Morgunblaðið - 05.07.2007, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Magn-
úsi Guðmundssyni framkvæmda-
stjóra:
„Morgunblaðið spyr í fyrirsögn
blaðsins, miðvikudaginn 4. júlí
2007, hvort stórfellt kvótasvindl sé
stundað með gámaþorsk. Uppboðs-
haldar í Grimsby og Hull eru í
greininni sakaðir um þátttöku í
stórkostlegu svindli.
Undirritaður er framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins Atlantic Fresh
ltd., sem annast um 90% af sölu
alls íslensks ferskfisks, sem seldur
er í gegnum uppboðsmarkaðina í
Hull og Grimsby. Svar við spurn-
ingu Morgunblaðsins er að ekkert
kvótasvindl er stundað með gáma-
þorsk, en spurt er hvað liggur að
baki fréttaskýringu, sem skrifuð er
án hugsunar.
Ferill sölu fersk fisks í Hull og
Grimsby, sem seldur er óvigtaður
frá Íslandi er eftirfarandi:
a) Skipstjóri fiskiskips skráir
veiddan fisk í afladagbók skips-
ins og afhendir afladagbókina til
Fiskistofu.
b) Sá hluti afla eða allur afli, sem
settur er í gám til útflutnings,
er tilkynnt um til Fiskistofu, af
skipstjóra fiskiskips, áður en
gámur er brúttóvigtaður í lönd-
unarhöfn. Skipstjóri tilkynnir
um magn og fisktegund til
Fiskistofu, sem tilkynnir um það
magn og tegund sem senda á
með gámi, inn á heimasíðu
Fiskistofu, 24 klukkutímum áð-
ur en gámur er sendur úr landi.
Þannig geta innlendir kaupend-
ur fisks keypt fisk í gámi, áður
en fiskur er sendur á markað
erlendis, ef verð eru samkeppn-
ishæf við áætluð markaðsverð í
Bretlandi.
c) Gámi er lokað og skráð innsigli
skipafélags sett á gáminn. Skip-
stjóri fiskiskips tilkynnir Fiski-
stofu um innihald gámsins, á
sérstöku eyðublaði Fiskistofu.
Starfsmenn Fiskistofu í Hull eða
Grimsby, hafa einir heimild til
þess að rjúfa innsigli fyrir losun
gáms og fylgja eftir að fiskteg-
und í gámi sé í körum talið hin
sama og Fiskistofa hafði til-
kynnt eftirlitsmönnum í Bret-
landi.
d) Á markaði er hver fiskur, sem
úr gámi kemur, flokkaður og
veginn og er því um raunvigt og
rauntegund að ræða en ekki úr-
taksvigt.
Fishgate markaðurinn í Hull, sem
annast sölu á stórum hluta þess
afla íslenskra skipa sem fluttur er
til Bretlands, er í dag tæknivædd-
asti og fullkomnasti fiskmarkaður í
Evrópu. Fiskur er flokkaður og
vigtaður með íslenskum hátækni-
búnaði, ásamt því að vera seldur á
rafrænu gegnsæju formi til kaup-
enda víða um Bretland og í Evr-
ópu. Kaupendur á markaði kaupa
ákveðna fisktegund sem þeir selja
neytanda. Fullkominn rekjanleika
sölu og uppboðskerfis gerir það
kleift að rekja má tegund fisks til
einstakra íslenskra fiskiskipa.
Í faglegum fréttaskýringum blaða-
manna dagblaða og tímarita, sem
vilja teljast hlutlausir og ábyrgir,
er fjallað um málefni þannig að rök
og staðreyndir máls eru rakin.
Þróun reglna sem um málaflokk
gilda, er rakin og umfjöllun mál-
efnanleg og sanngjörn. Í umræddri
fréttaskýringu er varpað fram full-
yrðingum og spurningarmerkjum
skeytt aftan við fullyrðingu, því til
viðbótar eru orð eins og orðin „ef“
og „sennilega“, notuð og dregnar
ályktanir af því ef hlutirnir væru
eins og blaðamaður telur sennilegt.
Það er útilokað annað en að lesa
slíka grein blaðamanns sem spjall,
orðið fréttaskýring á ekki við.“
Fréttaskýring án skýringa
Fréttir á SMS
STJÓRN Landssamtaka sauðfjáraf-
urða (LS) hefur ákveðið lágmarks-
verð sauðfjárafurða fyrir sláturtíð í
haust. Viðmiðunarverðskráin hækk-
ar um 7,5% frá viðmiðunarverði LS
frá árinu 2006.
„Stjórn LS leggur áherslu á að hér
er um algjört lágmarksverð að
ræða,“ segir í ályktun stjórnarinnar.
Viðmiðunarverðið er gefið út sam-
kvæmt heimild í búvörulögum. Þá
gengur stjórn LS út frá því að út-
flutningsverð hækki einnig um 7,5%
og verði að lágmarki kr. 237 á kg.
Verð á sauðfé til slátrunar ræðst á
markaði. Sláturleyfishafar hafa enn
ekki gefið út hvaða verð þeir ætla að
bjóða bændum en verðið hækkaði
umtalsvert á síðasta ári. Þeir hafa
stundum greitt yfir viðmiðunarverði
bænda og stundum undir verðinu.
Markaðsráð sauðfjárafurða hefur
lagt til að útflutningsskylda verði
16% en landbúnaðarráðherra hefur
ekki tekið endanlega ákvörðun um
hver hún skuli vera.
Viðmiðunarverð
hækki um 7,5%
Bjóðum nú síðustu sætin til
Mallorca í júlí á frábæru tilboði.
Bjóðum einstök kjör á gistingu
á Club Cala D´or Park íbúða-
hótelinu á Cala D´or, 6., 13., 20
og 27. júlí. Fjölskylduvænt
íbúðahótel sem býður upp á
góða staðsetningu og notalega
stemmningu. Njóttu lífsins á
þessum vinsæla áfangastað.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Mallorca
í júlí
Sértilboð - Club Cala D´or Park
frá aðeins kr. 39.990
Aðeins örfáar íbúðir!
Verð kr. 49.990
Netverð á mann , m.v. 2 fullorðna saman í íbúð
m/1 svefnherbergi í viku. Aukavika kr. 14.000.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn
saman í íbúð m/1 svefnherbergi í viku.
Aukavika kr. 14.000.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 17:30-19:00
JÖKLASEL 1 - 1. HÆÐ
Björt og falleg 3ja herbergja 93,5 fm íbúð á 1.hæð í littlu fjölbýli.Tvö góð herbergi,
sjónvarpshol, stór stofa með útg. á sólríkar svalir, eldhús með sprautulakkaðri innrétt-
ingu og gler hurðar í efri skápum, þvottaherb. innaf eldhúsi, baðherbergi m/baðkari,
flísar í hólf og gólf. Gólfefni er parket og flísar. Stutt er í skóla, leikskóla og versalin.
Verð 22,6 millj.
Verið velkominn Hafdís tekur á móti gestum
Traust þjónusta í 30 ár
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Ölduslóð - Hf.
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í sölu mjög fallega 161 fermetra efri
hæð í tvíbýli. Þar af er bílskúr 30.1 fermetrar og aukaherbergi í kjallara með
snyrtingu um 20 fermetrar. Um er að ræða skemmtilega hæð á mjög góðum
stað við Ölduslóð í Hafnarfirði. Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, hol,
stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, gang, tvö herbergi, hjónaherbergi,
baðherbergi, geymslu, herbergi með snyrtingu í kjallara og bílskúr. Gólfefni
eru parket og flísar. Frábært útsýni. Frábær staðsetning miðsvæðis í
Hafnarfirði. Verð 34,9. millj.
www.hi.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
3
82
75
0
7/
07
STYRKIR
VIÐSKIPTA- OG HAGFRÆÐIDEILD
TVEIR STYRKIR TIL RANNSÓKNA
Í UMHVERFIS- OG NÁTTÚRUAUÐLINDAFRÆÐUM
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands auglýsir tvo styrki til rannsókna
í umhverfis-og náttúruauðlindafræðum. Báðir styrkirnir eru veglegir og
ættu að nægja þeim sem styrkina hljóta til framfærslu í þrjú ár.
Fyrri styrkurinn: Ph.D. ritgerð um mat á umhverfisgæðum environmental valuation
Vinsamlegast sendið stutta útgáfu náms- og starfsfelisskrár ásamt rannsóknar-
hugmyndum til Ragnars Árnasonar prófessors, netfang: ragnara@hi.is
Síðari styrkurinn: Ph.D. ritgerð í orkuhagfræði
Vinsamlegast sendið stutta útgáfu náms- og starfsferilsskár ásamt rannsóknar-
hugmyndum til Friðriks Más Baldurssonar prófessors, netfang: fmbald@hi.is