Morgunblaðið - 05.07.2007, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Félagslíf
Gleðilega páskahátíð!
Ferðamannakirkjan 2007 -
3.-29. júlí nema mánudaga.
Opin kl. 10-11 og 16-22.
Morgunbæn daglega kl. 10.30
og kvölddagskrá kl. 20.
Samkoma í dag 5. júlí kl. 20.
Kaffi og meðlæti í boði.
Fatabúðin í Garðastræti 6
er opin alla virka daga kl. 13-18.
Mikið úrval af góðum fatnaði.
Fimmtudagurinn 5. júlí
Samkoma í Háborg,
Stangarhyl 3A, kl. 20.
Vitnisburður og söngur.
Predikun, Halldór Lárusson.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.samhjalp.is.
Raðauglýsingar
sími 569 1100
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Glaðheimar 4, fnr.190-391, Hvalfjarðarsveit, þingl. eig. Jón Pétur
Líndal, gerðarbeiðendur Innheimtustofnun sveitarfélaga og
Sýslumaðurinn í Borgarnesi, þriðjudaginn 10. júlí 2007 kl. 13:30.
Ljósheimar 4, fnr. 190-399, Hvalfjarðarsveit, þingl. eig. Jón Pétur
Líndal, gerðarbeiðendur Innheimtustofnun sveitarfélaga og
Sýslumaðurinn í Borgarnesi, þriðjudaginn 10. júlí 2007 kl. 14:00.
Lækjarás 2, fnr. 229-5597, Skorradal., þingl. eig. Byggja og leigja ehf,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf og Húsasmiðjan hf.,
þriðjudaginn 10. júlí 2007 kl. 10:00.
Skálalækjarás 2, fnr. 229-5120, Skorradal., þingl. eig. Byggja og leigja
ehf, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf, þriðjudaginn
10. júlí 2007 kl. 10:30.
Skálalækjarás 4, fnr. 229-5122, Skorradal., þingl. eig. Byggja og leigja
ehf, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf, þriðjudaginn
10. júlí 2007 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi,
4. júlí 2007.
Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Álfkonuhvarf 37, 0108, ásamt stæði í bílag, ehl. gþ. (227-3796), þingl.
eig. Kristín Helga L. Kristinsdóttir og Ríkharð Júlíus Ríkharðsson,
gerðarbeiðendur Glitnir banki hf, Íbúðalánasjóður og nb.is-spari-
sjóður hf, þriðjudaginn 10. júlí 2007 kl. 13:00.
Engihjalli 8, 0102 (224-7003) , þingl. eig. Prapasiri Sareekhad,
gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf, aðalstöðv, þriðjudaginn
10. júlí 2007 kl. 14:00.
Lyngbrekka 7, 0301, ehl. gþ., þingl. eig. Einar Sigurðsson,
gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn í Kópavogi, þriðjudaginn 10. júlí 2007
kl. 11:00.
Marbakkabraut 13, 0101, ehl. gþ. (206-2910), þingl. eig. Lárus Bjarni
Guttormsson, gerðarbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga,
þriðjudaginn 10. júlí 2007 kl. 14:30.
Nýbýlavegur 42, 0203 (206-4453), þingl. eig. Jón Þórir Þórisson,
gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf, þriðjudaginn 10. júlí 2007
kl. 15:30.
Sýslumaðurinn í Kópavogi,
4. júlí 2007.
Ragnhildur Sophusdóttir, ftr.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Austurvegi 6,
Hvolsvelli miðvikudaginn 11. júlí 2007 kl.10:30 á eftirfarandi
eignum:
Dufþaksbraut 11, ehl. gþ., Rangárþing eysta, fnr.2194777, þingl. eig.
Guðjón Steinarsson, gerðarbeiðandi Rangárþing eystra.
Fossalda 10, Rangárþing ytra, fnr. 219-5898, þingl. eig. Guðmundur
Hólm Bjarnason, gerðarbeiðendur Bu.is ehf og Leifur Árnason.
Hólavangur 18, Rangárþing ytra, fnr. 225-6800., þingl. eig. Jóna Lilja
Marteinsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Rangárþing ytra.
Ketilhúshagi, lóð 3, Rangárþingi ytra, fnr. 219-5947, þingl. eig.
Hildur Ólafsdóttir og Pétur Gestsson, gerðarbeiðandi Frjálsi
fjárfestingarbankinn hf.
Vestri Garðsauki, Rangárþingi eystra, lnr.164204 ehl. gþ., þingl. eig.
Jón Logi Þorsteinsson, gerðarbeiðendur Kaupþing banki hf og
Rangárþing eystra.
Þrúðvangur 36, eh. gþ., fnr. 226-8822, Rangárþingi ytra., þingl. eig.
Magnús Heimisson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Rangárþing
ytra.
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli,
4. júlí 2007.
Kjartan Þorkelsson.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á skrif-
stofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík - 5, sem
hér segir:
Árvík RE-260, skipaskrárnúmer 1735, fiskiskip, þingl. eig. Þb. Dana
ehf, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf, aðalstöðv., mánudaginn
9. júlí 2007 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
4. júlí 2007.
Þuríður Árnadóttir,
deildarstjóri fullnustudeildar.
GLÆSILEGT 300 FM EINBÝLISHÚS Í SELJAHVERFI
Um er að ræða mjög fallegt og vand-
að einbýlishús á tveimur hæðum
með innbyggðum tvöföldum bílskúr.
Húsið stendur ofan götu í rólegri og
gróinni endagötu. Lóðin er gróin og falleg og með miklum trjágróðri. Nýleg og glæsileg sólstofa með
heitum potti. Hellulögð verönd til suðurs. Vandaðar innréttingar og gólfefni.
Verð: 80.000.000,- Stærð: 301,7 fm.
Sími 534 8300 • Kirkjustétt 4 • 113 Reykjavík • www.storborg.is • storborg@storborg.is
EINN helsti sérfræðingur Banda-
ríkjanna í þróunarmálum, J. Brian
Atwood, heldur erindi á vegum ut-
anríkisráðuneytisins í dag, 5. júlí,
kl. 11. Erindið verður flutt á opnum
fundi á vegum utanríkisráðuneyt-
isins og Hollvinasamtaka Minne-
sota-háskóla.
Í fréttatilkynningu segir að
Atwood muni í erindi sínu fjalla um
þróunarsamvinnu á 21. öldinni, nýj-
ustu strauma og stefnur í þróunar-
málum og framkvæmd þróunar-
samvinnu á alþjóðavettvangi.
Fundurinn með Dr. Atwood er sá
fyrsti af opnum fundum um al-
þjóðamál sem haldnir verða á veg-
um utanríkisráðuneytisins.
J. Brian Atwood er yfirmaður
Hubert H. Humphrey Institute of
Public Affairs í Minnesota-háskóla,
sem sérhæfir sig í menntun leiðtoga
í opinbera geiranum og þverfagleg-
um rannsóknum á sviði stjórnmála.
Fundurinn er haldinn í húsnæði
utanríkisráðuneytisins á Rauðarár-
stíg 25.
Skráning á fundinn sendist til
Auðbjargar Halldórsdóttur, á net-
fangið aha@mfa.is
Flytur erindi
um þróunarmál
FRÆÐAKVÖLD Res Extensa verð-
ur haldið í kvöld, fimmtudaginn 5.
júlí, kl. 20 á efri hæð Café Victors.
Í fréttatilkynningu segir að fyrir-
lesarar verði Hannes Högni Vil-
hjálmsson og Ian Watson.
Hannes Högni er lektor í tölv-
unarfræði við Háskólann í Reykja-
vík og starfar einnig í CADIA:
Gervigreindarsetri Háskólans í
Reykjavík. Fyrirlestur hans nefnist:
„Stafrænir holdgervingar í félags-
legum sýndarheimi: Hvernig sál-
fræði og félagsvísindi nýtast við
hönnun og smíði myndrænna sam-
skiptakerfa.“
Ian Watson er aðjúnkt við félags-
vísindadeild Háskólans á Bifröst,
og er menntaður í bæði málvísind-
um og félagsfræði. Ian ætlar að
fjalla um samskynjun, hið undar-
lega en jafnframt áhugaverða
ástand þegar skynfærunum virðist
slá saman þannig að fólk segist til
dæmis sjá tónlist í litum eða finna
bragð af orðum. Ian flytur fyrir-
lestur sinn aðallega á ensku.
Fræðakvöld
Res Extensa
KVÖLDGANGA á Þingvöllum
verður í kvöld, fimmtudagskvöld,
kl. 20. Gönguferðin hefst við
fræðslumiðstöðina og tekur um
tvær klukkustundir.
Katrín Jakobsdóttir íslensku-
fræðingur ræðir um íslenskar
glæpasögur og hlutverk Þingvalla í
þeim. Saga íslenskra glæpasagna
er almennt talin hefjast 1910 með
smásögunni Íslenzkur Sherlock
Holmes eftir Jóhann Magnús
Bjarnason en sú gerist í byggðum
Vestur-Íslendinga. Síðan hafa kom-
ið út fjöldamargar hérlendar
glæpasögur, flestar þó á síðustu ár-
um. Reykjavík er algengasta sögu-
svið þessara sagna en Þingvellir
koma þó við sögu í nokkrum þeirra,
ekki síst í sögum frá síðustu árum
þar sem lík finnast ýmist í Drekk-
ingarhyl eða glæsilegum sumar-
húsum við Þingvallavatn, segir m.a.
í fréttatilkynningu.
Allir eru velkomnir.
Þingvellir í
íslenskum
glæpasögum
LAGT verður af stað í kvöldgöngu
frá Grófinni við Tryggvagötu í
Reykjavík í kvöld, fimmtudag, kl. 20.
Minjasafn Reykjavíkur stendur
fyrir göngunni. Gengið verður um
elsta hluta borgarinnar og sagt frá
landnámi Reykjavíkur og helstu
fornleifum sem þar hafa fundist. Þá
verður farið í heimsókn á Land-
námssýninguna Reykjavík 871+-2.
Gönguna leiðir Orri Vésteinsson
fornleifafræðingur. Áætlað er að
gangan taki rúma klukkustund.
Þátttaka er ókeypis og allir eru vel-
komnir.
Kvöldganga
í Kvosinni
SAMTÖKIN Saving Iceland bjóða
til ráðstefnunnar „Hnattrænar af-
leiðingar stóriðju og stórstíflna“
dagana 7. og 8. júlí nk. Ræðumenn
frá grasrótarhreyfingum í Suður-
Ameríku, Evrópu, Afríku, Asíu og
N-Ameríku standa með Íslend-
ingum í andstöðu við stóriðju og
stórstíflur, segir í fréttatilkynningu.
Þar segir ennfremur að ráðstefnan
miði að því að styrkja tengslin milli
grasrótarhreyfinga um allan heim.
Ráðstefnan er hluti af „and-
spyrnusumrinu“ með búðum eftir
ráðstefnuna, þar sem boðið verður
upp á fræðslu og þátttöku í vinnu-
hópum, götupartíi í Reykjavík 14.
júlí, listasýningu, tónleikum og kvik-
myndasýningum og auðvitað beinum
aðgerðum. Aðgangur að ráðstefn-
unni verður ókeypis, frjáls framlög
vel þegin. Nýtt íslenskt ferðaeldhús
býður upp á lífrænt grænmetisfæði
á kostnaðarverði.
Ráðstefnan hefst með erindum
Guðbergs Bergssonar og Ómars
Ragnarssonar, en hvorugan
þeirra þarf að kynna fyrir Íslend-
ingum.
Guðmundur Beck fyrrum bóndi
á Kollaleiru í Reyðarfirði og Einar
Þorleifsson fuglafræðingur munu
einnig flytja erindi.
Ráðstefnan hefst kl. 11 á
laugardag, 7. júlí, og fer fram á
Hótel Hlíð í Ölfusi.
Andstaða við stóriðju og stórstíflur