
hún hélt út í heim og hann hlakkar
til að kvikmynda Brúðgumann með
Hilmi Snæ í Flatey seinna í sumar.
Mýrin fær
rífandi dóma