Morgunblaðið - 05.07.2007, Síða 18

Morgunblaðið - 05.07.2007, Síða 18
Í HNOTSKURN »Þetta er þriðja árið sem gangan er far-in. 11 af tindunum 24 sem klifnir verða eru yfir 1.400 metra háir. »Gangan er skipulögð í samstarfi viðBjörgunarsveitina Súlur og Skátafélag- ið Klakk sem mun taka á móti göngumönn- unum á leiðarenda. »Allar nánari upplýsingar fyrir áhuga-sama eru fáanlegar á www.glerardal- ur.is AÐ MORGNI nk. laugardags kl. 8.00 verður lagt í mikla fjallgöngu frá Skíðahótelinu í Hlíð- arfjalli. Þá verða 24 hæstu fjöllin í Glerárdal klifin, en þetta er í þriðja skiptið sem slík ganga er farin. Ragnar Sverrisson, kaupmaður á Akureyri, er einn þeirra sem standa fyrir uppátækinu: „Þegar við fórum þetta fyrst fóru 17 manns allan hringinn en 40 manns tóku þátt í göng- unni. Nú hafa um 70 manns skráð sig og við reiknum með að um 50 manns fari allan hring- inn, þannig að þetta er farið að vinda upp á sig. Fólk þarf ekki að fara alla leið, það er hægt að láta sig detta út eftir fimm eða tíu fjöll eða álíka. Að auki skiptum við þessu í þrjú stig eða þrjá hópa, þá sem fara hraðast, millistig og hægast. Fólk getur valið hvað hentar því best.“ Hugmyndin er komin frá Þorvaldi Þórssyni, „hátindahöfðingja“ eins og Ragnar kallar hann, sem gekk hringinn fyrstur og sagði Ragnari síðar frá því. „Ég tók það í mig að gera þetta að árlegum viðburði og fékk Sigvalda Óskar Jónsson og Friðfinn Gísla Skúlason til að koma þessu af stað. Það er nauðsynlegt fyrir fólk að vera í góðri þjálfun og nokkuð vant göngu, auk þess sem hafa þarf mikið og orkuríkt nesti og rétt hug- arfar; höfuðið verður að vera í lagi, fólk þarf að hafa trú á að það geti þetta.“ Aðspurður segist Ragnar ekki búast við strengjum eftir gönguna. „En ég reikna með að verða lúinn í lærunum,“ bætir hann við og hlær. Hátindurinn Kerling er hæsta fjallið sem klifið verður, 1.538 metrar. 24 tindar sigraðir á 24 tímum Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson Göngugarpur „Ég reikna með að verða lúinn í lærunum,“ segir Ragnar. Ofurganga Heildarlengdin er um 50 km og heildarhækkunin um 4.000 m. 18 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Biskupstungur | „Þetta fer ágæt- lega með garðyrkjunni og öðru því sem við erum að gera. Aðaltörnin í þessu er yfir sumarið,“ segir Knút- ur Ármann, garðyrkjubóndi í Frið- heimum í Bláskógabyggð. Hann og kona hans, Helena Hermundar- dóttir, hafa komið sér upp góðri hestakennslu-, þjálfunar- og sýn- ingaraðstöðu í fallegu umhverfi á garðyrkjubýlinu og byrja á næst- unni að bjóða ferðafólki upp á hestasýningar. Knútur og Helena eru bæði úr Reykjavík en fluttu fyrir tólf árum í Friðheima sem eru í Reykholti í Biskupstungum. Þar keyptu þau gamla garðyrkjustöð, sem ekki var lengur starfrækt og hafa verið að byggja hana upp síðan. Þau rækta tómata með ljósum allt árið og eru komin með töluverða framleiðslu. „Það var alltaf draumur okkar að vera með tvær stoðir undir rekstr- inum og hafa hrossarækt með garðyrkjunni,“ segir Knútur. Sjálf- ur lærði hann hrossarækt á Hólum en Helena er garðyrkjumaður. Hringvöllur í skógi Þau hafa verið með hrossarækt í smáum stíl til þessa. Nú hafa þau komið sér upp aðstöðu sem Knútur talar um sem hestakennslu-, þjálf- unar- og sýningaraðstöðu. Meðal þess er hringvöllur í fallegum trjá- lundi og var hann tekinn í notkun við hátíðlega athöfn á dögunum. Knútur segir að þau hafi þríþætt not af aðstöðunni. Í fyrsta lagi nefnir hann eigin hrossarækt og þjálfun. Nemendum tveggja efstu bekkja grunnskólans í Reykholti stendur til boða valáfangi í hesta- mennsku sem Knútur sér um. Hann segist hafa ákaflega gaman af verkefninu og nýja aðstaðan skapi möguleika til að þróa námið frekar. Þess má geta að Frið- heimar eru í göngufæri við grunn- skólann. Í þriðja lagi nefnir Knút- ur nýja þjónustu sem þau ætla að bjóða ferðafólki, hestasýningar á hringvellinum. „Við erum við þjóðveg 35 og það fer mikill fjöldi ferðafólks hér um daglega, meðal annars erlent ferðafólk sem fer Gullna hringinn svonefnda. Allt þetta fólk fer hér framhjá afleggjaranum hjá okkur og mér finnst mikilvægt að gera eitthvað til að fá fólkið til að staldra aðeins við. Íslenski hest- urinn er svo mikilvægur hluti af menningu okkar og sögu að tilvalið er að nýta hann til þess,“ segir Knútur. Útvíkkað frekar Þau hafa verið að þróa þessa af- þreyingu fyrir ferðafólk í sam- vinnu við Ásborgu Arnþórsdóttur, ferðamálafulltrúa uppsveita Ár- nessýslu. Hugmyndin er að sýna hesta við tónlist og flétta inn í sýn- inguna fróðleik í töluðu máli, helst á léttu nótunum. Í lokin gefst gest- unum síðan kostur á að nálgast hestana við hesthúsin, klappa þeim, fara á bak og taka myndir og fá sér kaffi og kleinur. Ætlunin er að þetta verði tiltölulega stutt sýn- ing, hálftími til fjörutíu mínútur og hún er hugsuð fyrir almenna ferða- menn, frekar en fólk sem beinlínis er komið til landsins til að skoða hesta. Þau eru að kynna þessa möguleika fyrir ferðaskrifstofum og segir Knútur að þeim hafi verið tekið vel. Alltaf vanti góða afþrey- ingu. Jafnframt eru þau að huga að því að setja upp sýningar á ákveðnum tímum, til að ná til ein- staklinga sem eru á ferðinni. Boðið upp á hestasýningar fyrir ferðafólk í Hestamiðstöðinni Friðheimum Vantar alltaf góða afþreyingu Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Nýjung í ferðaþjónustu Ásborg Arnþórsdóttir ferðamálafulltrúi klippti á borða við opnun hestamiðstöðvar- innar. Eigendurnir standa hjá en heimasæturnar í Friðheimum, Karitas og Dóróthea, sitja hestana. Hrunamannahreppur | Bjarkarhlíðarhóp- urinn sýnir nú 29 málverk í golfskálanum á Efra-Seli, rétt hjá Flúðum. Flestar myndirnar er málaðar með olíu en fáeinar í vatnslitum. Að hópnum stendur fólk sem kennir sig við húsið Bjarkarhlíð á Flúðum. Það hefur komið saman í allmörg ár og notið leið- sagnar og handleiðslu Katrínar Briem í málaralistinni. Í hópnum eru f.v. Helga Magnúsdóttir, Anna Magnúsdóttir, Skúli Gunnlaugsson, Jónína Björnsdóttir, Elín Guðfinnsdóttir, Dóra Mjöll Stefánsdóttir og Rut Mandal Valtýsdóttir. Sýningin, sem er sölusýning, verður opin fram eftir sumri. Bjarkarhlíðarhóp- urinn sýnir myndir Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson UNNIÐ er að skráningu og merkingu leg- staða í Ingjaldshólskirkjugarði á Snæfells- nesi. Garðurinn er gamall og stór og því mikið verk að skrá legstaðina. Smári Lúðvíksson á Rifi hefur tekið að sér að teikna upp garðinn fyrir sóknar- nefnd. Þar eru mörg afar gömul og ómerkt leiði. Þegar lokið verður við að teikna upp garðinn og merkja þau leiði sem upplýsingar liggja fyrir um verður kortið sett inn á kirkjugarðavefinn gard- ur.is til þess að fólk geti leitað að leiðum ættingja sinna. Sóknarnefnd biður þá sem telja sig hafa upplýsingar um ómerkt leiði að hafa samband við Smára. Skrá og merkja leiði á Ingjaldshóli LANDIÐ HÁTÍÐIN Ein með öllu verður hald- in í ár eins og undanfarin sumur en nokkur styr hefur staðið um hvort boðið verður upp á sérstök unglinga- tjaldsvæði. Á fundi nefndar sem fjallaði um framkvæmd hátíðarinnar sl. þriðjudag var ákveðið að ekki verði boðið upp á slíkt tjaldsvæði líkt og við Hamar fyrir ári. Að sögn Karls Guðmundssonar bæjarritara verður lögð áhersla á að hátíðin sé fjölskylduhátíð: „Vegna þess verða tjaldstæðin fyrst og fremst fyrir fjölskyldufólk sem mun hafa forgang að komast inn á þau. Skátafélagið Klakkur hefur umsjón með tjaldsvæðunum og sér um að út- færa þessa tilhögun og bærinn treystir þeim til þess. Það eru að sjálfsögðu allir velkomnir þó svo að tjaldsvæðin séu fyrst og fremst fyrir fjölskyldufólk.“ Unglinga- stæðin úti HLJÓMSVEITIN Narodna Musika leikur í Deiglunni í kvöld kl. 21 á heitum fimmtudegi. Á efnisskránni verður búlgörsk þjóðlagatónlist. Í fréttatilkynningu kemur fram að um sé að ræða auðheyrilega tónlist sem eigi sér m.a. rætur í tónlist síg- auna og þjóðlagahefð Mið-Evrópu. Haukur Gröndal er forsprakki Narodna Musika og hefur síðustu ár kynnt sér tónlist frá Balkanskag- anum og þá sérstaklega frá Búlg- aríu. Hann leikur á klarinett en auk hans koma fram Borislav Zgur- ovski á harmóníku, Enis Ahmed á tamboura, Þorgrímur Jónsson á bassa og Erik Qvick á trommur. Kvöldið er búlgarskt ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.