Morgunblaðið - 05.07.2007, Side 31

Morgunblaðið - 05.07.2007, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 31 ✝ Þorkell Þorsteinsson Snædal fæddist á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal 15. janúar 1950. Hann lést af heilablóðfalli 21. júní síðastliðinn á heimili sínu í Árós- um í Danmörku. Foreldrar hans voru hjónin Margrét Þor- kelsdóttir og Þor- steinn V. Snædal á Skjöldólfsstöðum og eru þau bæði látin. Systkini Þorkels eru Bergþóra, Jóhanna, Vilhjálmur, Elín, Anna Sigríður og Þorsteinn. Dóttir Þorkels og Vigdísar Sveinsdóttur er Þóra, f. 8. apríl 1983. Hún á heima í Kaupmanna- höfn. Þorkell ólst upp á Skjöldólfs- stöðum, þar gekk hann í barna- skóla og var svo tvo vetur í héraðs- skólanum í Reykholti í Borgarfirði. Hann stundaði prent- nám við Iðnskólann í Reykjavík í fjóra vetur. Þorkell vann almenn verka- mannastörf víðsvegar um landið en lengst var hann þó á sjó, fyrst sem kokkur og sótti hann sér síðan réttindi til að stýra litlum vélbátum. Árin 1978–1981 bjó Þorkell í Árósum í Danmörku og vann þar. Hann kynntist síðan Vigdísi Sveins- dóttur og fluttist með henni í Mosfells- sveit. Þau eignuðust eina dóttur, Þóru, en Vigdís átti dóttur fyrir, Sigríði Kalman. Fjölskyldan fluttist til Árósa, þar sem Vigdís lauk námi í uppeldisfræði, og bjó þar í fjögur ár. Leiðir Þorkels og Vigdísar skildi ári eftir heimkom- una. Þorkell fluttist til Árósa árið 1996 og hefur búið og starfað þar síðan. Þorkell kynntist Karen Lund- Sörensen og giftust þau á Þingvöll- um að heiðnum sið sumarið 2004. Kveðjuathöfn og bálför Þorkels hefur farið fram. Jarðsett verður í dag í Hofteigs- kirkjugarði á Jökuldal, þar sem foreldrar hans hvíla. Brúaröræfi síðsumars árið 1980. Löngu áður en Kárahnjúkar um- turnuðust úr sakleysislegu nafni í viðsjárvert hugtak. Keli á gömlum Rússajeppa með blæjum, þeysandi eftir fjallshryggjum, haglari og rifill í farteskinu, ásamt vodka, Campari og einhverri lús af „fygræs“, eins og danskurinn kallaði það. Gangna- mannakofi og himinninn höndum tekinn, þótt það hefði kostað tvær endur lífið. Eftir á að hyggja: Hvernig á að höndla hamingjuna? Keli var engum mönnum líkur, sérstakur, sérlundaður, frumlegur, frumstæður villimaður af Jökuldal. En samt var hjarta hans fullt af við- kvæmni og skilningi á alls kyns fólki og það sló í takt við lífsklukkur þeirra sem miður mega sín í sam- félaginu. Hann var glöggskyggn á óréttlæti heimsins og hafði til að bera í ríkum mæli það sem kannski skiptir mestu máli í lífinu, nefnilega hjartagreind. Lífshlaup Kela var ekki alltaf dans á rósum og stundum var hann sjálfum sér verstur. Í gamla daga í Árósum var hann í senn íslenskast- ur allra Íslendinga og jafnframt lag- aði hann sig að dönsku samfélagi, siðum og menningu, betur en flestir. „Følg skik eller fly land“, segir fornt danskt spakmæli. Hann bar ætíð með sér uppruna sinn, sem einhvers konar frumkraft, sem hann nærðist á og gaf einnig af sér. Hann var al- þýðlegur grallari og gjörsamlega laus við fordild og snobb; hann gat þrasað við fólk og verið á öndverð- um meiði við allt og alla, en það var líka stutt í stríðnina, galgopaháttinn og húmorinn; það var slegið á lær og rekinn upp hrossahlátur. Keli safnaði ekki veraldlegum auðæfum en hann auðgaði líf margra samferðamanna sinna og skilur eftir sig dýrmætar minningar í huga þeirra. Hann féll um aldur fram og hans er sárt saknað. Sigurður Ólafsson. „Hann Keli bróðir er dáinn.“ Þannig hljómaði titrandi rödd Önnu Sigríðar, systur Kela, föstudaginn 22. júní sl. þegar hún sagði mér hin válegu tíðindi. Heimurinn stöðvaðist um stund og ég átti erfitt með að meðtaka skilaboðin. Vinur minn, sem ég var að bíða eftir að kæmi til okkar hjóna í grill þá um kvöldið, var látinn. Við hjón áttum því láni að fagna að kynnast Kela sumarið 2006, Keli var reyndar frændi konu minnar en þau voru alin upp hvort í sínu landshorninu, Keli og Anna Sigga austur á Jökuldal og Nanna mín í Kópavoginum. Anna Sigga bauð okkur hjónum til kvöldverðar í tilefni af komu Vilhjálms bróður þeirra systkina og konu hans til Danmerkur, svo að Nönnu gæfist tækifæri til að hitta frændfólk sitt. Þannig var upphaf kynna okkar af Kela. Um jólaleytið var Keli á milli íbúða og tók að sér að gæta heimilis okkar. Eftir að við komum heim buðum við Kela að dvelja hjá okkur þar til hann fengi íbúð sína afhenta 1. mars sl. og varð það úr. Á þessum tíma tókst mikill vinskapur milli okkar Kela sem hvorugan okkar ór- aði fyrir að stæði svo stutt. Keli var fjölgreindur og skemmtilegur, mikill húmoristi og meistari hins svarta húmors. Prófgráðurnar þvældust ekki fyrir Kela en margur mennta- maðurinn hefði ei að síður mátt margt af honum læra, ekki síst á sviði náttúrufræða og þjóðfélags- mála. Keli var óvenjuhlýr maður og skilningsríkur, tillögugóður og greiðvikinn, og tók ávallt málstað þeirra sem minna mega sín í lífsins ólgusjó. Um miðjan maí sl. varð ég fyrir því óláni að axlarbrjóta mig og verða þar með um tíma nánast ósjálfbjarga um flesta hluti daglegs lífs. Þá kom mannvinurinn Keli okk- ur hjónum til hjálpar og var mér til aðstoðar fyrstu fimm sólarhringana eftir óhappið, svo að kona mín kæm- ist til sinnar vinnu. Það sýnir betur en margt annað mannkosti Kela. Við Keli ræddum mikið saman í síma, og Keli vildi fylgjast vel með hvernig mér reiddi af. Síðasta samtalið var seint að kveldi miðvikudags, einung- is nokkrum tímum fyrir andlát hans. Ekki datt mér í hug að það samtal yrði það síðasta, Keli var ánægður og var að segja mér frá hvað hann ætlaði að gera í fyrirhugaðri Ísland- för sinni, en hann ætlaði að leggja af stað til Íslands þann 25. júní til að hitta systkini og vini. Keli hlakkaði mikið til að geta komist austur á Jökuldal, heim að Skjöldólfsstöðum. En örlögin ætluðu honum annað hlutskipti, heimferðin verður nú jafnframt síðasta ferðin í þessum heimi og hann jarðsettur við hlið foreldra sinna þriðjudaginn 3. júlí. Það er mikill harmur kveðinn að Þóru dóttur Kela, sem nú sér á bak ástkærum föður sínum langt um aldur fram, sem og Karen unnustu hans, Önnu Siggu systur hans og systkinum og öðrum frændgarði. Við Nanna samhryggjumst þeim öll- um og vonum að algóður Guð styrki þau á þessum erfiðu tímamótum. Kæri vinur, hafðu þökk fyrir alla þína hjálp, það eru okkur forréttindi að hafa fengið að þekkja þig. Far þú í friði, englar Guðs þig blessi um aldir alda. Guðbergur Þorvaldsson og Nanna Arthúrsdóttir Vinur minn Þorkell Snædal lést í Árósum í Danmörku þann 21. júní sl. Keli eins og hann var jafnan kall- aður af vinum og ættingjum hafði búið í Danmörku um árabil. Hann var ættaður frá Skjöldólfs- stöðum á Jökuldal þar sem hann ólst upp í stórum systkinahópi. Ég kynntist fólkinu á Skjöldólfsstöðum í gegnum Önnu Siggu systur Kela sem er góð vinkona mín, aðallega systkinunum Ellu, Kela og Steina og foreldrum þeirra þeim Margréti og Þorsteini. Það var sérstakt að kynn- ast þessu fólki, sem allt er/var miklir húmoristar, dugnaðarforkar og gott fólk. Keli var mikið ljúfmenni og vildi leysa hvers manns vanda. Aldrei heyrði ég hann hallmæla nokkrum manni og ævinlega tók hann málstað þeirra sem minna máttu sín. Hann var alltaf mikill sveitakarl í sér, tal- aði og hegðaði sér oft sem slíkur og húmorinn var aldrei langt undan frekar en hjá hinum í fjölskyldunni. Við vorum oft samferða í gegnum lífið við Keli. Bjuggum í vesturbæn- um og fórum stundum saman í Glaumbæ þegar við vorum talsvert ung. Við vorum bæði búsett í Árós- um á sama tíma, bjuggum þá um tíma saman í íbúð ásamt fleira fólki, bjuggum bæði í Mosfellssveitinni þar sem Keli bjó með Vigdísi frænku minni og barnsmóður hans, en þau eignuðust saman dóttur, mikla myndarstúlku sem heitir Þóra. Svo var lengra á milli okkar síðustu árin eftir að hann fór aftur til Árósa. Keli var vinur vina sinna. Eitt sinn þegar hann bjó í Mosfellssveit- inni var hann að horfa á sjónvarpið með vini sínum. Þá kemur til tals að þeir séu nú dálítið blankir og nú kæmi sér vel að vinna í lottó. Keli heitir vininum því að ef hann vinni í lottó þá fái vinurinn helminginn.. Og viti menn þá gerðist það að hinn staurblanki Þorkell vann stærsta vinning og eins og hans var von og vísa stóð hann við orð sín og vin- urinn fékk sinn hlut. Greiðvikni var ríkur þáttur í skap- gerð Kela. Þess vegna fannst honum ekki mikið mál að sækja mig eitt dimmt haustkvöld í grenjandi rign- ingu til Billund á Citroen „bragg- anum“ sínum. Þegar við vorum búin keyra um stund fann ég að ég var orðin blaut í fæturna. Ég hafði orð á þessu, þá sagði Keli bara „æi já, það eru göt í gólfinu sem ég ætla alltaf að gera við.“ Það var ekkert verið að stressa sig yfir smámunum. En nú er Keli allur og ég á erfitt með að skilja það. Ég minnist þess þegar við hittumst síðast og Keli kom hjólandi með innkaupapoka með nokkrum öllurum, við sátum í sólríkum garðinum hjá Önnu Siggu með kaldan bjór. Keli fór að bjástra við grillið á meðan hann sagði okkur sögur og við Anna Sigga hlógum og skemmtum okkur. Svoleiðis var það svo oft en nú verður líklega einhver bið á því að við hittumst. Ég sendi innilegar kveðjur til Þóru sem hefur misst hann pabba sinn og til Önnu Siggu sem hefur misst kæran bróður og góðan vin. Einnig sendi ég Ellu, Steina og hin- um systkinum Kela og fjölskyldunni allri samúðarkveðjur. Ingibjörg Pétursdóttir. Við byrjuðum samanburðinn á jökulvötnum. Ég lagði Lagarfljótið til málanna, hann Jöklu. Mitt ró- samt stöðuvatn með spegilmynd landsins í sér þegar svo viðraði, hans dularfullt reginafl sem svarf djúpt gilið með þungum drunum fyrir neðan bæinn. Ég hafði ekki áð- ur heyrt talað um vatnsfall í alvöru eins og persónu. „Lækurinn“ sem hjalaði við „Hrísluna“ í ljóði Páls Ólafssonar var skáldamál en Jökla seytlaði ekki fram í ástarljóði heldur braust raunveruleg um á milli hamraveggjanna og var þó ekki nema ásýndar af vatni og aur – líkt og menn og skepnur af holdi og blóði – heldur hið innra af anda sem gerði nýfenginn herbergisfélaga minn á sundnámskeiði í húsakynn- um héraðsskóla fjórðungsins dálítið annars heims í fyrstu. En ferða- taska úr tré og rúmfatapokinn voru af okkar sameiginlega heimi og það voru ullarnærbuxurnar og ullarleist- ar líka sem hann raðaði af natni í hurðarbrotinn fataskápinn. Þótt fljótin sem heimili okkar stóðu við væru ólík virtust mæður okkar sam- mála um að þetta yrði kalt vor. Við vorum 11 ára og ég hafði lært sundtökin í viku þegar Keli birtist. Hann var alvarlegur í fasi, ívið há- tíðlegur og hafði stóran fæðingar- blett yfir efri vör hægra megin. En um kvöldið þegar við lágum undir fiðursængum frá mæðrum okkar með höfuðið á kodda og svæfli þar á ofan hló hann hjartanlega við ein- hverju og við töluðum okkur heita á vangann fram á nótt og fengum hláturskast af tómri andagift sem ótrúleg frásagnarsnilld þessa drengs kallaði fram í snoðklipptum kolli okkar á þessum heitustu dög- um sem komið höfðu í byrjun maí um langa hríð. Aftur hittumst við nokkrum árum síðar í Skógræktinni á Hallorms- stað. Birkimaðkar ófu utan um sig laufblöð á „Hríslunni“, vonglaðir eins og „Lækurinn“ og það vorum við líka, þetta sumar. Við urðum 17 ára á því ári og hættir að þiggja klippingu af feðrum okkar. Lögðum frá okkur bjúgskófluna í gróður- setningunni, sveittir á enni og heitir af vinnunni og Keli fléttaði sögu af fágætum persónuleika af Jökuldal inn í stjórnmálaumræðuna í síðdeg- iskaffinu undir grónu barði. Fæð- ingarbletturinn var horfinn en skildi eftir sig svolítið ör sem birtist við ljúfmannlegt bros. Glettinn og orð- fimur með fágætum. Staldraði við fram á skófluna og horfði yfir dags- verkið. Þetta yrði mikill skógur. Þær yrðu kátar, rollur á Jökuldal, að fá slíkan skrúðgarð í morgunmat! Hláturinn var smitandi og kátínan laumaðist inn í sinni okkar og létti okkur erfiðið. Við urðum fullorðnir og hittumst stopult en þó samferða tvö ár í Árós- um ríflega 20 árum síðar. Dálítið dönskuskotinn í hátt, fannst mér í fyrstu, en brátt kom í ljós sá Keli sem ég áður þekkti, glettinn, greið- vikinn og ætíð tilbúinn að staldra við og njóta þess augnabliks sem eilífðin gaf af gæsku sinni. Staldraði full- lengi stundum, mátti trúlega segja, en slík augnablik urðu þó ljúfust í safni minninga um þennan góða dreng sem síðast þegar ég sá hann fyrir ári var á leið austur að gljúfr- um Jöklu að líta hana hinsta sinni í lífi beggja. Gunnlaugur Sigurðsson frá Hallormsstað. Undir lok áttunda áratugarins var margt um að vera, jafnt á Árósum á Jótlandi sem víða annars staðar í heiminum. Bandaríska innrásarlið- inu í Víetnam hafði verið stökkt á brott, byltingar í Nicaragua og Gre- nada, keisarinn í Íran á síðustu dropunum. Í Danmörku var rætt um kvenfrelsismál, hart var tekist á um hvort reisa skyldi kjarnorkuver, lög- regla sigaði hundum á verkafólk í átökum og háskólar loguðu enn vegna deilna um kennslufyrirkomu- lag. Almennt má segja að fram hafi farið víðfeðmar umræður um flest milli himins og jarðar, ekkert var sjálfgefið. Gagnrýnin og frumleg hugsun, engin ládeyða. Inn í þetta umhverfi kom Keli, bróðir Önnu Siggu vinkonu okkar. Hann var náttúrubarn og þúsund- þjalasmiður frá Jökuldal sem bar skynbragð á stjórnmál, listir og vís- indi. Hann var hreinn og beinn. Það var ekkert vont til í honum, eins og sagt er. Góður drengur, en var stundum andskotanum þras- gjarnari. Í sumum mikilvægum mál- um var erfitt að hemja strákinn. Þá fylgdi líka hrossahlátur og enn stór- tækari yfirlýsingar. „Gæskurinn“ var síðasta orðið, sagt af hlýju og Keli hallaði sér áfram og horfði í andlit manns, sló af sígarettunni. Þá var hann ungur. Hann var lengi ungur. Svo lengi að við vorum steinhissa þegar okkur var sagt að þessi miðaldra maður í gallabuxum hefði spurt eftir okkur heima. Þá var Keli á Íslandi í sjó- mennsku. Hann átti dóttur að sjá fyrir. Kokteill með sjómennsku get- ur verið slæmur fyrir félagslynd náttúrubörn með viðkvæma heilsu, enda entist hún ekki. Keli flutti aft- ur til Árósa og Elín Þóra og móð- urfólkið hennar líka. Keli átti fjöl- skyldu og vini á báðum stöðum, gott fólk sem gætir hvað annars. Ísland er yndislegt á sumrin eins og allir vita sem hafa séð það. Karen, fallega vinkona Kela, fór með honum hring- inn í fimmtíuþúsundkróna bíl fyrir nokkrum árum, sem var víst ekkert mál að koma í gang. Þau giftust meira að segja, svo fallegt var sum- arið. Vináttan við Kela var bókstaflega „for livet“. Hann var góður vinur vina sinna. Við erum þakklát fyrir samfylgdina. Gylfi Páll og Sigurlaug. Þorkell Þ. Snædal Ég kem úr róðri, en bind ekki bátinn hjá bakka fljótsins að sinni; við kvöldmánans glóð er gott að sofna í gömlu kænunni minni; og þótt hún líði frá landi með vindum sem létt út í húmið sveima, að blómguðu sefi hún leggst þar að lokum sem líka er gott að dreyma. (Kínverskt ljóð.) Hann fór óvænt og svip- lega hann Keli bróðir, nótt- ina sem sólargangur er lengstur. Við minnumst alls þess góða í fari hans, hlýr var hann, hjálpsamur og trygg- ur. Spaugsemi og umburð- arlyndi við allt fólk var að- alsmerki hans. Við söknum nú bróður og vinar, þökkum samfylgdina og árnum honum fararheilla á nýjum leiðum. Systkini Kela. HINSTA KVEÐJA ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÁRNI GUÐJÓNSSON, Sunnubraut 17, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness, þriðjudaginn 3. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Rafnhildur Katrín Árnadóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, MARÍA HAUKSDÓTTIR frá Garðshorni í Köldukinn, lést þriðjudaginn 3. júlí á hjúkrunarheimilinu Hlíð, Akureyri. Fyrir hönd annarra vandamanna, Ásta Arnþórsdóttir, Haukur Arnþórsson, Guðný Arnþórsdóttir, Sigfús Arnþórsson, Ingjaldur Arnþórsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.