Morgunblaðið - 12.07.2007, Síða 2

Morgunblaðið - 12.07.2007, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Hringdu í 530 2400 og kynntu þér málið! www.oryggi.is Prófaðu Heimaöryggi í tvo mánuði í sumar – ókeypis! H im in n o g h a f / S ÍA Engin krafa er gerð um framhaldsviðskipti, gríptu því tækifærið núna. Tilboðið gildir til 15. júlí og er í boði á þeim þéttbýlisstöðum landsins þar sem Öryggismiðstöðin hefur þjónustuaðila og sinnir útkallsþjónustu. Í HNOTSKURN »Rækjuvinnslan hefur verið rekin með300 milljóna tapi síðustu tvö og hálft ár. »Forsvarsmenn segja litla veiði, hávaxta-stefnu og niðurskurð í þorskkvóta með- al ástæðna. Þorskkvóti Ramma minnkar um 1.997 tonn á næsta fiskveiðiári. Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „2.000 tonna kvótaskerðing gerir okkur gersamlega ókleift að þreyja þorrann lengur. Hún kemur svo illa við heildarafkomu fyrirtækisins að við getum ekki verið að reka heilar deildir með tapi lengur,“ segir Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri rækjuvinnslu Ramma hf. á Siglufirði. Starfsfólki vinnslunnar var tilkynnt um uppsagnir 31 starfs- manns á fundi í gær. Í yfirlýsingu frá Ramma eru ástæður þessa sagð- ar hátt gengi íslensku krónunnar, hrun rækjuveiða við Ísland og erfið staða á helstu mörkuðum, á með- an rækjuveiði og -vinnsla í Kanada aukist og Evr- ópusambandið veiti kanadískum rækjufram- leiðendum verulegar tollaívilnanir. Þá segir þar að lausatök við stjórn efnahagsmála samhliða stóriðju- og hávaxtastefnu séu út- flutningsatvinnuvegum fjandsamleg. Kveðst Ólafur ekki skilja seðlabankastjóra, þegar hann segi vaxtastefnuna ekki hafa áhrif á gengi krónunnar. Ólafur segir Ramma eiga stóra hlutdeild í rækju- kvótanum. „Við vildum auðvitað reyna að nýta þann kvóta ef veiðin skyldi taka við sér. En þetta var orð- ið svo langvinnt ástand að þegar kvótaskerðingin í þorskinum bætti gráu ofan á svart var þetta ekki hægt lengur, jafnvel þó að störf fjölda fólks séu í húfi. Það er auðvitað bara ömurlegt.“ Reiðarslag fyrir fólkið Signý Jóhannesdóttir, formaður verkalýðsfélags- ins Vöku á Siglufirði, segir starfsmenn hafa verið í hálfgerðu losti eftir fundinn. ,,Hins vegar hefur vinnan verið mjög stopul lengi, það var ekki unnið í vinnslunni nema örfáar vikur frá desember fram í maí. Þetta er því eitthvað sem margir hafa búist við,“ segir Signý, sem kveður ómögulegt að spá um hvort fólk flytjist á brott vegna þessa. „En þetta er eins og að eiga ástvin sem maður veit að á ekki langt eftir ólifað. Það er samt alltaf áfall þegar það gerist á endanum.“ Vildu þreyja þorrann en gátu ekki vegna þorskskerðingar Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson Höfnin 31 verður sagt upp hjá Ramma hf.  Rækjuvinnsla Ramma á Siglufirði lögð niður  „Fólkið er einfaldlega í losti“ VINIR Láru brugðu sér niður í bæ seinnipartinn í gær og léku fyrir utan Hitt húsið á Skólavörustíg. Dúettinn vinnur í sumar sem skapandi sumarstarfshópur á vegum Hins hússins og semur lög við kvæði og vísur ritmeist- arans Þórbergs Þórðarsonar, frá Hala í Suðursveit. Drengirnir láta þó ekki þar við sitja heldur semja sjálfir skenslega popptexta við léttleikandi popplög. Dúettinn skipa þeir Halldór A. Ásgeirsson gítarleik- ari, laganemi og Hanson-aðdáandi, og Einar Aðal- steinsson píanisti, eftirherma og leikaraefni. Morgunblaðið/G.Rúnar Efnilegir popparar gleðja bæjarfara TIL STENDUR að rífa eitt sögu- frægasta hús Fáskrúðsfjarðar, Manon, í dag eða á næstu dögum. Húsið var byggt á þriðja áratug síðustu aldar úr timbri frönsku skútunnar Manon sem strandaði við Skálavík árið 1924, og var ekki sjófær eftir það. Albert Eiríksson, forstöðumaður safnsins Fransmenn á Íslandi, seg- ir menningarslys í uppsiglingu, en búið er að stilla upp vinnuvélum við húsið. Hann segir húsið hafa verið í góðu ásigkomulagi og undr- ast andvaraleysi sveitarstjórnar Fjarðabyggðar, sem heimilaði nið- urrifið án nokkurrar umræðu. Loðnuvinnslan hf. keypti eign- arlóðir Hafnargötu 19 og 21 (Manon) í júní sl. og hefur í hyggju að rífa mannvirki á lóðunum vegna uppbyggingar fyrirtækisins í bæn- um. Albert er að vonum afar vonsvik- inn með ákvörðunina og segist ætla að draga franska fánann í hálfa stöng þegar húsið verður rifið. Manon á Fá- skrúðsfirði rifið í dag? SPURNINGAR hafa vaknað um hvort flugfarþegum sé mismunað af öryggisyfirvöldum á Keflavíkurflug- velli, en þar er nú boðið upp á sér- staka hraðbraut fyrir Saga Class- farþega Icelandair, sem þurfa ekki að fara í sömu röð við eftirlitið og aðrir farþegar. Opinberir aðilar sinna öryggiseftirlitinu og því var leitað svara hjá lögreglu og yfir- mönnum Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar hf. um hver bæri kostnaðinn af slíkri aukaþjónustu. Jóhann R. Benediktsson, lög- reglustjóri á Suðurnesjum, segir hina auknu öryggisþjónustu grund- vallast á þjónustusamningi. Hann neitar því að fólki sé mismunað með því að einhverjir fái hraðari af- greiðslu en aðrir, enda berist emb- ættinu greiðsla fyrir þessa auknu þjónustu samkvæmt samningnum og ekki sé dregið úr þjónustu við aðra vegna þessa. „Þetta er jákvætt mál, en aðalatriðið er að við stöndum ekki í kostnaði út af þessu,“ segir Jó- hann. Kostnaði dreift á aðila Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf., segir þessa auknu þjónustu vera til- raunaverkefni sem standi út ágúst- mánuð. Eftir tilraunina verði metið hver kostnaðurinn af hinni auknu þjónustu er, en ef henni verði haldið áfram beri þeir sem vilji kaupa þjón- ustuna kostnaðinn af henni til fram- tíðar. Á hann þar við flugfélögin. Hvað þann kostnað varðar, sem af tilrauninni sjálfri hlýst, segir Höskuldur hann dreifast á þá aðila sem koma að henni. Það eru Flug- stöð Leifs Eiríkssonar, Flugmála- stjórn á Keflavíkurflugvelli og lög- reglan á Suðurnesjum. Hver kost- ar aukna þjónustu? Jóhann R. Benediktsson Farþegar Saga Class fá forgang í tollinum Höskuldur Ásgeirsson „VIÐ sjáum það í úttekt ASÍ á verslunum sem Nóatún setur sig í flokk með, að Nóatún sker sig veru- lega úr þegar skoðað er tímabilið mars til maí, þar sem Nóatúnsversl- anirnar sýndu hækkun upp á 0,1% á meðan aðrar verslunarkeðjur voru langt yfir því marki,“ segir Bjarni Friðrik Jóhannesson, rekstrarstjóri Nóatúns, um nýlegar verðmælingar verðlagseftirlits ASÍ. Að mati Bjarna þyrfti að skoða fleiri þætti samhliða verðlagi og nefnir hann í því samhengi annars vegar gengisþróunina á umliðnum mánuðum og hins vegar verðhækk- anir frá birgjum sl. hálfa árið. „Við teljum okkur hafa skilað þessum verðlækkunum til neytenda að langmestu leyti. Verðhækkanir frá birgjum eru hins vegar stað- reynd og gengisþróun á íslensku krónunni voru þess eðlis í upphafi ársins að það var ekki til að bæta stöðuna. Þannig að það þarf að horfa á málið frá öllum hliðum.“ Verðbreytingar á tímabilinu des- ember 2006 til maí 2007 sýna að verð hefur lækkað í Nóatúnsversl- unum um 4,6% en Hagstofa Íslands hafði reiknað út að breytingar á op- inberum álögum, þ.e. lækkun virð- isaukaskatts og vörugjalda, ætti að skila neytendum 8,7% lækkun vöru- verðs. Gríðarlegar hækkanir birgja Spurður um þennan mun segir Bjarni að horfa þurfi til gengisþró- unarinnar sem varð frá desember til febrúar, sem hafi verið afar óhag- stæð, og bendir á að gengið hafi fyrst verið að leiðrétta sig á sl. tveimur mánuðum. „Þrátt fyrir að við reyndum að streitast á móti þeim gríðarlegu hækkunum sem urðu hjá birgjum um og upp úr síð- ustu áramótum voru þær þess eðlis að við náðum ekki að sporna gegn þeim og þær fóru út í verðlagið,“ segir Bjarni. Rekstrarstjóri Nóa- túns er þeirrar skoðunar að ótti smásala um að verða gerðir að blórabögglum vegna verðhækkana frá birgjum hafi orðið að veruleika. Fleiri þætti verður að skoða samhliða verðlagi Í HNOTSKURN »ASÍ mældi verðþróun hjáfimm verslunarkeðjum, annars vegar á tímabilinu mars til maí og hins vegar á tímabilinu desember sl. til maí. »Verð hjá öllum keðjumhefur hækkað milli mars og maí, um 0,1-0,8%. »Ekki fengust viðbrögð viðverðmælingunum frá öll- um aðilum að svo stöddu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.